Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1983, Page 31
DV. LAUGARDAGUR17. DESEMBER1983.
Nýjar bækur Nýjar bækur
Mínútu-stjórnun
Bókaútgáfan Vaka hefur gefiö út
bókina Mínútu-stjómun eftir Kenneth
Balanchard og Spencer Johnson í
þýöingu Grétars Oddssonar. Bókin
kennir á einkar aögengilegan hátt nýja
stjómunaraöferð, sem nefnd hefur
verið mínútu-stjómun. Hún byggist á
rannsóknum sem gerðar hafa verið á
því hvernig árangursríkast er að haga
mannlegum samskiptum á vinnu-
stöðum eða í öðm samstarfi fólks.
I kynningu á bókarkápu segir:
Þessi athyglisverða stjórnunarbók
er þegar orðin margföld metsölubók
víða um lönd. Ástæðan er einfaldlega
sú, að hún hefur ekki brugðist. Hér er
kennt hvemig á að stjóma samstarfs-
mönnum meö markvissum hætti;
hvemig á að virkja áhuga þeirra og
hvetja þá til dáða. Allir verða ánægð-
ari og árangurinn ótrúlegur.
Þetta er bók sem gæti orðið ein besta
fjárfesting þín um langt skeið. Hún
kynnir þér leiðir til að auka stórlega
árangur þinn og samstarfsmanna
þinna á örskömmum tima og þaö
skiptir engu máli hvort vinnustaðurinn
er stór eða lítill.
Bókin skorðast ekki einungis við at-
vinnulífið, heldur má nota þessa aðferð
til dæmis í skólum og á heimilum.
Efnið er sett fram í söguformi og sýnt
á einfaldan hátt á hvaða meginatriöum
aðferðin byggist. I bókarlok áttu svo að
geta lagað hana aö þinum eigin
aöstæðum.
Mínútu-stjómun er sett og prentuð í
Steinholti hf., Prenttækni hf. prentaði
kápuna, sem Ragnheiður Kristjáns-
dóttir hannaði, en Bókfell hf. annaöist
bókband.
Mínútu
st|©mun
KennethBlanchard
SpencerJohnson
VAKA
Vængjasláttur
í þakrennum
eftir Einar Má Guðmundsson
Ut er komin ný skáldsaga eftir Einar
Einar Már Guðmundsson
IÆNGJASLNTUR
í MKRENNUM
Má Guömundsson og heitir hún
Vængjasláttur í þakrennum.
Þetta er fjórða bók Einars en hann
hefur áður sent frá sér tvær ljóða-
bækur og svo skáldsöguna Riddara
hringstigans, sem vakti mikla athygli í
fyrra og hlaut fyrstu verðlaun í bók-
menntasamkeppni Almenna bóka-
félagsins. önnur ljóðabókin hefur
verið þýdd á dönsku og hlaut góða
dóma, og nú er verið að þýða Ridd-
arana og munu þeir koma út í Dan-
mörku á næsta ári.
Um Vængjaslátt í þakrennum segir
svo í forlagskynningu:
„Hún er ólík öllum öörum íslenskum
skáldsögum, og þó svo kunnugleg, og
auk þess er hún létt og gáskafull. Hún
er kunnugleg af því að hún segir frá því
sem við höfum sífellt í kringum okkur,
léttleika sinn fær hún frá fólkinu sem
hún fjallar um, gáskinn liggur í stíln-
um. Kannski er hún líka dálitið háðsk.
Hver og einn sem les þessa bók um
drengina í Reykjavík, dúfnasöfnun
þeirra, hársöfnun og lífsbaráttu, mun
una sér vel við lesturinn. Og svo ætti
hver lesandi aö dæma söguna eftir
eigin höfði því að hún býður aug-
sýnilega upp á fleira en eina túlkun —
eins og allar góðar skáldsögur.”
Vængjasláttur í þrakrennum er 190
bls. að stærð. Kápumyndin er mjög
sérkennileg og er hún gerð af
Steingrími Eyfjörð Kristmundssyni.
Bókin er sett, prentuð og bundin í
Prentsmiðjunni Odda.
Týnda brúðurin
eftir Aðalheiði Karlsdóttur
Aðalheiður Karlsdóttir frá Garði
sendir frá sér sína fjórðu bók sem
heitir Týnda brúðurin. Fyrri bækur
hennar eru Þórdis á Hrauná, Fornar
rætur og Kona vitavarðarins. Bækur
Aðalheiðar njóta sívaxandi vinsælda.
íslensk bókamenning er verómæti
Franz
Kafka
Réttarhöldin
Ein frægasta skáldsaga heimsbókmenntanna
í þýöingu Ástráðs Eysteinssonar og Eysteins Þorvaldssonar
gefin út í tilefni af aldarafmæli höfundar.
Fá skáldrit hafa haft eins mikil áhrif
á skáldsagnagerð Vesturlanda og RÉTTARHÖLDIN.
Verk þetta geymir ótæmandi sannleika
um líf nútímamannsins og samfélag okkar daga.
SKÁLHOLTSSTlG 7— REYKJAVÍK — SÍMI 13652 ^
JÚLASKEMMTUN
SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA
I REYKJAVÍK
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík efna til jólaskemmtunar í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, sunnudaginn 18. desember frá kl. 15—18. Boðið er
upp á dagskrá fyrir alla fjölskylduna í 3 sölum.
Salur I
frá kl. 15—17. Kaffiveitingar.
Ki. 15.15 Jólahugvekja: Séra Ingólf-
ur Guðmundsson.
Upplestur úr nýútkomnum bókum:
Matthías Johannessen les úr bók-
inni Bjarni Benediktsson. Björg
Einarsdóttir les úr bók Guðmundar
í Víði, Með viljann að vopni.
Upplestur úr bókinni Krydd í tilver-
una.
Nemendur frá Tónlistarskólanum í
Garðabæ koma í heimsókn.
itiMBiijy
Salur II
frákl. 17-18.
Jólatréssamkoma.
Jólasveinarnir Askasleikir,
foringi jólasveinanna, og
Stekkjastaur mæta gal-
vaskir og heilsa upp á
börnin.
Salur III
frákl. 15-17.
Barnaefni — barna-
gæsla.
Þættir úr Brúðubílnum
(15—16) fluttir af Helgu
Steffensen og Sigríði
Hannesdóttur.
Tommi og Jenni
skemmta á tveimur rás-
um í sjónvarpi.