Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1983, Blaðsíða 34
DV. FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER1983.
42
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DANSOG
BORÐTENNIS
í jólaskapi í jólamánuði, segjum við í DvöUnni nú þegar aðeins sextán dagar
eru tU jóla. Og að sjálfsögðu bjóðum við ykkur góðan og þægUegan fimmtu-
dag, félagar og vinir góðir.
Við dönsum í kringum borðtennisborð að þessu sinni, fjöllum um dans og
borðtennls. Hvort tveggja iþrótt sem mUljónir manna stunda sem dægradvöl.
Fyrst lítum við inn í Broadway og tökum Kolbrúnu Aðalsteinsdóttur, dans-
kennara og danshöfund, tali. Hún er ásamt vinkonu siimi, Herborgu Beradsen,
höfundur dans sem nefnist cobra. En sá dans hefur vakfð mUda athygU að
undanförnu.
Þá er það ping-pongið. Við förum í Laugardalshöllina á æfingatima ungs
fólks í borðtennisfélaginu Erninum. Fullt af fjörugu fólki sem slær hvitu
kúluna yfir netið.
Texti: ién G. Hauksson
Myndir: Einar Ólason og
GunnarV. Andrésson
Barátta i öllum borðum hji unglingunum i borðtennisfólaginu Erninum i Laugardalshöll. Starfsemi
Arnarins er gróskumikil og margt áhugasamt borðtennisfólk er nú að koma fram á sjónarsviðið. Þjálfari
unglinganna er Gunnar Finnbjörnsson. D V-mynd: G VA
Þær voru ekki i vandræðum með að svara fyrir sig i borðtennisnum, þær Anna Lára Þórisdóttir og Hanna
Arnardóttir. Hér er„sú hvita"send tilbakameð tilþrifum. DV-mynd: GVA
„Mjög skemmtilegt”
— fylgst með þeim Önnu Láru Þórisdóttur og
Hönnu Amardéttur í „ping-ponginu”
Þær Anna Lára Þórisdóttir og Hanna
Arnardóttir létu sig ekki muna um
það að bjóöa tveimur ungum herra-
mönnum byrginn í borðtennis er Dægra-
dvölin skoraöi á þær að gera slíkt.
Þær tóku „spöðum saman”, ef svo
má segja, og síðan var kúlan látin
„hafa sinn gang” með snúningum og
„smössum”.
„Eg byrjaði í borðtennis er ég var á
Landspítalanum. Þar er borðtennis-
borð sem varö til þess að kveikja
áhugann. Eg ákvað svo aö fara hingaö
í unglingatímana hjá Erninum í
haust,” sagði Anna Lára.
Hún sagðist ekki vera í neinum öðr-
um íþróttum. „Læt borðtennis duga í
bili.”
Um það hvort hún ætlaði að vera í
borðtennis áfram sagðist hún búast við
því.
„Þetta er skemmtileg íþrótt. ”
Hanna Amardóttir byrjaði í borö-
tennis í nóvember í fyrra. Hún er
aðeins 10 ára gömul.
„Nei, nei, þaö er ekkert borðtennis-
borð heima. Eg fékk áhuga á borð-
tennisnum er ég fór að fylgjast með
vinkonu minni sem æfir hér hjá Ernin-
um. Eg fór þá bara líka.
Sannarlega kraftmiklar og líflegar
stúlkur, Anna Lára og Hanna.
-JGH
Spilum í frímínútum
— rætt við Gunnar Þér Valsson, tvöfaldan
Reykjavíkurmeistara íborðtennis
„Besti vinur minn æfði borötennis
hér hjá Eminum og hann fékk mig út í
þetta,” sagði Gunnar Þór Valsson, 14
ára, er við trufluðum hann í borðtenn-
isnum.
Kunningi Gunnars þarf örugglega
ekki að sjá eftir því að hafa fengið
hann í borötennis. Gunnar varð nefni-
lega tvöfaldur Reykjavíkurmeistari í
borðtennisnýlega.
Gunnar er úr Garðabænum. Og það
er með hann eins og Jón H. Karlsson,
hann byrjaði að fikta í borötennis í
skólanum, Garöaskóla. Borðtennis hjá
Erninum hefur hann æft í sex til sjö
mánuði.
„Það er svo mikill áhugi núna, þegar
við spilum í írímínútum, að maður nær
ekkiborðilengur.”
Gunnar er ekki aðeins í borðtennis.
Hann spilar líka handbolta og fótbolta
meö Stjömunni í Garöabæ.
Reyndar á hann ekki langt að sækja
iþróttaáhugann. Faðir hans, Valur
Tryggvason, spilaði knattspymu í Val
og bróðir hans, Valur Valsson, er
meistaraflokksmaður í knattspym-
unni. Auðvitað í Val.
-JGH
í>
Gunnar Þór Valsson er ekki i
vandræðum með þessa sendingu.
Gunnar er sonur Vais Tryggvasonar,
fyrrum knattspyrnumanns í Val.
DV-mynd: GVA.
Lipur piltur, Jón H. Karlsson. Hór undirbýr hann „smash". Þess má
geta að Jón er sonur Karls Jóhannssonar sem lengi spilaði handknatt-
leik með KR. D V-m ynd: G VA
„Borðtennis og golf
fer mjög vel saman”
—segir Jén H. Karlsson sem spilar
golf, handbolta og borðtennis
„Eg er búinn að spila borötennis í um
þrjú ár og hef mjög gaman af þessari
íþrótt,” sagði Jón H. Karlsson, einn af
unglingunum sem æfa borðtennis hjá
borðtennisfélaginu Erninum.
Jón er aðeins 14 ára og þykir vel liö-
tækur borötennisleikari. Hann er
sennilega þó þekktari fyrir árangur
sinn í golfíþróttinni. En þar þykir hann
mjög efnilegur, er með 8 í forg jöf.
En hvernig fer golfið og borðtennis
saman? „Mjög vel finnst mér. Það er
ákveöin mýkt í báöum íþróttunum.”
Jón sagðist oft spila borötennis í
skólanum, Breiöholtsskóla, og þar
byrjaði áhuginn. „Leikum oft borö-
tennis í frímínútum.”
Heima hjá sér spilar hann viö föður
sinn og bróöur. En þess má geta að fað-
ir hans er Karl Jóhannsson, fyrrum
handknattleiksmaður í KR.
Því má svo bæta við í lokin að Jón
spilar einnig handbolta með IR.
-JGH