Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1983, Qupperneq 4
4
DV.fóu&ÁffóÁ6%á 17. Í)ÉSÉtóBEttlé83.v’
Flugleiðaþota kom skökk inn á Kastrupflugvöll tvisvar í röð:
Tókst ekki að
lenda fyrr en
í þriðju tilraun
Flugleiðaþota, full af farþegum,
hætti tvisvar í röð á síðustu stundu
við lendingu á Kastrupflugvelli í
Kaupmannahöfn fyrir nokkrum
vikum. Þaö var ekki fyrr en í þriðju
tilraun sem lent var.
Samkvæmt lýsingu eins farþega
var þotan, Boeing 727, komin niður
undir flugbraut þegar hreyflum var
skyndilega gefiö fullt afl. Þotan klifr-
aði upp, flaug hring en hóf síðan
aðflugáný.
1 annarri tilraun fór á sama veg.
Rétt áöur en þotan átti að snerta
flugbrautina var hætt við lendingu og
klifrað upp á nýtt.
Talsverður órói varö meðal far-
þega. Kliöur fór um farþegarýmið.
'Grátur heyrðistfrá fullorðnu fólki.
Flugvélin sveimaði nokkra stund í
nágrenni flugvallarins áður en reynt
var í þriðja sinn. Þriðja aðflugið
hófst. Að þessu sinni gekk allt að
,óskum og þotan lenti.
Frá Flugleiöum fengust þær
upplýsingar um atburð þennan að
hætt hefði verið við lendingu í bæði
skiptin vegna þess að þotan hefði
'komið skökk inn.
Aðstoðarflugmaðurinn mun hafa
reynt þessar lendingar. Samkvæmt
heimildum DV tók flugstjórinn við
áður en þríðja tilraun var gerð.
Veöur á Kastrup var hið þokkaleg-
:asta. Skyggni fyrir þotuaöflug var
sæmilegt. Sú flugbraut sem best er
búin tækjum, var ekki i notkun vegna
viðgerðar. Flugvélar urðu því að not-
ast við aðra braut sem, að sögn Flug-
leiðamanna, hentaöi ekki eins vel
miðaö við aðstæður.
-KMU.
Þorskveiðar á
næsta ári
220.000 tonn
— þýðir að aðeins má veiða 66 milljónir
þorska i stað 87 milljóna í ár
Á næsta ári má veiða allt að 220 þús-
und tonn af þorski, samkvæmt ákvörð-
un sjávarútvegsráöherra. Hann fór að
tillögum ráögjafanefndar sem meöal
annars er skipuð fulltrúum hagsmuna-
aöila og Hafrannsóknastofnunar. Sú
stofnun hafði þó upphaflega lagt til 200
þúsund tonna hámark.
Þetta þýðir ef eftir fer miklu minni
veiði á þorski á næsta ári en í ár.
Áætlað er að þorskveiðin verði 290 þús-
undtonnáárínu.
Ymislegt getur haft áhrif á þorsk-
gengd á næsta ári sem endra nær. Þó
er varla búist við verulegri göngu
iþorsks frá Grænlandi fyrr en 1985 og er
Nú getur þú notað
eitt oq sama VISA kortið
hér neima og erlendis.
0 u \ W \ Y
Breyttarreglurum VISAgreiðslukort \/|CA kortpru pfnroirlrl á
veitaþér nu heimild til að notakortið í *Korí u a!9re,aci a
verslunumog þjónustustöðum hér 40 afgreÍÖSlUStÖOUíTI
vtsA^íortið giidir einnig víðast hvar Landsbankans víðsvegar
annarsstaðaríheiminum. UITI landÍÖ.
LANDSBANKtNN
Bcuíki allra landsmanna
þá horft til sterks árgangs þar frá 1977.
,Einnig er til í dæminu aö þorskurinn
þyngist meö batnandi skilyrðum i sjón-
um, en hann hefur rýmaö ár frá ári
undanfarið og meðalþyngdm er nú 3,33
kíló á móti 3,65 kílóum fyrir þrem
árum. I ár er reiknað meö að 87
milljónir þorska veiðist, þessi 290 þús-
und tonn. Þeir verða þá ekki nema 66
milljónir sem veiða má á næsta ári,
breytist ekki meðalþyngdin.
Ákvörðunin um hámarksveiðar
tekur einnig til annarra botnfiskteg-
unda. Er alls staöar farið nokkuö yfir
tillögu Hafrannsóknastofnunar. Há-
mark ýsuafla er sett 60.000, tonn, ufsa
70.000 tonn, karfa 100—110.000 tonn,
'skarkola 17.000 tonn, grálúöu 30.000
tonn og steinbíts 15.000 tonn.
Þar sem þorskurinn er langverð-
.mætasti fiskurinn fýrir utan skarkol-
ann og langmest er af honum þýðir
-minnkun þorskveiðanna tiltölulega
'mun meiri tekjurýrnun af fiskveiðum
en þaö sem vinnst á móti með auknum
veiðum á öðrum fiski. En samtals er
■sett 512—522 þúsund tonna þak á
veiðar á þessum sjö botnfisktegundum
'á næsta ári samanborið viö áætlaða
veiði í ár, 580 þúsund tonn.
Útflutningsverðmæti þessara fisk-
tegunda er talið í samanburöi og mið-
að viö 1,00 á þorski, 0,87 á ýsu, 0,80 á
karfa, 0,63 á ufsa, 1,02 á skarkola, 0,66
á grálúðu og 0,76 á steinbít. Þannig eru
verðhlutföllin nú á fisktegundunum
sjö.
HERB
Matarolía:
Alagningin
var rétt
Á neytendasíðunni í gær var sagt frá
himinhárri álagningu á matarolíu í
loftþrýstihylkjum í nokkrum verslun-
um. Álagningin var fundin út miðað
við núverandi heildsöluverð.
Innflytjandi viökomandi vöru haföi
samband við okkur og sagði að heild-
söluverðið hefði lækkað mikið nýlega
þegar felldur var niður 80% tollur á
vörunni. Er því líklegt að þær verslan-
ir sem höfðu háa álagningu hafi keypt
inn matarolíuna á verðinu eins og það
var áður en toUurinn var felldur niður.
Sú var að minnsta kosti raunin með
Vörumarkaðinn. Stefán Friðfinnsson,
framkvæmdastjóri þar, sagði í samtali
við DV að álagning á þessari vöru væri
24,2% hjá þeim, varan hefði verið
keypt inn á 109,50 en seld á 136 krónur.
I Vörumarkaðnum á Eiðistorgi kostar
mataroUan hins vegar kr. 90,55 enda
keypt inn þangaö eftir niöurfellinguna
á toUinum á kr. 72,95. APH.
Konurgef a
út bókamerki
1 bókaflóðinu gefur framkvæmda-
nefnd um launamál kvenna út bóka-
merki. Með kveðju kvennanna fylgir
áletrunin „Róum jafnt á bæði borð”.
Bókamerkið kostar fimmtíu krónurog
er gefið út til styrktar og kynningar á
starfi launamálanefndarinnar. Jónína
Leósdóttir,Vonarstræti 8, hefur merkið
tU dreifingar fyrir áhugamenn.