Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Síða 35
DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER1983. DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL Allir gluggar opnir og Þarmagustar gefa frá sár þrumu „sound". Hljómsveitina skipa talið frá vinstri: Haiidór Jónsson bassi, Sólon Ragnarsson synthesizer (hljóðgervill), Rikharð Fleming Jensen trommur, Ingólfur Örn Steingrimsson gitar og Pótur Jónsson gítar. ÞARMAGUSTAR SPILA ÚT í VEÐUR OG VIND — „skothelt” viðtal við Þarmagusta úr Kópavogi Þaö veröur aö viöurkennast að Dægradvölin kváöi þegar hún heyröi fyrst minnst á hljómsveitina Þarma- gusta úr Kópavogi. Og ekki varö hún minna undrandi er í ljós kom aö eitt laga sveitarinnar heitir Ot í veður og vind. Þetta var eitthvaö fyrir Dvölina. Upp á Þarmagustum varö hún aö hafa. „Þeir eru á æfingu núna í Þinghóls- skóla,” var okkur sagt. Við þangað. Þegar viö mættum var alit á útopnu. Sveitin greinilega í stuöi, „og jú, jú, þeir vorutilírabb”. „Ja, nafnið. Þaö kom bara skyndi- lega upp á,” svöruöu þeir örlítið undr- andi. „Var þaö ekki annars Pétur sem kom meö þaö? ” bætti einn þeirra viö. Byrjaði sem „skólaband" Þarmagustamir eru fimm talsins, allir úr Kópavogi. Þeir stunda nám í Þinghólsskólanum í áttunda og níunda bekk. Og „bandiö” byrjaði líka einmitt sem „skólaband”. Hljómsveitina skipa Rikharö Fleming Jensen trommur, Sólon Ragnarsson synthesizer (hljóðgervill), Pétur Jónsson gítar, Ingólfur öm Steingrímsson gitar og Halldór Jóns- son bassi. Hljómsveitin var stofnuð fyrir þrem- ur mánuðum. „Þetta átti upphaflega aö vera flippband og risaband, skipaö um tólf mönnum meö tvö trommusett, f jóra gítara og allt í þeim dúr.” „En æfingarnar fóru eingöngu í að stilla gítara þannig aö þetta datt upp fyrir og við ákváðum aö fækka í hljóm- sveitinni.” í grúppunum Sex, IMippon og Te fyrir tvo Þeir hafa allir veriö í öörum grúpp- im áður eins og til dæmis Sex, Nippon og Pétur er reyndar enn trommuleik- ari hljómsveitarinnar Te fyrir tvo. En hvaö æfa Þarmagustamir oft? „Þaö er nokkuð misjafnt. Stundum á hverjum degi en stundum koma hlé á milli. Viö æfum þó örugglega um tólf kvöld í mánuði.” Nokkrir þeirra eru stundum í hand- bolta, einn í hestamennskunni og þá grípa þeir oft í borðtennisspaöa. „En hljómsveitin er þó aöalhobbíiö okkar.” Eitt laga Þarmagusta nefnist 17—11. Sú nafngift kom er þeir Rikki og Ingó voru aö spila borðtennis í „opnu húsi” í Þinghólsskóla. Pétur kom aö og kallaði til þeirra hvort þeir heföu ekki gott nafn á tak- teinum. Þeir Rikki og Ingó héldu aö hann væri aö spyrja um stööuna og svömöu 17—11. Þar með var nafniö komiö. Lög Þarmagusta eru „instru- mental" „Þú mátt endilega geta þess aö þaö var ég sem var yfir,” skýtur Rikki inn í. . Lög Þarmagusta eru „instru- mental” eins og það er kallað. Ekkert sungið. — Hvers vegna? „Viö höldum því nú fram aö þaö sé ekki til nógu góöur söngvari fyrir okkur.” I sömu andránni og þetta var sagt mátti heyra raul ungmenna fyrir utan. „Þarna sérðu. Þeir em margir sem vilja komast aö sem söngvarar.” — Hvaöa tónlistarstefnu hefur flokkurinn? „Þaö hefur verið deilt um hvers konar tónlist viö spilum. Sumir hafa kallað þaö þarmarokk.” Hlustum mikið á Bítlana „Okkar stefna er þó einfaldlega sú aö spila eins melódíska músík og við getum. Hafa þetta eitthvaö sem hlust- andi erá.” — Einhver erlend fyrirmynd? „Nei, engin sérstök. Viö höfum allir gaman af léttri popptónlist, hlustum til dæmis mikiðá Bítlana.” — Nú var talsverður hávaöi þegar þiö spiluöuö áöan. Menn ekkert aö veröa heymarlausir? , ,Haaaa, haaaa, hvaö sagöirðu? ” Léttir strákamir í Þarmagustum og við óskum þeim alls hins besta í fram- tíðinni og birtum hér myndir af þeim í „tónum og tali”. -JGH Hór eru það þeir Pótur, Dóri og Sólon sem „senda tóninn", Lagið sem verið var að spila hafði ekki hiotið nafn. Menn voru þvi snarir i nafngrftunum. Dœgradvöl skyldi það heita. Eftir lagið Rósareggi fór illa fyrir einum kjuðanum hans Rikka eins og sjá má. Brotnaði og verður ekki notaður meira. „Gefur sig með timanum þegar slegið er fast." DV-myndir: GVA. Trukk sett á tækin og lagið Út i veður og vind hljómar fallega. Ekki vantar tHþrifin hjá þeim Rikka og Ingó. Þess má geta að öll lögin, sem sveitin spilar opinberlega, eru eftir þá Þarmagusta. Sannkölluð gustukaverk. Kærustur þeirra Póturs og Ingó, þær Halla Hilmarsdóttir og Auður Jónas- dóttir, voru á staðnum, nýkomnar af snyrtinámskeiði. Og þvi ekki að æfa sig iþvi á meðan karipeningurinn sér um tónana. Með þeim á myndinni er einn kunningi þeirra Þarmagustsmanna, ívan Burkni ívanson, að fyigjast með. En sjálfur spilar ívan mikið á gitar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.