Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Blaðsíða 6
6 DV. FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER1983. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Verðkönnun Verðlagsstofnunar á rafhlöðum: Yflr 70 prósenta verðmunur — á Hellesens (gold) og Philips (super) „I átta tilvikum af sextán er dýrasta vörumerki meira en 50% dýrara en þaö ódýrasta. Sem dæmi eru HeUesens gold rafhlööur 72% dýrari en Philips super, báðar tegundir henta til almennranota. Annaö dæmi eru algengar alkaline rafhlööur, svokölluð „pennastærð” á Wonder alkaline og Duracell alkaline er munurinn 61%, dýrari er Duracell.” Þetta eru meöal annars niðurstöður verökönnunar Verölagsstofnunar sem birtar eru í 11. tbl. „Verðkynningar Verðlagsstofnunar”. I könnuninni er boriö saman verö á nokkrum algengum geröum af raf- hlööum, endurhlaöanlegum rafhlöðum og hleðslutækjum. Auk þess er svo borið saman verö á ljósaperum til heimilisnota. Verösamanburöur á rafhlöðum er erfiöur fyrir hinn almenna neytanda, mörg vörumerki eru hér á markaði í fjölmörgum stæröum og geröum. Verökönnunin staðfestir aö verulegur verömunur er milli einstakra vörumerkja bæði á raf- hlöðum og ljósaperum. Endingin getur hins vegar veriö mismikil á einstökum vörumerkjum, en í þessari könnun er ekki lagt mat á gæði frekar en í öðrum sem Verðlagsstofnun hef ur gert. Fleira vekur athygli í niöurstöðum þessum, meöal annars aö í einu tilviki er hæsta verð helmingi hærra en lægsta verö. Þaö er á litlum alkaline rafhlööum sem eru í laginu eins og tala. Þær rafhlööur eru einkum not- aðar í vasareiknivélar. I þeim flokki eru ódýrastar National rafhlööumar á 33 krónur en dýrastar eru Varta á 72,35 krónur. Endurhlaðanlegar rafhlöður á markaönum eru frá tveimur fyrir tækjum Sanyo og Varta. Minni verö- munur er á þeim, 4—17%. Verömunur á hleðslutækjum er meiri eöa yfir 60%. Verökönnun þessi fór fram seinni- part nóvembermánaöar. -ÞG. Frá hverjum rafhlöðuframleiöanda eru margar stæröir og ekki síöur margar gerðir af sömu stærö, auð- kenndar með mismunandi litum og heitum (super, gold, heavy, duty, power o.s.frv.). Þaö er þess vegna erfitt fyrir þann sem ekki þekkir því betur tii aö bera saman verð á sam- svarandi rafhlööum frá hinum ýmsu framleiðendum. Þaö hefur veriö gefinn út alþjóðlegur staðall um stæröarmerkingu á raf- hlöðum. Algengastar eru sívalar raf- hlööur. Eru þær tii í nokkrum stæröum til ýmissa nota. Odýrustu geröirnar eru fyrir tæki sem nota h'tinn straum, svo sem vasaljós og feröaútvörp, en þær dýrari fyrir straumfrek tæki eins og segulbönd og rafknúin leikföng. Einnig eru á boöstólum litlar, flatar rafhlöður, í laginu eins og tölur, og eru þær einkum notaðar í myndavélar, vasareiknivélar, tölvuspil og arm- bandsúr. Skýringar á toflum Á meöfylgjandi töflum er rafhlööum skipt í flokka eftir stærö og notkunar- möguleikum og er getið þar um staöal- heiti (stærðamúmer) hverrar raf- hlöðu. Rafhlööum af algengustu stærö Rafhlöðurnar flokkaðar er skipt upp í fjóra undirflokka eftir notkunarmöguleikum og gæöum. FLOKKUR A er ódýrasti flokkurinn. Þessar rafhlööur eru einkum ætlaðar í vasaljós, útvörp og önnur tæki sem nota lítinn straum. FLOKKUR B er heldur dýrari en flokkur A og notkunarsviö er mjög svipaö en endingin heldur meiri. Þess má geta aö rafhlöður í flokki A og B nýtast ekki aö fullu við straumfrek tæki en þó eru hér undantekningar og má þar nefna National gold. FLOKKUR C, í honum eru raflilööur sem einkum ber aö nota í straumfrek tæki (segulbönd, rakvélar, rafknúin leikföng o.fl.) auk þess sem nota má þær í útvörp og vásaljós. Þær gefa sterkari straum á stuttum tíma en raf- hlöður í flokki A og B (eru meö meiri rýmd). FLOKKUR D, í honum eru svonefndar alkaline rafhlööur sem nota má á sama hátt og rafhlöður í flokkum A, B LITTU INN Okkar verð Leyft verð Blandaðir ávextir í heildósum 74,95 87,65 kr. Blandaðir ávextir í hálfdósum 42,00 48,40 kr. Perur í heildósum 59,90 70,75 kr. Perur í hálfdósum 34,80 41,90 kr. Ferskjur í hálfdósum 33,60 41,00 kr. Kaffi 24,35 28,50 kr. Kakómalt 1/2 kíló 58,00 66,70 kr. Rúsínur 1 kíló 119,00 154,00 kr. Hveiti 5 lb 47,10 57,70 kr. Flórsykur 1/2 kíló 11,50 13,70 kr. Púðursykur 1/2 kíló 14,50 18,00 kr. Síróp 500 grömm 59,95 73,80 kr. ORA grænar baunir, hálfdós 17,50 21,95 kr. ORA bakaðar baunir 34,10 42,80 kr. Gevalia-kaffi 27,95 31,10 kr. Blönduð sulta 1/2 kíló 36,95 42,70 kr. Sveskjusulta 49,90 57,90 kr. Klementínur 49,00 58,95 kr. YSrslunin „i U'9ur 9lí' og C en eru einkum notaðar í mynda- vélar og leifturljós, reykskynjara, tal- stöövar og vasareiknivélar. Alkaline rafhlööur eru einu rafhlööurnar sem gefa frá sér fullan straumstyrk í miklu frosti og þola allt aö 40°C frost þó aö þaö sé misjafnt eftir vörumerkjum. Alkaline rafhlööur eru hins vegar mun dýrari en venjulegar rafhlööur. Rafhlööur í töflu 4 eru einkum not- aöar í myndavélar, talkerfi, klukkur, vasareiknivélar og tölvuspil. Þetta eru alkaline rafhiööur, aö undanskildum rafhlööum með staöalnúmer MR 52 sem eru úr kvikasilfri. Varhugaverðar fyrir börn Tvær af þessum rafhlööum eru litlar og eins og tölur í laginu. Sérstök ástæöa er tii aö vara viö aö börn hafi slíkar rafhlöður undir höndum enda hafa orðið banaslys af þeirra völdum í nágrannalöndunum þegar böm hafa sett slíkar rafhlööur upp í sig og í ógáti kyngt þeim. Endurhlaðanlegar rafhlöður I töflu 5 eru þau tvö vörumerki af endurhlaöanlegum rafhlööum sem flutt eru inn hingað til lands, auk þess sem sýnt er verö á hleöslutækjum. Ástæða er til aö benda sérstaklega á aö ekki er hægt aö endurhlaða raf- hlööur nema þær séu sérstaklega framleiddartil slíks. Úrarafhlöður I töflu 6 má sjá hvaö úrarafhlööur kosta hjá úrsmiöum á höfuöbörgar- svæðinu. Innifaliö í verðinu er, auk raf- hlaöanna, ísetning, stilling og fleira. I þessari töflu er ekki getiö um tegundir af rafhlööum enda kom ekki í ljós verðmunur eftir því hvaöa tegund er notuð. Ljósaperutaflan I töflu 7 er getiö um verö á ljósa- perum sem hér eru á markaöi. Kannaö var verö á venjulegum ljósaperum, kúluperum og kertaperum og er í ölium tilvikum birt verð á 40 w perum, en verðmunur reyndist í flestum til- vikum ekki vera á perum af mismun- andi styrkleika. Frjáls verðlagning Verölagning á rafhlööum er frjáls, en í flestum tilvikum gefa innflytj- endur út leiðbeinandi smásöluverðlista sem verslanir selja eftir, þó eru nokkr- ar verslanir sem selja á hærra verði en leiðbeinandi smásöluveröi. I könnun þessari er birt leiöbeinandi smásölu- verö, nema á Eveready og Ray-O-Vac rafhlööum, en þar er miðaö viö meöal- smásöluálagningu í þeim verslunum á höfuðborgarsvæöinu sem selja áöumefnd tvö vörumerki. Álagning á Ijósaperum Hæst er leyfilegt aö leggja 34% á ljósaperur í smásölu. I könnuninni er miöaö viö heildsöluverð innflytjenda aö viöbættri hámarkssmásöluálagn- ingu og söluskatti og sést þar hver verömunur er milli einstakra vöru- merkja. Verö getur verið lægra í verslunum sem nýta ekki aö fullu heimilaöa smásöluálagningu. Athugasemdir Neöst á töflunni má sjá tvær athuga- semdir. Sú fyrri getur þess aö Wonder top rafhlöður í flokki B á töflu 1, sem kosta 23 krónur stykkið, fari af mark- aðnum. I síðari athugasemdinni eru mótmæli frá Hellesensverksmiðjunum í Danmörku. Þar er mótmælt aö Varta high performance rafhlöður séu taldar í flokki C, heldur beri aö telja þær meö flokki A eöa B. Vartaverksmiöjumar í Þýskalandi hafa svo aftur mótmælt þessari athugasemd og telja þessa teg- und rétt flokkaöa. Verölagsstofnun leggur ekki mat á framangreint, en þess skal getiö aö þessi könnun, sem er mjög umfangsmikil, hefur veriö flókin í vinnslu og unnin í samráöi viö fram- leiðendur og innflytjendur. -ÞG. Rafhlöður í úr Verö var kannað í þessari verökönnun á tveimur tegund- um af úrarafhlööum hjá úrsmiðum á höfuöborgarsvæðinu. Innifalið í veröinu, eins og þaö birtist í „Verðkynningu”, er auk rafhlöðunnar, ísetning, stilling og fleira. Áberandi er aö verölagning er svipuð hjá flestum úrsmiöum, 210—220 krónur, en verðlagning er frjáls á rafhlöðunum. Þó er yfir 55% verömunur á lægsta verði og hæsta á SR 54 rafhlöðunum. Lægsta verð er 175 krónur hjá Ur og klukkur en hæsta verö hjá Paul E. Heide úrsmiö, 272 krónur. A SR 41 rafhlöðunum er yfir 46% verðmunur á lægsta og hæsta verði. Odýrastar eru þær hjá Stáltækni sf. á 150 krónur stykkið en dýrastar hjá þremur úrsmiöum á 220 krónur stykkið. -ÞG Verðmunur mikillá kúlu- og kertaperum Verömunur á ljósaperum í könnun Verölagsstofnunar reyndist mestur vera 34% á venjulegum ljósaperum. Á kúlu- og kertaperum var munurinn meiri eða 72 %. Targetti 40w ljósaperurnar kostuöu 20 krónur stykkiö en Lum 26,75 krónur stykkið. Sama tegund, Targetti kúlu- og kertaperur, voru í ódýrasta flokknum, 23 krónur stykkið. Þær dýrustu voru GEC kúlu- og kertaperur á 39,65 krónur stykkiö. -ÞG HAMRABORG 8 Matvöruverslun sem fólk kann að meta TAFLA 6: Verðsamanburður á rafhlöðum í úr -innifalið í verði er rafhlaða, ísetning, stilling og fl. m SR 54 SR41 Carl A Bergmann Skólavörðustíg 5 210 210 Garðar Ólafsson Lækjartorgi 220 220 Franck Michelsen Laugavegi 39 229 198 Gilbert Laugavegí 62 210 210 Guðm. Hermannsson Lækjargötu 2 210 210 Guðm. Þorsteinsson Bankastræti 12 220 220 Helgi Guðmundsson Laugavegi 82 2101) Helgi Sigurðsson Skólavöröustíg 3 220 210 Ingvar Benjamínss. Háaleitisb. 58-60 229 198 Jóhannes Norðfjörð Hverfisgötu 49 210 Jón og Óskar Laugavegi 70 210 210 Klukkan Hamraborg, Kóp. 210 210 Kornelíus Jónsson Skólavörðust. 8 180 180 Magnús Ásmundsson ingólfsstr. 3 200 200 Magnús E. Baldvinsson Laugav. 8 220 220 Paul E. Heide Glæsibæ 272 221 Stáltæki s.f. Þingholtsstr. 1 150 Tímadjásn Efstalandi 26 226 186 Úr og klukkur Laugavegi 49 175 175 Valdimar Ingimarss. Austurstr. 22 210 210 1) Uppgefið verð er miðað við Etic rafhlöður. Ef notaðar eru hins vegar rafhlöður af gerðinni Ucar, kostar sama þjónusta 220 kr. TAFLA 7: Ljósaperur Ljósaperur - 40W Targetti 20.00 Tungsram 21.85 Silvanía 22.50 Philips 23.90 Osram 24.20 GEC 25.15 Luma 26.75 Kúluperur - 40W Targetti Tungsram 25.00 Luma Philips Silvanía 29.95 Osram GEC Kertaperur - 40W Targetti Tungsram Philips Osram Silvanía Luma GEC 39.65

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.