Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Síða 4
4
DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER1983.
Víkingur gefur út happdrættisdagafal:
ANDVIRÐIVINNIN6A 5,5 MILUONIR
Blakdeild Víkings hefur gefiö út
happdrættisdagatal fyrir áriö 1984.
Vinningar veröa dregnir út daglega
allt áriö, en andvirði þeirra nemur
samtals 5,5 milljónum króna.
Dagatöl Víkings eru þannig úr garöi
gerö að viö hvem mánaðardag er
happdrættisnúmer. Á hverjum degi
veröur dregiö úr númerunum hjá
borgarfógeta og vinningsnúmer birt.
Fyrsta hvers mánaðar verður dregin
út bifreið af gerðinni Datsun Micra.
Meðal vinninga eru einnig hljóm-
flutningstæki, myndsegulbandstæki,
íþróttavörur og leikföng svo að eitt-
hvað sé nefnt.
Dagatalið mun fást hjá flestum
íþróttafélögum á landinu, og hefst
dreifing til þeirra nk. mánudag. Einnig
í bókaverslun Pennans, Bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar og bókaklúbbi
Almenna bókafélagsins. Þeir sem hafa
áhuga á að panta dagatal til endursölu
geta haft samband viö Bjöm Guð-
bjömsson í síma 20068 eða vs. 24349.
Hvert dagatal kemur til með að
kosta kr. 300, en af þeirri upphæð
renna 100 krónur til þeirra aðila sem
sjá um söluna. Vinningsnúmer munu
birtast fljótlega eftir að dráttur hefur
farið fram og veröa þau meöal annars
birt daglega á baksíðu DV undir
heitinu „Lukkudagar”, en þaö nafn
hafa Víkingsmenn gefið happdrættinu.
-JSS
Fyrsta hvers mánaðar verður dregin
út bifreiö af gerðinni Datsun Micra
sem sést hér á myndinni.
Það má búast við hörku keppnl i borðtennismóti skóla og félagsmiðstöðva sem
haldið verður á vegum Æskulýðsráðs á Kjarvalsstöðum í dag.
Æskulýðsráð Reykjavíkur:
BORÐTENNISMÓT OG
HUÓMSVEITAKYNNING
Á KJARVALSSTÖDUM
Rússar
keyptu karfa-
birgðirnar
— kaupa 23 þúsund
tonn af frystum
sjávarafurðum
á næsta ári
Fulltrúar SH og Sjávarafurða-
deildar SÍS gengu nýverið frá
samningum á sölu frystra sjávar-
afuröa til Sovétríkjanna á næsta
ári upp á 23 þúsund tonn, sem em
efri mörk almenns viðskiptasamn-
ings á milli landanna.
DV skýrði nýlega frá miklum
karfabirgðum í umbúðum fyrir
sovétmarkað. Árni Finnbjömsson,
fulltrúi SH í samningunum, sagði í
viðtali við DV í morgun að allar
þær birgðir og gott betur væm nú
seldar þannig að svigrúm yrði fyrir
þessa vinnslu eitthvað fram á
næsta ár. Þá er Bandaríkja-
markaður aö opnast æ meira fyrir
karfaflökum.
Samningurinn hljóðar upp á 17
þúsund tonn af ýmsum flökum,
aöallega karfaflökum og 6 þúsund
tonn af heilfrystum fiski, aðallega
grálúöu og öðrum flatfiski.
Að sögn Áma var verðið skaplegt
þótt örlítil lækkun hafi orðið á
nokkrum vöruflokkum. Samið væri
í dollurum og dollarinn hefði
styrkst frá því í fyrra.
GS
Borðtennismót skóla- og félagsmið-
stöðva hefst í dag klukkan 16.30 á
Kjarvalsstöðum. Mótið er liður í
kynningarviku Æskulýðsráðs Reykja-
víkur sem nú stendur yfir á Kjarvals-
stöðum. Keppt verður bæði í stúlkna-
og piltaflokkum og stendur keppnin í
tvodaga.
Æskulýðsráð hefur lengi boðið
nemendum í grunnskólum borgarinn-
ar upp á þjálfun í borðtennis og hefur
sú grein verið einna vinsælust af þeim
sem í boði em. Nú í vetur em 30 flokk-
ar með um 400 þátttakendum.
Ánnað sem er á dagskránni í kvöld
er spurningakeppni félagsmiðstöðva
og hefst hún klukkan 20.15. Að henni
lokinni verður hljómsveitakynning.
Ymsar áður óþekktar hljómsveitir
koma fram ásamt gestum kvöldsins
sem em Frakkamir.
I hléi verður vinsældalisti Reykja-
víkurvalinn.
Aðgangur að öllum dagskráratriöun-
umerókeypis. -sþs
Tillaga um
þ jóðaratkvæðagreiðslu um öl:
ÓLÍKLEGT AÐ HÚN
VERÐIFLUTT
r
FYRIR JOL
— segir Stefán Benediktsson
Stefán Benediktsson sagði í sam-
tali viö DV að hann myndi líkast til
mæla með tillögu Magnúsar H.
Magnússonar og fleiri til þingsálykt-
unar um almenna atkvæðisgreiöslu
um áfengt öl, þar eð Magnús H.
Magnússon sat aöeins á þingi sem
varamaður, þegar tillagan var borin
fram. Sagði Stefán Benediktsson að
óvíst væri hvemær tillagan yrði tek-
in fyrir og þætti honum líklegt aö það
yrði ekki fyrir jól, þar sem svo mikið
af öörum málum biði umf jöllunar.
„Mér finnst á mönnum aö þeim
þyki þessi tillaga um almenna at-
kvæðagreiðslu um áfengt öl með
minniháttar málum. Menn em ekk-
ert ógurlega uppnæmir fyrir að þetta
verði tekið strax til umfjöllunar,”
sagöiStefán.
— Meinarðu að það sé almennt álit-
ið að langt sé í næstu kosningar?
„Það má segja það,” svaraði þing-
maðurinn. H.Þ.
Stefán Benedlktsson alþinglsmaður.
í dag mælir Dagfari_____________j dag mælir Pagfari ______ I dag mælir Dagfari
Fyrsti des. og fullveldið
Einu sinni endur fyrir löngu var
fyrsti desember þjóðhátíðardagur
íslendinga. Það var meðan þjóðin
mundi eftir því aö hún hafði einu
sinni orðið fullvalda. Hátíðardagur-
inn þótti tUvalið tækifæri að egna
með þjóðinni hatur á Dönum og
stappa þjóðemishroka í tslendinga.
Nú er Danahatur að mestu fyrir bí og
fuUveldið löngu gleymt. Síðasta ára-
tuginn hefur fyrsti desember verið
prívat eign nokkurra háskólastúd-
enta, sem hafa rifist um það í sand-
kassa, hver skyldi halda ræðu á sen-
unni í Háskólabíói. Þeir hafa meira
að segja efnt tU kosninga um ræðu-
mennina og Morgunblaðinu og
ÞjóðvUjanum hafa það þótt meiri-
háttar pólitísk tíðindi í hvert skipti
sem þeirra maður hefur troðið upp.
Heldur hefur þó hallað á Mogga í
þeim efnum síðustu árin og þjóðin
hefur fyrir löngu sætt sig við að
hlusta á frústreraðan kommalýð
berja bumbur sinar í Háskólabíói
þennan dag.
Þannig hefur fuUveldið að mestu
horfið niður um munngáttina á
trúbadorum og trúboðum Marx og
Lenins og þjóðin er hálfpartin farln
að trúa því að sjálfstæðisbaráttan og
lýðveldiö sé þeim að þakka.
Þjóðsöngurinn hefur þokað fyrir
Nallanum og hvorki forseta tslands
né rektor Háskólans hefur þótt taka
því að eyða eftirmiðdegi í bíóinu tU
að hiusta á kommúnískan heUaþvott.
En svo spurðust þau tíðindi ein-
hvern tímann í haust, Morgunblað-
inu tU ómældrar gleði, að vinstra
liðið í Háskólanum hefði gieymt að
passa upp á fyrsta desember með
þeim afieiðingum að vökustaurar
báru þá ofurliði í kosingum með einu
atkvæði.
Og nú skyldi hátíð haldin og bíóið
fyUt. Nú mátti aftur endurreisa fuU-
veldið og frelsishetjurnar íslensku,
án þess að Karli Marx væri blandað í
það mál.
Borgarstjórinn í Reykjavik var
fenginn tU aö halda hátíðarræðu.
Matthías Johannssen var beðinn um
að lesa upp úr verkum sinum og ungt
tónlistarfólk, sem áreiðanlega er af
góðum íhaldsættum komið, iék verk
eftir Edgar og Scott Joplln með því
viðeigandi heiti: The easy winners.
Stjórn Vöku, sem samanstendur af
fimm góðum sjálfstæðisatkvæðum,
flytjendur ásamt eiginkor.um og
starfslið Valhallar mætti prúðbúið tU
samkomunnar. Börn voru höfð tll
uppfyUingar i sæti tU vonar og yara.
Rektor mættl á nýjan Ieik og for-
stjóri íslenska álfélagsins lagði lelð
sína í Háskólabíé málstaðnum tU
fuUtingis. Ekkert vantaði sem sagt
upp á, að tU væri tjaldað því sem
ihaldlð getur best boðið upp á.
Og þarna biðu fulltrúar fuUveldis-
ins og blðu. En ekki bólaði á þjóðinni.
Sætin stóðu auð.
Davið flutti ræðu um hvað friður-
inn væri góður en friðarhreyfingar
vondar. Matthías las upp eftir stór-
skáldin, sjálfan sig og Tómas.
Músikantar spUuðu Easy winners,
og eiglnkonurnar klöppuðu. Þjóð-
söngurinn var rif jaður upp.
A meðan sátu háskólastúdentar úti
á safni og biöu eftir fimm-bíói.
Þjóðin slökkti á hátiðarútvarpinu og
kveikti á Rás 2. Þar spUaði Þorgeir
Astvaldsson Staying aUve úr Flash-
dance og gerði fuUveldinu skU með
poppþætti.
Að aUri þessari uppákomu lokinni
er vert að velta því fyrir sér, hvort
ekki hefði verið ódýrara fyrir Vöku
og hagstæðara fyrir fuUveldið, éf
þetta eina atkvæði í kosningunum í
haust hefðl setið heima. Þá hefði að
minnsta kosti verið hægt aö halda
því fram áfram, aö kommarnir væru
búnir að eyðUeggja fyrsta des. án
þess að nudda Davíð og Matthíasi
upp úrþvílíka.
Dagfarl.