Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Blaðsíða 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER1983. 31 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Einsdæmi Nýi veitingastaðurinn, Gaukur á Stöng, hefur aflaö sér mikilla vinsælda. Þar er, sem kunnugt er, selt öl sem hefur verið blandað sterkarl veigum tll að koma því upp í æskttegan styrkleika. A dögunum var staddur hér Breti einn og þótti bonum þessi vínmenning athyglis- verð. Sagðl hann að Gaukur é Stöng væri líkast til eina krá- in i heimi þar sem væri löng biöröð fyrir utan en enginn bjór inni. „Slysið" á Sel- fossi Það gerist vissulega ýmis- iegt merkttegt sem ekki kemst í hámæli. t nýjasta Samúel er til dæmis sagt frá sérkennttegu atviki sem gerðist á Seifossi í sumar, nánar ttttekið í útibúi Lands- bankans. Þar kom i ljós, við uppgjör eftir lokun, að það vantaði heilar 150 þúsund krónur i kassa eins gjaldkerans. Mönnum brá að vonum og var þegar hafin umfangsmik- U lelt. En aUt kom fyrir ekki. Viðkomandi gjaldkeri var að vonum óhress með atburðinn og daginn eftir peninga- hvarfið datt bonum i hug að fara út á sorphauga bæjarins og athuga rusUð frá bankan- um. Og vltl menn. Hann hafði ekki rótað lengi þegar hann fór að finna 500 króna seðla á stangli. Hann kvaddi aðstoðarmenn strax á staðinn og þegar þelr höfðu rótað góða stund voru 90 þúsund krónur komnar í leitirnar. Nokkru síðar gáfu nokkrir smóstrákar sig fram með fimm tU tiu þúsund ttt viðbót- ar sem þeir höfðu fundið. Það eru því um 50 þúsund krónur sem enn Uggja kirfUega grafnar á sorphaugunum á Selfossi og eiga sennilega aldrei eftir að koma í leitlm- ar. Um 150 þúsund krónur lentn ó sorphaugunum ó Selfossl. Fræðin snjöll Ýmsir sem starfa að upp- eldis- og kennslumálum urðu ekki litlð hlssa yfir miklum sannleik sem var opinber- aður í afmæUsriti helguðu Matthiasi Jónassyni áttræð- um, Mál og menning, Reykja- vik 1983. Meðal annarra rltar þar Sigriður Þ. Valgelrsdóttir prófessor í Kennaraháskóla tsiands. Hún kaUar grein sina „MælingalUtan Raschs og gerð prófa.” Þaðan er eftir- farandi: „1 fyrsta lagi er gert ráð fyrir að þeir sem búa yfir mikUli hæfni séu liklegri ttt að svara rétt fleiri prófatriðum en þelr sem ráða yfir minni hæfnl. 1 öðru lagi er gengið út frá því að próftaki sé líklegri tU að svara rétt léttum próf- atriðum hcldur en erfiðum prófatriðum.” — „Hátt þyngdarstig táknar að próf- atriðl sé erfitt og lágt þyngdarstlg að prófatriði sé létt.” — „Svo sem getið var hér á undan em hinar sál- fræðUegu röksemdir fyrir likaninu þær áð þeir hæfari séu líklegri tU að svara verk- efnum en þeir sem em taldir lélegir og að auðveldara sé að svara léttum atriðum en erfiðum.” Allir fá endur- skin Aldraðir Kópavogsbúar, sem eiga erindi á HeUsu- gæslustöðlna í bænum, fara þar aUs ekkl erindisleysu þessa dagana þótt heUsufarið batnl svona og svona. Sá siður hefur verið tekinn upp á stöðinni i tUefni af norrænu umferðarörygglsári að gefa hverjum öldmðum gestl endurskinsmerkl að heim- sókn lokinni. Það fer líka betur á þvi að menn komist slysalaust heim af heUsugæslustöðlnnl. Skilgreining TU ero margar skondnar og skemmtiiegar skUgrein- ingar á ýmsum hugtökum. Framhjáhald hefur tU dæmis heyrst skUgreint þannig aö það sé einfaldlega rangur maður á réttum stað... .. .rangur maður á réttum stað. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. rv Nýjar bækur Nýjar bækur Minningar / Skoðanir Einar Jónsson Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur gefið út bókina Minningar/Skoð- anir eftir Einar Jónsson myndhöggv- ara. Þetta er ævisaga listamannsins og var áður gefin út í tveimur bindum árið 1944 en kemur nú fyrir sjónir les- enda í einni bók. Einar Jónsson (1874—1954) er braut- ryðjandi íslenskrar höggmyndalistar. Hann hlaut Ustmenntun sína í Kaup- mannahöfn í lok 19. aldar og sýndi fyrst opinberlega þar í borg árið 1901. Fram til ársins 1920, er hann fluttist al- kominn til Islands, var hann lengst af búsettur í Kaupmannahöfn en einnig í Róm, Berlín, London og Bandaríkjun- um. Árið 1923 var opnað Listasafn Einars Jónssonar sem þjóðin reisti yfir verk hans og var það fyrsta listasafn til sýnis almenningi á Islandi. Minningar/Skoðanir er 348 bls. aö stærð. I bókinni eru margar myndir og aftast er skrá yfir mannanöfn. Bókin var sett og prentuð í Prentsmiðju Árna Valdemarssonar og bundin í Bók- felli hf. Enn er von — handbók piparsveinsins tJtgáfufyrirtækið Fjölsýn hefur gefið út bókina Enn er von — handbók pipar- sveinsins eftir Eric Weber í þýðingu Baldurs Hólmgeirssonar. I bókinni er að finna ráöleggingar tíl piparsveina um hvernig fara skuU á fjörurnar við kvenfólk. Enn er von hefur hlotið frábæra dóma hjá erlend- um bókagagnrýnendum og hefur verið þýdd á f jölmörg tungumál. Meðal efnis í Enn er von má nefna: Viðtöl við 25 þokkagyðjur um „áhrifa- ríka” þætti í fari karlmanna. Urmul heppUegustu upphafssetninganna. Ráðleggingar til fráskilinna. Hvernig fá skal kvenfólk tU að leita á sig. Hvar heppilegast er að fara á fjörurnar við kvenfólk og margt fleira. Bókin er fUmusett og prentuð hjá Prentsmiðju Friðriks Jóelssonar í Hafnarfirði en þýðandi bókarinnar, Baldur Hólmgeirsson, setti texta og braut um. Enn er von — handbók piparsveins- sin er 160 bls. að stærð og kostar kr. 375. PÉTUR ZOPHONÍASSON VIKINGS LOOARÆm NIÐJATAl GUORIÐAR CYjOLFSDOTTUR OG BJARNAHALl DORSSONAfl HREPPSTJOWA A VIKINGSLÆK. I KUQGSJA SKUGGSíA Víkings- lækjarætt I Pétur Zophoníasson Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur gefið út fyrsta bindið af nýrri út- gáfu af Víkingslækjarætt, niðjatali Guðríðar Eyjólfsdóttur og Bjarna HaUdórssonar, hreppstjóra á Víkings- læk. Þetta er verk Péturs Zophonías- sonar ættfræðings, sem var ekki gefið út nema að hluta til á sinni tíð, fjögur hefti 1939-1943 og eitt hefti 1972. Drög Péturs Zophoniassonar að síðari hluta niðjatalsins, sem tU eru í vélriti Zophoníasar sonar hans, verða nú fuUunnin og búin til prentunar svo aö aUt verkið verði gefið út, eins og til stóð í upphafi. Miklu fleiri myndir verða í nýju út- gáfunni en hinni eldri og myndir í hverju bindi einungis hafðar af því fólki sem þar er nefnt. Hvert bindi verður sér um blaðsíöutal. Ráðgert er að allsherjarnafnaskrá verði í loka- bindi útgáfunnar. Víkingslækjarætt I er 276 bls. að stærð. Bókin var filmuunnin og prentuð í Steindórsprenti hf. og bundin í BókfelU hf. Aukið endingu rafgeymisins með því að nota MAXILIFE NÝJUNG - ALUMANATION 101. Hvað eyðir þú miklu af launum þínum i orkureikninga? Orkusparnaðarefnið ALUMANATION 101 sem farið hefur sigurför um allan heim. Nú loksins getum við boðið það hér á Islandi. Þetta er fljótandi efni sem innUieldur ál og mun því endurkasta hita- geislanum t.d. á bakvið ofna og iUa einangraða veggi og gólf. Það hefur sannast með rannsóknum að þetta er ein ódýrasta hitataps vörn sem um getur í orkusparnaöi í dag. Auðvelt er að vinna með efninu, t.d. með pensU eða rúlla því á. Sendum í póstkröfu um land allt. Upplýsingar gefur Gunnar F.E. Magnússon múrari i sima 2-0623 kl. 12-14 og eftir kl. 18. Réttarhöldin eftir Franz Kafka: Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur gefið út skáldsöguna Réttarhöldin (Der Prozess) eftir tékkneska gyðing- inn Franz Kafka í þýöingu feðganna Ástráðs Eysteinssonar og Eysteins Þorvaldssonar í tilefni af aldarafmæli höfundar á Uðnu sumri. Er hér um að ræða eina frægustu skáldsögu heims- bókmenntanna, en frumútgáfa hennar kom út á þýsku 1925 ári eftir andlát Kafka. Franz Kafka (1883-1924) lifði hljóð- látu og fábreyttu lífi. Hann var lög- fræðingur að mennt og starfaöi lengst af á skrifstofu vátryggingarfyrirtækis í Prag, en lagði stund á ritstörf í tóm- stundum og tókst þar á við lífsangist, lífsflótta og lífstilgang sinn. Lét hann eftir sig þrjár skáldsögur í handriti er hann lést fertugur að aldri úr tæringu á heilsuhæli skammt frá Vínarborg, en vinur hans Max Brod gaf þær út. Áttu þær heimsfrægð í vændum og mun Héttarhöldin þeirra víðkunnust og viðurkenndust, en hún var samin 1914-15. Þýðendur rita eftirmála að bók- ■inni þar sem fjallað er um verkið, höfundinn, túlkun sögunnar og þýöing- una. Loks er getið helstu heimilda þeirrar greinargerðar. Réttarhöldin er 293 blaðsíður að stærð og bókin sett, prentuð og bundin í prentsmiðjunni Eddu. Sigurður örn Brynjólfsson gerði kápu en teikning á henni er eftir Franz Kafka. Réttar- höldin er gefin út með styrk úr Þýðingasjóði. KJOTMIÐSTOÐIN Laugalæk 1. s. 86511 , Lambahamborgarhryggir | London lamb Úrbeinað hangilæri Úrbeinaður hangiframpartur Hangilæri | Hangiframpartur Söltuð rúllupylsa Reykt rúllupylsa 1/2 folaldaskrokkar, tilbúnir í frystinn Opið alla daga til kl. 19. Opið laugardag til kl. 16. Alltaf opið í hádeginu. okkar verð nýja verðið 128,00 224,00 kr. kg 158,00 296,00 218,00 331,00 148,00 234,00 128,00 218,00 85,15 120,15 60,00 127,00 75,00 127,00 79,00 KREDITKORT h ■ VELKOMIN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.