Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1984, Page 11
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 7. FEBRUAR1984.
11
Þær eru hressar, konurnar sem tóku þátt i námskeiðinu sem Unnur Arn-
grimsdóttir hélt á vegum Módeisamtakanna á Húsavík.
D V-mynd Ingibjörg Magnusdóttir.
Góðir gestir á Húsavík
Hjónin Unnur Amgrímsdóttir og
Hermann Ragnar Stefánsson heim-
sóttu Húsavík fyrir stuttu og sagt var
aö þau heföu lyft grettistaki meö dans-
kennslu fyrir meölimi gömludansa-
klúbbsins. Tæplega 200 manns tóku
þátt í námskeiðinu.
Hermann gleymdi ekki aö heim-
sækja fólkið á Hvammi, Dvalarheimili
aldraðra, og geröi því glaða stund.
Utvarpsþáttur Hermanns „Eg man þá
tíö, ” 6. febrúar, veröur meö óskalögum
frá Húsavík.
J.C. Húsavík annaöist undirbúning á
námskeiði frá Módelsamtökunum sem
Unnur segir aö sé fyrir ungar konur á
öllum aldri og meðal annars til aö
byggja upp sjálfstraust þeirra.
„Viö erum mjög ánægðar,” sagði
Inga Kristín Gunnarsdóttir, formaöur
gömludansaklúbbsins, en hún sótti
bæði námskeiöin og vann ómælt starf
viö framkvæmd þeirra, Jíg heföi aldrei
trúaö aö hægt væri að læra eins mikið á
einnihelgi.
Það má segja aö konumar hafi
fengið nýtt andlit eftir námskeiöið. Eg
sá eina húsmóður sem tók þátt í
námskeiðinu hengja út þvott í morgun.
Hún var himinsæl og alveg eins og
klippt út úr tískubiaði.”
24 konur sóttu námskeiöiö. Þaö er
um 1% bæjarbúa. Viö hin reynum svo
aö hegöa okkur pent og prúömannlega
til aö stinga ekki í stúf.
Ingibjörg Magnúsdóttir
Húsavík.
Framtalsnefnd fer
yfir skattskýrslur
Tekjulágir eili- og örorkulífeyris-
þegar munu nú eins og undanfarin ár
fá afslátt af fasteignasköttum. I
Reykjavik mun Framtalsnefnd
Reykjavíkur yfirfara skattframtöl elli-
og örorkulífeyrisþega og lækka
álagöan fasteignaskatt, samkvæmt
lögum.
Lífeyrisþegar sem engar tekjur
höföu á síðasta ári borga engan fast-
eignaskatt. Þeir sem höföu lægri
tekjur en 110.000 (hjón 170.000) fá 80
prósent afslátt. 50 prósent afslátt fá
þeir sem höföu tekjur á bilinu 110.000
-130.000 (hjón 170.000-205.000).
-Þó.G.
„Gefandi starf
en líka lýjandi"
Úr kennarasætinu yfir i ellimálin: ,, Gliman við persónuleg mál manna er
ekki óskaplega ólík, þrátt fyrir mismunandi aldursskeið," segir Þórir S.
Guðbergsson. 'DV-mynd EÓ
— segirÞórirS.
Guðbergsson,
nýráðinn
eílimálafulltrúi
Reykjavíkur-
borgar
Þórir S. Guðbergsson félagsráð-
gjafi hefur veriö ráðinn ellimálafull-
trúi Reykjavíkurborgar og tekur við
því starfi um miðjan mars.
„Hann er yfirmaður þeirrar
deildar Félagsmálastofnunar sem
fer meö málefni aldraðra,” sagði
Þórir þegar hann var spurður hvað
ellimálafulltrúinn geröi.
Þórir sagöi aö deildin skiptist í tvo
meginþætti.
, jVnnars vegar er það sem snýr að
þjónustu, ráögjöf og meöferð fyrir
einstaklinga og hjón, 67 ára og eldri.
Hins vegar er það uppbygging og
skipulagning félags- og tómstunda-
starfs fyrir aldraöa í Reykjavik.”
Sem dæmi um þá þjónustu, sem
fólk sækti til þessarar deildar
Félagsmáiastofnunar, sagði Þórir aö
væri aö fá útskýringar á trygginga-
löggjöfinni og einnig kæmi fjöldi
fólks til að heyra reglur sem gilda
um afslátt af ársfjóröungsgjaldi
símaogsjónvarps.
— Notfæra menn sér þessa þjón-
ustumikið?
,,Ef viö tökum bæði þá sem leita
beint hingaö og þá sem leita í félags-
starfiö þá gæti ég ímyndað mér aö
þaö væru á milli 10 og 20% af ellilíf-
eyrisþegum í Reykjavík.”
Þórir hefur starfaö meö öldruöum í
um 6 ár, og hann var spurður hvort
þetta væri spennandi starf.
„Þetta er verulega gefandi starf í
aðra röndina þó að þaö sé líka
lýjandi. Maöur fær geysilega mikið
til baka í samskiptum sínum viö
þennan aldurshóp sem hefur mikla
reynslu.”
— Nú varst þú lengi bama-
kennari. Voru þaö ekki mikil
umskipti aö fara svo aö starfa meö
gamla fólkinu?
„Jú. Þó aö mér finnist að gliman
viö persónuleg mál manna sé ekki
óskaplega ólik, þegar upp er staðið,
þrátt fyrir mismunandi aldurs-
skeið.”
— Hefuröu eitthvað hugsað um
þaö hvemig þaö verður aö vera
gamall ellimálafuiltrúi, ef þú ílengist
ístarfinu?
„Nei. Ekki nema þaö aö Cicero
sagði eitthvað í þá áttina, og lagði á
þaö áherslu í bók sinni um ellina, aö
lífemi fólks, áður en þaö verður
gamalt, hefur feikilega mikið aö
segja í sambandi viö undirbúning
efri áranna, það skipti máli hvað
maður gerir og hugsar,” sagöi Þórir
S. Guðbergsson.
Þórir er kvæntur Rúnu Gísladóttur
kennara og myndlistarmanni og þau
eigaþrjúböm. -GB.