Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Blaðsíða 21
mm omnmprrrn t or-1 ^ w.iMT'a \tn
DV. FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER1983.
29
óttir
(þróttir
(þróttir
(þróttir
n allt í lagi aö leika við tsland núna.
„Allt í lagi að
vera í riðli með
íslandi núna”
— „þrátt fyrir slæmar minningar frá riðlakeppni
heimsmeistarakeppninnar á Spáni”, sagði Mike England
landsliðsþjálfari Wales. Jock Stein mjög ánægður og
Bobby Robson, þjálfari Englands, vill ekki breyta
„Ég hefði nú helst viijað komast hjá
bresku liði en að öðru leyti er ég
ánægöur með riðilinn sem Wales er í.
Það var slæmt að fá Skota,” sagði
Mike England, landsliðsþjálfari Wales
í BBC í gærkvöld og fréttamaðurinn
var þá fljótur að skjóta á hann. „En þið
eigið slæmar minningar frá leiknum
við ísland í síðustu riðlakeppni heims-
meistarakeppninnar,” og England
svaraði. „Jú, vissulega er það rétt en
það er allt í lagi að vera í riðli með ís-
landi. Við þekkjum nú vel alla leik-
menn Islands og eigum að geta sigrað
þá,” sagði landsliðsþjálfari Wales.
ÍSKU LIÐIN UR
VRÓPUMÓTUM
Y\ Bayern Miinchen
Hart Lane
skaliaði til Archibald sem skoraði í
annarri tilraun.
Eftir markið breytti Bayern alveg
um leikaðferð og fór að koma miklu
meira inn í myndina. Karl Heins fór í
framlínuna og eftir því sem leið á hálf-
leikinn fór að verða mikil hætta við
mark Tottenham. Clemence hafði
mikið að gera og svo lék Karl Heinz
litla bróður sinn Michael dauðafrian
við mark Tottenham. Ungi strákurinn
misnotaöi þetta besta færi leiksins og
Karl Heinz greip um höfuðið. Þetta
var örlagaríkt fyrir Bayem. Stuttu
síðar eöa á 87. mín. náði Tottenham
skyndisókn, Hoddle gaf á Falco sem
skoraði hjá Pfaff. Lokamínútumar
sótti Bayern ákaft — eitt mark hefði
nægt liðinu til að komast í næstu um-
ferð. En því tókst ekki aö skora og loks
þegar þrjár mínútur vom komnar yfir
venjulegan leiktima flautaði franski
dómarinn leikslok. Gífurlegur fögnuð-
ur á White Hart Lane 41.977 áhorfenda.
Sungið Glory, glory, hallelujah svo
ekki heyrðist meira í þulum BBC.
Tvær breytingar voru geröar á Tott-
enham-liðinu í leiknum. Chris Hough-
ton haltraöi snemma leiks af velli og
kom O’Reilly í hans stað og um miðjan
síöari hálfleikinn kom Garry Brooke í
stað Cook. Argentínski heimsmeistar-
inn Osvaldo Ardiles kom því ekkert inn
á hjá Tottenham eins og reiknað hafði
ColinWalsh guUtryggði sigur Forest.
verið með. Hann var meöal vara-
manna, hins vegar ekki Allan Brazil.
hsim.
„Við leikum ekki upp á neitt annað
en efsta sætið í sjöunda riðlinum,”
sagði Jock Stein, landsliðseinvaldur
Skota, í viðtali við BBC. „Það er ágætt
að vera í riðli með Wales og Islandi —
þekkjum leikmenn þessara landa þó
við höfum ekki áður leikið við Island og
Spánverjar eru slakir á útivelli. Þetta
var góður dráttur fyrir Skotland og ég
tel aö þýöingarmestu leikir Skotlands í
riðlinum verða við Wales. En það verð-
ur ekkert vandamál fyrir okkur í þess-
um riðli,” og Jock Stein var mjög
bjartsýnn á möguleika Skotlands í sjö-
unda riðliHM.
Þess má geta aö það liö sem verður í
ööru sæti í riðlinum gæti átt langa ferö
fyrir höndum þvi eftir að hafa keppt
við liðin sem verða í öðru sæti í fyrsta
og fimmta riðli þarf sigurliðið að leika
við sigurvegarann úr riðli Eyjaálfu.
Þar gæti því orðið um að ræöa ferð til
Ástralíu. Nýja-Sjálands eða Taiwan.
Kannski þurfa íslensku strákamir
þess eða þá aö leika í I srael? ?
Vildi ekki breyta
,,Ég vildi ekki breyta þessu,” sagði
enski landsliðsþjálfarinn Bobby Rob-
son í Ziirich í gær eftir dráttinn í riöl-
Jock Steln—bjartsýnn
ana „en við verðum að gæta þess að
þaö verði einnig bros á andlitum okkar
þegar keppninni lýkur, eins og er í
dag,” sagði hann ennfremur. Það er
almennt álitið að Englendingar hafi
veriö mjög heppnir í drættinum. Þriðji
riðillinn sé hinn langléttasti í Evrópu.
hsím.
Meistaraheppnin
er með Stuttgart
— sem vann Hamburger 2-0 í geysilega spennandi leik
Frá Hilmari Oddssyni — frétta-
manni DV í V-Þýskalandi:
Er meistaraheppnin komin i her-
búðir Stuttgart? Ásgeir Sigurvinsson
og félagar hans hjá Stuttgart unnu
góðan sigur (2:0) yfir Hamburger SV í
Hamborg í gærkvöldi sem var heppnis-
sigur en þó ekki ósanngjarn. Ham-
burger áttu mun meira í leiknum en
leikmenn félagsins náðu ekki að skora
og urðu að sætta sig við fyrsta tapið á
heimavelli síðan 16. maí 1981, en þá
var það einmitt Stuttgart sem vann í
Hamborg3:l.
. Felix Magath vann einvígið við
Ásgeir þar sem hann var besti leik-
maður vallarins. Asgeir lék þó ekki illa
— sendingar hans voru glæsilegar og
Forest fór létt
í gegn í Glasgow!
Brian Clough og lið hans Notting-
ham Forest gerðu allar hrakspár að
engu í UEFA—leiknum við Celtic í
Glasgow í gærkvöld, — sigraði 1—2 að
viðstöddum 66.938 áhorfendum á Park-
head. Forest sigraði því 2—1 saman-
lagt eftir að markalaust jafntefli hafði
orðið í fyrri leik liðanna í Nottingham.
Celtic hafði aldrei möguleika í gær eft-
ir að Forest hafði náð tveggja marka
forustu, aldrei möguleika á að skora
þrjú mörk h já Nottingham-liðinu.
Ekkert mark var skoraö í fyrri
hálfleik liðanna í Glasgow í gær. For-
est var þó betra liðið en leikmenn Celt-
ic náðu sér aldrei verulega á strik.
Það kom því engum á óvart þegar For-
est náði forustu á 53. min, Steve Hodge
skoraöi, þaö þurfti ekki annað en að
renna knettinum innanfótar í mark
Celtic eftir undirbúning Steve Wigley.
Celtic reyndi mjög að jafna en holl-
enski landsliðsmaðurinn Hans van
Breukelen var mjög öruggur í marki
Forest. Hann verður þó ekki lengi í
markinu hjá Forest. Er á leið til PSV
Eindhoven í Hollandi.
Á 74. mín. gulltryggði svo Colin
Walsh, Nottingham Forest, sæti í átta-
liða úrslitum UEFA-keppninnar þegar
hann skoraði annað mark Forest á 79.
mín. en Celtic átti aldrei möguleika á
að skora tvö mörk til viöbótar.
hsím.
einnig samspil hans við Dan Comelíus-
son.
Þaö var varnarleikur Stuttgart,
sem Bernd Förster stjórnaði, sem var
frábær og þá varði Helmut Roleder,
markvörður Stuttgart, oft glæsilega —
og var hetja félagsins. Hamburger
fékk 24 hornspyrnur gegn 7 hornspym-
um Stuttgart sem sýnir nokkuð gagn
leiksins.
Dan Coraelíússon skoraði fyrra
mark Stuttgart á 67. mín. Eftir það
háðu leikmenn Hamburger harða sókn
að marki Stuttgart en allt kom fyrir
ekki — þeir áttu skot í stöng og síðan
varði Roleder tvisvar meistaralega á
ótrúlegan hátt. Það var svo Karl
Allgöwer sem skoraði 2—0 fyrir Stutt-
gart á 88. mín. og kom það mark eins
og þruma úr heiðskíru lofti — þvert á
gang leiksins.
— Bundesligan þarf nýtt andlit —
nýja meistara,” sagöi Helmut
Benthaus, þjálfari Stuttgart, eftir
leikinn og bætti við: — „Það var ekki
sérlega glæsileg knattspyma sem var
leikin hér en leikurinn var geysilega
spennandi.”
Emst Happel, þjálfari Hamburger,
var ánægður með sína leikmenn en
hann sagði svo: — „Heppnin var með
Stuttgart en ekki okkur. Því fór sem
fór”.
-HO/-SOS
róttir
íþrótt
íþróttir
Frank Stapieton jafnaði fyrir Man. Utd.
Oxford náði
jafntefli
á Old Trafford
Man. Utd. og Oxford verða að leika
þriðja leikinn í 4. umferð enska mjólkur-
bikarsins. Jafntefli varð 1—1 hjá liðunum
á Old Trafford i gærkvöldi eftir framleng-
ingu.
Liðiö úr 3. deild hélt vel sinum hlut í
fyrri hálfleik þó þeir Arthur Graham og
Bryan Robson væru nálægt því að skora
fyrir heimaliðið. Steve Vinter fékk þó
mesta tækifærið og heföi átt að skora fyrir
Oxford.
í síðari hálfleiknum haföi Man. Utd.
verulega yfirburði en gekk illa við markið.
Ray WiJkins fékk gott færi á 55. min. sem
hann misnotaði, síðan Robson, sem
spymti framhjá af fimm metra færi. Verst 1
fór þó Norman Whiteside að ráði sínu þeg-
ar hann kom knettinum yfir markiö
næstum undir þverslánni. Á 69. mín. náði
Oxford svo mjög óvænt forustu. Fékk
aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Kevin
Brock skoraði beint úr henni. Man. Utd. óð
í sókn, Mike Duxbury gaf fyrir og Frank
Stapleton jafnaöi, 1—1. Fleiri urðu mörkin
ekki, Robson átti skot í þverslá og liðin
verða þvi að reyna með sér i 3ja sinn.
Þeir Andy King og Kevin Sheedy skor-
uðu mörk Everton í framlengingu, þegar
Everton vann West Ham 2—0 i Liverpool í
mjólkurbikamum i fyrrakvöld. Paul
Conoville skoraði þá þrennu fyrir Chelsea í
6—1 sigrinum á Swansea i 2. deUd. hsím.
Reykjavíkur-
mótið
íknattspyrnu
Það er búið að raða niður í riðla í
Reykjavíkurmótinu í innanhússknatt-
spyrau karla, sem fcr fram 29. desembcr
og 2. janúar 1984.
A-RIÐILL: Vikingur, KR, Fram, IR
og Vikverji.
B—RIÐILL: Valur, Þróttur, Leiknir,
Ármann og Fylkir. -SOS
Danir sigruðu
Vestur-
Þjóðverja
— í landsleik
íhandknattleik
Danir unnu sætan sigur á Vestur-Þjóð-
verjum í landsleik í handknattleik i óðins-
véum á sunnudag. Skoruðu tvö síðustu
mörk letksins og sigruðu 17—16 og 2000
áhorfendur fögnuðu gííurlega.
Staðan í hálfleik var 11—10 fyrir Vestur-
Þýskaland en Mogcns Jeppesen átti mjög
snjallan leik í danska markinu i siðari
hálfleik. Fékk þá aðeins á sig fimm mörk.
Um tíma í fyrri hálfleik virtust Þjóð-
verjarair vera að tryggja sér sigur. Kom-
ust í 10—7 en skoruðu svo aðeins tvö mörk
gegn sex á næstu minútum. Danir komust i
13-12.
Morten Stig Christensen var mark-
hæstur Dana 6/3. Erik Veje Rasmussen 4.
Miehael Paul skoraöi flest mörk V-Þjóð-
verja 4 og Uwc Springel var næstur með
þrjú. hsím.
fþróttir
fþróttir
íþróttir