Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Síða 8
DV.'ÞRIÐJUDA'GUR 6. DESEMBER1983:'
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
ANDROPOV SAGÐ-
UR Á BATAVEGI
OG BYRJAÐUR
AÐ VINNA
Háttsettur Kremlverji sagöi í gær
aö Yuri Andropov, forseti Sovétríkj-
anna, væri á batavegi eftir veikindi.
Ekkert lét hann þó uppi um hvenær
Andropov kæmi fram opinberlega
næst. Andropov hefur ekki sést í þrjá
mánuöi.
Leonid Zamyatin, yfirmaöur alþjóð-
legu upplýsingadeildar flokksins,
sagöi á blaöamannafundi aö Andropov
væri aftur byrjaöur störf. Var þetta
síðan eftir honum haft í sjónvarpinu í
aöalkvöldfréttunum. — Annars er
sjaldan vikiö aö heilsufari leiötoga
Sovétríkjanna í ríkisf jölmiölunum.
Ekki vildi Zamyatin fara frekar út í
þessa sálma undir spumingum
erlendra blaðamanna og vísaði til fyrri
fregna um aö Andropov hefði verið
kvefaður. Sagöist hann hafa þar meö
sagt allt sem unnt væri aö segja opin-
berlega um máliö.
Vakti þetta nokkra undrun erlendu
fréttamannanna sem höföu búist viö aö
óhætt væri aö taka fram aö Andropov
yröi á sovéska þinginu sem kemur
saman 28. desember.
Enn ein bílasprengjan var sprengd í íbúðarhverfi í Beirút í gær en um 80 var bjargað særðum úr brakinu fyrir
myrkur.
Krefjast brott-
farar útlendinga
frá Ubanon
— og sprengdu 300 punda sprengju við f jölbýlishús til að fylgja kröfunni eftir
Af og til kvað við stórskotahríð í
höfuðborg Líbanon í gærkvöldi aö
liönum degi þar sem aö minnsta kosti
14 manns létu lífið í öflugri bíla-
sprengingu sem komið haföi veriö
fyrir við fjölbýlishús.
Um miönættiö dró að mestu úr skot-
hríðinni sem áður haföi lýst upp f jalls-
hlíðamar suðaustur af Beirút. I tvær
klukkustundir í gær haföi veriö linnu-
laus skothríö milli stjómarhers Líban-
onsogdrúsa.
Undir nóttina haföi björgunarsveit-
um tekist aö finna 14 lik og 80 særöa i
rústunum eftir sprenginguna í gær-
morgun. Dularfull samtök, sem kenna
sig viö baráttu fyrir brottför allra út-
lendinga úr Líbanon, hafa lýst
sprengjutilræði þessu á hendur sér.
Segjast þau vilja fylgja eftir kröfunni
um brottflutninga sýrlenska herliösins
úrlandi.
Menn minnast þessara samtaka frá
bílasprengjum, sem sprengdar vom
fyrir utan skrifstofur skæruliöasam-
taka PLO, áður en Þjóðfrélsishreyfing
Palestínuaraba flutti frá Beirút
sumarið 1982.
Bandaríkjastjóm hefur ítrekað að
gæslulið hennar muni verja hendur
sínar í Líbanon þótt hún vildi síöur
dragast inn i átökin þar. George Shultz
utanríkisráðherra sagöi að órækar
sannanir væru fyrir því aö Sýrlending-
um heföi verið vel kunnugt um aö þeir
skutu á bandarískar könnunarflugvél-
ar á laugardag og haföi þeim áöur
veriö tilkynnt um flug vélanna og að
þær væru óvopnaðar.
Perez de Cuellar, framkvæmdastjóri
Sameinuöu þjóðanna, skoraði á alla
málsaöila í Líbanon aö hætta aö beita
hervaldi og treysta heldur friöinn.
Trudeauá
fríðarferð
ísrael fordæmt ffyrir
meðferð borgara á her
námssvæðunum
Ein af nefndum allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna sakar Israel um
stríðsglæpi gagnvart borgurum á her-
numdu svæðunum.
Stjórnmálanefndin afgreiddi
ályktun með 93 atkvæðum gegn tveim
(USA og Israel), þar sem sagt var aö
Israel væri bert að grófum brotum á
Genfarsáttmálanum frá 1949 um vernd
óbreyttra borgara á stríöstímum. Var
þeim lýst sem stríösglæpum og
alvarlegum brotum gagnvart mann-
kyninu.
Tuttugu ríki sátu hjá við atkvæða-
greiöslu þessarar ályktunar, sem er
ein af mörgum þar sem fjallað er um
framkomu Israels á hernámssvæðun-
um.
Ein málsgrein ályktunarinnar, þar
sem tilgreind voru sérstaklega 14
atriöi sem Israel er fordæmt fyrir, var
samþykkt meö 85 atkvæðum gegn 20 á
meðan 10 sátu hjá. Þar á meðal var
innleiðing hemámshéraða í Israelsríki
og vond meðferð og pyndingar á fólki í
varðhaldi.
.. .ein af nefndum allsherjarþings
Sameinuöu þjóðanna fordæmdi í gær
ísraelsstjóm fyrir vonda meðferð á
borgurum á heraumdu svæöunum og
þar með brot á Genfarsáttmálanum
um öryggi óbreyttra borgara á ófriðar-
timnm
Um helgina tilkynnti Pierre
Tradeau, forsætisráðherra Kanada, á
ferö sinni um ríki Persaflóa aö hann
ætlaði aö stuðla að því aö meiri þrýst-
ingi yrði beitt á stórveldin í baráttu til
aðtryggja friöinn.
I Kuwait sagöi Trudeau aö það yröi
aö beita meiri þrýstingi á Bandaríkin
og Sovétríkin til aö árangur næðist í
afvopnunarviðræðum.
Trudeau hóf í október áróðursher-
ferö í þeim tilgangi aö draga úr
spennuástandinu á alþjóðavettvangi.
Megin markmiö baráttu Tradeaus er
aö fá Bretland, Bandaríkin, Frakk-
land, Sovétríkin og Kína til aö hefja
allsherjar viöræöur.
Trudeau sagöi að honum heföi verið
boðið bæði til Moskvu og Washington
en hann ætlaði að fresta heimsóknum
þangaö til niöurstöður lægju fyrir á
ráöstefnu utanríkismálaráöherra At-
lantshafsbandalagsins í næsta mánuði.
Herforingjarnir
afsalasér
völdum í Argentínu
Herforingjastjórn Argentínu hefur
nú leyst sjálfa sig frá störfum og falið
Reynaldo Bignone forseta fullt valda-
umboö áður en hinn nýkjömi forseti
Raul Alfonsin sver embættiseiö sinn á
iaugardag.
Yfirmenn landhers, flota og flughers
komu saman í gær til að undirrita skjöl
þar sem formlega var leyst upp herfor-
ingjaráðið er sett var á laggirnar eftir
valdarániö 1976. Þetta var þó ekki til-
kynnt opinberalega því aö bíða skal
þess að þingiö samþykki formlega hinn
nýkjörna forseta.
Yfirburöasigur Alfonsin í
kosningunum 30. október var slíkur aö
enginn vafi leikur á því að þingið sam-
þykki kjör hans. Bignone forseti mun
síðan af sala sér völdum í hendur Alfon-
sin á laugardaginn næsta.