Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1984, Síða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRUAR1984.
Mokað af fullum krafti og Guðjón réttir blaðamönnunum hjálparhönd.
Verkinu lokið og þau Guðjón og Lydía stiga út fyrir dyr húss síns i fyrsta
sinn í eina viku.
flmB
Glöð og ánægð veifa þau Guðjón og Lydía blaðamönnunum erþeir halda á
brott. D V-myndir GVA
FJÖLGUN MNGMANNA ÓÞÖRF
— segja áhugamenn um stjómarskrármál f Húnavatnssýslu
Talsmenn Landssamtakanna um
jafnrétti og stjórnarskrá afhentu
Steingrími Hermannssyni forsætisráö-
herra í gær 660 undirskriftir úr Vestur-
Húnavatnssýslu þar sem mótmælt er
fj ölg un þingmanna.
I bréfi sem forsætisráöherra var af-
hent með undirskriftunum segir aö
fjölgun þingmanna sé óþörf og ein-
ungis til kostnaðarauka fyrir þjóöar-
búiö.
„Miöstýring höfuðborgarsvæðisins
er nú þegar svo sterk aö þar má engu
við bæta, þar eru höfuöstöövar löggjaf-
ar og framkvæmdavalds, fjölmiölun-
ar, fjármagns og þjónustu hins opin-
bera,” segir í bréfinu. „Ef sú gjá sem
þegar er mynduð. milli landsbyggðar-
innar og höfuðborgarsvæðisins breikk-
ar enn frekar mun þaö hafa ófyrirsjá-
anlegar afleiöingar fyrir þjóöarbúiö.
Viö slíku veröur aö spoma og stuðla aö
farsælli búsetu þjóðarinnar í landinu
öllu á jafnréttisgmndvelli. Enda er
þaö ekki einkamál alþingismanna
sjálfra að samþykkja slíka fjölgun,
heldur þjóöarinnar.”
I bréfinu segir aö þessi undirskrifta-
Steingrimur Hermannsson forsætisráðherra tekur við mótmælunum igær.
DV-mynd GVA.
söfnun sé vísbending um vilja þjóö- ekki nægjanlegt veröi undirskriftum
arinnar, en ef alþingismenn telji þetta safnað um allt land. ÖEF
Eskifjörður:
Landburður af loðnu
Frá Emll Thorarensen, fréttaritara
DV á Eskifirði.
Fyrsta loönan kom til Eskif jarðar 2.
febrúar og síöan hefur veriö unnið
stanslaust viö loðnulöndun allan sólar-
hringinn og gengiö mjög vel.
Jón Kjartansson kom í gærkvöldi,
mánudagskvöld, með 900 tonn. Skipið
fór út kl. 16 á sunnudag og lagöi af staö
í land með fullfermi fyrir hádegi í gær.
Sigling á miðin tekur tíu tíma. Aðrir
bátar á leiö í land eru Eldborg HF og
Skarðsvík SH.
Alls hafa borist til Eskifjarðar um
13 þúsund tonn, með þeim afla sem bíö-
ur löndunar. Fyrir áramót var landaö
hér 10600 tonnum af loðnu.
Aflinn hjá togurunum hefur einnig
verið mjög góöur. Hólmanes landaöi
140 tonnum í gærmorgun eftir 8 daga
veiöiferö og Hólmatindur kemur inn í
dag meö 150 tonn eftir 8 daga.
-GB
EV- SALURINN
Á 3. HÆÐ í FIATHÚSINU
800 FERMETRA SÝNINGARSALUR
í dag seljum við m.a.:
FIAT RITMO 65 '82 Kr. 210.000
FIAT 127 TOP '80 Kr. 120.000
FIAT 131 MIRAFIORI '76 Kr. 75.000
FIAT128 '76 Kr. 70.000
FIAT 127 SPECIAL '76 Kr. 65.000
MAZDA 626 1600 . . . . '81 Kr. 225.000
VOLKSWAGEN GOLF 78 Kr. 120.000
VOLKSWAGEN PLO L 78 Kr. 125.000
DAIHATSU CHARMANT. . . ‘ 79 Kr. 125.000
CHEVROLET CONCOURS. . 77 Kr. 140.000
FORD MUSTANG '66 Kr. 75.000
LANCER '76 Kr. 75.000
og margt, margt fleira.
E—V SÉRKJÖR.
Kjör sem erfitt er að trúa en eru staðreynd.
Lánum í 3,6,9 eða jafnvel 12 mán.
OPIÐ FRÁ KL. 9-19.
notodir bílar
HGILL * *Í9TU umbodssins
VILHJÁLMSSON HF
Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Sími 79944