Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1984, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1984, Qupperneq 21
Hér stendur Bjarni við likan af oliuborpallinum Ocean Ranger, en oliuborpallur þessi fórst i aftakaveðri undan IMýfundnalandi í febrúar 1982. Fórust þá 84 menn. Bjarni hefur m.a. unnið að rannsóknum þessa slyss. háskólann í British Columbia, en aö námi loknu ákvaö ég aö læra aö fljúga og næstu árin vann ég til aö fjármagna flugnámið. Eftir aö ég haföi náö at- vinnuflugmannsprófi lá leiöin til Tor- onto og þar vann ég að rannsóknum á fellibyljum í tengslum viö kanadísku veöurstofuna. Framhaldsnám í Japan og Ástralíu Mig langaöi aö halda áfram námi og þaö varö úr aö ég fór til London í Ontario og innritaöist i Western há- skóla. Aöalfag mitt þar var stæröfræði, en ég las einnig verkfræöi og veöur- fræöi. Sem fyrr voru fellibyljir mitt sérsvið. Samfara náminu vann ég, ýmis rannsóknastörf og í tengslum viö’ þaö hélt ég svo til Japan áriö 1978. Eg' var þar í hálfan þriðja mánuö og var það mjög gagnleg dvöl. Viö skiptumst á upplýsingum um fellibylji, en ég haföi alltaf á tilfinningunni aö Japanirnir vildu aö ég væri þar lengur, í eitt eöa tvö ár. Þeir voru bara svo kurteisir aö þeir færöu það aldrei í mál. Dvöl mín í Japan var skemmti- leg, háskólinn sem ég var viö er í Kyoto, en þaö er hin gamla höfuöborg keisaradæmisins. Mig langaöi alltaf aö fara aftur til Japan, en svo varö þó ekki. Kannski á ég eftir aö fara þangað síðar. Sama ár dvaldi ég einnig í Astralíu í 10 vikur, viö James Cook háskóla. Skólinn er á norðausturströndinni, um 700 mílur noröur af Brisbane og þar er hitabeltisloftslag. A þessum slóöum eru fellibyljir því tíðir og dvaldi ég við rannsóknir og athuganir á þeim. Næstu árin kenndi ég síðan viö Western háskóla í Ontario, jafnhliða því sem ég vann viö rannsóknir í veöuraflsfræöi (airo dynamics) og kenndi flug. Flugið skipar veglegan sess hjá mér, mér finnst fjarskalega gaman aö horfa niður á jörðina, vera aigjörlega frjáls og óháöur. Þessi ár voru mjög góö og ekki versnaði það í fyrra, er mér var boðið starf hjá Rann- sóknastofnun Kanada í Ottawa. Eg tók boöinu og hef verið hér í tæpt ár.” Höfuöstöðvar Rannsóknastofnunar Kanada eru í Ottawa, en auk þess eru útibú víöa, svo sem í Montreal, Halifax og Edmonton. Rannsakar olíuborpallsslys Rannsóknirnar ná til ýmissa sviða,. en eru ekki einskorðaðar viö ákveöin vísindi. Stundum er stofnunin fengin til aö rannsaka slys og má nefna aö Bjami hefur unniö aö álitsgerð um or- sakir þess aö olíupallurinn Ocean Ranger sökk í fyrra undan strönd Nýfundnalands. Ocean Ranger var gífurlega stór pallur og fórust nær 100 manns í slysinu. Bjarni hefur athugaö áhrif veöurs á pallinn, en aörir hafa rannsakaö þátta strauma og annarra liöa. I rannsóknamefndinni sátu einnig Norömenn, en niðurstöður nefndar- innar munu hafa mikla þýöingu fyrir hönnun og gerö olíupalla í framtíöinni. „Eg fór tU Þrándheims í Noregi í aprU tU skrafs og ráðagerða um orsak- ir slyssins og átti mjög ánægjulega dvöl þar. Norðmenn báru mig á hönd- um sér allan tímann og tóku mér sem einum af þeim. Þangað ætla ég örugg- lega aö fara aftur,” segir Bjarni. Sem dæmi um önnur störf Bjarna má nefna að hann hefur unnið aö rann- sóknum á stökkstíl kanadíska skíða- stökklandsliðsins og hvernig hægt sé aö betrumbæta stUinn til að ná betri árangri. Rannsóknir þessar fara þannig fram, aö skíðamennirnir eru látnir í sérstök vindgöng í rannsókna- stofunum í Ottawa, og loftmótstaöan er síðan mæld. í skíöastökki er hver einasti metri dýrmætur og Bjarni seg- ist hafa góöar vonir um aö hægt sé aö bæta árangur landsliösins meö þessum rannsóknum. „En þetta er aöeins hobbí hjá mér,” segir hann hlæjandi, „yfirleitt eru rannsóknirnar öUu alvar- legri.” Sveinn Agnarsson, Montreal. 21 RYÐVÖRN sf. SMIÐSHÖFÐA 1, S. 30945 Orðsending til bifreiðaeigenda: Eigendur bifreiða árg. '81 og eldri; vinsamlegast hugið að endurryðvörninni. Það er mesti sparnaðurinn. m MEISTARAR KEPPA íKARATE KARATEKEPPNI OG SÝNING :* Eitt allra sterkasta karatemót sem hér hefur veriö haldið veröur í glæsilega nýja íþróttahúsinu Digranesi, Kópavogi, þriöjudagskvöld 3. jan. kl. 20.30—22.00 (ath. stutt mót). Meðal þátttakenda eru tveir norskir NM-meistarar, þeir Arild Engh og Harald Eriksen. Auk þeirra keppa okkar sterkustu karatemenn svo eflaust mun veröa spennandi keppni. Aðeins einn opinn flokkur Kumite. Boðið veröur upp á nokkur sýningaratriði, t.d. bardaga gegn vopnuðum andstæðingum, sýnt hvernig Kata (æfingarform karate) virkar. NM-meistararnir og Ölafur Wallevik sýna stórkostlegt bardagaatriði. Aðgangur kr. 80,- 1 1/2 tíma samfelld slagsmál sem enginn má missa af. ÞÓRSHAMAR - GERPLA. WRIGLEY'S FLYTUR Með hækkandi sól og njTju ári flytjum við okkur um set. Opnum þann 3. janúar í nýju húsnæði að AUSTURSTRÖNT) 3 SELTJARMARWESI Wrigleýs umboðið Olafur Guðnason hf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.