Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1984, Side 32
32
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRUAR1984.
Andlát
Guðvaröur Vilmundarson skipstjóri,
Stórageröi 21 Rvík andaðist 31. janúar
í Borgarspítalanum. Hann fæddist 29.
3. 1912 á Löndum í Staöarhverfi í
Grindavík. Foreldrar hans voru hjónin
Vilmundur Ámason og Guörún Jóns-
dóttir. Hann byrjaöi sjómennsku strax
um fermingaraldur og var lengst af á
togurum eöa yfir 50 ár en síöustu árin
starfaöi hann hjá Utgerðarfélagi Skag-
firðinga á Sauöárkróki. Eftirlifandi
eiginkona hans er Olafía Gyöa Odds-
dóttir og böm þeirra eru fjögur. Utför
hans fer fram frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 10. febrúar kl. 3 e.h.
Hörður Stefánsson veröur jarösunginn
frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriöju-
daginn 7. febrúar kl. 15.
Sigrún Gisladóttir, fyrrverandi tónlist-
arfulitrúi Ríkisútvarpsins, SólvaUa-
götu 33, veröur jarösungin frá Dóm-
kirkjunni fimmtudaginn 9. febrúar kl.
13.30.
Stelnunn Guðrún Guðmundsdóttir,
Básenda 7, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni miövikudaginn 8. febrúar kl.
13.30.
Á VECUM
OC VECLEYSUM
Við leigjum hina frábæru
PORTARO 4 hjóladrifs-jeppa
á verði sem enginn getur
keppt við.
Smlðjuveoi «4 0 Kópavogl
Simar 75400 og 78660
RITUN
U<DS
RITUN
SAMRÖÐUN
HEFTING
BROT
SKURÐUR
LÍMING
FRÁGANGUR
-STENSILL
NÓATÚN117 SÍMI 24250
Brynjólfur Helgi Þorsteinsson lést 30.
janúar sl. Hann fæddist 22. mars árið
1900 í Garöhúsum í Höfnum. Foreldrar
hans vom Þorsteinn Arnason og
Gíslina Gísladóttir. Lengst af starfaði
Brynjólfur í Vélsmiðjunni Hamri.
Hann var kvæntur Olafíu Arnadóttur
en hún lést í september sl. Utför
Brynjólfs verður gerö frá Fossvogs-
kirkjuídagkl. 13.30.
Bryndís Elíasdóttir lést 27. janúar si.
Hún var fædd á Bíldudal 2. mai 1947,
dóttir hjónanna Elíasar Jónssonar og
Kristrúnar Kristófersdóttur. Bryndís
lauk námi frá Samvinnuskólanum
1965. Hún vann svo viö skrifstofustörf,
fyrst á Bíldudal og siöar í Reykjavík.
Biyndís eignaöist einn son. Utför
hennar veröur gerö f rá Fossvogskirkju
ídagkl. 15.
Ole Nordman Olsen forstjóri lést 28.
janúar sl. Hann fæddist á Isafirði 13.
nóvember 1935, sonur Símonar A.
Olsen og Magnúsínu Richter Olsen.
Áriö 1959 stofnaði Ole rækjuverk-
smiðju á Isafiröi sem hann rak til
dauðadags. Utfór hans veröur gerö frá
Isaf jaröarkirkju í dag kl. 14.
Stelnunn Svelnbjarnardóttir andaðist í
Landspítalanum 5. febrúar.
Steingrímur Elnarsson sjómaöur frá
Lágholti, Framnesvegi 59 Reykjavík,
er látinn.
Haildór Gunnarsson skipstjóri,
Austurvegi 13 Isafiröi, lést í Reykjavík
5. þ.m.
Ásmundur Árnason verslunarmaöur,
Brekkutanga 34 Mosfellssveit, lést í
Borgarsjúkrahúsinu 3. febrúar.
Olafur Þorsteinsson, fyrrverandi vél-
stjóri, verður jarösunginn frá Foss-
vogskapellu miövikudaginn 8. febrúar
kl. 10.30.
í gærkvöldi____________í gærkvöldi
Bangí dag, bangígær
ogbangí fyrragær
Drúsar skjóta á stjómarherinn í
Beirút..., bang, bang, í eina til þrjár
minútur. Viö sjáum eina bununa enn
skjálfandi upptöku frá hendi líf-
hrædds kvikmyndatökumanns á
hlaupum um götur Beirút. Upptakan
segir ekkert fremur en upptakan frá
í gær og fyrragær og þarfyrragær.
Eg missi ekki móöinn og kveiki enn á
fréttum. Stjómarherinn skýtur á
Falankista. . . bang, bang, bang, i
eina til þrjár mínútur. Enn sést ekk-
ert annað en háifhrunin peria
austursins, skothvellir kveða viö og
sumsstaðar sjást reykjarstrókar.
Og enn kveiki ég: Wazzan forsætis-
ráðherra hrekst frá völdum viö hefö-
bundnar undirtektir. . . bang, bang,
bang í eina til þr jár minútur.
Þessi ítarlegi fréttaflutningur af
átökunum í Beirút veröur mér til-
efni til samantektar á þróun mála
þar og ástandinu nú. Niöurstaöan
eftir samanlagt svo sem tveggja
klukkustunda skothríð í fréttatíma
sjónvarps frá því í haust verður aö
sjálfsögöu skýr: Múhameöstrúar-
menn skjóta á stjómarherinn, sem
skýtur á kristna menn, sem svara
meö skothríö á múhameðstrúar-
menn. Franskar og bandariskar
friöargæslusveitir setjast aö og
skjóta ekki á neinn. Þá eru þær
sprengdar í loft upp og í hefndar-
skyni skjóta nýir friöarliðar á
múhameðstrúarmenn og kristna
menn til vara, sem svara með árás á
stjómarherinn og hann svarar í
sömu mynt, skýtur á kristna menn
og múhameöstrúar. Staðan sem sagt
óbreytt eöa öllu heldur þaö veit eng-
inn hver hún er og hefur ekki vitað í
margamánuöi.
Því vil ég gera aö hógværri tillögu
minni aö þessi þráskák veröi aö
mestu flutt úr fréttatímanum yfir í
kastljós á svo sem tveggja mánaöa
fresti, nema aö raunveruleg tíðindi
veröi á svæðinu.
Islensk heimili búa við fremur
krappan efnahag þessa dagana.
Skammdegið liggur þungt á fólki og
ófæröin er að verða þrúgandi. Vill
fréttastofan vera svo væn að vægja
þessum heimilum við ógnarástand-
inu suöur í Líbanon, sem við fáum
ekkert við ráðiö. -Gissur Sigurðsson.
Tilkynningar
Söngtónleikar
í Norræna húsinu
Nk. miðvikudagskvöld, 8. febrúar, mun
Sigríður Gröndal sópran halda söngtónleika í
Norræna húsinu og hefjast þeir kl. 20.30.
Jónas Ingimundarson leikur með á pianó.
Tónleikar þessir eru síðari hluti
cinsöngvaraprófs úr söngdeild Tónlistar-
skólans í Reykjavík. Á efnisskránni eru lög
eftir Schubert, Hugo Wolf og Thea Musgrave
og auk þess íslensk lög og aríur úr Fidelio
eftir Beethoven og Don Pasquale eftir Doni-
zetti. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill
meðan húsrúm leyfir.
Aðalfundur kvenfélags
Karlakórs Reykjavíkur
verður haldinn aö Freyjugötu 14, þriðju-
daginn 7. febrúar kl. 20.30.
Stjórnin.
Stuðningsyfirlýsing
Stjóm Féiags bókagerðarmanna fjallaði um
þá vinnudeilu sem á sér staö í álverinu í
Straumsvík á fundi sínum 31. janúar 1984.
Stjómin lýsir yfir fullum stuðningi við
starfsfólk álversins í kjaradeilunni og hvetur
annaö verkafólk aö styöja starfsfólk álvers-
ins.
Þá fordæmir stjórn FBM þær ósanngjömu
árásir sem fram hafa komiö á starfcfólk
álversins í þessari vinnudeilu.
Aðalfundur félags
löggiltra endurskoðenda
var nýlega haldinn að Hótel Sögu.
I tengslum við aðalfundinn var haldinn
ráðstefna þar sem fjallað var um reiknings-
skila- og endurskoðunarmál. Má þar nefna
erindi um meöferð gengismunar, leigukaup-
samninga og kynningu á endurskoðunarhand-
bók.
Félagið hefur á undanfdrnum árum staðiö
fyrir útgáfu ýmissa handbóka, m.a. um
skattamál, reikningsskil og endurskoðun.
Að gefnu tilefni vUl félagið undirstrika aö
starfsheitiö endurskoðandi er lögverndað.
Mikil misnotkun er á notkun þessa starfsheit-
is og notað af mörgum án verðleika.
Á fundinum var kjörin ný stjórn félagsins
og er hún skipuð eftirtöldum aðUum:
Þorvaldur K. Þorsteinsson formaður, Ema B.
HaUdórsdóttir varaformaöur, Olafur V.
Sigurbergsson ritari, Guðmundur Jóelsson
gjaldkeri og Þorsteinn Haraldsson meðstjórn-
andi.
Skíðakennsla á Miklatúni
kl. 20—22 í kvöld. Sá sem fékk ranga skíða-
stafi á þriðjudagskvöldið sl. er beðinn að
mæta og taka rétta stafi.
Skrifstofa Al-Anon
aðstandenda alcoholista, Traðarkotssundi 6.
Opin kl. 10—12 aUa laugardaga, fundir alla
daga vikunnar.
Tapað -fundið
Úr fannst í Vogahverfi
Fundist hefur karlmannsúr í Vogahverfi.
Upplýsingar í síma 30224.
Svartur högni týndur
Svartur högni, hvítur á trýni, bringu og f ótum
með svarta höku og svartan blett á höfði,
hefur tapast frá Smiöjustíg. Hann var með
rautt hálsband. Ef einhver verður var við
hann eða veit um öríög hans hafi hann vin-
samlegast samband við Kattavinafélagið,
sími 14594.
Tregðaíáldeilu
Tregöa er í samningaviöræðum
vegna kjaradeilunnar í álverinu. Ekki
hefur tekist að leysa ágreining um bón-
us. Fundi lauk klukkan 20 i gærkvöldi.
Sáttasemjari hefur boðað nýjan fund á
morgun, miövikudag. -KMU
Áframgóð
loðnuveiði
Mjög góð loðnuveiði er enn við suður-
strönd landsins og frá miðnætti höföu
aflast 11.700 tonn, samkvæmt upplýs-
ingum hjá Loönunefnd. Loðnan veiðist
nú meðfram allri suðurströndinni og er
loðnu landað allt frá Seyðisfirði til
Reykjavíkur.
Veður á loönumiöunum er sæmilegt;
vindur stendur af landi úr norövestri
allhvass, þetta sjö til niu vindstig. Hiti
er um frostmark. Búist er við að það
lægi þegar líða fer á daginn og hæg-
viðri haldist fram til fyrramáls er fer'
að hvessa aftur úr norðvestri.
Heildaraflinn á loönuvertiðinni til
þessa er um sjötíu þúsund tonn.
-SþS
Gosiðlækkar
— á kostnað annarra
drykkjarvara
Samkomulag hefur orðið í viðræöum
fulltrúa fjármáiaráðuneytisins og Fé-
lags islenskra iðnrekenda, sem DV
hefur sagt frá í fréttum, um breytingar
á reglum um gjöld á drykkjarvörum.
Iðnrekendur höfðu farið fram á
viðræðumar vegna þess að mjög hafði
dregið úr sölu gosdrykkja að undan-
fömu og var ofsköttun kennt um. Tvö-
falt vörug jald hefur verið á gosdrykkj-
um f ram að þessu, samtals 41 %, svo og
23,5% söluskattur. Iðnrekendur fóm
fram á niðurfellingu vörugjaldanna en
það hefði lækkað útsöluverð gös-
drykkjarflösku um 30%.
Fjármálaráðuneytið hefur nú fallist
á að fella niður hluta vömgjaldanna og
færa þau yfir á aðrar drykkjarvörur
s.s. ávaxtasafa, kókómjólk og te.
Hækka þessar vörar þvi í verði en kaff-
ið stendur í stað. -EIR •
Björn Hólmgeirsson, umboðsmað-
ur Flugleiða á Húsavík, formaður
starfshóps um ferðamál.
DV-mynd Ingibjörg Magnúsdóttir.
Ferðamálafélag
Húsavíkur:
Stofnfundur
íkvöld
A atvinnumálaráðstefnu á Húsavík
í haust var meöal annars myndaður
starfshópur um ferðamál. Hann hefur
haldið nokkra fundi og í kvöld, þriðju-'
dagskvöld, verður haldinn stofn-
fundur Ferðamálafélags Húsavíkur
og nágrennis í Félagsheimili Húsa-
vikur kl. 20.30.
Birgir Þorgilsson, markaðsstjóri
Ferðamálaráðs, kemur á fundinn.
Formaður starfshópsins er Björn
Hólmgeirsson, umboösmaður Flug-
leiða á Húsavík. Aðspurður um til-
gang félagsins sagði Björn: „Þetta
era samtök hagsmunaaðila og ann-
arra áhugamanna um feröamál.
Markmið þessara samtaka er bætt
þjónusta við ferðamenn og að gera
Húsavík aö eftirsóttum áningarstað í
fögru héraði.”
Inglbjörg Magnúsdóttir
Húsavik.
Bella
Ef Hjálmar kæmi nú allt í einu og
fyndi þig hér, ættir þú að gleypa
þessa eiturpillu á stundinni.