Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Qupperneq 15
DV. FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER1983.
15
Menning Menning Menning Menning
Aðventutónleikar
Mótettukórsins
Tónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju í
Kristskirkju 4. desember.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
Einsöngvarar: Margrót Bóasdóttir, Elfsabet
Waage, Garðar Cortes, Halldór Vilhelmsson.
Konsortmeistari: Rut Ingólfsdóttir.
Á ofnisskró: Aðventusálmar, latneskar lof-
gjörðarmótettur og kantatan: Schwingt
froudig ouch ompor, eftir Johann Sebastian
Bach.
Þegar aö aðventu líöur færist
mikið fjör í allan kirkjusöng.
Aðventukvöld í nærri öllum
kirkjum, þar sem kórinn og organist-
inn bera hita og þunga dagsins, eru
auglýst vítt og breitt. En aðeins fáir
halda sérstaka aðventutónleika.
Mótettukór Hallgrímskirkju, sem
starfað hefur undir væng Listvinafé-
lags Hallgrímskirkju um skeiö hélt
aðventutónleika sína i Kristskirkju í
Landakoti, ásamt einsöngvurum og
hljóðfæraleikurum. Á skömmum
tíma hefur Hörður Áskelsson drifið
upp góðan kór. Virðist kórinn að
hluta skipaður allreyndu fólki. Radd-
imar eru öruggar, sérstaklega
undirraddir, en sópran verkar ekki
jafn-styrkur. Kom það þó ekki fram
nema tvívegis, í Lofsöng Maríu eftir
Johann Eccard og í upphafskór
Bachkantötunnar. Þegar kórinn var
endurtekinn í lok kantötunnar bar
ekki á veikleikum sópransins og
þykir mér því líklegt að minni
reynsla þeirra en annarra radda hafi
valdið. En stíll og söngmáti kórsins
Tónleikar
Eyjólfur Melsted
bera með sér að þar er unnið bæði af
viti og alúð.
Hljómsveitin skilaði sínu verki
snyrtilega. Henni var ekki ætlað
áberandi hlutverk, en hennar stuðn-
ingur reyndist góður. Oboe d’amore,
tvö sem nýkomin em til landsins,
voru á köflum fullhávær, en það
hlýtur að breytast þegar menn átta
sig á notkun þeirra.
Margrét Bóasdóttir, sem hljóp í
skarðið fyrir Sigríði Gröndal,
skilaði sínu hlutverki með sóma.
Li.mdum minnir rödd hennar mig á
bjartan drengjasópran — nokkuð
sem af mörgum er talið afar eftir-
sóknarvert til kantötu- og messu-
söngs. — Elísabet Waage fór einnig
vel með sitt litla en kref jandi althlut-
verk. Halldór söng léttilega og þar
með skemmtilega og beinlínis lék sér
í hæðinni. Söngur Garðars verkaði
aftur á móti svolítið yfirdrifinn,
einkum í byrjun, en Garðar söng
annars af öryggi.
Mótettukór Hallgrímskirkju sýndi
að af honum er mikils að vænta,
haldi hann áfram á sömu braut.
Þegar Hallgrímskirkja verður loks'
fullsmíðuð þarf þá ekki að kvíða
þeirri hliö sem söngmál nefnast þar
á bæ.
-EM.
500
HLEÐ5UIR
SPARNAÐUR
ÞÆGINDI
CADMCA
VönduÓ teppi í úrvali
100%
ullarteppi
Lengi má
prýöa
fallegt heimili
100% gerviefni
Blanda af
ull og acril
komid tfppa rupim sjón er
OG SKODID SÍÐUMÚLA 31 - REYKJAVÍK • SÍMI 84850 SÖGU RÍKARI
iT%Mföstudaga kl. 9—20,
UHIt* manud--f,mmtud- kL9“ 19-[ laugardaga kl.9-16.
I HELGAB Matinn
X
b“
&T A/lar
vörur
á markaðsverði.
JL-PORTIÐ
NÝ VERSLUN
ALUÍGARNI
GRILLRÉTTIR
ALLAN DAGINN
RETTUR DAGSINS
OPIÐ Á
VERSLUNARTÍMA
GLÆSILEGT ÚRVAL
HÚSGAGNAÁ
TVEIMUR HÆÐUM
RAFTÆKI - RAFLJÓS
og ráfbúnaður.
Raftækjadeild |
II. hæð. ve
fnín
Munið okkar
hagstæðu
greiðsluskilmála
NYJUNG!
EUROCARD
Jli
' Jón Loftsson hf.
/A A A A A A *
I ÍU L_ Ci Ú1 ZO ;f.T
Iílqcccj
LJ L- U □! VllJ'
iiuiuriMMtaiiwuiii
Hringbraut 121 Sími 10600
LUGTIR
á/eiði
ástvinanna
Kerti
fyrir/iggjandi.
Sendum í póstkröfu
hvert á land sem er
Raftækja-
verzlun
Kópavogs h/f
Hamraborg 11 Kópav.
Sími43480.