Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1984, Blaðsíða 34
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRUAR1984.
34
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
Prjónaskapur
og spíttbátar
Febrúar er nú kominn á gott skriö og í því tilefni býður Dægradvölin landsmönnum öllum nær og
fjær góöan daginn með orðunum „komiði sælir, félagar og vinir góðir.”
Að þessu sinni fjöllum viö um prjónaskap og spittbátasportið, nokkuð sem fólk á auðvelt með að
stytta sér stundir við þó ólík dægradvöl sé.
Fyrst dembum við okkur upp í Breiðholt og ræðum við fyrrum bóndann, Karl Eiríksson. Hann er
73 ára að aldri og hefur prjónað þúsundir peysa í gegnum tíðina. Einstaklega viðkunnanlegur
maöur, Karl.
Við förum úr peysunum til hans Gunnars Gunnarssonar, sem rekur Auglýsingastofu Gunnars.
Hann á hraðskreiðasta bát landsins. Signý heitir fleyið og kemst upp í um 130 kilómetra hraða.
Við ljúkum þessu svo með því að láta punktinn okkar prjóna á öldunni með tilheyrandi tilþrifum.
Já, hann gerir það ekki endasleppt, punkturinn sá.
Texti: ión G. Hauksson Myndir: Gunnar V. Andrésson
Rússneska skólaskipið sem kom til landsins síðasta sumar og tók á móti
„kollega" sinum, Signýju, með vinsemd. Gunnr þeysti i kringum „það
rússneska"með slikum látum að ölláhöfn skipsins varfarinað góna.
Skemmtileg mynd af Gunnari. Hún er tekin á dögum ,,sjórallanna". En
Gunnar tók þátt i báðum röllunum.
Signý tvö, annar bátur Gunnars. Myndin er tekin árið 1979 og Gunnar er að Ieggja ihann.
Draumurinn að
sjá þriggja
stafa tölu
— rætt við Gunnar Gunnarsson auglýsingateiknara
sem á hraðskreiðasta bát landsins
„Draumurinn er að sjá þriggja stafa
tölu í sumar og brjóta þar meö 100
mílna múrinn,” sagði Gunnar
Gunnarsson auglýsingateiknari, er
Dægradvölin rabbaði við hann um
hraðbátinn hans, Signýju.
Það er enginn smá spíttbátur. Hann
er sá hraðskreiðasti hérlendis. Nær um
70 mílna hraða, sem gerir um 130 kíló-
metra hraða á klukkustund. Til þess aö
unnt sé að ná þessum hraða verður að
vera gott í s jóinn. Spegilsléttur s jór.
Gunnar Gunnarsson, 38 ára
auglýsingateiknari. Hann rekur
Auglýsingastofu Gunnars.
DM-myndir GVA
Og Gunnar er nokkuð viss um að
hann nái þessu markmiði sínu. „A
næstunni ætla ég að setja í hann sér-„
stakt „racing-drif” af gerðinni Stem-
power, sem þolir vélina mun betur en
þaðdrif semnúeríbátnum.
Og ef mér tekst aö ná þessum hraða í
sumar er meiningin að fara til útlanda
íkeppni.”
— Hvenær byrjaöi áhuginn á spítt-
bátasportinu?
„Ahuginn hefur verið fyrir hendi frá
því ég var unglingur. En ég fór ekki í
gang meö þetta fyrr en í sjórallinu sem
var haldið sumarið 1978. Eg tók þátt í
þeirri keppni á íslenskum báti, 22 feta.
Þetta var ágætisbátur, yfit-byggöur.
Um haustið seldi ég hann síðan og
keypti mér þá 21 fets spíttara. Það var
svokallaður „fletchfer”. Tiltölulega
verklegur bátur og á honum fór ég í
seinna sjórallið sumarið eftir. Eg átti
hann síöan um veturinn en um vorið
seldiéghann.”
Eftir þetta varð smáhlé á sjó-
sportinu hjá Gunnari. Og það var ekki
fyrr en hann frétti af báti í Noregi
Allt á útopnu á sundunum bláu.
Báturinn nær um 130 kilómetra
hraða á klukkustund i sléttum sjó.