Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1984, Síða 31
.M»i HAUflfl'=r<T Y HUOAnm.n7H<j vn
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRUAR1984.
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Útsalaá
auglýsingum
Það vakti heilmikla
athygli þegar auglýsingaverð
á rás 2 var lœkkað um heU
20—45% í síöustu viku. Það er
nefnUega ekkl á hver jum degi
sem haldln er eins konar út-
sala á auglýsingum hjá fjöl-
miðlunum.
Hins vegar er þetta ofur
skiljanlegt þeim sem hlust-
uðu á rásina síðastliðinn
föstudag. Þá glumdu þar
auglýsingar í sibylju þar
sem auglýstur var afsláttur á
augiýsingaveröi stöðvarinn-
ar. Og því miður voru þetta
nær einu auglýsingarnar i
dagskránnl þann daginn.
i eldri
kantinum
Framsóknarmenn l
Reykjavík héldu sitt þorra-
Jénasi fannst æskublómi Fram-
sóknar fullgamaU.
blót í síðustu viku. Jónas Guð-
mundsson, stýrimaður og rit-
höfundur með melru, var
fenginn tll að halda ræðu á
samkundunni. Var honum
sagt að þarna yrði saman-
kominn æskublómi f ramsókn-
armanna og skyldi hann haga
undirbúningi sinum með tll-
lltitilþess.
„En mér brá nú svolítið
þegar ég var kominn upp í
púlt og lelt yfir salinn,” sagði
Jónas eftir blótið. „Þarna
virtust nefnllega vera saman-
komnlr nákomnir ættlngjar
og nánlr vinir þorrans í
Reykjavík.”
Útrúlegt en...
Þessa dagana standa
þorrablótin sem hæst með til-
heyrandi krásum i föstu og
fljótandi forml. Því er ekki úr
vegi að rif ja upp eftirfarandi
sögu sem sögð er hafa gerst
einhvers staðar fyrir norðan,
og að sjálfsögðu á þorrablóti.
Samkomuhúsið var troð-
fullt af prúðbúnu fólki. Og
stóra stundin rann upp, for-
maður skemmtlnefndar steig
fram á sviðið, hátíðlegur á
svip. Hann ræsktl sig ofurlítið
og hóf svo ræðu sina á þessum
spakleguorðum:
„Góðir gestir, í dag er
Þær eru margvislegar kráslrnar
sem boftift cr upp á þegar þorri er
blitaftur.
fyrsti dagur þorra um land
allt.”
•
Is og
eldur
Halldór Ásgrimsson
Halldór hélt fund í Keflavik.
sjávarútvegsráðherra hélt á
dögunum fund með áhuga-
mönnum um sjávarútvegs-
mál í Keflavik. Þar voru
málin rædd af miklu kappi
enda af mÖrgu að taka. Meðal
annars var borln upp eftirfar-
anditillaga:
„Fundur haldlnn i Kefla-
vik að tilhlutan sjávarút-
vegsráðherra, Haiidórs .As-
grimssonar, þann 19. janúar
1984, skorar á sjávarútvegs-
ráðherra að beita sér fyrir
hraðvirkri athugun á mögu-
leikum tU þróunar stórvirkr-
ar frystingar á loðnu og
sjávarafla með nýtingu jarð-
varma á Reykjanesi.”
Þessi tUlaga hlaut ekki af-
greiðsiu á fundinum enda
virðlst ekkert áhlaupaverk að
frysta loðnu með jarðvarma,
svona við fyrstu sýn í öUu
falli.
Bjartsýni
Hundrað maurar voru á
bakinu á heljarstórum fU.
Svo aUt i einu hristi fUlinn sig
og niutiu og niu maurar ultu
af honum og niður á jörð. Þelr
létu sér ekki bregða en hróp-
uðu hver í kapp við annan:
"Kyrkt’ann, PaUi, kyrkt’-
nnn 99
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndahátíð—Áhættuþóknun:
MED DAUDANN Á HÆLUNUM
Áhœttuþóknun (Le Prix du danger)
Frakkland, 1982.
Handrit: Yves Boisset og Jean Curtelin, eftir
skáldsögu Robert Scheckley.
Leikstjóri: Yves Boisset.
Aðalhlutverk: Górard Lanvin, Michel Piccoli,
Marie-France Pisier, Andróa Ferréol, Bruno
Cremer.
Fyrsta skot þessarar myndar,
spegilmynd af manni á sléttu vatni
sem síöan gárast, hefur nokkuð
tvíræða merkingu þegar upp er
staðið. 1 fyrsta lagi vill leikstjórinn
sýna okkur að maöurinn er ekki
lengur maður heldur aöeins
spegilmynd af manni í nálægri
framtíð hins mikla sjónvarps. I öðru
lagi, en það var nú kannski ekki
ætlunin, sýnir þetta skot okkur að
leikstjóranum mun ekki takast að
gera persónur sínar áþreifanlegar.
Þær eru ekki af holdi og blóði eins og
persónur í góðum bíómyndum eiga
aövera.
CTV sjónvarpsstöðin er orðin af-
skaplega vinsæl um alla Evrópu,
einkum þó nýi þátturinn, Ahættu-
þóknun. Hann felst í því að fimm sér-
staklega valdir menn eru látnir elta
einn um alla borgina. Lokatakmark
fimmmenninganna er að drepa
Hetjan í Áhættuþóknun á hér í höggi við götustráka sem vilja vama honum
vegar.
þennan eina og takist þeim það fá
þeir vegleg verðlaun. Sá hundelti á
hins vegar að reyna að sleppa og fær
að launum eina milljón dala sleppi
hann lifandi. öllu þessu er síöan
sjónvarpaö beint til blóðþyrstra á-
horfenda.
Það er yfirlýst stefna leikstjórans
að hann vilji gera myndir sem fái á-
horfendur til að velta fyrir sér ýms-
um þjóðfélagslegum vandamálum.
Hér vill hann benda okkur á þær
hættur sem gætu stafaö af ýmsum
frjálsum sjónvarpsstöðvum ef viö
gætum okkar ekki, hvemig þær geta
orðið forheimskandi.
Að sönnu er allt yfirmáta
heimskulegt við CTV þar sem allir
tala í innantómum slagorðum og þar
sem tilgangurinn helgar meðalið. Og
tilgangurinn er náttúrlega sá aö hala
inn sem mesta peninga á óförum
annarra. En eini maðurinn sem á að
vera skynsamur, fellur líka í þá
gryfju. Hann er engu betri en þær
vélrænu leikbrúður sem hann er að
fást við. Og þar viö fellur myndin.
Ahættuþóknun er afskaplega hröð
mynd og aðdáendur hasarmynda
ættu því að fá eitthvað fyrir sinn
snúö. Ekki spillir það heldur að
leikendur standa sig flestir með af-
brigðum vel enda þama saman-
komnir nokkrir af bestu leikurum
Frakka, gamla kempan Michel
Piccoli og nýstirnið Gérard Lanvin.
Guðlaugur Bergmundsson.
Kvikmyndahátíð: — El Crack:
SPÆNSKUR MARLOWEIHAM
Heiti: El Crack.
Leikstjóri: José-Luis Garci.
Jose-Luis Garci er einn af þremur
leikstjórum á kvikmyndahátíðinni
sem fá sérstaka kynningu. Fjórar
myndir hans eru sýndar meðan á há-
tíðinni stendur. Garci er fertugur og
starfaði sem gagnrýnandi áður en
hann hóf kvikmyndgerö. Frá upphafi
ferils síns hefur hann verið einlægur
aðdáandi bandarískrar kvikmynda-
geröar og kemur það vel í ljós í E1
Crack, sem er leynilögreglumynd í
anda gömlu línunnar sem m.a.
Dashiell Hammett og Raymond
Chandler sköpuðu í bókum sínum.
Germán Areta er einkalögreglu-
maöur sem í byrjun myndarinnar er
fengiö það verkefni að hafa uppi á
dóttur verslunareiganda nokkurs
sem hafði horfið fyrir þremur árum.
Fljótlega kemur í ljós að faðirinn
hefur aigan veginn hreinan skjöld í
þessu máli og hafði á sínum tíma
neytt dóttur sína til fóstureyöingar.
En með því að grafa upp hvar stúlk-
an'er niður komin virðist Areta koma
við kaunin á háttsettum mönnun því
hvað eftir annað er reynt að fá hann
tilaðhætta viö rannsókn málsins, en
Areta er þrjóskur og verður enn
ákveðnari að komast til botns í
málinu við hverja hótun.
En glæpamennimir beita hörku
og verða að bana dóttur vinkonu
Areta sem honum hafði þótt sér-
staklega vænt upp. Færist nú leik-
urinn frá Madrid, þar sem atburða-
rásin hafði farið fram, og til New
York þar sem uppgjör Areta við
glæpamennina verður og á það vel
við þann anda sem svífur yfir mynd-
E1 Crack er ágæt sakamálamynd
af gamla skólanum þar sem aðal-
hetjan, einkaleynilögreglumaðurinn
er kaldur og töff, brosir aldrei og
passar sig að sýna aldrei tilfinning-
ar.
Otrúleg nákvæmni við smáatriöin
gera myndina að vísu of langa og
verður atburðarásin öll hin rólegasta
og kemur það nokkuð niður á
spennunni í myndinni. En þegar
deyfðin virðist yfirkeyra myndina
verður alltaf eitthvaö til aö halda at-
hygli áhorfandans vakandi. E1 Crack
er sjálfsagt ekki meðal athyglisverð-
ustu mynda Jose-Luis en hún er
góöra gjalda verð og óöur leikstjór-
ans til bandarískra sakamálamynda
á fimmta áratugnum.
Hilmar Karlsson.
CAR RENTAL SERVICE - ® 75
FAST VERÐ - EKKERT KÍLÓMETRAGJALD
SÖLUSKATTUR INNIFALINN Í VERÐI
yXrjXS
EBEI
MITSUBISHI
COLT
MITSUBISHI
CALANT
MITSUBISHI
CALANT STATION
Leitið upplýsinga.
bn.JÖ.I)EWV
SMIÐJUVECI 44 D - KÓPAVOCI - ICELAND
AÐALSÍMI: 75 400 & 78 660
KVÖLD OG HELCARSIMI: 43 631 & 46 211
TELEX 2271 IÐN IS
DEYFAR
I EFTIRTALDA JEPPA:
Einnig
stýrisdemparar
BRONCO
SCOUT II
BLAZER
JEEP
OG FLEIRI
PÓSTSENDUM
rr haberghf.
SkeiCunni Sa — Sínií 8»47*88
Hefurþú
tekið skemmtilega
mynd í vetur?
Væri þá ekki ráö aö senda hana í ljósmyndakeppni Vikunnar sem
fer fram um þessar mundir. Myndin þarf að vera vetrarmynd,
þaö er eina skilyröiö sem sett er. Fólk, landslag, börn, nánast
hvað sem er kemur til greina.
Verölaunin eru mjög spennandi: Polaroid autoprosessor 35 og
slides filmur frá Polaroid sem má framkalla á 60 sekúndum.
Þetta er heimsnýjung sem er að koma á markaðinn um þessar
mundir. Filmurnar eru til hvort heldur svart/hvítar eða í lit. Auk
þess verða veitt 50 aukaverðlaun, sem eru ókeypis framköllun og
kópering á litfilmum frá
Taktu þátt! Það er aldrei að vita hversu langt einmitt þín mynd
nær. Skilafrestur er til 1. mars.
Ljósmyndasamkeppni Vikunnar
Pósthólf 533
121 Reykjavík
Kvikmyndir
Kvikmyndir