Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1984, Síða 22
22
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR1984.
Úrslit kunn í samkeppni um
Stjómsýsluhús
á ísafirði
a n s I u r h I i ft
YPstnrhlift
Albína og Guðf inna Thordarson f engu 1. verðlaun
Hérmá sjá verðlaunateikninguna afnýja stjórnsýsiuhúsinu á ísafirði.
DV-mynd Valur Jónatansson.
Frá Val Jónatanssyni, fréttarltara
DV á Isafirði.
A árunum 1972—76 var unniö að
gerð aðalskipulags fyrir Isafjarðar-
kaupstað. I þeirri tillögu er gert ráð
fyrir verulegri stækkun miðbæjar-
ins, m.a. með landfyllingu. I
framhaldi af því kom fram sú hug-
mynd að nokkrar opinberar stofnan-
ir og almenn þjónustufyrirtæki á Isa-
firöi sameinuöust um byggingu á
myndarlegu húsi, stjómsýsluhúsi, í
miöbænum fyrir starfsemi sína.
Leitað var samstarfs við Arki-
tektafélag Islands um tilhögun á
samkeppni um hönnun stjómsýslu-
húss á Isafirði. Dómnefnd var síðan
skipuð í ágústmánuöi 1983. Tilnefnd-
ir af útbjóðendum vom Brynjólfur
Sigurðsson dósent, Reynir Jónasson
bankastjóri, Vilhjálmur Hjálmars-
son arkitekt. Tilnefndir af Arki-
tektafélagi Islands vora Dagný
Helgadóttir arkitekt og Manfreð Vil-
hjálmsson arkitekt. Formaður
nefndarinnar var Olafur Jensson
framkvæmdastjóri.
Skilafrestur tillagna rann út 20.
des. 1983 og bárast alls 29 tillögur.
Dómnefnd var sammála um að veita
tillögu nr. 3 1. verðlaun, kr. 300 þús.
Höfundar reyndust vera Albina
Thordarson og Guðfinna Thordarson
arkitektar. Nefndin taldi húsið hafa
glæsilegt yfirbragð, séö frá Silfur-
torgi og innan úr firði, og mælti með
að þessi tillaga yrði valin til útfærslu
og byggingar.
2. verölaun hlaut tilfaga nr. 24.,
höfundur Guðmundur Jónsson arki-
tekt,200þús. kr.
3. verðlaun hlaut tillaga nr. 4.
Höfundar Geirharður Þorsteinsson,
Hróbjartur Hróbjartsson, Richard
Olafur Briem, Sigríður Sigþórsdóttir
og Þorsteinn Geirharðsson, kr. 100
þús.
Tillögumar era nú til sýnis bæjar-
búum í Menntaskólanum og er sýn-
ingin opin frá kl. 20—22 á kvöldin.
Ferðamálaráð efnir til samkeppni um:
Slagorð sem minna
á náttúruvemd
Ferðamálaráð Islands mun í vor og
sumar gera átak til að vekja athygli
Islendinga og erlendra ferðamanna á
mikilvægi þess að virða og vemda við-
kvæma náttúru landsins. Vigdís Finn-
bogadóttir verður vemdari baráttunn-
ar.
Átakið byggir á fjórum megin-
þáttum:
1. Að vekja athygli á viðkvæmri nátt-
úru landsins.
2. Að leiðbeina um góða umgengni.
3. Að vara við hvers konar náttúru-
spjöllum.
4. Að tryggja að framfylgt verði lögum
og reglum um umgengnishætti.
Átakið hefst með samkeppni um slag-
orð sem á_ einfaldan og skýran hátt
eiga að minna á megintilgang átaks-
ins. Textinn verður að vera hnitmiðað-
ur og stuttur og auðvelt á að vera að
snúa honum yfir á önnur tungumál.
Samkeppnin stendur til 1. mars og
Ferðamálaráð Islands hefur nú ákveðið að efía baráttuna fyrir bættri um-
gengni um landið. / vor og sumar verður gert átak tíl qð vekja athygli á
mikilvægi þess að virða og vernda viðkvæma náttúru landsins. Verður efnt
tH samkeppni um slagorð sem minna eiga á tílgang átaksins.
DV-mynd E.Ó.
verða fyrstu verðlaun vikudvöl í París
fyrir tvo á hóteli. önnur verðlaun
veröa vikudvöl í Amsterdam og þriðju
ferð til Akureyrar í viku, báöar fyrir
tvo með gistingu á hóteli. Fyrir aðrar
góðar hugmyndir borgar Ferðamála-
ráð 5000 krónur.
Tillögur skal senda undir dulnefni á
skrifstofu Ferðamálaráðs, Laugavegi
3, 101 Reykjavík, merkt „Átak ’84”.
Rétt nöfn eiga að fylgja í lokuðu um-
slagi.
Tillagan sem valin verður mun sjást
víða, á skiltum, veggspjöldum og lím-
miðum ásamt fleiri stöðum.
Ferðamálaráð treystir á að þetta
mikilvæga málefni njóti stuðnings
þjóðarinnar allrar.
„Þjóðin veröur að snúast gegn
skemmdarverkum á eigin landi. Hún
verður aö koma í veg fyrir, að hjól-
barðar risti í sundur gróðurreiti og
grastorfur, hún veröur að hafna því, aö
vegir um hálendið verði varðaðir gler-
og plasthrúgum og aðplastumbúðir og
brúsar bregði annariegum lit á lyng og
móa. Þjóðin verður að afneita þeirri
ómenningu, að vegir og opin svæði séu
raslatunnur og vegaskilti skotmörk,”
segir í ávarpi frá Ferðamálaráði
veena átaksins. -öb
Fyrirliggjandi í birgðastöð
KALDVALSAÐ
Stál SPO 10.03- 12.03
Plötuþykktir frá 0.8 - 2 mm
Plötustærðir 1000 x 2000 mm
og 1250 x 2500 mm
SINDRA
STALHF
Borgartúní 31 sími 27222
Helgi Jóhannsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samvinnuferða-Landsýn-
ar, afhendir vinningshafanum, Gerði Hassing, verðlaunin fyrir nafngiftína.
Samkeppni Samvinnuferða-Landsýnar:
Sæluhús skulu þau heita
Svo sem kunnugt er efndi ferðaskrif-
stofan Samvinnuferðir-Landsýn til
samkeppni um nafn á húsum sem viö-
skiptavinir ferðaskrifstofunnar geta
tekið á leigu í Hollandi — ekki einungis
að sumarlagi heldur líka á veturna.
Mikil þátttaka varð í þessari sam-
keppni og bárust tillögur um þúsundir
nafna.
Fyrir valinu varð nafnið sæluhús.
Um það orð segir í greinargerð dóm-
nefndar:
„I hugum fólks er þetta nafn tengt
ferðalögum og gistingu, auk þess sem
fyrri hlutinn minnir á sælu — sem
vissulega fylgir vel heppnaöri dvöl í
leiguhúsum Samvinnuferða-Landsýn-
ar. Við álítum það tvímælalaust besta
kostinn og leggjum til að húsin verði
nefnd sæluhús.”
Og dómnefndarmenn eru ekki einir
um aö vera á þessari skoöun því að
tugir tillagna bárust um þessa nafn-
gift. Var dregið um hver skyldi hljóta
verðlaunin og kom upp nafn frú Gerðar
Hassing og hlýtur hún þriggja vikna
dvöl í sæluhúsi fyrir sig og fjölskyldu
sína á sumri komanda. Vona forráða-
menn Samvinnuferða-Landsýnar að sú
dvöl verði henni sannkölluð sæluvist.
Samkeppni á meðal
bama og unglinga
— um gerð plakats sem stuðlar
að andófi gegn eiturlyf jum
Samkeppni um gerð plakats undir
kjörorðinu „Andóf gegn eiturlyfjum”
er nú í gangi á meöal barna og ungl-
inga. Skilafrestur í samkeppninni er til
I. mars næstkomandi og á aö senda
hugmyndimar til JC Vík, Armúla 36
Reykjavík, sem stendur fyrir þessari
samkeppni.
Samkeppnin felst í þvi að senda
mynd í þremur litum, en endanleg
stærð myndarinnar verður 50X70
sentimetrar og verður hún að snúa lóö-
rétt.
Verkefnið var kynnt í sjónvarpsþætt-
inum Stundinni okkar síðastliðinn
sunnudag. Þá hefur kynningarbréf
verið sent í skólana á Stór-Reykja-
víkursvæðinu. Besta verke&iið verður
verðlaunað og mun verðlaunaafhend-
ingin fara fram í Stundinni okkar þann
II. mars næstkomandi.
Verðlaunaplakatið verður síðan
prentað og hengt upp víða í borginni,
meðal annars í strætisvögnum SVR,
dagana 26. mars til 16. apríl. Má geta
þess að Strætisvagnar Reykjavíkur
hafa gefiö eftir birtingarkostnaöinn.
Með þessari samkeppni vill JC Vík
koma af stað frekari umræðu á heimil-
um og í skólum sem geta orðið til þess
að sporna við eiturlyf javandanum.
________________________-JGH
Lýsayfirstuðningi
viðaðgerðir
starfsmanna ÍSAL
Framkvæmdastjórn Sambands
byggingamanna lýsir eindregnum
stuðningi við kjarabaráttu starfs-
manna álversins í Straumsvík. Enn-
fremur fordæmir hún ákvörðun ríki-
stjómarinnar að leyfa ISAL að gerast
aðili að samtökum íslenskra atvinnu-
rekenda. Einnig hafa Alþýðusamband
Islánds, Félag járniðnaðarmanna,
Trésmiðafélag Reykjavíkur og Félag
bókargerðarmanna sent verkfalls-
mönnum stuðningsy firlýsingar. -öþ