Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1983, Side 3
DVl LAUG ARDAGUR17. DESEMBER1983.,
3
SKATTAFRADRÁTTUR
AF FJÁRFESTINGUM
(ATVINNUREKSTRI
Ríkisstjómin lagði í gær fram tvö
frumvörp um breytingar á skattalög-
um sem ætluð eru til að örva f járfest-
ingu og eiginfjármyndun í atvinnu-
lífinu.
I frumvarpi um breytingu á lögum
um tekju- og eignaskatt er gert ráð
fyrir að fenginn arður af hlutafjáreign
verði frádráttarbær hjá einstaklingum
allt að 10% af nafnverði einstakra
hlutabréfa. Hámark frádráttar er þó
sett við 25 þúsund krónur hjá einstakl-
ingi og 50 þúsund krónur hjá hjónum.
Hliðstæö ákvæði eru í gildandi lögum
en mörkin eru hækkuö. Þá er lagt til að
heimilt verði að draga hlutabréfaeign
og innistæður á stofnfjárreikningum
einstaklinga frá eignum þeirra við
ákvörðun á eignaskattsstofni, alit að
250 þúsund krónum hjá einstaklingi og
500 þúsund krónum hjá hjónum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
fymingar verði hækkaðar þannig að
fymingar af skipum verði nú 10% í
stað 8%, af verksmiðjuvélum og
iðnaðarvélum 15% í stað 12%, af vélum
,og tækjum til mannvirkjagerðar og
jarðvinnslu, bifreiðum og tölvubúnaði
verði 20% í stað 12% og af mannvirkj-
um verði fymingar 2 til 10% í stað 2 til
6%.
Ljóst er að einhver lækkun verður á
tekjum ríkissjóös af þessum sökum
þótt ekki verði séð á þessu stigi hversu
mikil hún verður.
Frumvarp um frádrátt frá skatt-
skyldum tekjum manna vegna fjár-
festingar í atvinnurekstri gerir ráð
fyrir að kaup á hlutabréfum séu frá-
'dráttarbær frá skattskyldum tekjum.
Forsendur þess em þó þær að um sé að
ræða aukningu á fjárfestingu í at-
vinnurekstri, að hlutafé fyrirtækisins
sé ekki minna en 10 milljónir króna
með ekki færri en 100 hluthöfum og að
engar hömlur séu lagðar á viðskipti
með hlutabréf fyrirtækisins. Ríkis-
skattstjóri mun halda skrá yfir þau
hlutafélög sem fullnægja þessum skil-
yrðum. Jafnframt gerir frumvarpið
ráð fyrir að fjárframlög í starfs-
mannasjóöi, sem ætlaðir eru til kaupa
á hlutabréfum, og framlög á stofnfjár-
reikninga, sem ætlaðir era til stofnun-
ar atvinnurekstrar, verði frádráttar-
bærtilskatts. ÓEF.
/ ■
Myndlistar-
sýning í
Hafnarfirði
Hjónin Sigrún Guðjónsdóttir og
Gestur Þorgrímsson hafa opnað
sýningu i vinnustofu sinni aö
Austurgötu 17 í Hafnarfirði og
verður sýningin opin fram yfir
helgi. Sýningin er í þrennu lagi.
Sigrún sýnir myndir málaðar á leir
og pappír og Gestur sýnir högg-
■myndir. Þá sýna þau leirmuni sem
þau hafa unnið saman, þannig að
iGestur hefur unnið formiö en
iSigrún málaö.
Eldvarna-
kerfiðíhúsi
gamla fólks-
ins í gang
- vegna tóbaksreykinga
Eldvamakerfið á Droplaugarstöð-
um við Snorrabraut, þar sem ibúöir
aldraöra eru, fór í gang um kl. 1.50 i
fyrrinótt.
Kerfið er tengt beint við slökkvistöð-
ina og fór slökkviiiðið því þegar af stað
og var fljótt á staöinn enda stutt að
fara. Engan eld var aftur á móti að
finna í húsinu en þegar farið var að
kanna málið nánar kom í ljós að eld-
varnakerfið hafði farið í gang vegna
tóbaksreykinga. Getur slíkt komið fyr-
ir ef mjög heitt er inni í herbergi og þar
mikið reykt að auki.
-klp-
Hrísey:
Snæfell land-
aði 50 tonnum
Frá Valdísi Þorsteinsdóttur, frétta-
ritaraDVíHrísey.
Togarinn Snæfell landaði 50 tonnum
á fimmtudag eftir 6 daga útivist og er
heiidarafli hans frá áramótum orðinn
2115 tonn. Þess má geta að togarinn fór
í 12 ára klössun á árinu og var frá veið-
um í 6 vikur vegna þess.
Togskipið Sólfeli mun hefja línu-
veiðar eftir áramótin en þaö er núna í
slipp. Heildarafli þess frá áramótum
er 1060 tonn en þar af eru 540 tonn síld
sem ekki var landaö hér í Hrísey.
-GB
Hljómtœkjasamstœður með öllu
Z-15 system - kr. 26.435 stgr.
Z-35 system - kr. 31.200 stgr.
JAPIS hf.
BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 27133