Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Page 11
DV. FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER1983.
11
íslandssögukennsla í grunnskólum:
Gloppur í sögunni
stafa af fjárskortl
— segir Kennarasamband íslands
Islandssögukennsla í grunnskólum
hefur veriö nokkuö til umræðu aö und-
anförnu og því haldið fram aö stórum
hlutum sögunnar sé nú sleppt úr við
kennslu.
Á blaðamannafundi sem Kennara-
samband Islands hélt í gær kom
fram að umræður þessar hafa ein-
kennst af þekkingarleysi, hleypidóm-
um og rangfærslum. Það sanna í
málinu sé aö á undanförnum árum hafi
nýtt námsefni í Islandssögu verið að
koma á markaðinn en vegna fjárskorts
hafi enn ekki tekist að spanna yfir öll
tímabil sögunnar. Þar sem þessar
gloppur eru verði kennarar að notast
við gamlar og úreltar Islandssögu-
bækur og þar sem þær uppfylla ekki
nútímakröfur sem gerðar eru til náms-
efnis sé alltaf hætta á að þessi svið
sögunnar verði útundan.
Ennfremur var bent á aö það sé ekki
nein nýlunda að einhverjum köflum
sögunnar sé sleppt í kennslu, slíkt hafi
tíðkast í áraraöir enda ógjömingur að
gera allri Islandssögunni skil. Hvaða
kafla Islandssögunnar sé lögð áhersla
á sé undir hverjum og einum kennara
komið.
Varöandi nýja námsefnið var bent á
að það sé þannig úr garði gert aö það
hvetji lesandann til frekari kannana á
efninu upp á eigin spýtur og jafnframt
til umræðna. Þarna sé mikill munur á
miöaö viö gamla námsefniö sem sé að
mestu í upptalningarformi og höfði því
ekki lengur til nemenda.
Þá kom fram aö fyrir spamaðar-
sakir sé þaö liðin tíð að hvert eitt barn
eigi sína kennslubók heldur séu þær til
staðar í skólunum og nýttar þannig ár
eftir ár. Þetta hafi vissulega í för með
sér að foreldrar fylgist ekki eins vel
með hvaö verið sé að kenna baminu og
gæti eitthvað af fyrmefndum misskiln-
ingi um Islandssögukennslu í grunn-
skólum verið sprottinn af þessum
sökum. -SþS.
Fri vigsluhátlðinni á laugardag. Náttúrufrœðistofan er i kjallara hussins að
Digranesvegi 12. D V-mynd: Einar Ólason
Náttúruf ræðistofa Kópavogs vígð:
Hef ur að geyma stærsta
skeljasafn landsins
Náttúmfræðistofa Kópavogs var
opnuð viö hátíðlega athöfn um helgina.
Náttúrufræðistofan er í kjallaranum
að Digranesvegi 12. Það var forseti
bæjarstjórnar Kópavogs, Bjöm Olafs-
son, sem opnaði hana formlega.
Aödragandi að stofnun Náttúru-
fræðistofunnar má segja að sé frá
árinu 1976, þegar Kópavogsbær keypti
mikið safn skelja og kuöunga af Jóni
Bogasyni.
1 safninu eru á annað hundraö nýjar
tegundir skelja sem fundist hafa hér
við land. Þær hafa ekki sést á söfnum
hérlendis áður.
Skeljamar og kuðungarnir í safninu
eru einnig erlendis frá. Mun safnið
vera það stærsta sinnar tegundar hér-
lendis og þótt víðar væri leitað.
Náttúrufræðistofan mun standa í
nánum tengslum við skólana í Kópa-
vogi. Forstööumaður þess er Arni
Waag, líffræðikennari í Kópavogi.
-JGH
JOLA-
TILBODIN HUOMAVEL
-en hvernig hljóma „græjurnar"?
NAD - hljómtækin sem hin tækin eru dæmd eftir!
NAD5120
Plötuspilari
PERFORMANCE TABLE
123456789
Ðuild quality
Armquality
Feedback isoiaton
Ease of use
Appearance& tinish
PERFORMANCE TOTAL
SOUND QUALITY
VALUE FOR MONEY
94%
94%
NAD7120
Magnari
PERFORMANCE TABLE
123456789
Build quality
Power output
FM sensitivity
Ease of use
Appearance & finish
PERFORMANCb TOTAL
SOUND QUALITY ~
VALUE EOR MONEY
Popular Hi-Fi
Magnarar ársins í Danmörku s.l. 3 ár.
I--s_
n Ö Ö Rhss|P?©hb <ö
Grand Prix sigurvegarar s.l. 4 ár.
•aðöoo:
Hvers vegna mæla allir
með Boston Acoustic?
„Boston Acoustic A40 eru litlir hátalarar sem veita
mikiðfyrir lágt verð“. Audio
„Boston Acoustic A40 standast fyllilega samanburð
við margfaldlega stærri hátalara í mikið hærri
verðflokkum". NewYorkTimes
„Boston Acoustic A40 eru tvímælalaust einhverjir
allra hagkvæmustu hátalarar sem við höfum
kynnst í lengri tíma“. stereo Review
Sound Quality Value for £
Boston Acoustics A40 90% 93%
Popular Hi-Fi
VL
Þeir sem gera kröfur til tónlistar versla við okkur.
TRIMMGALLAR
í MIKLU ÚRVALI
LOS ANGELES,
verð 1.955,-
Hettugallar í stærðum 34—
36.
Litir: blátt, Ijósblátt, gult,
rautt.
SANTA PÓLÓ,
FIMM í SETTI,
verð 2.686,-
Jakki, buxur, vesti, bolur
og stuttbuxur.
StærðirS —XL.
Litir: grátt/gult,
grátt/blátt/grænt. Einnig
fyrirliggjandi skór l stíl.
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA38
SÍMI 83555.