Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Blaðsíða 8
8
dvi'fimmtudágurb; desember \mr
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Öryggistækin voru til
en ekki komin í gagnið
— f lugslysið á Madridf lugvelli vekur umræðu um öryggisbúnað hans
„Þaö var eins og vélin hefði klofnaö í
tvennt,” sagöi egypskur lögfræðingur,
sem var meðal þeirra 42 er komust lífs
af úr flugslysinu á Madridflugvelli í
gær. 92 fórust þegar Boeing 747 þota
frá Ibería-flugfélaginu á leiö til Rómar
rakst á DC-9 þotu frá Aviaco sem ekiö
var í veg fyrir hana í flugtaki. Enginn
komst lífs af úr Aviaco-vélinni.
„Þetta var mín flugbraut! Þetta var
mín flugbraut! ” sagði einn flugmanna
Boeingþotunnar þegar hann kom
skjögrandi út úr brakinu beint í fangiö
á einum starfsmanna flugvallarins.
Tíu dögum fyrr höföu 181 farist meö
Júmbóþotu sem hrapaöi fjórum km
frá.
Svartaþoka var á flugvellinum en
flugumsjónarmenn höföu ekki ratsjá
til þess aö fylgjast meö umferðinni á
flugbrautunum, eins og víðast er þó á
alþjóðaflugvöllum. Urðu þeir ekki
varir við þegar Aviaco-vélinni var ekið
í óleyfi inn á flugbraut Boeingþotunnar
frá Ibería sem komin var á fulla ferö
þegar áreksturinn varö.
Bensíngeymar DC-9 þotunnar
sprungu viö áreksturinn og varö hún
samstundis eitt logandi eldhaf.
Skyggni var aðeins 300 metrar og
var völlurinn lokaöur til aöflugs en op-
inn fyrir brottferð. Mörgum í flughöfn-
inni fannst sem skyggni hefði veriö
jafnvel enn lakara, 30 til 40 metrar.
Þokan spillti björgunarstarfinu.
Umræöur hafa vaknað eftir þessi
tvö slys um, hvort Barajas-flugvöllur
sé nægilega tryggur. Spænska blaöiö
„E1 País” gaf út aukablaö síðdegis í
gær meö leiöara á forsíöu, þar sem for-
dæmdur var skortur á skipulagi og
öruggri stjórnun á Barajas-flugvelli.
— „Viö höfum nú sannanir fyrir því aö
Barajas er ekki öruggur,” sagði í
leiöaranum.
Slysinu svipar í flestu til árekstrar-
ins á Tenerife-flugvelli á Kanaríeyjum
1977 þegar 585 manns fórust. I umræö-
um eftir Tenerifeslysiö var þess kraf-
ist aö ratsjárbúnaöur yröi í flugturn-
um og haföi fé verið veitt til kaupa á
slíkum búnaöi fyrir Barajas en dregist
aö hrinda því í framkvæmd aö koma
slíkum tækjum upp.
Verða Sovétmenn á ólympíu-
leikunum í Los Angeles?
Sovétmenn vilja ekki segja af eða á um hvort íþróttamenn þeirra muni sækja
ólympíuleikana í Los Angeles næsta sumar. í Suður-Kaliforníu reyna samtök
manna að koma í veg fyrir að Sovétmenn fái að taka þátt í leikunum vegna
skotárásarinnar á S-Kóreuflugvélina 1. september.
Stjornmálamaður
myrtur á N-írlandi
Séð að kvöldlagi inn á höfnina í Trípólí með eldtungurnar í baksýn í einni orrahrið Arafatsmanna við uppreisnar-
skæruliða innan PLO en Arafat ætlar að sleppa úr umsátrinu s jóleiðina.
Arafat vill herskip
til að komast burt
úr Trípólí-umsátrinu
Mikil ólga er á Norður-Irlandi eftir
aö einn af stjómmálamönnum mót-
mælenda og leiðtogaefni var myrtur
fyrir utan Queens-háskólann, þar sem
hann kenndi lög.
Edgar Graham (29 ára) var lögfræö-
ingur og talsmaður stærsta stjóm-
málaflokks mótmælenda á N-lrlandi.
Var hann eindregið fylgjandi harð-
fylgi réttvísinnar við að halda uppi
lögumogreglu.
Fyrir tveim vikum haföi hann fréttir
af því aö hann væri efstur á lista þeirra
sem hryöjuverkasamtökin IRA vildu
feiga en afþakkaöi þá lífvörslu lögregl-
unnar.
Moröingjamir tveir, sem skutu hann
viö hliðið aö háskólalóöinni, komust
undan á hlaupum.
Með Graham hafa 25 menn verið
drepnir á N-Irlandi á síðustu tveim
mánuöum, allir my rtir hver í sínu lagi.
Útlönd
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínuar-
aba, hefur óskaö þess aö honum veröi
sendur fjölþjóöafloti til þess að flytja
hann og 4 þúsund skæruliöa hans burt
sjóleiöina frá Trípólí, þar sem þeir em
umkringdir uppreisnarskæmliöum
innan PLO.
Talsmaöur Arafats sagöi að þeir
þyrftu skipanna meö til þess aö vernda
menn Arafats fyrir árásum Israels-
manna þegar þeir sigldu til Túnis og
Noröur-Jemen.
Arafat mun hafa beöiö Frakka,
Grikki og Sovétmenn um aö leggja
honum til herskip til verndar viö brott-
flutninginn. Hann hefur þegar oröið
sér úti um f jögur skip grísk til þess aö
flytja mannskapinn og veröa þau undir
fána Sameinuöu þjóðanna.
Það hefur veriö haft eftir Arieli
Sharon, fyrrum vamarmálaráðherra
og nú ráðherra án ráöuneytis í ísra-
elsku stjórninni, aö ekki ætti að sleppa
Arafat lifs frá Trípólí því aö þaö mundi
leiða til endurskipulagningar PLO sem
nú er klofin. — Lét Sharon þessi orö
falla eftir aö sprengja í strætisvagni í
Jerúsalem varð fjórum aö bana og
særöi 43 á þriðjudaginn. PLO lýsti
verkinu á hendursér.
Viöræöum Arafats og umsátursliðs-
ins um brottflutningin á liði Arafats er
ekki lokið. Aðalágreiningurinn er um
hverjir stjórna skuli í flóttamannabúö-
unum Baddawi og Nahr al-Bared.
Guðmundur
Pétursson
Nýjarnærbuxur
semgetnaðar-
vörn karlmanna
Sex karlmenn eru tilraunadýr
vegna nýrra getnaöarvarna karla
og ganga um í sérstökum nær-
buxum, sem bæði halda þeim
heitum og ófrjóum meö því að
þrengja að á viðkvæmum stöðum.
Þetta er árslöng tilraun og segja
hinir kanadísku aöilar sem að til-
rauninni standa aö hitinn og
þrengslin af nærbuxunum eigi að
draga úr sæðisframleiðslu eist-
anna. Buxunum fylgja kláöi og
óþægindi fyrst sem venst þegar frá
líður.
Fer Ubýa í kafbátahernað
gegn Bandaríkjunum?
Kafbátur, sem Líbýumenn eiga og
gera út, veldur Miðjaröarhafsflota
Bandaríkjanna nokkrum áhyggjum en
hann hefur sést sniglast í kringum
bandarísku herskipin í austurhluta
Miöjarðarhafsins.
Þetta mun vera disilknúinn kafbátur
sem borið getur 22 tundurskeyti.
Síöast sást til hans norður af Kýpur
og þykir hann þar kominn óvenjulangt
aö heiman. Hefur bandaríski flotinn af
því áhyggjur aö milli Líbýu og Sýr-
lands er mikil samvinna en Sýrlend-
ingar hafa hótaö sjálfsmorðsárásum á
bandarísku herskipin undan strönd
Libanon.
Danskir
hamborgarhryggir?
Að vísu ekki, en Kostakaups-
hryggir eru framleiddir með
danskri aðferð og dönskum efnum.
KOSTAKAUP HF.
Reykjavíkurvegi 72 - Hafnarfirði