Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Blaðsíða 16
16 DV. FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER1983. Spurningin Hvað langar þig mest til að borða á jólunum? Helgi Júlíusson: Hamborgarhrygg meö rauökáli og baunum og brúnni sósu. Þaðfinnstmérsvogott. Valgerður Ogmundsdóttir: Lamba- hrygg með kartöflum og sósu. Þór Kjartansson: Rjúpuog rjómasósu með brúnuðum kartöflum, það er frá- bærlega gott. Þuríður Hilmarsdótti: Svin, það er svo jólalegt, með bökuðum kartöflum. Svo vildi ég fá ís á eftir. Arnar 01afsson:Svinakjöt, það er svo gott. Og með því franskar kartöflur, sósu og salat. Og frómasís á eftir. Agústa María Davíðsdóttir: Fyrst vil ég hrísgrjónagraut með möndlum. Svo rjúpur með brúnuðum kartöflum, rjómasósu og rifsberjahlaupi. I eftir-1 réttvilégdeserteinsogammabýrtil. | Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Lögreglan ætti að sýna virðingu Ölafur Gunnarsson skrifar: Eftir lestur greinarinnar um yfir- hellingar lögreglunnar á Skafta Jóns- syni, langar mig að taka fram eftirfar- andi: Er ekki kominn tími til aö sá aöili sem kallar sig lögreglustjóra taki starfsliö sitt til endurskoðunar ef hann ætlar að geta talist starfi sínu vaxinn. Þaö hefur sýnt sig í þeim fáu tilfell- um sem skrifað hefur veriö um slík mál eins og þessi, og reyndar enn fleiri sem ekkert hefur verið skrifaö um, aö ábyggilega er oft um sömu lögreglu- þjóna aö ræða og lýsi ég furöu minni á sh'ku ábyrgðarleysi þeirra sem eiga að teljast stjómendur lögreglustöðvar- innar, að slikum mönnum sé ekki vikið úr starfi umsvifalaust, eöa þeim gefinn kostur á að segja starfi sínu lausu. Maöur heföi haldið að lögreglan ætti aö sýna — og öölast virðingu en ekki að fáfólkámótisér. Eins og fram hefur komið í nokkrum greinum dagblaöanna að undanfömu er ekki hægt annað að sjá en um stór- kostlegt stjómleysi sé að ræða á lögreglustöðinni og þegar slíkt hneyksli gerist eins og þetta með Skafta, er ekki seinna vænna fyrir lögreglustjóra að losa sig við þessa lög- legu lögbrjóta sem reyna að fá útrás á sadistalegum tilfinningum sínum á hinum ágæta meðborgara. Það er alltaf ráð fyrir slíka menn að fara til geölæknis og reyna að fá bót á þessari hneigð sinni. Það er mín einlæga skoöun að Skafti sæki þetta mál til fuilnustu og komi þessum lögleysu þjónum borgarinnar burt úr starfi. Eg lýsi hér með fullum stuðningi mínum við Skafta. Bifreiöarstjórar augna- þjónar lögreglunnar GRA skrlfar: Á þéttbýlissvæði eins og hér hefur myndast í og kringum höfuðborgina fer ekki hjá því að löggæsla verður að j vera virk og samanstanda af fleiri t þáttum en þeim sem fyrrum þóttu I nægja. I umferðinni virðist sem lögregian þurfi að eyða sínum dýrmæta tíma til (aö koma á vettvang þegar árekstrar ' eiga sér stað, skrifa upp bílnúmer og teikna afstöðumyndir á vettvangi. Einnig er títt aö sjá lögreglubíl 1 staösettan við gatnamót eða hringtorg og fylgjast með umferðinni úr kyrr- stæðri bifreiðinni. Varðandi afskipti lögreglu af árekstrum er þetta oft til lítils fyrir þá j er í árekstrum lenda nema um slys á I fólki sé að ræða, en þau verða ekki , nema í broti af þessum tilfellum. Nær væri að kalla í aöila frá viökom- andi tryggingafélagi til þess að kanna vettvangsaöstæöur strax og spara þannig tíma fyrir alla aöila. Ef um tvö ! tryggingafélög er að ræða kæmu aðilar 1 frá báðum á vettvang. — Lögreglan tekur hvort eð er enga afstöðu til eftir- mála vegna áreksturs, eins og sumir virðast þó halda og ætla að fá úrskurð um rétt sinn eða órétt á slysstað. : Nógumþað. Hitt er verra að íslensk- j ir bifreiðarstjórar eru aö verða eitt alls- herjar vandamál í umferðinni vegna síbrota í akstri og dæmalausrar augna- þjónkunar við lögreglu ef þeir vita af henni í námunda. Sem dæmi aö taka má sjá, miklu oftar en ekki, að ökumenn setja ekki á stefnuljós við beygjur, eða þá allt of seint. — Þetta hefur orsakað marga óþarfa árekstra. Kæruleysi ökumanna í sambandi við vanbúnar bifreiðar, (slitin dekk, biluð ljós, oil.) er einnig : landlægt. I þessum málum er nauðsyn tafar- Lögreg/an þarfa að eyða dýrmætum tima sinum iað gera skýrsiur um ðrekstra sem aðilar frá viðkomandi tryggingafélögum gætu séð um, segir GRA ibrófi sínu. lausrar breytingar og mun áhrifa- ríkara eftirlits lögreglu og um leið margfalt hærri sektarákvæða við brot af því tagi sem hér hafa verið nefnd. Þótt bifreiðarstjórar telji ekki þörf á því að nota stefnuljós, nema þegar þefr sjálfir telja aö næstu bifreiðar hafi af því gagn, er það bara ekki bifreiðar- stjóra að ákveða slíkt. Þetta eru lög og skyldur hvers einasta bifreiðarstjóra að fara eftir þeim. Til þess er verið að skoða stefnuljós, jafnt og önnur ljós bifreiða. — Eða er það ekki? Þetta þurfa ekki að vera verri bif- reiöarstjórar í sjálfu sér og ef þessir menn aka erlendis þá þora þeir ekki annað en hlýða reglum því þar er eftir- litiö mun strangara sem og sektar- ákvæði. En þaö er fyrirlitningin á lögum og reglu sem er landsmönnum í blóð borin og þar sem Islendingar geta komist hjá aðhlýða lögum gera þeir það. Þetta er auðvitaö mun víðtækara vandamál en í akstri bifreiða og ann- arra farartækja og á rætur að rekja til þess aö hér er ekki og hefur aldrei veriö neins konar þegnskylda. Þar sem herskylda er, og hún er reyndar alls staðar nema á Islandi, eru agabrot af þessu tagi nær óþekkt. Kurteisi og til- hliörunarsemi í almennum samskipt- um á mannamótum eru meö allt öörum hætti en hér tíökast. En umferðarmenninguna verður að bæta, hún tekur of stóran toll nú þegar, bæði í mannslífum og eignum. Lög- gæslan verður að vera raunhæfari en húner. Auglýsendur: Gefið upp verð á vörunum Hafdís Hannesdóttir hringdi: Þetta eru þriðju jólin í röð sem ég geri mál þetta að umfjöllunarefni. I auglýsingaflóöinu, sem hellist yfir landsmenn síðasta mánuðinn fyrir jól, gefa auglýsendur ekki nægilega oft upp verð á vöru sinni. Sérstaklega á þetta við um bókaútgefendur, sjaldan eða aldrei er gefið upp verð á bókum. Þetta er sérstaklega bagalegt fyrir þá sem einhverra hluta vegna geta ekki farið í verslanirnar aö athuga verð hverrar vöru. Ekki væri til mikils ætlast aö fara fram á að bókaútgef- endur og fleiri sem auglýsa vörur sínar í blöðum gefi upp verð vöru sinnar, það mundi spara mörgum margt sporið. DV hafði samband við bókaforlag og bókabúö,. þar fengust þau svör að auglýsendum væri í sjálfsvald sett hvort þeir gæfu upp verð í sínum auglýsingum eöa ekki. Bókaforlögin gerðu þaö yfirleitt ekki en það gerðu búðirnar oftast. Innan skamms mun koma út auglýsingablað frá Félagi íslenskra bókaútgefenda þar sem verð á öllum þeim bókum, sem út hafa komiö á árinu, er gefið upp. Það verð sem þar er gefið upp gildir fyrir allt landið. Hver sta/ grindinni? Steinþór Jónasson hringdi: Eg var svo óheppinn að láta stela frá mér grind á afturrúðunni á Daihatsuinum minum. Hann stóö fyrir utan Holtsgötu 6 þann 1. desem- ber, klukkan hálftíu eða þar um bil, þar hafa einhverjir pörupiltar tekið grindina en gleymt festingunum þannig aö einhver hlýtur að hafa séð til þeirra þar sem þeir luku ekki verkinu. Þeir sem gætu hafa séö til piltanna eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Steina í síma 75599.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.