Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1984, Page 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRUAR1984.
Láglaunakönnun Kjararannsóknamefndar:
SÓKN OG FRAMSÓKN
MEÐ LÆGSTU LAUNIN
einstæðir foreldrar búa við lökust kjör
Láglaunakönnun Kjararann-
sóknamefndar, sem unnin er aö
frumkvæði ríkisstjómarinnar, er nú
á lokastigi og verða niöurstöður
hennar kynntar í dag. Markmið
könnunarinnar var að athuga kjör
þeirra sem taldir em búa við lökust
kjörin þannig að grípa megi til
félagsiegra aðgerða í gegnum
skatta- og tryggingakerfi til að bæta
hag þeirra. Tilgangurinn var aö
komast framhjá beinum launahækk-
unum sem ekki myndu skila sér til
þeinra sem verst eru staddir.
Könnunin náði til 14 verkalýðs-
félaga innan ASI og em niöurstööur
hennar taldar endurspegla kjör þess
fjóröungs vinnumarkaðarins sem
lægst hefur launin. Meginniðurstaða
könnunarinnar er aö einstæðir for-
eldrar og bammargar fjölskyldur
séu verst setti hópurinn í þjóðfélag-
inu í dag. Taliö er brýnast að leysa
vanda einstæðra foreldra sem hafa
minnsta tekjumöguleika.
I niðurstöðum könnunarinnar
koma meðal annars fram tvenns
konar tekjuútreikningar, annars
vegar meðaltekjur sem eru allar
launatekjur auk bamabóta, með-
lags, allra tryggingabóta og leigu-
tekna, en hins vegar meðalheimilis-
tekjur sem em meöaltekjur að við-
bættum tekjum maka. Meðalheim-
ilistekjur þdrra sem könnunin náöi
til vom á bilinu 29 þúsund á mánuði
til 51 þúsund, en að meöaltali haföi
þessi hópur 37 þúsund krónur í heim-
ilistekjur á mánuði og er þá einungis
miöað við þá gifta einstaklinga sem
vom í fullri vinnu. Til samanburðar
voru meðaltekjur þeirra einstæðra
foreldra sem könnunin náði til tæpar
22 þúsund krónur ef aðeins er miðað
við þá sem eru i fullri vinnu. Hins
vegar var rúmur þriðjungur ein-
stæðra mæðra aðeins í hlutastarfi og
voru meðaltekjur þeirra tæpar 14.800
krónur.
Könnun þessi er talin endurspegla
kjör um 25 þús.manna hóps eöa um
fjóröungs af vinnumarkaðL Þegar
þessar niðurstööur lágu fýrir var
reynt að meta hvaö sá hópur var stór
sem hafði tekjur undir tilteknu fram-
færslulágmarki. Þær athuganir
benda til að undir þessu lágmarki sá
8 til 17% af þeim hópi sem könnunin
nær til eða 2000 til 4500 manns en
þetta eru ágiskanir sem ýmsir fyrir-
varar em á. Hærri talan er við það
miðuö aö lágmarksframfærsla sé 12
þúsund krónur á mánuði að viðbætt-
um 20% fyrir fyrsta bam og 15%
fyrir annað bam sem er á fram-
færslu viðkomandi. Undir þessu
marki lenda einkum einstæðir for-
eldrar, en 18% þeirra hafa lægri
meðaltekjur en 15 þúsund krónur.
A meðfylgjandi töflu má sjá
meðaltekjur og meðalheimilistekjur
giftra í fullri vinnu, sundurliöaöar
eftir þeim verkalýðsfélögum sem
könnunin náði til. Eins og sjá má eru
meðaltekjur lægstar hjá þeim verka-
lýðsfélögum í Reykjavík þar sem
konur eru í meirihluta, Sókn og
Framsókn. Meðalheimilistekjur eru
hins vegar lægstar hjá Dagsbrún og
hlýtur það að stafa af lágum tekjum
og lítilli atvinnuþátttöku maka.
ÖEF
MEÐALTEKJUR OG
MEÐALHEIMILIS-
TEKJUR GIFTRA í
FULLRI VINNU meöal-
moöal- huimilis-
tekjur tekjur
Iðja, Rvk. 17.649 31.801
Sókn 15.088 34.267
Verk. Norðfirð. 23.928 43.529
Eining, Ak. 17.652 29.653
Dagsbrún 22.228 29.398
Framsókn 15.671 34.491
VR 23.735 39.961
starfsf.á
veitingahúsum 20.870 41.425
Verk. Rangæingur 20.977 34.460
versl. og skrifst-
fólk Akureyri 21.243 35.740
Verk. Vestmeyja 37.622 51.628
Iðja, Ak. 18.208 33.381
Snót, Vestm. 23.651 47.560
Baldur, ísaf. 21.167 35.926
Búnaðarbankaskákmótið:
JOHANN ÞOKAST NÆR TITU
—Alburt er heillum horff inn—á tapaða biðskák við Piu Cramling
Bandariski stórmeistarinn Lev
Alburt er gjörsamlega heillum horf-
inn á Búnaðarbankaskákmótinu á
Hótel Hofi. I gær tefldi hann við
sænsku stúlkuna Piu Cramling og fór
skák þeirra í bið en staða Alburts
viröist vonlaus. Hann tefldi sína
eftirlætisbyrjun, Aljekín-vörn, sem
hann hefur teflt allar götur síðan
hann var strákur á stuttbuxum í
heimabæ sínum Odessa. Engu að
síður fékk hann hartnær óteflandi
stöðu eftir fáa leiki. „Vafalaust
þúsundasta skákin, sem hann teflir
með þessari bjTjun,” sagði stór-
meistarinn Shamkovich. Pia tefldi
hins vegar vel og hefur enn ekki
tapaö skák á mótinu. I dag mætir
hún Guömundi Sigur jónssyni.
Jóhann Hjartarson vann Sævar
Bjarnason í gær og á því mjög góða
möguleika á að krækja sér í titil
alþjóðlegs meistara. Hann hefur 4
1/2 v. og vænlega biðskák að auki en
þarf 6 vinninga til þess að ná tak-
markinu. Urslit í 8. umferðinni urðu
annarsþessi:
Pia Cramling — Alburt biðskák
Jóhann—Sævar 1—0
Knezevic — Helgi 1/2 —1/2
Shamkovich — deFirmian 1/2 — 1/2
Jón L. — Margeir 1/2 —1/2
Jón Kr. — Guðmundur biðskák.
Að loknum 8 umferðum af 11 hefur
Bandaríkjamaður deFirmian
forystu, með 5 v., en i 2.-3. sæti
koma Jóhann og Helgi með 41/2 v. og
biðskák. Pia Cramling hefur 4 v. og 2
biðskákir, 5. Margeir 4 og ein bið-
skák, 6. Knezevic 4 v., 7.-8. Guð-
mundur og Shamkovich 3 1/2 v. og
biðskák, 9. Jón L. 33 v. og biðskák,
10.Sævar2v.,ll.Alburtl 1/2 v. og2
biðskákir, 12. Jón Kristinsson 11/2 v.
og ein biðskák.
Skák Helga og Knezevic var ör-
stutt, aðeins 12 leikir og geröu báðir
sig greinilega ánægða með jafntefli.
Jón L. og Margeir sömdu því næst
um jafntefli, tefldu svonefndan
„Maroczy-binding” í Sikileyjarvöm
og varð skákin 22 leikir. Þá höfðu
orðið stórfelld uppskipti og blasti
jafnteflið við.
Miklar sviptingar urðu hins vegar í
jafnteflisskák Shamkovich og
deFirmian. Shamkovich fékk góða
stööu og náði hótunum á kóngsvæng
en á síðustu stundu tókst deFirmian
að koma riddaranum í vömina og
hafði sjálfur hættuleg gagnfæri.
Frumkvæði Shamkovieh fjaraöi út
og hann tók það til bragðs að þrá-
leika. Skákin varð 38 leikir.
Sigur Jóhanns var verðskuldaður.
Sævar tefldi franska vöm en tókst
ekki fyllilega að jafna taflið. I mið-
taflinu skildi hann peð eftir í dauð-
anum, hélt sig ná gagnfærum, en
h'till riddaraleikur Jóhanns valdaði
allt. Síöar féll skiptamunur í valinn
og í 41. leik gafst Sævar upp.
Skák Jóns Kristinssonar og Guð-
mundar var í jafnvægi, þar til Guð-
mundur töfraði fram htla brellu,
Fyrirliggjandi í birgðastöð
EFNIS-
PIPUR
SKF 280
OOO0 ooOO °OOo
Fiölmareir sverleikar
og pykktf
SINDRA
;ir.
STALHF
sem gekk svo ekki er á reyndi. Jón
fékk betri stöðu en í tímahrakinu lék
hann af sér. Missti skiptamun og er
skákin fór í bið er staða Guðmundar
vænleg. Biðstaðan er svona:
Svart: Guðmundur Sigurjónsson
8 H |i flf
71111
4 \±rt' ; g
HH
abcdefgh
Hvítt: Jón Kristlnsson
— Svartur lék biðleik.
Skák Piu Cramling við Lev Alburt
gekk þannig fyrir sig:
Hvítt: Pia Cramling
Svart: Lev Alburt
Aljekín-vöm.
1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4. Rf3 g6
5. Bc4 dxe5?!
Þetta er óvenjulegur leikur (og
slæmur?), sem ekki er minnst á í
mínum kokkabókum. Leikið var 5. —
Rb6 í skákinni Jón L. — Alburt fyrr í
mótinu.
6. dxe5 c6 7. Rc3! Be6
Auðvitað ekki 7. — Rxc3? ? vegna
8. Bxf7+ og drottningin fellur.
8. Rg5 Bg7 9. f4 Rd7 (?) 10. Bxd5!
cxd511. Be3
Ekki 11. Rxd5? vegna 11. — Rxe5!
Byr jun s varts hefur beðið skipbrot.
11. — Rb6 12. Rxe6 fxe6 13. Bd4 Rc4
14. b3 Ra3 15. 0-0 Hc8 16. Hf2 Da5 17.
Dd3 b5 18. Hcl b4 19. Re2 Rb5 20. c3
bxc3 21. a4! Rxd4 22. Rxd4 Kd7 23.
h4! Hc5 24. Hfc2 Hhc8
Borgartúni 31 sími 27222
Skák
lón L. Ámason
Stöðumyndin segir meira en mörg
orð. Takið eftir biskupi svarts á g7.
Hann er í hfstiðarfangelsi! Pia fer
galvösk af staö með kónginn út á
borðiö en 25. Kh2 er öruggara.
25. Kf2!?Db4
Einhver stakk upp á 25. — Hf8 26.
Ke3 Hxf4 27. Kxf4 Bxe5+ 28. Kxe5
Dc7 mát, en hvítur þiggur ekki allar
gjafirnar.
26. Ke3Bxe5?
Hann varð að sitja í slæmu stöö-
unni. Fórnin er vonlaus.
27. fxe5 Db8 28. Kf2 Dxc5 29. Hel
Hf8+ 30. Rf3 Dh2 31. Dd4 Hc7 32.
Hxc3 Hxc3 33. Dxc3 Dxh4+ 34. Kgl
Hxf3 35. gxf3 d4 36. Dd2 Dg3+ 37. Kfl
Dxf3+ 38. Df2 Dh3+ 39. Ke2 (?)
Aftur fer hún með kónginn á flakk.
Einfalt er 39. Kgl Dg4+ 40. Dg2, t.d.
40. - Dxg2 41. Kxg2 Kc6 42. K£3 Kd5
43. Hcl! og hvítur fær nýja
drottningu.
39. — e5 40. DÍ3 Dh2+ 41. Kd3 Db2 42.
Dd5+ Ke8
m m
Hf '■■■
m.
tm a
841 «>»
#
wá
3 b c d e f 9
Hvítur lék biðleik og hlýtur að
vinna.
Biðskákir verða tefldar í miðviku-
dag. I dag kl. 17 hefst 9. umferð. Þá
tefla: deFirmian — Jóhann, Helgi —
Shamkovich, Guömundur — P>a»
Alburt — Knezevic, Margeir — Jón
Kr. og Sævar—Jón L.