Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Síða 30
38
DV. FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER1983.
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Nýjar bækur
ÉG ER
eftir dr. Benjamín Eiríksson
Dr. Benjamín stundaði öll algeng
störf, eyrarvinnu og sjómennsku
framan af ævi meðfram glæstum
námsferli við sex erlenda háskóla, og
þessi víðfeðmu kynni af lífi eigin
þjóðar og stórþjóða móta öll efnistök
hagfræðingsins; hann horfir á þjóð
sína undan mörgum sjónarhornum,
og er þó allra manna íslenskastur.
Meðal efnis bókarinnar eru öll hin
stórsnjöllu skrif hans um þjóðmálin
síðustu þrjú ár. Doktomum er gefin
sú gáfa að reiða fram flókin trúar- og
hagfræðimálefni á svo ljósu og kjarn-
yrtu alþýöumáli, og raunar mein-
fyndnu, að auöskiljanlegt veröur
hverju mannsbami. Meira en helm-
ingur bókarefnisins er áður óbirt, en
dr. Benjamin dvaldi við háskóla i
Berlín og Moskvu á umbrotatím-
um nasisma og kommúnisma. A
þeirri dvöl reisir hann kynngimagn-
aða úttekt sína á nasismanum
(Hefndin og endurkoman) ' og
kommúnismanum (Dýriö), og skipar
í guðfræðiiegt samhengi, en yfir-
burðaþekking dr. Benjamíns á guð-
fræði, ein sér, er allrar athygli verð
og kemur í opna skjöldu. Bókin er
fjögur hundruð blaðsíður, auk sextíu
myndasíöna úr einkalífi og starfsferli
doktorsins. Ef einhver rödd getur
kallast rödd hrópandans í eyðimörk-
inni í íslensku samfélagi um þessar
mundir, þá er þaö rödd dr. Benja-
míns.
Arnartak gefur bókina út. Prent-
smiöja Áma Valdimarssonar prentaði
og hún er bundin i bókbandsstofunni
örkinni.
. ErikNerlöe
ASTOG
BLEKKING
Euo5teen
Hnnn Hom
umnon
Ást og blekking
eftir Erik Nerlöe
Einmana
eftir Else-Marie Nohr
Hann kom
um nótt
eftir Evu Steen
Rauðu ástarsögurnar eru spennandi
og vel skrifaðar skemmtisögur eftir
kunna og vinsæla höfunda. Ut eru
komnar hjá bókaútgáfunni Skuggsjá,
Hafnarfirði, þrjár nýjar bækur í þessu
vinsæla safni: Ast og blekking eftir
Erik Nerlöe, Einmana eftir Else-Marie
Nohr og Hann kom um nótt eftir Evu
Steen.
Ast og blekking eftir Erik Nerlöe
fjallar um Súsönnu, foreldralausa
stúlku, sem fellir ástarhug til Torbens,
ungs manns. Hún verður ófrísk og
þeim er stíað í sundur og barniö á aö
setja í fóstur. Súsanna er send til Eng-
lands og loks fer hún til Frakklands.
Þar giftist hún Victor Renard verk-
fræðingi. Dag einn fréttir Súsanna af
dreng, sem er á sama aldri og drengur-
inn hennar, ber sama nafn og er frá
sama bæ og hún hafði áður búið í. Hún
kemst að því að þetta er drengurinn
hennar og einnig aö hún og Torben,
ungi maðurinn sem hún haföi unnað
svo heitt, höfðu verið blekkt á ósvífinn
hátt og svikarinn var maöurinn sem
hún hafði gifst.. .
Einmana eftir Else-Marie Nohr
segir frá Lónu Hartmann, 17 ára
stúlku. Henni er rænt og faðir hennar
neitar að greiða lausnargjald en fær
lögregluna til að sjá um málið.
Ræningjarnir ákveöa þá að myrða
Lónu en einn þeirra er á móti því og
hann hjálpar henni til aö flýja. Þau
fella síðan hugi saman og Lóna verður
barnshafandi en ýmsir erfiðleikar
steöja að.. .
Hann kom um nótt eftir Evu Steen
segir frá Bellu Dalton sem vaknar við
það eina nóttina að inni hjá henni er
vopnaöur maður. Þetta er morðingi
sem flúið hafði úr ríkisfangelsinu og
var nú leitað af ríkislögreglunni. Þessi
maður þvingar Bellu með sér á flótt-
anum næstu sólarhringana. En á
þessum tíma kynnist hún syni morð-
ingjans, Róbert, sem er algjör and-
stæöa fööurins. Bella verður ástfangin
af Róbert. .. .
Ást í
skugga óttans
eftir Anne Mather
Prentver hefur sent frá sér bók-
ina Ast í skugga óttans eftir Anne
Mather. Höfundurinn er geysivinsæll
um allan hinn enskumælandi heim og
hafa bækur hennar verið á metsölu-
listum i Englandi um langt skeiö. Ast
í skugga óttans er spennandi saga um
ástir og örlög ungrar konu sem giftist
rosknum manni. En hvers vegna?
Sagan er full af dularfullum atburð-
um sem halda athygli lesandans til
bókarloka.
ðST 15KTOA ÓTMN5
RÓMAN J
PRENTVE8
Fjórar bækur
eftir Sven Hassel
Ægisútgáfan hefur endurútgefið
fjórar af bókum Sven Hassel, eru það
bækurnar Barist til síðasta manns,
Martröð undanhaldsins, Monte Casino
og SS-foringinn.
Barist til síðasta manns er um her-
sveit hinna fordæmdu. öllum var
sama hvort þeir lifðu eða dæju. Þeim
var h'ka sama hver mundi vinna
stríðið. Það eina sem þeir stefndu að
var að lifa hörmungamar af til stríös-
loka. Þeir börðust eins og dýr, ekki
bara við óvininn heldur líka hver við
annan. Hitler kom þeim ekkert við.
Þýskaland kom þeim ekkert við enda
kæröi sig enginn um þá.
Martröð undanhaldsins er um
þegar hersveit hinna fordæmdu er
send í hina brjálæðislegu ormstu á
víglínunni í Rússlandi. Yfirmenn
þýska hersins vildu hafa þá fremsta
því enginn hafði áhyggjur af þeim.
Þeir voru meöhöndlaðir eins og dýr
og höguðu sér eins og dýr. Þegar
undanhaldið hófst þjáðust þeir mest
því síöast var hlúö að þeim. Hér er
lýst hrikalegum en sönnum atburöum
frá lokaátökunum í Rússlandi.
Monte Casino er talin ein sú besta
af bókum Sven Hassel. I hersveit
hinna fordæmdu, sem samansett var
úr úrhraki þýska hersins, voru hka
„menn” sem vildu hfa en ekki deyja.
Þeir fórnuðu öhu til þess, en þeir
virtu ekki reglur hersins og létu Ula
að stjóm. Þeir vom ætíð í fremstu
víglínuogþarmeðínávígi. ..
SS-foringinn: Fyrir þýska herinn
er sat um Stalingrad voru hvatning-
arorð Hitlers: „berjist tU síöasta
manns, þar til síðasta skot hefur
verið notað,” sem var staöfesting á
því að þeir væra dauðadæmdir. Her-
inn var gjörsamlega búinn að vera.
Veturinn hafði tekið sínar fómir og
þeir sem Ufðu hann af vora ekki
lengur færir um að berjast.
Hungraöir, útkeyröir og niðurbrotnir
biðu leifar þýska hersins dauöa síns,
þar til SS foringinn, ein af hetjum
Hitlers kom...
Komiði sæl!
Hressileg samtalsbók við
Sigurð Sigurðsson.
Bókaútgáfan Vaka hefur sent frá
sér hressilega viötalsbók við Sigurð
Sigurösson, fyrrum íþróttafréttamann
útvarps og sjónvarps. Það er VUhelm
G. Kristinsson sem skráð hefur bók-
ina sem heitir Komiöi sæl!
Á bókarkápu er minnt á að ávarpið
„Komiði sæl!” hafi verið eins konar
vöramerki Sigurðar Sigurössonar öll
þau ár sem hann starfaði viö frétta-
mennsku og þáttagerö hjá ríkisfjöl-
miðlunum.
I bókinni Komiði sæl!, sem er tæpar
þrjú hundrað síöur að stærð, er víöa
komið við á hfsferli Sigurðar Sigurðs-
sonar undanfama áratugi, enda af
mörgu að taka.
Frásögnin er ekki síst opinská varð-
andi það, sem gerðist á bakvið tjöldin
í rikisfjölmiðlunum og kemur þar að
sögn Sigurðar fram margt, sem ekki
var hægt að segja í hljóðnemann.
Sigurður talar einnig tæpitungu-
laust um íþróttahreyfinguna og rifjar
upp sitt af hverju úr keppnisferðum
íslenskra íþróttamanna til útlanda á
ýmis norræn og evrópsk stórmót og
einnig á ólympíuleika.
Þetta er fyrsta bók Vilhelms G.
Kristinssonar, en hann starfaöi lengi
við blaöa- og fréttamennsku, og vann
meðal annars með Sigurði Sigurðs-
syni í rúman áratug á fréttastofu út-
varpsins.
Bókin Komiði sæl! er sett, filmu-
unnin og prentuð hjá Prentstofu
Guðmundar Benediktssonar, en Bók-
fell hf. sá um bókband.
i| 'sá
i
m-Ph
Beðið eftir
strætó
eftir Pál Pálsson
Iðunn hefur gefið út nýja skáldsögu;
eftir Pál Pálsson. Nefnist hún Beðiö
eftir strætó og lýsir lífi unglinga í
Reykjavík samtímans sem leita sér
æsilegrar lífsreynslu í heuni fíkniefn-
anna. I formála, „Til lesenda”, segir
höfundur um söguna á þessa leið:
„Beðið eftir strætó er skrifuð eftir frá-
sögnum ungra Reykvíkinga á aldrinum
þrettán til tuttugu og eins, og standa í
þeim sporum sem sagan reynir að
máta sig í. Allt sem hér fer á eftir
hefur gerst — og er enn að gerast á
einn eða annan hátt — í raunveruleik-
anum. Persónur sögunnar eru hins-
vegar skáldskapur og sá sem þykist
þekkja einhvern annan en sjálfan sig í
biðskýlinu gerir það á eigin ábyrgð.”
— Eftir Pál Pálsson hefur áður komið
út sagan Hallærisplanið. Beðið eftir
strætó er 96 blaðsíður. Anna Gunn-
laugsdóttir teiknaði myndir og kápu.
Oddi prentaði.
Njósnari
Lincolns
eftir Louis A. Newcome.
Ut er komin hjá Prentveri sagan
Njósnari Lincolns eftir Louis A. New-
come. Þetta er önnur útgáfa en sú
fyrri seldist upp á fáum dögum fyrir
allmörgum árum.
Efni bókarinnar er endurminning-
ar úr borgarastyrjöldinni í Bandaríkj-
unum.
Louis Newcome höfuðsmaður var
14 ára þegar styrjöldin hófst og það
kom í hans hlut að inna af hendi þýð-
ingarmikið starf í þágu upplýsinga-
þjónustunnar — hann var bara ber-
fættur og rauðhærður strákur — hver
hefði trúað því aö hann væri njósn-
ari? Hann rataði í margan og mikinn
háska en hann slapp heill á húfi úr
hverri hættu og missti aldrei móðinn.
Það er ekki fyrr en á efri árum sín-
um sem hann verður viö hinum
mörgu tilmælum um að bókfesta
endurminningar sínar frá þessum við-
burðaríku æskuárum. Hann lýsir at-
burðunum eins og hann man þá,
mörgum árum eftir að þeir gerðust,
og bókin bregður upp, auk þess sem á
daga Newcomes dreif, fagurri mynd
af einum mesta manni Bandaríkj-
anna, Abraham Lincoln.
Á brauði
einu saman
eftir Mohamed Choukri.
Nýlega kom út bókin Á brauði einu
saman eftir Mohamed Choukri.
Choukri er Marokkómaður og rekur
hann í bókinni uppvaxtarár sín í
skuggahverfum tveggja stórborga í
Marokkó. Hungur, ofbeldi, eiturlyf,
vændi og glæpir varpa skugga á líf
hans en hann reynir aö lifa eins og
manneskja þrátt fyrir þessar erfiðu
aöstæður. Bókin er spennandi og
tæpitungulaus, en hún hlýtur að
verða íslenskum lesendum sérstak-
lega minnisstæð af því að hún lýsir
menningarheimi sem okkur er fram-
andi. Sakir hreinskilni sinnar hefur
bókin ekki fengist útgefin í arabalönd-
unum. Halldór B. Runólfsson þýddi
sögu Chourkris og hannaöi kápu.
Bókin er gefin út hjá Svörtu á hvítu
og unnin hjá Guðjóni 0 og Félagsbók-
bandinu. Hún er 200 bls. aö stærð og
kostar590krónur.