Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1983, Blaðsíða 43
DV. MIÐVIKUDAGUR21. DESEMBER1983.
43
Útvarp
Miðvikudagur
21. desember
12.20 Fréttlr. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.30 Á bókamarkaöinum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.30 Siðdegistónleikar. v
17.00 Siðdegisvakan.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
20.10 Lestur úr nýjum barna- og
unglingabókum. Umsjónarmaður:
Gunnvör Braga. Kynnir: Ragn-
heiður Gyða Jónsdóttir.
20.50 Kvöidvaka.
Guðnv Guömundsdóttir og Philip
21.20 Fiðlusónata í G-dúr op. 30 nr. 3
eftir Ludwig van Beethoven.
21.40 Utvarpssagan: „Laundóttir
hreppstjórans” eftir Þórunni Elfu
Magnúsdóttur. Höfundur les (10).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 í útlöndum. Þáttur í umsjá
Emils Bóassonar, Ragnars
Baldurssonar og Þorsteins Heiga-
sonar.
23.15 isiensk tónlist: Sinfóníuhljóm-
sveit islands ieikur.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Rás 2
Miðvikudagur
21. desember
Kl. 14—16: Ásta Ragnhciður Jó-
hannesdóttir sér um val
á léttum lögum og öðru
efni.
Kl. 16—17: Reggae-tónlist.
Umsjónarmaður Jóna-
tan Garðarsson.
Fimmtudagur
22. desember
Kl. 10—12: Morgunútvarp.
Umsjónarmenn Páli Þor-
steinsson, Árnþrúður
Karisdóttir, Jón Ölafs-
son, Asgeir Tómasson.
Ki. 17—18: Á Íslandsmiðum. Þorgeir
Astvaidsson kynnir is-
lenska tónlist.
Sjónvarp
Miðvikudagur
21. desember
18.00 Söguhornið. Jólasaga eftir
Selmu Lagerlöf. Sögumaður
Olafur H. Jóhannsson. Umsjónar-
maður Hrafnhildur Hreinsdóttir.
18.05 Bolia. Finnskur teiknimynda-
fiokkur. Þýðandi Trausti
Júlíusson. Sögumaður Sigrún
Edda Björnsdóttir. (Nordvision—
Finnskasjónvarpið).
18.15 Börnin í þorpinu. 3. Boltinu —
Lokaþáttur. Danskur mynda-
fiokkur um grænlensk böm.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
Sögumaður Birna Hrólfsdóttir.
(Nordvision — Danska sjón-
varpið).
18.35 Eggið og unginn. Bresk nátt-
úrulífsmynd sem lýsir því hvernig
uppeldinu er hagað hjá fuglum af
ýmsum tegundum. Þýðandi Oskar
Ingimarsson.
19.00 Fólk á fömum vegi. 7.
Ferðalag — Endursýning. Ensku-
námskeið í 26 þáttum.
19.30 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáii.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingarogdagskrá.
20.45 Jcnny. Kynningarþáttur um
norsku skáldkonuna Sigrid Undset
og nýjan sjónvarpsmyndaflokk
eftir bók hennar Jenny, sem
sýningar hefjast á í Sjónvarpinu
að kvöldi jóladags. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nord-
vision — Norska sjónvarpið).
21.10 Skógur á hafsbotni. Heimildar-
mynd frá breska sjónvarpinu um
þangskógana á hafsbotni undan
vesturströnd Norður-Ameríku,
nytsemi þeirra og dýralífið sem
þrífst í skjóli risaþörunganna.
22.15 Dallas. Bandarískur fram-
haldsmyndaflokkur. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
23.10 Dagskrárlok.
Útvarp
Sjónvarp
Útvarp, rás 1:
Klassísk tónlist
ræður ríkjum í dag
Áhugafólk um klassíska tónlist ætti
að vera nokkuö ánægt með sinn hlut í
dagskrá útvarpsins — rás 1 — í dag.
Það fær vel á þriðju klukkustund af
slíkri tónlist en aftur á móti fá þeir sem
gaman hafa af léttri tónlist lítið sem
ekkert að heyra af henni á rás 1 í dag.
Þeir sem eru svo heppnir aö heyra í
rás 2 geta þó vel við unað því þar er
ekkert annaö á boðstólum.
Á síðdegistónleikunum á rás 1 í dag
fáum við að heyra þá Rudolf Barshai
og Yehudi Menuhin ásamt há-
tíðarhljómsveit leika i hálfa
klukkustund.
Kl. 21.20 er hljóðritun frá tónleikum í
Norræna húsinu en þar leika þau sam-
an Guðný Guðmundsdóttir og Philip
Jenkins og kl. 23.15 er íslensk tónhst á
boðstólum. Þá leikur Sinfóníuhljóm-
Ychudi Menuhin með fiðluna sína.
sveit Islands undir stjórn Bohdan
Wodiczko og Páls P. Pálssonar verk
eftir Jón Leifs, Jón Þórarinsson og
Ama Björnsson. Einsöngvari er Simon
Vaughan.
-klp
Ásta Ragnheiður og tæknlmaðurínn eldhressi á rásinni, Georg Magnús-
son, verða með lótt lög og uppskríftir i sambandi við jólamatinn á rás 2 i
dag.
Rás 2 kl. 14 til 16:
Meistarakokkur í
heimsókn hjá Ástu
Sjónvarp kl. 20.45:
Sigrid Undset
I sjónvarpinu í kvöld kl. 20.45 er þátt-
ur um norsku skáldkonuna Sigrid Und-
set. Hún fæddist árið 1882 en lést árið
1949. Var hún einn þekktasti rithöfund-
ur Noregs og hlaut margvíslega viður-
kenningu um dagana — þar á meðal
nóbeisverðlaunin 1928.
Sjónvarpsmynd eftir bók hennar
Jenny verður sýnd í sjónvarpinu að
kvöldi jóladags en aðalhlutverkið í
þeirri mynd leikur hin fræga leikkona
Liv Ullman.
Þessi skáldsaga Undset kom út árið
1911 og vakti þá nokkra hneykslun
vegna lýsinga á kynlifi aöalpersónunn-
ar. Þetta þykja ekki merkilegar lýs-
ingar í bókmenntum í dag en á þeim
árum þótti þetta forkastanlegt — sér-
staklega vegna þess að rithöfundurinn
varkona.
-klp
Sigrid Undset.
Það verður jólastemmning yfir þætt-
inum hjá Ástu Ragnheiöi Jóhannes-
dóttur á rás 2 í dag en Ásta sér um
miðdegisútvarpið á rásinni frá kl. 14 til
16 á hverjum miðvikudegi. Þar velur
hún og leikur létt og skemmtileg lög og
spjallar við hlustendur.
I þáttunum að undanförnu hefur hún-
skotið inn í köku- og mataruppskriftum
sem hefur verið mjög vinsælt. Hún
heldur því áfram í þættinum í dag, en
þá fær hún meistarakokkinn Skúla
Hansen í Amarhóli í heimsókn og hann
segir áhugasömum húsmæörum frá
því hvernig best sé að matreiða jóla-
gæsina og jólaöndina.
Ásta Ragnheiður er hlustendum á
rás 1 að góöu kunn en þar hefur hún
stjórnað mörgum þáttum á síðustu ár-
um. Mest hefur það verið yfir haust- og
vetrarmánuöina því á sumrin hefur
hún starfaö sem fararstjóri hjá ferða-
skrifstofunni Utsýn og þá m.a. í Júgó-
slavíu og Portúgal. -klp
Vörumarkaðurinn hf.
Jólamarkaöur
)>
TIL
STÓRGJAFA
Sérafsláttur ef keyptir eru fleiri en
10 konfektkassar í einu.
_____r
EÐISTORG111 ARMULA 1a
Veðrið
Norðaustanátt á landinu, víða
dálitill strekkingur, él á Austur- og
Norðausturlandi og norðan til á
Vestfjörðum en bjartviðri víða
sunnanlands og vestan.
Veðrið
hér og þar
Klukkan 6 í morgun. Akureyri
skýjað 0, Bergen slydda á síðustu
klukkustund 3, Helsinki súld 2, Osló
alskýjað -1, Reykjavík heiöríkt 0,
Stokkhólmur rigning á síðustu
klukkstund 1, Þórshöfn alskýjað 4.
Klukkan 18 í gær. Aþena skýjaö
15, Berlín þoka 3, Frankfurt
rigning 5, Nuuk skýjað 1, London
skýjað 10, Las Paimas skýjað 21,
Mallorca skýjað 15, Montreal létt-
skýjað -22, París léttskýjað 10,
Malaga alskýjað 18, Vín skýjað 4,
Winnipeg léttskýjaö -27.
Gengið
GEIUGISSKRÁNIIMG
NR. 240 - 20. DESEMBER 1983 KL: 09.15
Eining KAUP SALA
1 Bandarikjadollar 28,730 28,810
1 Sterlingspund 40,789 40,903
1 Kanadadollar 23,000 23,064
1 Dönsk króna 2,8698 2,8778
1 Norsk króna 3,6905 3,7008
1 Sænsk króna 3,5461 3,5560
1 Finnskt mark 4,8844 4,8980
1 Franskur franki 3,4055 3,4150
1 Belgiskur franki 0,5103 0,5117
1 Svissn. franki 13,0206 13,0569
1 Hollensk florina 9,2549 9,2807
1 V-Þýsktmark 10,3960 10,4250
1 ítölsk lira 0,01713 0,01718
1 Austurr. Sch. 1,4745 1,4786
1 Portug. Escudó 0,2167 0,2173
1 Spánskur peseti 0,1811 0,1816
1 Japansktyen 0,12218 0,12252
1 Írskt pund 32,235 32,325
Belgiskur franki 29,8351 29,9182
SDR (sérstök dráttarróttindi) 0,5028 0,5042
Símsvari vegna gengisskráningar 22190
TOLLGENGI
FYRIR DESEMBER
Bandarík jadollar 28,340
Sterlingspund 41,372
Kanadadollar 22,859
Dönsk króna 2,8926
Norsk króna 3,7702
Sænsk króna 3,5545
Finnskt mark 4,8946
Franskur f ranki 3,4327
Belgískur franki 0,5141
Svissn. franki 12,9851
Hollensk florina 9,3187
V-Þýskt mark 10,4425
ítölsk líra 0,01727
Austurr. Sch. 1,4834
Portug. Escudó 0,2193
Sspánskur peseti 0,1819
Japansktyen 0,12044
írskt pund 32,463
Belgtskur franki 0,5080
SDR (sórstök 29,7474
dráttarréttindi)