Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Side 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER1983.
15
Menning
Menning
Hcnni Onnu þykir
svo vænt um Inngafa
sinn.
Anna og langafi
bralla og malla
Langafi druilumallar.
Texti og myndir: Sigrún Eldjárn.
Iflunn, Reykjavfk, 1983,
Sigrún Eldjám er einkar snjall og
hugmyndaríkur teiknari. Hún sendir
nú ungum bókaormum skemmtilega
myndabók sem heitir Afi drullumallar.
Langafi er næstum blindur en hann
passar önnu Utlu 4 ára á daginn þegar
pabbi og mamma eru í vinnunni og til
þess nýtur hann aðstoöar hundsins
Jakobs. Þessi þrjú bralla ýmislegt
saman en hámark frásagnarinnar er
drullumall langafa og Önnu. „Anna sér
strax aö langafi er alveg frábær drullu-
kökubakari. Hann býr ekki til neitt
venjulegar drullukökur heldur alveg
æðislegaflottar.”
Anna hefur langafa útaf fyrir sig,
hann segir sögur og tekur þátt í leikj-
um. Bam sem hefur slíkan félaga er
ekki á flæðiskeri statt, það er gamall
langafi sem hefur barn aö passa ekki
heldur. Það eru víst margar litlar Önn-
ur og margir gamlir afar í þjóðfélag-
inu sem væra ánægðari með h'fið ef þau
hefðu tækifæri til þess aö vera saman
og passa hvort annað eins og Anna og
Bamabækur
Hildur Hermóðsdóttir
langafi gera. Þessi bók minnir okkur á
það.
Texti bókarinnar er hvorki marg-
brotinn né langur en ber vott um góðan
skilning á hugarheimi barnsins og
hæfir vel í myndabók. Eg kom aðeins
auga á einn hnökra í málfari hans.
Samkvæmt minni máltilfinningu er
rangt aö segja svona: „Jakob ratar
hvert hann á aö fara”. . . Er ekki talað
um að rata einhver ja leið eða aö öðmm
kosti vita hvert á a ö f ara?
Myndirnar í bókinni eru eins og
textinn í léttum dúr og vinnsla þeirra
og mótíf einföld. Þær eru skýrar og ná
örugglega vel til þeirra sem þær eru
ætlaöur.
Pappír bókarinnar er góður og
mun duga vel litlum fingrum.
HH.
HVER VAR HANN?
Leer-Slavesen, Paul:
TIL FUIMDAR VIÐ
Jesú frá Nasaret. íslensk þýðing:
Rúna Gísladóttir. Rvik, Æskan, 1983.
Bókaútgáfa Æskunnar hefur hafið
útgáfu á bókaflokki sem nefndur er Til
fundar við.. .. , sem ætlaður er börn-
um og unglingum. Ætlunin er aö þess-
ar bækur f jalli um fólk sem haft hefur
mikil áhrif á aðra sem víðast um heim-
inn á ólíkan hátt og á mismunandi tím-
um. Það sem þessir aðilar eiga allir að
eiga sameiginlegt er að áhrifa þeirra
gæti enn þanri dag í dag.
Jesú frá Nasaret er söguhetja
fyrstu bókarinnar í þessum flokki. Það
er enginn vafi á því að hann hefur haft
gífurleg áhrif á fólk um allan heim og
áhrifa hans gætir enn þann dag í dag.
Þau eru siðferðilegs eðlis fyrst og
fremst og líklega endurspeglast mikil-
vægi hans í þeirri staðreynd aö fjórir
menn sáu ástæðu til að skrá frásagnir
af lífshlaupi hans hér á jörð sem eru
eins og allir vita innihald Nýja
testamentisins.
Bókin um Jesú er norsk og höfundur
hennar er guðfræöingur þar í landi,
Paul Leer—Salvesen aö nafni. Hann
hefur starfað sem fangaprestur og auk
þess skrifað nokkrar bækur fyrir ung-
menni. Þar á meöal er bókin
Vængbrotinn sem hlaut verölaun
norska menntamálaráöuneytisins árið
1981.
Höfundur fylgir nokkurn veginn
þræði frásagnarinnar af lífshlaupi
Krists hér á jörö eins og því er lýst í
Biblíunni. En munurinn er fyrst og
fremst sá á þessari lýsingu og lýsing-
um biblíunnar aö höfundur leitast við
aö skýra ýmis atriði sem lesendur
biblíunnar leiöa kannski ekki hugann
að, og krakkar skilja kannski ekki eöa
vita ekki. Höfundur reynir að lýsa því
aö Kristur hafi verið maöur, ósköp
venjulegur maöur í útliti a.m.k., en
hann hafi búiö yfir einstökum eigin-
Puul
Leer-
SuJvesen ;
ÆSKAN
leikum sem geri það aö verkum að
hans sé minnst enn þann dag í dag sem
eins áhrifamesta einstaklings mann-
kynssögunnar.
Utgáfa ævisagna fyrir börn og ungl-
inga hefur ekki mikiö verið stunduð
hér á landi. Þó minnist ég bókaflokks
sem Setberg gaf út og fjallaði um
merka menn. Þess vegna áUt ég gagn-
legt og skemmtilegt að reyna að fylla
aðeins upp í það tómarúm sem fyrir
hendi er á markaðinum. En það veröur
aö segjast eins og er aö það aö ætla aö
gera jafnstórbrotnum og áhrifamikl-
um manni, eins og Kristur hlýtur að
hafa veriö, á 104 blaösíöum, skil.
er mikil bjartsýni. En áhrif bókar-_
innar hljóta að vera þau aö lesendur
velti þessum manni fyrir sér og reyni
að gera sér einhverja grein fyrir hon-
um og því hvaða áhrif hann hefur haft
á heimsbyggðina.
Þýðing Rúnu Gísladóttur er aö
minni hyggju allgóö, en aöeins virðist
mér þó bera á stirðu málfari sums
staðar. En slíkt er kannski óeölilegt aö
gagnrýna, aö frumtextanum óséðum.
sh
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 87., 92. og 95. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni hesthúsi við Kaldárselsveg Hafnarfirði, tal. eign Hallgríms
Jóbannessonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar og Péturs
Kjerúlf hdl. á eigninni sjálfri f östudaginn 9. desember 1983 kl. 14.45.
Bæjarfógetinn í Hafnarf irði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 87., 92. og 95. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni fasteign við Krisuvikurveg Hafnarfirði, tal. eign Gísla
Þorkelssonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni
sjálfri f östudaginn 9. desember 1983 kl. 14.15.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 87., 92. og 95. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni fasteign við Krísuvikurveg Hafnarfirði, tal. eign Fisko hf„
fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfri föstudaginn
9. desember 1983 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarf irði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 87., 92. og 95. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni fjárhúsi við Kaldárselsveg Hafnarfirði, tal. eign Trausta
Tómassonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni
sjálfri f östudaginn 9. desember 1983 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarf irði.
DREKAROG
smAfuglar
NÝ SKÁLDSAGA EFTIR
ÓLAF JÓHANN SIGURÐSSON
driíkar
0(í SMÁFUGLAR
■
í þessari miklu skáldsögu leiðir höfundur til lykta sagnabálk sinn af Páli
Jónssyni blaðamanni, sem hófst með Gangvirkinu (1955) og hélt áfram
með Seiði og hélogum (1977).
Einn örlagaríkasti tími í sögu þjóðarinnar er magnaður fram í andstæðum
fortíðar og nútíðar, þjóðhollustu og þjóðsvika. Lesendur fá loks að vita
full deili á Páli Jónssyni og um leið er brugðið upp margbrotinni mynd
af íslensku þjóðlífi á fimmta áratugnum þar sem kímilegar persónur og
atvik fléttast inn í alvöruþrungna samfélagskrufningu.
Ritsafn Ólafs Jóhanns Sigurðssonar
ómissandi í bókasafnið.
Mál
cjefum qóðar bcekur
og menning