Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1983, Side 44
44
Tónlist
á hveriu heimili
uihjolin
U.S. TRDn
LITLI SÍMINN
sem fer vel allstaðar
Hægteraðnotahann
sem„vegg-síma”
FULLKOMIÐ
ÖRYGGI
f VETRARA KSTRI
ÁGOODYEAR
VETRARDEKKJUM
GOODYEAR vetrardekk eru
gerð úr sérstakri gúmmí-
blöndu og með mynstrl sem
gefur dekklnu mjög gott veg-
grlp.
GOODYEAR vetrardekk eru
hljóðlát og endingargóð.
Fullkomin hjólbarö
Tölvustýrö jafnv
goo
DV,UUGARDAGUpi7.pESEMBERJL983.,.n
Tilkynningar
Könnun á bóksölu
Félag ísl. bókútgefenda gerir nú könnun á
bóksölunni frá nóvemberbyrjun fram til jóla.
Byggist þessi könnun á talningu bóka í 15 búð-
um, víös vegar um land, og ætti að gefa nokk-
uð rétta mynd af því hverjar eru söluhæstu
bækumar í þessum búðum miðaö viö talning-
ardagana 12. og 19. þessa mánaðar.
Þess ber að geta aö flestir bóksalamir,
sem haft var samband við, vildu gera þann
fyrirvara að bóksala væri enn ekki hafin fyrir
alvöru auk þess sem söluaukning vega árit-
ana höfunda nokkurra bóka gæti í sumum til-
fellum hafa haft áhrif á röðun bókanna að
þessu sinni.
Félag isl. bókútgefenda væntir þess að fjöl-
miðlar geti f ært sér þessa könnun í nyt og birti
niurstöður hennar. Vinsamlega hafið sam-
band við skrifstofu félagsins að Laufásvegi
12, sími 27820, ef frekari upplýsinga er óskað.
Opnunartími skrifstofunnar er frá kl. 14.00 til
18.00 daglega.
Listi yfir 10 söluhæstu
bækurnar í könnun
12. desember
1. Skrifað í skýin, 2. bindi minninga
JóhannesarSnorrasonar (Snæljós).
2. Skæruliðamir eftir Alistair MacLean
(Iöunn).
3. Eysteinn i eldlínu stjórnmálanna, fyrra
bindi. Vilhjálmur Hjálmarsson skráði
(Vaka).
4. Jakobsgliman, uppvaxtarsaga eftir
Sigurð A. Magnússon (Mál og menning).
5. Landið þitt, lsland, eftir Þorstein
Jósepsson og Steindór Steindórsson, 4.
bindi (örn og örlygur).
6. Bjarni Benediktsson í augum samtíðar-
manna. Olafur Egilsson annaðist útgáf-
una (Almennabókafélagið).
7. Aldnir hafa orðið, 12. bindi. Erlingur
Davíðsson skráði (Skjaldborg).
8. Borgfirzk blanda, 7. bindi. Bragi
Þórðarson skráöi (Hörpuútgáfán).
9. Saga Hafnarfjarðar 1908—1983 eftir
Asgeir Guðmundsson, 1. og 2. bindi
(Skuggsjá).
10. öldin okkar, minnisverð tíöindi 1971—
1975. Gils Guðmundsson tók saman
(Iðunn).
Listi yfir 3 söluhæstu
barna- og unglingabækurnar
12. desember
1. Fjórtán.. . bráöum fimmtán eftir Andrés
Indriöason (Mál og menning).
2. Sitji guös englar eftir Guörúnu
Helgadóttur (Iöunn).
3. Börnin syngja jólalög. Olafur Gaukur
valdi lögin (Setberg).
(Könnunin náöi ekki til teiknimynda-
sagna).
Eftirtaldar búðir tóku
þátt í könnuninni
12. desember
1. Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar,
Rvík.
2. BókabúðMálsogmenningar,Rvk.
3. Embla, Rvk.
4. Bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði.
5. Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi.
6. Bókaskemma Hörpuútgáfunnar, Akra-
nesi.
7. Bókaverslun Jónasar Tómassonar, Isa-
firði.
8. Bókabúð Brynjars, Sauðárkróki.
9. Bókabúð Jónasar Jóhannssonar, Akur-
eyri.
10. Bókaverslun Þórarins Stefánssonar,
Húsavik.
11. Bókabúöin Hlöðum viö Lagarfljótsbrú,
Egilsstöðum.
12. KaupfélagA.-Skaftfellinga.Höfn.
13. Kaupfélag Amesinga, Selfossi.
14. Bókabúöin Heiðarvegi 9. Vestmannaeyj-
um.
15. Bókabúð Keflavíkur, Keflavik.
Kveikt á jólatrénu
í Kópavogi
I dag laugardaginn 17. des. kl. 16, veröur
kveikt á jólatrénu í Kópavogi. Dr. Esbjöm
Rosenbland sendiráðunautur mun afhenda
tréð sem er gjöf frá vinabæ Kópavogs í Sví-
þjóð, Norrköping. Björn Olafsson, forseti
bæjarstjómar, mun veita trénu viðtöku fyrir
hönd bæjarbúa. Þá mun Skólahljómsveit
Kópavogs leika og Samkór Kópavogs syngja
nokkur lög, einnig koma jólasveinar í heim-
sókn.
Jólatrénu hefur verið valinn staður á Borg-
arholtinu, þar sem það hefur verið nokkur
undanfarin ár.
Blaðamannafélag
íslands
Stjóm Blaðamannafélags Lslands harmar
uppsagnir blaðamanna Alþýðublaðsins sem
tilkynntar voru 1. desember sl. og ætlað er að
taka gildi 1. febrúar 1984. Stjómin lýsir
áhyggjum sínum yfir þeirri óvissu sem rikir
um atvinnuöryggi starfsmanna blaðsins.
Stjóm BI vekur athygli á að f jölbreyttur dag-
blaðakostur er ein af undirstöðum frjálsrar
skoðanamyndunar og lýðræðis í landinu.
I tilefni af nýföllnum dómi Sakadóms
Reykjavíkur í svonefndu Spegilsmáli ítrekar
stjóm Blaðamannafélags Islands ályktun
aðalfundar félagsins frá 4. júní 1983 þar sem
skorað er á löggjafarvaldið að gangast þegar
í stað fyrir endurskoðun á löggjöfinni um
prent- og tjáningarfrelsi þannig að þessi
grundvallaratriði í lýðræðisskipulaginu verði
betur tryggð í framtiöinni.
Lestunaráætlun
HULL/GOOLE:
Jan..............12/12,30/12,9/1 '84,23/1
ROTTERDAM:
Jan..............13/12,28/12,10/1 '84,24/1
ANTWERPEN:
Jan.........14/12,28/12,11/1, '84,25/1.
HAMBURG:
Hvassafell.......19/12,3/1 '84,16/1,30/1.
HELSINKI:
Helgafell........................13/12
Arnarfell....................... 9/1 '84
LARVIK:
Hvassafell....... 19/12,3/1 84,16/1,30/1
GAUTABORG:
Hvassafell......20/12,4/1 '84,17/1,31/1
KAUPMANNAHÖFN:
HvassafeU.......21/12,5/1 '84,18/1,1/2.
SVENDBORG:
Helgafell.........................16/12
Hvassafell............22/12,6/1 '84,12/1
AARHUS:
HelgafeU..........................16/12
HvassafeU.............22/12,6/1 '84,12/1
FALKENBERG:
Dísarfell................14/12,11/1 '84
Helgafell.........................17/12
GLOUCESTER, MAS.:
JökulfeU..........................13/12
SkaftafeU..................... 17/1 '84
HALIFAX, CANADA
Skaftafell.........................18/1 '84
Frá menntamála-
ráðuneytinu
Menntamálaráðuneytið hefur úthlutað styrkj-
um af fé því sem kom í hlut tslendinga tU ráð-
stöfunar tU vismdastyrkja á vegum Atlants-
hafsbandalagsins (NATO Science FeUow-
ships) á árinu 1983.
Umsækjendur voru 30 og hlutu átta þeirra
styrki sem hér segir:
1. Andri Geir Arinbjamarson verkfræðingur
45.000,- kr. tU framhaldsnáms í bygginga-
verkfræöi viö Danmarks Tekniske Höjskole.
2. Bemhard Öm Pálsson B.S. 70.000,- kr. tU
rannsókna í ólinulegri stýritækni við CaUfom-
ia Institute of Technology í Bandaríkjunum.
3. Erlendur Karlsson M.S. 70.000,- kr. til
doktorsnáms á sviði stærðfræöUegrar kerfis-
fræöi og stafrænnar merkjafræði við Georgia
Institute of Technology í Bandarikjunum.
4. G. Snorri Ingimarsson dr. med. 90.000,- kr.
til að kynna sér tölvuskráningu krabbameina
í Danmörku, V.-Þýskalandi og Frakklandi.
5. HafUöi Pétur Gislason Ph. D. 90.000,-kr.
til rannsókna á ljóseiginleikum hálfleiðara i
segulsviði við Lehigh University í
Bandaríkjunum.
6. Kristberg Kristbergsson M.S. 70.000,- kr.
tU doktorsnáms í matvælafræði við Rutgers
University í Bandaríkjunum.
7. Kristinn Andersen verkfræðingur 45.000,-
kr. til framhaldsnáms í rafmagnsverkfræði
við Vanderbilt University í BandarUtjunum.
8. Sigurður Þorsteinsson cand. real. 70,000.-
kr. til doktorsnáms í veðurfræði við Oslóar-
háskóla.
Vinnustofa Þorláks
Halldórssonar,
Urðarstíg 3
Þorlákur HaUdórsson sýnir á vinnustofu
sinni á Urðarstíg 3 37 myndir, olíumyndir,
pastilmyndir, kol- og rauðkrítarteikningar.
Sýningm er opm aUa daga fram að jólum frá
kl. 14-18.
Happdrætti
Happdrætti
Dregið var í almanakshappdrætti Landssam-
takanna Þroskahjálpar 15. þessa mánaöar.
Upp kom númerið 166966.
Osóttir vinningar á árinu. janúar: 574, april:
54269, maí: 68441, júní: 77238, júli: 90840,
ágúst: 98754, september: 120835, október:
127362 ognóvember: 149005.
Vinningaskrá
Leikfangahúsið
Skólavörðustíg 10
Barby
707,811,457,467,214,642,247,728,716,498.
Matsbox:
314,526,905,783,251,976,290,271,706.
Tréleikföng:
137,895,697,695,813,769,68,482,666,708.
Tapað -fundið
Tapað — fundið
Gullhálsmen. Gullhálsmen fannst í verslun-
inni Málaranum á Grensásvegi 11. Eigandi
mensins getur haft samband viö verslunina.
TÖ Bridge
Bridgedeild
Barðstrendinga-
félagsins
Mánudaginn 12. desember lauk 5
kvölda hraðsveitakeppni félagsins
með þátttöku 17 sveita.
Sveit Ingólfs Lilliendahl sigraöi.
Auk lians spiluöu Ásgeir Stefánsson,
Jakob Kristinsson, Jón Bjömsson og
Kristján Lilliendahl.
Urslit8efstusveita:
stig
1. Ingólfur LUliendahl 3135
2. Þórarinn Árnason 3086
3. Ágústa Jónsdóttir 3032
4. Þorsteinn Þorsteinsson 3016
5. Viöar Guðmundsson 3013
6. Sigurður lsaksson 2997
7. Gnðmundur Hallsteinsson 2948
8. Jón Karlsson 2935
Bridgedeildin óskar öllum spilurum
gleðilegra jóla og farsæls árs. Mánu-
daginn 9. janúar hefst aðalsveita-
keppni félagsins. Þátttaka tilkynnist
til Helga Einarssonar, síma 71980,
fyrir áramót.
Bridgedeild
Skagfirðinga
Þriöjudaginn 13. des. var spiluð sið-
asta umferð í hraðsveitakeppni sem
sveit Bjöms Hermannssonar vann
með yfirburöum. Auk Bjöms spiluöu í
sveitinni Hannes Jónsson, Lárus Her-
mannsson, Lúðvík Ólafsson og Rúnar
Lárusson.
Stig efstu sveita urðu þessi:
1. Björn Hermannsson 1870
2. Magnús HaUdórsson 1781
3. Sigmar Jónsson 1763
4. Erlendur Björgvinsson 1727
5. Guðnl Kolbeinsson 1724
Þriöjudaginn 20. des., verður
spilaöur jólatvímenningur kl. 19.30
stundvíslega.
Bridgedeild
Breiðfirðinga
Þegar tveimur umferðum er ólokið í
aðalsveitakeppni félagsins er staða
efstusveitaþessi:
Sv. Sigurðar Ámundasonar 248
— Ingibjargar HaUdórsdóttur 240
— HelgaNielsen 221
— HansNielsen 215
— Jóhanns Jóhannssonar 211
— Rögnu Ölafsdóttur 204
— Elísar R. Helgasonar 199
— Bergsveins Breiðf jörð 195
— Magnúsar HaUdórssonar 191
— Guðlaugs Nielsen 191
— Kristínar Þórðardóttur 189
— Krlstjáns Ólafssonar 173
Síöustu tvær umferðir verða spilaöar
5. jan. og hefst keppni kl. 19.30.
• cs»Ec ••••• cffctfc^íc
JÓLASKÚRNIR
Svartir, gráir og fleiri litir. J-f
Stærðir: 39—46.
Verð kr. 995,-
Laugavegi 89, sími 22453,
Austurstræti 6, sími 22450.
^•••••'t4£$*á^Ve4C> •••••-^.
Litli
REIKNINGS KENNARINN
W ~ , 91 >0) &
,'7 J £) & ^
Verðkr. 1250,-
Þessi litla leiktölva frá
Canon
leggur reikningsdæmi fyrir börnin. Ef
þau svara ekki rétt gefur tölvan
svarið.
Samlagning, frádráttur, margföldun,
deiling. Bæði létt dæmi og þung eftir
óskum þess er spilar.
Einnig leikir með tölur. Þú getur not-
að hana sem venjulega reikningstölvu
þegar þú vilt.
Látið litla reikningskennarann að-
stoða við námið.
Gæðatölva frá Caiton
með 1 árs ábyrgð.
Slrtfiíuéiin hf
Suðurlandsbraut 12 Simar 85277 og 85275