Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1983, Blaðsíða 5
DV. DAUGAKPAGUÍt l7.DESEMfiEI»98?. , ,
5
FRIÐARJÓL1983:
99
... MEÐ BÆN UM
FRIÐ Á JÖRÐU’’
Biskup Islands, herra Pétur Sigur-
geirsson, hefur beint þeim tilmælum til
landsmanna aö þeir tendri friðarljós
samtímis á aöfangadagskvöld klukkan
níu, beri það að glugga eða gangi með
það til dyra þar sem friðarloginn lýsi
út til næstu nágranna með ósk um
gleðileg jól og með bæn um frið á jörðu.
Kirkjan hóf þátttöku í alþjóðlegri
hreyfingu undir kjörorðinu „friðar-
jól” á síðustu jólum. Hreyfingin er
upprunnin í Genf fyrir f jórum árum en
þátttaka í henni breiddist út um allan
heim í fyrra. Munu um 50 lönd víða um
heim taka þátt í „friðarjólum” á þessu
ári.
Bíllinn þoldi
ekki erfiðið í
Kömbunum
Flutningabíll af Benz-gerð eyði-
lagöist i Kömbunum um hádegið í
gær. Var bíllinn að flytja hey frá
Laugarvatni til Reykjavíkur og var
kominn efst i Kambana þegar eldur
braust út í honum. Er talið að hann
hafi ofhitnað við að erfiða upp brekk-
una.
Ökumanninum tókst að komast út
úr bílnum sem fljótlega stóð í björtu
báli. Tókst aðeins að bjarga nokkr-
um heytuggum aftan af honum en
allt annað brann sem brunniö gat.
-klp-
Þá hvetur biskup Islands til þess að á
morgun, sunnudaginn 18. desember,
fasti menn og lýsi þannig samstöðu
sinni með því fólki víða um heim sem
býr við örbirgð og á ekki annars úr-
kosti en aö fasta. Jafnframt aö menn
láti andviröi einnar máltiðar renna til
sveltandi fólks, t.d. í gegnum Hjálpar-
stofnunkirkjunnar. -JSS
Bflvelta í
Ölfusinu
Bílvelta varð á veginum við Ingólfs-
hól í ölfusi í gær. Þar var glerhálka og
fór bíllinn úr förunum á veginum og
hafnaöi á hvolfi niöri í skuröi.
Ein kona var í bílnum og var hún
flutt á sjúkrahúsið á Selfossi. Var hún
ekki talin mikið slösuð. -klp-
Biskup Ísiands, herra Pótur Sigurgeirsson.
uiriscetu
gerbu 8W skreytin9ar’
Iilómabiídin
DOGG
Reykjavíkurvegi 60, sími 53848.
Erótík....
HrrböiunóH sc.m LÝsm
msn hsí m w'-hm ?
enmsAHA nófvtm txUinAmttiStWK
SMA-
FUGLAR
ouaxsöcm
Spenna...
Smáfuglarnir flögra...
SMÁFUGLAR — safaríkar gleði-
sögur eftir Anáis Nin, höfund Unaðsreits
sem út kom ífyrra. Hér er kynnautn kvenna
og ýmsum tilbrigðum kynlífsreynslunnar
lýst afmikilli list og hispursleysi. Anáts Nin
er viðurkenndur sem einn fremsti og list-
fengasti höfundur erótískra sagna á öld-
inni.
Smáfuglamir flögra um leyndustu af-
kima íhúsi ástamautnarinnar og sögumar
eru bomar uppi af tilfinningahita sem
lyftir þeim háttyfir aðrar erótískar sögur.
Kr. 428. 55
Phyllis Whitney
bregst ckki lesendum
EKKIER ALLT SEM SÝNIST, tíunda bók
Phyllis A. Whitney, hörkuspennandi og
rómantísk saga sem gefur hinum ekkert eft-
ir. Amanda Austin, ung listakona frá New
York, leitar fundar við cettingja móður
sinnar í Nýju Mexíkó til að grafast fyrir um
dauða móðurinnar. Hvað gerðist forðum
daga? Fœr Amanda svarið? Spennan
magnast óðfluga því EKKI ER ALLT SEM
SÝNIST...
Kr. 548.35
Ný bók frá Mary Stewart
ÓVÆNT ENDALOK, rómantísk og œsi-
spennandi saga frá Mary Stewart. Jennifer
er komin í sumarleyfi í Pyreneafjöllum og
hyggst njóta lífsins, fjarri skarkala heims-
ins. Hún býst við að hitta frœnku sína en
grípur í tómt. Frœnkan er horfin og sagt að
hún sé látin. En Jennifer skynjar að ekki
muni allt með felldu um örlög hennar...
,,Mary Stewart er sannarlega
galdrakona. “ New York Times
Kr. 548.35
AUK hf. Auglýsingastofa Kristinar 83.78
Bræðraborgarstíg 16 Pósthólf 294
121 Reykjavík Simi 12923-19156