Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1984, Side 37
eWl HAFIRO'í'Sr V HIT£f niMdrí ,
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRUAR1964.
yn
37
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Ferðamidstöðin var með samkvœmi í Þórscafé á sunnudagskvöldið sem leið. Þar
voru ýmis skemmtiatriði sem Þórscafé sér um en auk þess stjórnaði Guðlaugur T.
Karlsson bingói og sgndi kvikmgndir frá Benidorm. Á þessutn mgndum sjást Can-
Can dansstúlkur teggja fœturna og eins sést Guðlaugur T. Karlsson afhenda verð-
launaferð til Benidorm tilþess heppna í bingóinu. (Ljósmgndir E.J.)
Skapti Ólafsson, með „allt a fíoti alls staðar" og annað lag til, lyfti stemmningunni svo um munaði.
„Hann er meira að segja miklu betri núna en hann var, "mátti heyra áhorfendur segja.
Fundur er sett-
ur í Bflgreina-
sambandinu!
„Og jörðin snýst og snýst og snýst og snýst. . ." söng Sigurður Ólafsson
og hún hefur svo sannarlega snúist þvi hún Þuriður litla dóttir hans er nú
orðin fyrrverandi söngkona.
„ÞAÐ ER ALLT A
FLOTIALLS STAÐAR”
—og undir ték á öllum börunum í Broadway
Þegar rokkhátíðin byrjaði í Broad-
way vissu gestir nokkum veginn hvað
var í vændum og sömu sögu má segja
um bítlaæðið. En þegar „Manstu
lagið” dagskráin byrjaði þar fyrir
skömmu vissu fæstir hvað í vændum
var og það var ef til vill þess vegna
sem stemmningin náðist ekki strax
upp. Gestum var svolítið kastað til í
tíma og rúmi t.d. með því að byrja á
nýlegum lögum í þjóðlagastil. Þar
voru á ferð Gunnar Þórðarson og
hljómsveit hans, Utlagamir. Hljóm-
sveit Gunnars lék annars undir allt
kvöldið og þaö svo svakalega vel að
maður þekkti sum gömlu lögin ekki
fyrir þau sömu, enda vanur göróttum
undirleik í þeim sumum.
Hægt og rólega óx stemmningin með
hver jum nýjum söngvaranum frá fyrri
tíð svo sem Harald G. Haralds, Ragga
Bjarna, Sigurði Olafssyni og síðast en
ekki síst Skapta Olafssyni. Jónas
Jónasson RUVAK-maður fór á kostum
loksins þegar draumar haps um popp-
frama rættust á þessu kvöldi. Hann
var þama heiðursgestur og reyndist
betri en enginn.
Þótt kynninum mistækist að halda
einhverjum þræði eða samhengi í sýn-
ingunni hélt hún áfram að verða
skemmtilegri, maður tók bara atriöi
fyrir atriði og hugsaði ekki um þráö.
Omar Ragnarsson, sem staðið hefur
allar kempur kvöldsins af sér í sviðs-
ljósinu, setti svo punktinn aftan við
með „Sveitaballi” sínu og spilaði þar
út öllum trompum sinum.
Ekki verður svo skilist við ánægju-
legt kvöld án þess að minnast á
matinn. Maður er yfirleitt kvíðinn yfir
að maturinn sé ekki góður þegar
maður er aðeins einn á meðal nokkur
hundmð gesta og matur er öllum
borinn á stuttum tíma. Einhvem
veginn hafa þeir Broadway-bændur
náð laginu á þessu svo maður naut
matarins eins og maður hefði pantað
hann sjálfur á litlum veitingastaö.
-GS
Ómar Ragnarsson á „skæslegu sveitaballi" við svo mikil tilþrifað kjólfatn-
aður hans var að mestu fokinn út i veður og vind.
DV-myndir EÓ