Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Blaðsíða 31
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
DV. FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER1983.
Fyrst pantarðu borð og svo
geturðu fengið bjór.
Séríslenskt
fyrirbæri
Það var ekki laust vlð að
landinn sleikti út um þegar sá
boðskapur var látinn út
ganga að til stæði að opna
ölkrá hér á landi. Þar yrði
„létt kráarstemmnlng” og
þangað gæti fólk skroppið til
að fá sér eina létta öikollu og
siappa af.
En þarna reyndist ölið al-
deilis ekki soplð þótt i könn-
una væri komið. Málið mun
nefnllega vera það að tll þess
að komast inn á „krána” þarf
að panta borð. Gestum er
einníg gert að setja í sig mat-
arskammt. Sem sagt, allt í
gömlu góðu skorðunum.
Hafa heyrst fjölmargar
óánægjuraddir með þetta
fyrirkomulag og þykjast
menn heldur sviknir um
fögur fyrirheit. Þeir sem ekki
hafa farið eftir gömlu upp-
skriftinni, þ.e. pantað borð,
klætt sig upp á og svo fram-
vegis, hafa komið að lokuðum
dyrum og verið vísað frá þeg-
ar þeir hafa loksins komist í
kaUfæri við dyraverði. Þykir
þetta að vonum hið versta
mál og nú biða öiunnendur
betri tíðar með blómum í
haga.
Tengdó
Þennan tókum við traustatakí
úr glænýrri og efnismikilli Viku:
Tengdamóðir Sigurlása kom
færandi hendi með tvö hand-
klæði í jólagjÖf handa ungu
hjónunum. Á annað þeirra
hafði sú gamla bróderað:
,JHUN”, en á hinu stóð: „ÞAД.
Sá fyrsti?
Þelr eru ekki margir
tslendingarnir sem hafa sér-
menntað sig i fræðum er lúta að
hrossarækt og hcstamennsku.
Atvinnumöguleikar hér á landi
munu heldur ekki teljast yör-
þyrmandi.
Þó höfum vér fregnað að Þor-
valdur nokkur Ániason muni
væntanlega á þessu ári ljúka
doktorsprófi úti í Svíþjóð. Er
hann, að þvi er best verður
vitað, fyrsti íslendingurinn sem
ver doktorsritgerð um efni er
tengist hrossarækt. Þar með er
þó ekki öll sagan sögð þvi sá
hinn sami Þorvaldur er sagður
munu setjast að i Sviþjóð og
starfaþar.
Jón BakMn þykk val
má/hress.
„Böld"
Menn hafa löngum rætt um
málgleði Hjörleifs Guttorms-
sonar á Alþingi. Var það, eins
og fróðir vita, tckið til bragðs
að finna upp mælieiningu sem
bregða mætti á ræðuflóð al-
þingismannsins og nefnist
hún „hjörl”. Er í statistik
þessari gert ráð fyrir að eitt
hjörl nemi fimmtán mínútum
Er alþingismaðurinn sagður
bregða sér leikandi létt i átta
hjörl í þingsölum þegar vel
liggur á honum.
En nú er kallaður til
sögunnar nýr þingmaður sem
gjörsamlega hefur skyggt á
Hjörleif. Sá talar i„böldum”
en eitt bald nemur hvorki
meira né minna en tuttugu
mínútum. Þetta er Jón
Baldvin Hannibalsson sem er
sagður tala bæði oft og lengi.
Segja sérfróðir aö hann
ómaki sig ekki i ræðustól
fyrir minna en tvö böld í senn.
HjöHeifur Guttormsson.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Kvikmyndir Kvikmyndir
Mynd Stjömubíós lýsir Iffi unglinga 6 betrunarheimili og þvi ofbeldi sem þar þrífst. Hór er söguhetjunni
Pixote ógnað afsór eidri og harðsvíraðri gutta.
Sjörnubíó— Pixote
Börn á glapstigum
Stjörnubfó:
Pixote.
Brasiiia 1980.
Leikstjóri: Hector Babenco.
Handrit: Hector Babenco og Jorge Duran, eftir
skáldsögu Josó Louzeiro.
Kvikmyndatake: Rodolpho Sanches.
Aöalleikendur: Fernando Ramos Da Silva,
Marilia Pera, Jorge Juliao, Gilberto Moura,
Josó Nilson Dos Santos.
Begin fékk friðarverðlaun Nóbels,'
en samt mun mannkynssagan seint
minnast hans sem einlægs friðar-
sinna. Pixote hefur sópað að sér
verðlaunum á kvikmyndahátíðum
viða um heim. Engu að síöur er
hætta á að hún falli fljótlega í
gleymsku og dá.
Ekki svo að skilj að Pixote sé eitt-
hvað verri en gengur og gerist um
kvikmyndir sem hingaö berast. Hún
mundi meira að segja vera í skárri
kantinum. En miðað við efnið, sem
höfundar höföu úr aö moða, er út-
koman engan veginn nógu góð.
Pixote f jallar semsé um mál mál-
anna, afbrotaunglinga. Myndin
skiptist í tvo afmarkaða hluta. Ann-
ars vegar lýsir hún lífinu í fangelsi
fyrir afvegaleidd ungmenni og hins
vegar um utangarðslíf f jögurra pilta
sem tekst að strjúka úr prísundinni.
Lýsingin á lífinu innan múranna og
öUu því ofbeldi sem þar þrífst er
nokkuö sannfærandi, hvort sem um
er að ræða innbyrðis deUur pUtanna
eða níöingsverk varðmannanna í
þeirra garð.
I síðari hluta myndarinnar er eins
og leUcstjóri og handritshöfundur
missi tökin á efninu og öll meðferðin
verður einhvern veginn dálítið út-
vötnuö, meö óþarfa útúrdúrum.
margir hlutir eru þó ágætlega gerðir,
einkum þó þeir sem sýna okkur að
þessir Utlu töffarar, kannski marg-
faldir morðingjar, eru lika böm eins
og aðrir jafnaldrar þeirra. Mér
kemur einkum í hug atriðið þegar
söguhetjan, hinn 10 ára gamU Pix-
ote, situr undir stýri á iUa fengnum
bU og hamast eins og aðrir strákar
með tUheyrandi burri.
Það er eins með þessa mynd og svo
margar aörar sem miða hátt að
leikararnir bjarga henni frá falU.
Strákarnir leika flestir með ólíkind-
um vel, enda skUst manni aö þær
persónur sem þeir leika séu þeim
ekki um of framandi. Þeirra fremst-
ur er þó Fernando Ramos Da SUva
sem leikur Pixote. Það er engu
líkara en að hann hafi verið viðloð-
andi ræsið aUa sína stuttu ævi.
Niðurstaða myndarinnar er æði
dökk fyrir ungviðið, þegar Pixote
stingur hólkinum í buxnastrenginn
og heldur út í lífið, nýbúinn að kála
einum í viðbót. Myndin er þó ekki al-
gert svartnætti í þeim skUningi að
það má hafa af henni nokkra
skemmtan. Þó ekki eins mikla og við
mátti búast.
Guðlaugur Bergmundsson.
PANTANIR
SÍMI13010
HÁRGREIÐSLU8T0FAN
KLAPPARSTÍG 29.
f
TINNA
TINNA - TINNA - TINNA
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
Furugerði 3.
Opið á fimmtudögum til
kl. 8.00.
Athugið: Síminn er
32935.
Pantið tímanlega
fyrir jól.
TINNA - TINNA - TINNA
I
VERSLUNIN
HORN
KÁRSNESBRAUT 84 KÓPAVOGI
TINNA - TINNA