Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1983, Blaðsíða 9
rRO? CT,frCTt*TrJr>nmr rc cttt-N * cTTT'T7T7CTr*fr '7f~f
DV. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER1983.
Útlönd »Útlönd Útlönd Útlönd
Þessi mynd var tekin við verslunina Harrods meðan sprengjumökkurinn sveif
enn í loftinu.
Hitchcock gerði
heimildarmynd um
fangabúðir nasista
Ordrættir úr kvikmynd, sem
Alfred Hitchcock gerði um út-
rýmingarbúðir nasista, var sýnd í
breska sjónvarpinu í gær en mynd
þessi hefur aldrei verið sýnd opin-
berlega áður.
Heimildarmynd þessi var gerð í
lok heimsstyrjaldarinnar í kjöl-
farið á sókn bandamanna inn i
Þýskaland. Fannst hún nýlega
innan um önnur gögn í stríösminja-
safninuíLondon.
Svo virðist sem myndin hafi ekki
verið birt almenningi á þeim árum
vegna kvíða fyrir að hún mundi
spilla uppbyggingunni í Þýskalandi
eftir stríð.
Sum hryllilegustu atriðin voru
ekki sýnd í sjónvarpinu í gærkvöldi
en myndirnar voru teknar í Buch-
enwald og Belsen-fangabúðunum.
En meðal annars var sýnt hvar
fangarnir lötruðu um fangabúða-
garðinn án nokkurs stefnumarks
og sinnulitlir og einnig hvar f jölda-
grafirnar með þúsundum fanga
voru.
Hitchcock hafði verið falið af
upplýsingamálaráðuneyti Breta að
gera myndina. Hann fæddist á
Bretlandi en gerðist bandarískur
ríkisborgari. Hitchock andaöist
1980.
Átök innan spænska
kommúnistaflokksins
Mikil átök eiga sér stað innan
spænska kommúnistaflokksins nú á
fimm daga þingi flokksins þar sem
valið er um nýja forystu. Átökin
standa annars vegar á milli afla sem
vilja opna flokkinn, breyta starfs-
háttum í átt til meira lýðræðis, og hins
vegar hacðlínuafla sem hingað til hafa
verið ráðandi og vilja sveigja enn
meira til vinstri og til Moskvu-holl-
ustu.
Spænski kommúnistaflokkurinn
hefur átt við siminnkandi vinsældir að
stríða síöan timabili Francos og
einræðis lauk á Spáni. Flokkurinn
tapaöi 19 af 23 sætum í síöustu þing-
kosningum á Spáni 1982 og á fimm ára
tímabili hefur meðlimatala hans fallið
úr 120 þúsund niður í 80 þúsund.
Á þinginu nú eru 95 kjörnir í mið-
stjórn flokksins sem síðan velur leið-
toga. Taliö er að lýðræðisöflin innan
flokksins f ái yfirhöndina.
Ætla ad hressa upp
á „Times Square”
Borgarstjómin í New York Torgið og nærliggjandi bygging-
hefur á prjónunum áætlun um við- ar þykja vera í algerri niðurníðslu
gerðir á því fræga torgi „Times og veröa einhverjar þeirra rifnar
Square” í Manhattan. Er þaö niður. I staðinn eiga að rísa fjórar
áætluð 1,6 milljarða dollara fram- 29 og 56 hæða skrifstofubyggingar
kvæmd. Torgið hefur stundum ver- ' meðglerþökum.
iðkallað „krossgöturheims”.
Flokkur IRA bann-
aður?
Irska stjómin í Dublin hefur nú lagt
fyrir aö endurskoöuð verði eldri lög um
öryggismál en breytingar á þeim eða
ný túlkun kynni að leiða til þess að
Sinn Fein, stjómmálaflokkur trska
lýðveldishersins (IRA), verði bannað-
ur.
Fundur var haldinn í ríkisstjórninni
til þess að ræða sérstaklega hvemig
bregöast ætti við morðum IRA á her-
manni og lögregluþjóni í síðustu viku
og sprengjuárásinni á Harrod-verslun-
ina í London á laugardaginn.
I sprengingunni hjá Harrod létu
fimm manns lífiö og yfir 90 særðust.
Lögin, sem taka skal til nýrrar túlk-
unar, varða viðurlög við því þegar æst
er til ofbeldisverka.
---------------------?►
Hlúð að einu fóraardýra sprengingar
IRA við stórverslunina Harrods í
London í jólaösinni á laugardag.
Sendum ípóstkröfu um land dllt
HINAR EFTIRSÓTTU HÁTÍSKU HÁLSFESTAR
frá Danmörku - loksins á íslandi. Takmarkaðar birgðir. Ómissandi
við vetrartískuna. Tilvalin jólagjöf fyrir pjattrófur á öllum aldri. Verð
aðeins kr. 265,-
ÞETTA ER GJÖFIN.
gjöf,n
tjjjj FYRIR
7 ” Oi ÆSmfBm strákana
OG stelpurnar
:f ' er pappírskarfa frá
V •;H GJAFAHÚSINU
SÍGARETTUBOX
Jólagjöfin fyrir dömuna
DISKAPLATTAR,
ELDAVÉLAPLATTAR,
JÓLASKREYTINGA
PLATTAR
úr korki og basti.
Hjá okkur eruð þið
alltaf velkomin.
MÚNDLUGJÚFIN.
Hver hreppir möndluna?
Jólagetraun???
Gjöfina færðu hjá okkur.
j Munif)
að nota
ykkur
10%
afsláttai
kortin
Skólavörðustíg 8, Laugavegi 11. Sími 18525.