Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1983, Page 10
10
Píill Pálsson, höfundur Beöiö eftir strætó:
pqar rf’var*snrrirtrf r»r cTrm a /títa rtTit r vrr
DV. LAUGARDAGUR17. DESEMBER1983.:
„Persóinirnar eru allar á sama báti
og báturinn er efni bókarinnar"
Fyrir þessi jól kemur út bók sem
heitir Beðiö eftir strætó. Bókin er eftir
Pál Pálsson og fjallar um líf afskiptra
unglinga í Reykjavík. I fyrra sendi'
Páll frá sér bókina Hallærisplaniö og
viö ákváöum að fá að yfirheyra hann
örlitið um þessa nýju bók.
— Tengist þessi bók Hallærisplan-
inu á einhvern hátt?
„Þær eru tengdar lauslega að því
leyti aö þær f jalla báðar um unglinga í
dag. Svo koma tvær persónur úr fyrri
bókinni í eitt skipti inn í biðskýlið sem
er aöalsöguvettvangurinn í Beðið eftir
strætó.
Það eru engar aöalpersónur í þess-
ari bók í eiginlegum skilningi.
Persónumar eru allar á sama báti og
það er eiginlega báturinn sem er efni
bókarinnar.”
Bækur þínar fjalla báðar um ungl-
inga. Eru þeir þér sérstaklega hug-
stæðir?
„Eg var einu sinni í popphljómsveit
sem gerði plötu þar sem ein plötuhliðin
fjallaði um Hallærisplanið. Þetta var
77 þegar aðstæður unglinga til aö
koma saman voru algerlega i lág-
marki hér í borginni. Þegar ég byrjaði
að fikta viö að skrifa fékkst ég aðallega
við aö skrifa smásögur. Ein æfingin
var að færa fyrrnefnda plötuhlið yfir í
smásögu sem síöan óx upp í skáldsög-
una Hallærisplaniö sem mætti líka al-
veg eins kalla langa smásögu. Það á
raunar líka við um Beöið eftir strætó.
Bækurnar eru ekki stórar að blaö-
síðutali.
Ætlaði ekki að fjalla um
unglinga
Eftir Hallærisplanið var ég ákveð-
inn í því að ég ætlaöi ekki að fjalla um
Páll Pálsson rithöfundur.
unglinga. Eg var orðinn þreyttur á því
efni.
1 byrjun þessa árs kynntist ég svo
unglingum sem eru fyrirmynd að
persónunum í þessari bók. Mér fannst
heimur þeirra mjög ólíkur heimi hinna
unglinganna sem ég hafði verið að
skrifa um. Mér fannst þessi heimur
líka afskiptur og fólk lítið vita um líf
krakkanna. Ég var svo kominn á kaf í
efnið áður en ég vissi af.
I gegnum bókina Hallærisplanið og
eigin reynslu er þetta svið sem ég
þekki best. Eg held aö það sé alveg
frumskilyrði fyrir menn sem eru að
skrifa að þeir þekki ofan í kjölinn þá
hluti sem þeir eru að fást við. Annars
verða verkin ekki sönn.”
— Hvers vegna skrifar þú bækur?
„Eg get ekki svarað þvi nákvæm-
lega. Mér þykir þaö einfaldlega svo
skemmtilegt að skrifa. Það er sérstak-
lega gaman að fást við svona hluti sem
eru persónulegri heldur en ritgeröir í
skóla og greinar í blöð. Eg get ekkert
sagt meira um það. ”
— Hvað um boðskap í bókunum?
„Mér finnst nýja bókin hafa mikla
upplýsingu fyrir fólk almennt um lítinn
hóp i þjóðfélaginu sem ég held aö það
viti nákvæmlega ekkert um.
Ég reyni í bókinni að draga fram
þeirra sjónarhom, afstöðu þeirra til
annarra og hið manneskjulega í þeim.
Eg skrifa meira eftir tilfinningum
og skynjunum heldur en skilgreining-
um. Eg skoöa fyrirbærið sem ég er að
fjalla um og fæ ákveðna tilfinningu fyr-
ir því hvernig fyrirbærið er. Síðan
reyni ég að flytja þessa tilfinningu yfir
íorð.”
íslensk bókamenning er verómæti
, ._Óla/urBriem:
Utilegumenn
og auðar tóttir
Utilegumenn
og auðar
tóttir
Ný útgáfa endurskoðuð
og aukin. Bókin lýsir úti-
legumannabyggðum á
íslandi fornum og nýjum og
lýkur upp hulduheimi þjóð-
trúar og þjóðsagna. Gísli
Gestsson og fleiri eiga í
ritinu fjölda Ijósmynda.
MENNINGARSjOÐUR
SKÁLHOLTSSTI'G 7— REYKJA7ÍK — SÍMI 13652
Leiðir úr biðskýlinu?
— Hvernig vannstu efnið?
„Eg kynntist þessum krökkum í
byrjun þessa árs og fljótlega eftir að ég
fór að sjá þetta efni í hendi mér fór ég
að taka viðtöl við þessa krakka upp á
segulband, einn í einu. Það voru um
20 klukkutímar sem ég stóð uppi með
aö lokum. 90% af bókinni eru unnin
beint upp úr þessum viðtölum og reynt
að koma krökkunum sjálfum sem mest
til skila. Það er í sjálfu sér ekki mikill
skáldskapur í þessu ef menn vilja skil-
greina skáldskap sem uppdiktun.
Þetta eru raunverulegar pælingar sem
eru settar fram í skáldsögulegu formi.
Þaö má þess vegna alveg kalla söguna
heimildaskáldsögu þótt hún sé kannski
dálítið sérstök h'ka í þeirri deildinni.
Eg gaf viömælendum mínum loforð
um að segja aldrei frá því viö hverja
ég talaði og hve þeir voru margir. Þeir
vita ekki einu sinni sjálfir hvað hópur-
inn var stór. Meö því að taka krakkana
einn og einn fyrir og sýna þeim algeran
trúnað þá fengust þeir til að opna sig.
Það var ekkert sem ég gat ekki spurt
þá um. Sama hve nærgöngul spuming-
in var. Eg held að þaö hafi ekki endi-
lega verið trúnaðurinn sem hafði mest
aö segja hjá mörgum þeirra heldur
það að þarna var þeim veitt athygh.
Sumir eru mjög afskiptir og geta
sjaldan létt á sér. Þarna var þeim veitt
athygli og þá braust fram þörf þeirra
til aö tjá sig um eigin mál og sína eigin
persónu. Á götunni hafa þeir Utía
möguleika tilþess.”
„Það er alveg á hreinu aö þessi bók
er mjög dökk. Það er vegna þess að
raunveruleikinn sem fyrirmyndir
þessarar bókar búa viö er mjög dökk-
ur. Það er ekki hægt að fegra það neitt.
Það er til dæmis engin von í þessari
bók eða neitt slíkt. Leiöimar sem
persónurnar hafa farið úr biðskýUnu
eru jafnvonlausar og þaö ástand sem
þær búa við.”
Ádeila beinist að umhverfi
— Hefuröu einhverja lausn fyrir
fólkiö?
„Þegar verið er að tala um þessi
mál er mjög erfitt aö gera það nema
taka þetta í víðu þjóðfélagslegu sam-
hengi. Hvaðan koma þessir krakkar til
dæmis? Þetta er spuming umforeldra,
skóla, heimilisaðstæður, þjóðfélagiö í
heild. Ef einhver ádeila er í bókinni þá
beinist hún ekki að ungUngunum
sjáUum og því Ufi, sem þeir Ufa,
heldur því umhverfi sem hefur sett þá í
þessaraðstæður.”
— Hefur ástandið snöggversnað
undanfarið?
„Það hefur kannski ekki snögg-
versnað, en það fer hinsvegar síversn-
andi. Krakkamir fara fyrr út í þetta og
neysla sterkari efna eykst. Svo gengur
þetta Uka í bylgjum, sbr. sniffbylgj-
urnar. Eftir að kvikmyndin um Dýra-
garðsbörnin var sýnd, en andstætt bók-
inni fegrar hún eiturlyfjaneyslu,
þá varð mjög vinsælt að leysa upp pill-
ur og sprauta í æð. Svo er þetta líka
spuming um þróun neysluþjóðfélags-
ins. Neysla á vímugjöfum vex alveg í
sama hlutfaUi og neysla ahnennt.”
— Hvernig pælirðu í bókmenntum
yfirleitt?
,,Ég er lítt fróður í þeim efnum enn
sem komið er. Ég er ekki mikið lesinn í
teoríum og sennilega lítið lesinn í bók-
menntum almennt. Eg hef t.d. bara
stúderað einn höfund rækUega og það
er náttúrlega voða neyðarlegt að upp-
lýsa hver það er eftir að Pétur Gunn-
arsson skrifaði Persónur og leikendur.
Sá eini maöur sem ég hef stúderaö er
nefnUega Hemingway. En ég vU
taka þaö fram að mínar hugmyndir
um hann eru allt aðrar en þær sem
Andri Haraldsson hefur í bók Péturs.”
— Þú syngur ekkert lengur?
„Nei. Ekki nema bara í baði og svo-
leiöis.”
— Hvenær hættiröu því?
„Ég hætti því 78. Núna syng ég á
prenti,” segir PáU og hlær. SGV
afsláttur í heilum kössum
Gos
IdrykkirJ
verðlækkun
á gosdrykkjum
í lítraumbúðum
verðlækkun
Sanitasgosdrykkjum
ÁRMÚLA 1a EIÐISTORG111