Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Blaðsíða 6
6
DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER1983.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
AÐVENTU-
KRANSINN
BAKAÐUR
er kransinn kældur, kertunum komiö
fyrir og hann skreyttur meö boröum.
______-APH
Jólaglögg:
Yljar um
hjarta-
ræturnar
Aö drekka glögg á tyllidögum fyrir
jól er siöur sem færst hefur nokkuö í
vöxt hérlendis seinustu ár og virðist
leggjast vel í landsmenn. Þessi siöur
hefur veriö lengi viö lýöi hjá frændum
okkar í Skandinavíu. Heyrst hefur að
upphaflega hafi hann oröiö til vegna
vínafganga sem eftir voru eftir jólin.
Tóku menn það ráö að safna saman
öllum afgöngum í einn pott og settu
einnig eilítiö af jólakryddi út í sem til
var í húsinu. Þetta var drykkur sem
þótti velgja vel í norrænum vetrar-
hörkum. Síöar hefur þessi siður færst
aöeins til og nú er venjan aö dreypa á
glöggi fyrir jól.
Þaö eru til margar aðferðir viö aö
búa til þennan drykk. Nú er til í
mörgum verslunum tilbúin krydd-
blanda, sem blandaö er saman viö
rauðvínið. Þetta gerir þaö auðveld-
ara aö búa til glögg. En aö búa til glögg
sjálfur getur tæplega talist flókiö verk
og þaö getur einnig gert þennan siö
mun skemmtilegri.
Hér á eftir kemur ein uppskrift aö
glöggi, en þaö er ekkert sem mælir á
móti því aö menn prófi sig áfram og
geri glögg sem þeim þykir best.
Þaö er aldrei of seint aö búa til aö-
ventukransinn. Til eru margar aö-
ferðir til aö búa þá til. Við rákumst á
þessa aöferö í dönsku blaði og er hún
nokkuð frábrugöin hinum heföbundnu
aðferðum. En þessi aöferð er fólgin í því
aö baka kransinn.
l/21mjólk
50 g ger
1/2 tsk. salt
ll/2dlsykur
1 tsk. kard Imommudropar
100 g smjör
850 g hveiti
Spéspeglar
Penslaö meö hræröu eggi og skreytt
meösykri.
Ef notaö er pressuger þarf aö
leysa þaö upp í volgri mjólkinni og
síöan er saltinu, sykrinum og kardi-
mommudropunum bætt út í. Bræddu
smjörinu er síöan bætt út í og hveit-
inu smátt og smátt blandaö saman
við. Deigiö á aö vera þaö mjúkt aö
þaö sé auðvelt að flétta þaö. Eftir aö
hafa hnoðað deigið vel saman er því
skipt íþrjá jafnahlutasemerrúllaö
upp í aflangar lengjur. Lengjumar
eru síðan fléttaðar saman eins og
amma gamla geröi viö flétturnar í
hárinu. Eftir aö hfa búiö til
myndarlega fléttu er búinn til
hringur eða kransinn. Hann er
síðan látinn lyftast í einn tíma undir
viskustykki. Aö því loknu er krans-
inn penslaöur meö eggi og sykri
stráð yfir. Hann er svo bakaður í ofni
í 15—20 minútur við 225°C hita. Síðan
Vinsamlegast ATHUGIÐ
Vegna ofurálags á auglýsingadeild og
íprentsmiðju nú í desember
vi/jum við biðja ykkur um að panta auglýsingar
og skila handritum, myndum
og filmum fyrr en nú
L OKA SKiL fyrir stærrí auglýsingar:
VEGNA MÁNUDAGA
fyrirkl. 17 fimmtudaga,
VEGNA ÞRIÐJUDAGA
fyrirki. 17 föstudaga,
VEGNA MIÐVIKUDAGA
fyrirkl. 17 mánudaga,
VEGNA FIMMTUDAGA
fyrirkl. 17. þriðjudaga,
VEGNA FÖSTUDAGA
fyrir kl. 17 miðvikudaga,
VEGNA HELGARBLAÐS I
fyrirkl. 17 fimmtudaga,
VEGNA HELGARBLAÐS II
fsem er eina fjórlitablaðið)
fyrirkl. 17 föstudaga,
næstu viku á undan.
Auka/itir eru dagbundnir.
Með jólakveðju.
Auglýsingadeild
LSÍÐUMÚLA 33, REYKJAVÍK SÍMI91 27022. J
varhugaverðir
Þaö eru margvísleg erindin sem
neytendur koma meö til okkar. Mest
ber á kvörtunum yfir slælegri þjónustu
eöa vörusvikum aö mati neytenda.
Fæst þessara mála komast hér á síöur
blaðsins, vandamálin leysast mjög oft
áður en til birtingar kemur. Rétt er aö
taka fram aö erindi jákvæös eölis ber-
ast einnig hingaö.
Eitt hefur okkur borist til eyma af
nokkrum aöilum sem athugandi er aö
benda neytendum á. Segjum viö aðeins
frá þessu til varnaðar, ekki til aö
hengja bakara fyrir smiö. Okkar
heimildarmenn telja fullreynt aö í
sumum fataverslunum, í búnings-
klefum, til dæmis þar sem viðskipta-
menn máta fatnað, séu spéspeglar. I
þeim speglum birtist spegilmynd
viöskiptavina „íturvaxnari og grennri”
en efni standi til. Þar af leiöandi veröi
viðskiptavinurinn hæstánægður með
flíkina sem hann mátar og sjálfan sig.
En dapur raunvemleikinn birtist svo
þegar heim er komiö og mátaö er aftur
og litið í heimilisspegilinn.
„Sölutrikk” af þessu tagi, ef þau
viðgangast, eru hvimleið, vægast sagt.
Hafi neytendur grun um aö þeir hafi
„lést” um nokkur kíló í innkaupa-
leiðangrinum er rétt aö hafa þann var-
ann á aö geta skilað fatnaöinum næsta
dag. Yfirleitt er þeirri málaleitan vel
tekið í fataverslunum.
-ÞG
Orkusparnaður:
Lán veitt til
endurbóta húsa
I seinasta fréttabréfi sem Orku-
stofnun lét frá sér fara er bent á aö
tvær leiöir séu til til að minnka
greiöslubyröar húseigenda vegna sí-
hækkandi orkukostnaðar. önnur
leiðin er aö niöurgreiöa orkuna en
hin aðgerðir sem miöa aö því aö
minnka orkunotkunina. Seinni leiöin
er talin vera skynsamlegri vegna
þess aö sú fyrri er einungis skamm-
tímalausn. Aögeröir sem hafa í för
með sér orkuspamað hafa hins veg-
ar langtímaáhrif.
I könnun er gerð hefur veriö á
ástandi húsa hérlendis kemur í ljós aö
mörgu er ábótavant hvaö varöar ein-
angrun húsa. Þaö eru margar leiöir
sem húseigendur geta valiö til að
minnka orkukostnaðinn og sem hafa
tiltölulega lítinn kostnað í för meö
sér.
Húsnæðisstofnun ríkisins veitir lán
til endurbóta á húsum. Og ættu sem
flestir sem hyggja á endurbætur aö
kynna sér þessi lán nánar.
Umsóknum um slík lán ber að skila
fyrir 1. janúar, 1. apríl, 1. júlí og 1.
októberárhvert. -APH
Glögg
3 flöskur rauðvín
2 stk. heilar kanelstangir
6—7 heilir negulnaglar
1 msk. kardimommudropar
11/2 dl sykur
börkur af sítrónu
1— 11/2 di koníak, viskí, vodka
efta annar spíri
3 dl púrtvín efta
svipaft vín
lOOgmöndlur
2— 3 dl rúsínur
Hitið upp hálfa flösku af rauðvíni í
litlum potti og látið í kanel,
negulnaglana, kardimommudropana,
sítrónubörkinn (niöur rifinn) og
sykurinn og látið þetta standa og
trekkja í minnst einn tíma. Síöan er
þetta síaö í stóran pott og rúsínunum
bætt út í. Þaö fer vel á því að gera
þetta í tæka tíö. Síöar er niðursöxuöum
möndlunum bætt út í og afganginum
af víninu. Síðan er allt hitaö upp aö
suöumarki. Þaö má alls ekki sjóöa því
þá gufar spírinn upp. Aö þessu loknu er
drykkurinn tilbúinn og hann borinn
fram í glösum með skeið í til aö hægt sé
aö fiska upp möndlurnar og
rúsínumar. Þessi uppskrift ætti aö
duga 10—12 gestum en þaö fer einnig
eftir því hversu sólgnir þeir eru í
drykkinn.
Þaö vínmagn sem ráðlagt er aö nota
er ekki svo nákvæmt. Þaö er undir
hverjum komið hversu mikið er notaö.
Mikilvægast er að „uppistaöan” sé
notuö, þ.e. rauövín, negulnaglar,
kanill, kardimommur, möndlur og
rúsínur.
Glögg má einnig búa til úr óáfengu
rauðvíni og sleppa sterku drykkjunum
fyrir þá sem ekki vilja áfenga drykki.
Einnig er hægt að nota óáfengt rauövín
meö sterku drykkjunum. Oáfengt
rauövín er fáanlegt í mörgum mat-
vöruverslunum og er ódýrara en
áfengt rauövín.
Einnig er venja aö nota ódýrt
rauðvíníglögg.
-APH.