Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Síða 2
DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER1983. = ^ /JOD a o (i n Stubbur spyr: Var ekki fram- haldsmyndafiokkur um þig i sjón- varpinu fyrir skömmu? Stubbur heldur tónajól — Jólagetraun DV, 1. hluti Eins og Stubbur sagði frá í DV í gær ætlar hann að bjóöa lesendum blaðsins í ferðalag víðsvegar um heiminn og saman ætia þeir svo aö reyna aö þekkja tónverk ýmissa frægra tónskáida. Nú er ferðalagið hafið og stendur í 10 daga. Þátttak- endur eru beðnir um að krossa við rétta svarið dag frá degi og senda síðan allar lausnirnar saman i einu umslagi merkt DV, jólagetraun, Síðumúla 14, R. Stórglæsileg verðlaun eru í boði, APPLE-tölva, takkasímar og fjöl- mörg nuddtæki af bestu gerð. Skila- frestur er til 30. desember og Stubb- ur dregur úr réttum lausnum á þrettándanum, 6. janúar. A fyrsta degi ferðarinnar er Stubb- ur kominn upp á svið ásamt frægu tónskáldi, víkingum og öðrum furðu- skepnum. Og þá er spumingin, hvaöa verk er þama á fjölunum og hvert er tónskáldið? A. □ Richard Wagner, Lohengrin. B. □ Mozart, Brúðkaup Fígarós. C. □ Jean Sibelius, Finlandia. DV og Stubbur halda tónajói — 1. hluti. IMafn.................................. Heimili................................ Slmi ................................ LEIKFANGAVERSLUNIN AUSTURSTRÆTI8 SÍIVI113707. ísrtttrttf- tiriiertif: ’M&rtBWssr Kfiri 3 SírSzíSm : i í, i * Breyting á lög- um um tekju- og eignaskatt — skatthlutfall af hæstu tekjum lækkar um 5% en af lægstu tekjum um 2%. Skatthlutfall fyrirtækja lækkarum 14% Lagafrumvarp um breytingu á lögum um tekju- og eignaskatt var lagt fram á Alþingi í gær. Meginregla frum- varpsins er sú að upphæðir sem fylgja skattvísitölu hækka um 54% frá álagningu ársins 1983 og er það i sam- ræmi viö áætlaða hækkun meðaltekna milli áranna 1982 og 1983. Álagning tekjuskatts mun hækka um 20% miðaö við launaforsendur fjárlagafrum- varpsins fyrir árið 1984. Frumvarpiö gerir ráð fyrir að af fyrstu 170 þúsund krónunum af tekju- skattsstofni einstaklinga skuli reikna 23% skatt, af næstu 170 þúsundum reiknast 32% en af tekjuskattsstofni yf- ir 340 þúsund krónum reiknast 45%. Frá þeirri fjárhæð skal síðan draga persónuafslátt að upphæö 29.350 krónur. Tekjuskattur af tekjum bama skal vera 5% og skulu þau ekki njóta persónuafsláttar. Þórshöfn: Full atvinna Frá Aðalbimi Aragrfmssyni, frétta- ritara DV á Þórshöfn. Atvinnuástand á Þórshöfn er mjög gott um þessar mundir. Togarinn Stak- fell kemur alltaf með góðan afla að landi og hefur haldið uppi fullri at- vinnu. Bátaafli er hins vegar tregur. -GB Barnabætur skulu samkvæmt frumvarpinu hækka um 20% til sam- ræmis við áætlaða tekjuhækkun milli áranna 1983 og 1984. Þannig skulu barnabætur nema 6 þúsund krónum með fyrsta bami en 9 þúsund með hverju bami umfram eitt. Bamabætur með börnum einstæðra foreldra skulu þó vera 12 þúsund krónur með hverjd bami án tillits til bamafjölda. Fyrir böm yngri en 7 ára skulu baraabætur þó vera 6 þúsund krónuni hærri en framangreindar upphæðir. Frumvarpið gerir ráð fyrir að skatt- hlutfall eignaskatts verði lækkað jafnt hjá einstaklingum og félögum úr 1,2% í 0,95%. Skattfrjáls eign einstaklinga verði nú 780 þúsund krónur og greiðist því 0,95% eignaskattur af því sem umfram er þá upphæð. Stofnanir og fyrirtæki skulu greiða 0,95% eigna- skatt af eignaskattsstofni en tekju- skattur þeirra skal vera 51% af tekju- skattsstofni. Samkvæmt frumvarpinu lækkar tekjuskattur fyrirtækja og stofnana mest eða úr 65% í 51%, tekjuskattur af skattstofni yfir 340 þúsund krónum lækkar úr 50% í 45%, af tekjuskatts- stofni á bilinu 170 þúsund til 340 þúsund lækkar tekjuskattur úr 35% í 32% og af tek juskattsstofni innan við 170 þúsund krónur lækkar tekjuskattur úr 25% í 23%. ÖEF JÚLAKORTIN MEÐ ÞINNIEIGIN MYND eru persónuleg og hlýleg jólakveðja. 13 kr. stk. — Pantið tímanlega. LJOSMYNDAÞJÓNUSTAM, LAUGAVEGI 178 SIMI 85811.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.