Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1983, Blaðsíða 17
DV. LAUGARDAGUR17. DESEMBER1983.
Bókakynning DV
17
kveikt eld með mikilli þolinmæði.
Hann var lengi að því, en það tókst, og
sá eldur slokknaði aldrei, meðan þau
höfðust við í eynni. Ylurinn var
þægilegur, og indiánar kunna lagið á
því að beita eldinum, svo að honum
tókst að svíða niður mörg tré, sem
hann gat notað. Svo sveið hann þau um
þvert í styttri búta, og nú gat hann
grafið holu í leirbakkann og raðað
timburstokkum sínum framan við, svo
að þau fengu þar skjól að skriða í. Þau
brugðu víðigreinum um stokkana og
milli þeirra og þéttuðu með leir. Á
þakinu var reykop. Það var ekki laust
við, að Tjoxwullik fyndi til gleði, þegar
þau fluttu inn í hreysið. Hún varð að
taka á til að muna, aö hún ætlaði aö
flýja frá Laríon og segja föður sínum
'til hans, en siðan yrði hann tekinn af
líf i á k valafullan hátt.
Það var að minnsta kosti gott að
hafa þak yfir höfuöið og þurfa ekki að
rennblotna í næturregninu.
Laríon fól henni að reyta gras og
þurrka við eldinn. Hann lét hana líka
halda undir þyngri endana á trjábolun-
um til þess að styrkja hana og stæla,
svo að konan unga naut ekki mikillar
hvíldar.
Hann fann líka steina sem hægt var
að kljúfa, svo að hún fékk nokkrar
sköfur, og hann bjó líka til nokkrar
steinaxir, sem hann notaði til þess að
flá með börkinn af trjánum, sem hann
felldi með eldi. Ur berkinum gerði
hann fötur, sem hún átti að fylla af
berjum. Annars varð hún að þola meiri
barsmíðar, eftir að föturnar urðu til,
því aö hann skipaði henni að hafa þær
fullar, og ef þær voru ekki alveg
barmafullar, lamdi hann hana.
Jafnvel þótt hún hefði keppst við og
verið fljót að fylla, lamdi hann hana
líka. Hún vissi það fyrir, en óttaðist
það ekki. Hún vissi, að það var þeim
báðum fyrir bestu, að þau ættu sem
mest af berjum, þegar færi að snjóa.
Hún örvænti ekki, öðru nær. Tjozwullik
saknaöi nærveru hans og fann til
leiðinda, þegar hún var ein.
Tjoxwullik hafði breyst mjög í útliti,
frá því sem var daginn, sem hún réri
aö heiman í berjaleiðangurinn, þó aö
það hefði ekki verið fyrir löngu. Nú var
hún kona, sem þrælaði fyrir mann
sinn, og enginn kom til liðs við hana.
Þau bjuggu ein á þessari eyju, sem
var miðja vegu milli veiðisvæða
tveggja ættbálka. Milli þeirra stóð ekki
beinlínis ófriður, en þaö voru heldur
engir kærleikar með þeim. Yukon-
fljótið aöskildi þá. Fáir stigu fæti á
þessa eyju, því að hvorugur ættbálkur-
inn gat staöið fast á yfirráðarétti
sínum þar.
Af því fóru engar sögur, hvað þessar
tvær mannverur urðu að þola á eyju
þessari, þar sem þær höföust við einar.
Stórlátir menn segja fátt af neyð og
skorti, sem þeir hafa sigrast á. Lífið
var harðneskjulegt, en Laríon gafst
ekki upp, og Tjoxwullik var kjarna-
kvenmaður.
Tími hennar kæmi ekki, fyrr en
fljótið hefði lagt, þá gæti hún flúið heim
gangandi og komist til annarra
manna:
En þegar sá tími kom, fann Tjox-
wulik, að hún var með barni, og fram-
koma Laríons var öll orðin mildari.
Þau höfðu vaxið saman, og þau höfðu
búið vel í haginn fyrir sig.
Margt til gjafa
prýöir verslun okkar.... ^
og gjafakort fyrir þann sem vill að þiggjandi velji sína gjöf sjálfur.
Strandgötu 34 220 Hafnarfirði Sími 50080
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
BOKMENNTIR
Hannes Pétursson
HAGFRÆÐI
Ólafur Björnsson
ISLANDSSAGA
Einar Laxness
ÍSLANDSSAGA II
Einar Laxness
ÍSLENSKT
SKÁLDATALI
Hannes Pétursson
Helgi Sæmundsson
ÍSLENSKT
SKÁLDATAL II
HannesPétursson
Helgi Sæmundsson
ÍÞRÓTTIR I
Ingimar Jónsson
ÍÞRÓTTIR II
Ingimar Jónsson
LÆKNISFRÆÐI
Guösteinn Þengilsson
STJÖRNUFR.
RÍMFRÆÐI
Þorsteinn Sæmundsson
TÓNMENNTIR I
Hallgrímur Helgason
TÓNMENNTIR II
Hallgrímur Helgason
LYFJAFRÆÐI
Vilhjálmur G. Skúlason
LYFJAFRÆÐI,
er 13. bindi í ALFRÆÐUM
MENNINGARSJÓÐS og í
því að finna skilgreiningar
á helstu lyfjum og lyfja-
flokkum, eiginleikum
þeirra og notkun til þess
að fyrirbyggja, greina eða
lækna sjúkdóma í mönn-
um og dýrum. Þá er í
mörgum tilvikum minnst á
helstu hjáverkanir lyfja og
lyfjaformin sem þau eru
notuð í. Einnig eru helstu
lyfjaform skilgreind, bent
á geymsluþol þeirra ef
það er mjög takmarkað
og minnst á nokkra vís-
indamenn sem fyrr eða
síðar hafa lagt mikið af
mörkum til framfara á
sviði lyfjavísinda. LYFJA-
FRÆÐI er prýdd mörgum
myndum.
Bókaúfgöfa
yMENNING4RSJÓÐS
Skálholtsstíg 7