Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1984, Page 15
Ditfsftfitíöffiæ&fi f:m&m íAi,n
15
SAMGÖNGU-
ÞIÓNUSTA í
MOSFELLS-
SVEIT
Fátt er jafnmikilvægt í nútíma-
þjóðfélagi og góöar samgöngur.
Farartæki eru þeir hlutir sem fólk á
öld kyrrsetu og þæginda er einna
háöast.
Ein helsta samgönguæö landsins
til höfuöstaöarins liggur sem
kunnugt er um Mosfellssveit. Þykir
mörgum þaö miöur, enda mun það
valda á vissan hátt vandræöum meö
skipulag en hins vegar er þaö
sveitarfélaginu hvort tveggja í senn
styrkur og öryggi.
Þéttbýli — þjónusta
Aukiö þéttbýli í Mosfeilssveit
' siðustu áratugi hefur kallaö á aukna
og jafnvel nýja þjónustu á mörgum
sviðum. Utan heilbrigöis- og
menntunarþjónustu er þjónusta al-
menningsvagna eitt það allra mikil-
vægasta. Fjöldi fólks þarf nauösynja
sinna vegna aö fara tvivegis fram og
aftur til höfuöstaöarins, ýmist aö
stunda vinnu i Reykjavík ellegar
sækja sér æðri menntun eöa afla
aöfanga í búiö. I dag ríkir sannkallað
vandræöaástand í þessum efnum. I
haust sem leið var stórfelldur niður-
skurður á ferðum sem olli mörgum
dálitlum vandræðum. Á morgnana
eru aðeins tvær ferðir, kl. 7 og 8, sem
skólafólk og vinnandi fólk getur nýtt
sér. Vagnarnir eru yfirleitt v-:i yfir-
fullir og aö jafnaöi er sætaframboö
langt því frá að teljast nægjanlegt.
Veldur þaö hvoru tveggja í senn,
aukinni slysahættu og því að margir
eru tilneyddir aö fara á einkabílum
meö tilheyrandi kostnaöi. Flutnings-
þörfin er mikil, einkum yfir vetrar-
mánuöina, meöan skólar standa yfir,
og sú þörf mun að sjálfsögðu eiga
eftir að stóraukast, bæði vegna f jölg-
unar íbúa sveitarfélagsins og hins aö
augljóslega má spara stórfé með
betri og aukinni nýtingu almennings-
vagna fyrir íbúa Mosfellssveitar og
sjálfsagt fleiri. Ljóst er aö grund-
vallarforsenda þess er sú, að not-
endumir geti haft bæði sjálfir ein-
hvern hagnaö af og að unnt sé aö
aölaga feröir og tiðni vagnanna aö
þörfum notendanna eftir því sem
aöstæður leyfa. — Þjónustan er tö
fyrir fólkið, en fólkiö er ekki tU fyrir
þjónustuna. — Erum viö nú komin að
þungamiðju hugleiðinga þessara
sem mig undirritaöan langar til aö
enda með eftirfarandi tilmælum tU
háttvirtra yfirvalda Mosfellshrepps:
1. An undandráttar ber brýna
nauösyn til að fjölga ferðum al-
menningsvagna mUli Reykja-
víkur og Mosfellssveitar á tíma-
bilunum kl. 7 — 8/9 á morgnana
og einnig miUi kl. 16 — 19/20
síödegis, a.m.k. yfir vetrartím-
ann meöan skólar standa yfir og
þegar flutningsþörfin er mest
aðkaUandi. A þessum tímum er
nýting vagnanna best og ætti aö
vera öllum að gagni aö fjölga
ferðum, jafnt notendum sem
flutningsaöila/sérleyfishafa. Þar
sem sætaframboö er ekki
nægjanlegt, einkum á morgnana
í vögnunum, er stórslysahætta
fyrir hendi og margir af þeim
sökum nýta ekki eöa geta ekki
nýtt sér feröirnar. Betri nýting
ferða myndi örugglega vera
afleiðing fjölgunar ferða á anna-
tímum sem myndi aftur tryggja
flutningsaöila betri rekstrar-
afkomu og gera hann færari aö
bæta enn þjónustuna.
2. Kanna þarf flutningsþörfina
meöal allra íbúa Mosfellssveitar
hvort sem þeir nýta þessa þjón-
ustu í dag eður ei. TUvUjunar-
kennd talning á sumarleyfistíma
gefur kolrangar hugmyndir um
Kjallarinn
GUÐJÓN JENSSON
póstafgreiöslumaður.
vinnslu upplýsinga þarf fagaöili
þessi að vera fær um aö veita
ráögjöf enda sé vandað sem mest
tU þessa eftir því sem unnt er.
Hér þarf aö koma tU óvilhaUur og
hluUaus aðUi enda verði
kostnaður sem af þessari
athugun leiðir ekki óyfirstígan-
legur. Árangur af athugun sem
þessari yröi bæði afar þýöingar-
mU<Ul og gagnlegur fyrir viögang
og þróun byggðar í Mosfellssveit
um ókomna framtíð.
3. Hraöa þarf viðræðum viö yfir-
völd ReykjavUturborgar eftir
megni. Kanna þarf sérstaklega
aö hve miklu leyti unnt er aö
sameina rekstur almennings-
farartækja þessara sveitar-
stjóma. Spurning er, með auk-
inni byggö Reykjavíkurborgar í
noröaustur, hversu hagkvæmt
yröi að SVR tækju yfir rekstur
MosfeUsleiðar aö hluta eða öUu
leyti. Á meöan óbreytt ástand
varir hvort ekki sé unnt aö semja
um t.d. magnafslátt meö feröum
SVR til handa farþegum
Mosfellsleiöar h/f sem koma með
eöa ætla meö vagni úr/tU
Mosfellssveitar. Rökstuöningur
þessa er eftirfarandi: 1 dag er
töluverður kostnaöarauki fyrir
fólk sem nauösynja sinna vegna
þarf aö sækja tú höfuðstaöaríns.
Feröakostnaöur er í dag kr. 70
,(2X11 og 2X24) sem líklega mun
A „Ljóst er að grundvallarforsenda þess er
^ sú, að notendur geti haft bæði sjálfir ein-
hvern hagnað af og að unnt sé að aðlaga ferðir
og tíðni vagnanna að þörfum notendanna eftir
því sem aðstæður leyfa.”
þörfina og ber aö átelja sUk
vinnubrögö. Auglýsa þarf sér-
staklega eftir ábendingum og
óskum um þaö sem betur má
fara enda sjá augu betur en 4-
auga. Meö því yröi áunnið aö
„markaöurinn” veröi athugaöur
eins og hann er í dag og væntan-
lega að verulegu leyti um
nánustu framtíð. Ljóst er aö
margir munu koma til meö að
nota sér almenningsvagna aö
ákveðnum skilyröum full-
nægöum, t.d. aö brottfarartími
vagns henti viökomandi og aö
ýmis atriöi sem máli skipta séu-
hagstæö, t.d. að unnt sé aö
komast lengra en niöur á
Grensásveg í Reykjavík fyrir
sama fargjald (sjá 3. liö.).
Rétt er aö leita til viöurkennds'
fagaöila við könnun sem þessa.
Sá þarf að búa yfir góöri reynslu
og þekkingu við framkvæmd
könnunar sem þessarar og sé
fullkomlega í stakk búinn aötaka
sh'ka könnun að sér. Eftir úr-r
brátt hækka. Kostnaöur er
miðaöur viö kaup afsláttarmiöa
en ella næmi kostnaðurínn kr.
86,-ádag.
Auka þarf sérþjónustu eftir því
sem unnt er. Svo sem öllum er
kunnugt eru margir farþegar
sem fara á milli Mosfellssveitar
og Reykjavíkur hreyfihamlaðir.
jÞaö þyrfti aö gera þessum hópi
fólks auðveldara að ferðast með
'vögnunum svo og þeim sem
nauðsynlega þurfa aö hafa
hjálpartæki, svo sem hjólastóla
og barnavagna, einkum á þeim
tima sem annir eru minni.
Núverandi vagnakostur Mos-
fellsleiöar h/f hentar afar illa
þessum þörfum þar sem um
áætlunarvagna, en ekki strætis-
vagna af venjulegri gerö, er að
ræða. Hér þarf umbóta viö.
Vinsamlegast
Guðjón Jensson
póstafgrm.
Arnartangi 43,270 Varmá
EINN FALLEGASTI DEKURBÍLL LANDSINS
ER TIL SÖLU
Mercedes Benz 280 SE árg. 1978 er til sölu. Bíllinn er ekinn 105.000 km
(mest erlendis) og er meó sóllúgu. Sjálfskiptur, allar rúöur og læsingar
eru meó rafmagni, plussklæddur, útgarp og segulband. vetrar- og sumar-
dekk, 6 cyl. bensínbíll.
Þetta er bill sem er i algjörum sérflokki og til marks um þaó má geta
þess aó þaó hefur aldrei verió reykt í honum.
Allar nánari upplýsingar í síma 44203.
AukiS endingu rafgeymisins með því aS nota
MAXILIFE
AAAXILIFE eyðir skaðlegri súlfatmyndun og held-
ur götunum í plötunum hreinum.
AuSveldar hleðslu geymisins.
Fljótvirkari.
Heldur Ijósunum björtum.
Tryggir tafarlausa rœsingu hreyfilsins jafnvel í
mestu frostum.
Eykur endingu rafgeymisins, hvort sem hann er
nýr eða gamall.
Fæst á öllum bensínstöðvum.
MARKAÐSHUSINU
við Sigtún
Nýiar vörur
á útsölu!
ALLT Á 1/2 VIRÐI!
Se/jum næstu daga mikið úrva/ af
óútleystum póstvers/unarvörum.
T.d. fatnað, gjafavörur, skrautmuni,
búsáhöld, skófatnað o.fl. o.fl.
Alit á 1/2 virði + söluskattur!
Nýi Grattan vörulistinn er kominn og
fæst ókeypis á staðnum gegn
y innborgun á fyrstu pöntun.
*--^fca^g/>>VÖRUUSTAUMBOÐIÐ