Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1984, Síða 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR7. FEBRUAR1984.'
„Pulsuparti"hjá 300 krökkum sem tóku þátt i frumsýningarhátið á Örkinni
hans Nóa hjá ísiensku óperunni. Veislan var haldin á Hótel Borg. Slátur-
félag Suðurlands gaf 600pulsur, Álfheimabakari gaf pulsubrauð, Bæjarins
bestu gáfu þjónustu og meðlæti, Vifilfell gaf kók, Nói og Sirius gáfu sæl-
gæti og Hótel Borg lánaði húsnæðið. Krakkarnir sáu sjálfir um skemmti-
atriðin. D V-myndir Einar Ólason.
Nýr bankastjóri Búnaðarbankans:
Lárus Jónsson
líklegastur?
Niðurstööu um hver skipa muni
bankastjórastööu Búnaðarbankans er
líklega aö vænta á bankaráösfundi á
hádegi í dag. Þrir menn hafa verið
nefndir til stööunnar, Lárus Jónsson,
þingmaöur Sjálfstæöisflokks, Jón
Adolf Guöjónsson, aðstoðarbanka-
stjóri Búnaöarbankans og sjálfstæöis-
maöur, og sá þriöji er Sólon R. Sigurðs-
son.
Stefán Valgeirsson, formaöur
bankaráös, sagöi aö fundur þess yrði
haldinn aö afloknum fundi í stofnlána-
deild landbúnaðar en þar eru 15
umsækjendur um stööu forstöðumanns
og aö mati Stefáns Valgeirssonar
„allir hæfir” en ,,um einn veröa banka-
ráð, formaður Stéttarsambands bænda
og Búnaðarfélags Islands aö ná sam-
stöðu.” Stefán vildi ekki segja af eöa á
hvort hann teldi að niðurstaða um
bankastjórastööuna fengist i dag.
Ástæðu þess að það væri jafnvel ólík-
legt sagði hann óeiningu Sjálfstæðis-
flokks. En talið er að séra Gunnar Gísla-
son, annar fuiltrúi Sjálfstæðisflokks,
styðji Jón Adolf Guðjónsson. Val Frið-
jóns Þórðarsonar er óvíst en aö sögn
Helga Seljan fulltrúa Alþýðubandalags
í bankaráöi, munu sjálfstæðismenn lík-
lega endanlega lúta flokksaga og
styöja Lárus Jónsson þingmann sem
flokksforystan styður. „Þorsteinn
Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokks,
er slyngur eins og ég hef alltaf sagt,”
sagöi Helgi Seljan og bætti við að Þor-
steinn Pálsson hefði sagt aö fulltrúar
sins flokks i bankaráði myndu endan-
lega lúta flokksaga.
Sjálfur kvaðst Helgi Seljan bíða
eftir því að sjálfstæöismenn gerðu upp
hug sinn í þessu sambandi. Taldi hann
þó eðlilegt að Jón Adolf Guðjónsson
aðstoðarbankastjóri fengi stöðuna
vegna starfsreynslu sinnar og vegna
viöskiptavina bankans og starfsfólks.
„En Jón Adolf er ekki þannig maður að
hann fari að berjast um stöðu þessa,”
sagði Helgi Seljan og bætti við að
Lárus Jónsson væri mjög hæfur maður
og „hæfari heldur en gerist og gengur
um þá sem eru pólitískt skipaðir utan
frá. Lárus Jónsson er formaður fjár-
veitinganefndar Alþingis og fyrrver-
andi framkvæmdastjóri Fjórðungs-
sambands Norölendinga,” sagöi Helgi
Seljan.
Helgi sagöi jafnframt að honum
þætti engu að síöur fráleitt að skipa í
bankastjórastöðu úr röðum þing-
manna í stað þess að velja í stöðuna úr
röðum bankamanna. „Þetta hef ég
margoft rætt á fundum og það er
skoðun mín að flokksforystur eigi að
láta fulltrúa sína innan bankaráðs
sjálfráða í þessum efnum,” sagði
Helgi Seljan.
„Þetta rugl í blöðunum um flokks-
pólitiskar stöðuveitingar sýnir að
blaðamenn vita ekkert um pólitík,”
sagði Stefán Valgeirsson, bankaráðs-
formaður og þingmaður Framsóknar-
flokks. „Pólitík er sóknin eftir valdi og
ef menn eru við völd eiga þeir að beita
þeim. Stefnumið ráðast af þeim sem
stöðurnar skipa og flokkarnir eru
eingöngu að nota það vald sem þjóðin
hefur falið þeim. Alþingi kýs i banka-
ráð og þar er hlutfallsstyrkur hinn
sami og á þingi. Pólitískt vald banka-
ráðs er fólgið i að skipa i stöður banka-
stjóra, aöstoöarbankastjóra, aðalbók-
ara og aðalféhirða og útibússtjóra,”
sagði Stefán Valgeirsson.
Friðjón Þórðarson, annar fulltrúi
Sjálfstæðisflokks, sagðist ekki láta
uppi fyrr en á fundi bankaráös i dag
hvern hann styddi. „Jú flokksforystan
hefur tilnefnt Lárus Jónsson sem full-
trúa sinn en mitt val kemur í ljós á
fundinum,” sagðiFriðjón.
Eins og fyrr segir er talið líklegt að
annaðhvort Lárus Jónsson eða Jón
Adolf Guðjónsson hreppi hnossið en
ólíklegt að Sólon R. Sigurðsson fái
stöðuna að því er heimildir DV herma.
Sólon R. Sigurösson er forstöðumaður
gjaldeyrisdeildar Búnaðarbankans.
-HÞ
Skaftamálið:
Málið nú til umsagnar hjá
dómsmálaráðuneytinu
„Málið er nú til lögboðinnar um-
sagnar í dómsmálaráðuneytinu,”
sagði Bragi Steinarsson vararíkissak-
sóknarí er DV spurði hann hvað
Skaftamálinu liði en í dag eru 11 dagar
frá því dómsrannsókn Sakadóms
Reyk javíkur í málinu lauk.
Bragi sagöi að dómsmálaráðuneytiö
hefði fengið málið til umsagnar í síð-
ustuviku. „Þaöerskyltskv.lögumað
senda mál er varða kærur fyrir brot í
opinberu starfi til umsagnar viðkom-
andi ráðuneytis sem er dómsmála-
ráðuneytið í þessu tilviki. ”
— Hvenær reiknarðu með að
ákvörðun verði tekin um það hvort
ákært verður eða ekki?
„Ég get ekkert um það sagt. En
málið liggur þó fyrir til ákvörðunar
þegar umsögn dómasmálaráðuneytis-
ins kemur til okkar.”
Til upprif junar má geta þess aö það
var aöfaranótt 27. nóvember sem
Skaftamálið hófst með því að þrír lög-
regluþjónar handtóku Skafta í Þjóð-
leikhúskjallaranum. Kæra Skafta
gengur út á meint harðræði þeirra við
handtökuna.
Mál Skafta er annaö máliö frá því
Rannsóknarlögregla rikisins var stofn-
uð sem sérstök dómsrannsókn fer
fram í. öhætt er að segja að fá mál
hafa vakið jafnmikla athygli á síöustu
árum. -JGH
Forstjóri lceland Seafood um hugsanlegan vemdartoll á
ríkissty rktan f isk til Bandaríkjanna:
Ekki viss um að
við gtæddum á því
„Hverskonar hindranir á frjáls-
um viðskiptum meö fisk geta skapað
hættu. Ef vemdartollar yrðu t.d.
settir á kanadískan og norskan fisk
hér i Bandarikjunum hlyti hann að
hækka í verði og það kynni að draga
úr fiskneyslu almennt. Það yröi
a.m.k. ekki til þess aö við gætum
hækkaö okkar fisk. Svo er ég viss um
að Kanadamenn myndi aðeins
hækka ríkisstyrki sína til sjávarút-
vegs síns um það sem áhrifum
vemdartolla næmi, því að stjóm-
völd þar hafa ásett sér að halda uppi
atvinnu og byggð á Nýfundnalandi
og Nova Scotia,” sagði Guðjón B.
Olafsson, forstjóri Iceland Seafood i
viðtali við DV.
Tilefnið að spjallinu við Guðjón
eru þær fréttir sem berast frá
Bandaríkjunum þess efnis að þar-
lendir sjómenn séu mjög óánægðir
með að þurfa styrkjalaust að keppa
við ríkisstyrktan innflutning á fiski
frá Kanada og Noregi á heimamark-
aöi sínum.
Krefjast þeir þess að vemdartoll-
ar verði settir á innfluttan fisk frá
þessum löndum svo samkeppnin
verði eðlileg. Opinber stofnun í
Bandarikjunum er nú að rannsaka
ríkisstyrki til útgeröar i þeim lönd-
um, sem flytja fisk til Bandaríkj-
anna.
Guðjón sagði að stórir kaupendur
skoðuðu fleira en bara verðið þegar
þeir væm að kaupa fisk. Gæði, þjón-
usta og stööugleiki framboös hefði
verulega þýðingu og þessir þættir
væru ein meginástæða fyrir vel-
gengni íslenska fisksins í Bandaríkj-
unum. _íjs
:KANGOL ^
: Alpahúfur — - -
^ angóruhúfur — fjffö'V-
túrbanar —
angóruhattar —
Pepe — derhúfur
• filthattar
• regnhattar
| HATTA- OG GJAFABÚÐIN
• _ _ _ _
Frakkastíg 13, sími 29560.
FELL
SUBABÖ
umH ROOF VAN 4WD
H,GHihiúeiðinaf minni stærð.nn.
EÍnaSeíÆéöS«mhióium.
ajtekalli.Þaðerlíkaallsekki to.ntegtaðlit»þageanum alla
lióladtifna Sabara « W> »■»“"?'* kems, á .éf.um .iaa.,
snjóskaUa. Galáa þér smárimaal aá" Jkv8|dl
vinnana og hann kemst ehmdraóm he l 9 ^ * ton„ slendar aal
að viðskiptamenn Subarueiganaans AAft
f van 4 WD kostareöeins
Kr. 226.000.-
INGVAR HELG ASOr
ÍIMVI W ^„„,tsa|u,ion/Rauaagerai.s.m.33560^