Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Blaðsíða 6
6 DV. FIMMTUDAGUR 8. MARS1984. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Með tilkomu frjálsrar álagningar eykst þörfin á því að neytendur fylgist með verðlaginu. Það á ekki sist við um strjálbýlið þar sem viða er ekki nægileg samkeppni milli verslana. Vöruverð íBúðardal: Þörf á öflugra verðlagseftirliti — úti á landsbyggðinni Fyrsta mars sl. gengu í gildi nýjar reglur um álagningu, bæði í smásölu og heildsölu. Segja má að allflestar vörutegundir sem seldar eru í mat- vöruverslunum séu nú með frjálsri álagningu. Þetta þýðir í raun aö nú er ekkert sem heitir hæsta leyfilegt verö eða lágmarksverð. Flestir spá því aö með því að gefa álagningu frjálsa komi verðið til með að lækka. En til þess að það geti oröið þarf yfirleitt aö vera einhver samkeppni fyrir hendi á viðkomandi stað. Á höfuöborgar- svæðinu og stærri bæjarfélögum úti á landi er oftast um samkeppni að ræða á milli verslana. En víða úti á lands- byggðinni, í strjálbýlinu, er þessi sam- keppni yfirleitt ekki til staðar. Þaö er því mikilvægt að fylgst veröi með verðlagi þar sem ekki er nægilegt aðhald gegnum samkeppmna. Það er reyndar ekki alltaf sanngjarnt að bera saman verðlag úti á landi og í borginni. Flutningskostnaöur leggst á vöruverð í strjálbýlinu sem ekki er fyrir hendi í höfuðborginni. En hvaö um þaö, þegar frjáls verölagning er veröa allir að hafa aðhald. Þetta aðhald fæst fyrst og fremst frá sjálfum neytendum og ræðst vöruverðið af því hversu vakandiþeireru. Búðardalur Nýlega fengum við allítarlegt bréf frá Búöardal. Konný Pálmadóttir sem búsett er í Búöardal sendi okkur yfirlit yfir samanburð á verði í einu matvöru-. verslun staðarins og verðlagi sem birst hefur í verðkönnunum á neytenda- síðunni. Einnig gerði Konný saman- burð á verðlagi í Búðardal og Akureyri. Hún hefur um nokkurn tíma gert verökannanir í Kaupfélagi Hvammsfjaröar í Búöardal og borið niðurstöður sínar saman við aðrar verðkannanir sem hafa birst á neyt- endasíöunni. Þetta er að sjálfsögðu mjög til fyrirmyndar og væri ráð aö fleiri úti á iandsbyggöinni tækju upp þessa aðferð. Slíkt hefur reyndar verið gert á nokkrum stöðum á landinu en þá oftast I tengslum við neytendafélög sem starfa þar. I Búðardal er ekkert slíkt félag sem er einnig raunin víöa annars staðar. Gagnsemi slíkra kannana er mikil. Ef í ijós kemur að verðlag á viðkomandi stað er óeölilega hátt miðað við það sem verðkannanir frá höfuöborgarsvæðinu sýna er nauðsynlegt aö kotna því á framfæri við kaupmanninn og komast að því hvers vegna verðið er svo hátt. Ef í ljós kemur aö hér er um að ræða okur- verslun og kaupmaöurinn lætur sér það í léttu rúmi liggja þó svo aö veröiö sé hærra hjá honum en annarsstaðar því hann veit sem er að viöskipta- vinimir hafa ekki í neina aðra verslun aö venda vegna þess að hans er sú eina á þessum stað. I slíkum tilfellum er hægt að ígrunda aðrar baráttuleiöir s.s. að birta niðurstööur sínar í dag- blöðum þar sem sýnt er svart á hvítu hvert verölagiö er miöað við t.d. höfuöborgarsvæðið. Að þessu sögðu er vert að taka fram að spjótunum er ekki beint að Búöardal, heldur á þetta við það sem almennt er hætt viö að gerist úti á landi þegar um frjálsa álagningu er aö ræða og neytendur eru eina virka aðhaldiö. Verðið í Búðardal Lítum nú nánar á niðurstöður þeirra kannana sem gerðar vom í einu mat- og nýlenduvörurverslun staðarins sem er eins og fyrr segir Kaupfélag Hvammsfjarðar. Þorramatur I þorrabyrjun gerðum við hér á neyt- endasíðunni verðkönnun á þorra- matnum. Með því að reikna út saman- lagt verð 7 tegunda sem fengust á öllum stöðum og bera meðalverö þriggja verslana í Reykjavík saman við verð þessara tegunda í Búðardal kemur í ljós að þar er verðið 19,87% hærra en meðalverðið í verslunum borgarinnar. En ef tekið er samanlagt verð þessara 7 tegunda þar sem þaö var ódýrast í höfuöborginni kemur í ljós að það munar 36% á lægsta veröinu í Reykjavík og á verðinu í Búðardal. Verð á þvottaefni Þá var einnig gerður samanburður á verðkönnun sem gerð var hér á síðunni fyrir skömmu á þvottaefnum fyrir þvottavélar. Miðaö við samanlagt meðalverð á þeim efnum sem fengust bæöi í Reykjavík og Búðardal var verðið 12% hærra í Búðardal. Búðardalur og Akureyri 1 byrjun þessa árs var framkvæmd allvíðtæk verðkönnun á Akureyri. Þessi könnun var gerð af Neytenda- félagi Akureyrar og nágrennis. Gildi slíkra kannanna eykst mjög þegar önnur neytendafélög eða áhugamenn um neytendamál getá nýtt sér þær til samanburðar á verðlagi verslana í heimabyggð þeirra. Þetta er einmitt það sem gert var í Búöardal. Af 31 tegund sem var með í könnuninni á Akureyri fengust 27 tegundir í Búöar- dal. Þaö er skemmst frá þvi að segja að 20 af þessum 27 tegundum skipuðu dýrustu sætin þegar borið var saman við noröanmenn. Og síðan 7 sem skipuöu fjögur ódýrustu sætin. Odýrustu vörurnar voru frá Búöardal í tveimur tilfellum. Það voru eggin sem framleidd eru á staðnum og líka þaö sem kom reyndar nokkuð á óvart, Bragakaffi frá Kaffibrennslu Akureyr- ar var ódýrast á Búðardal. Við nánari athugun kom í ljós að Bragakaffiö hafði pökkunarstimpil frá október og nóvember á sl. ári og hafði verið sent til Búöardals í febrúar. Á pökkunumstendur: „Kaffiðerbest, sé^ það notað innan tveggja mánaða frá pökkun,” en til Búðardals berst það ekki fyrr en það er orðið 3—4 mánaöa gamalt. Hærra verð í Búðardal I bréfinu frá Konný segir m.a. ,,Er vöruverð almennt mjög hátt í kaup- félaginu hér? Væri ég spurð, svaraði ég játandi. En mig skortir meiri samanburð við verð annars staðar, sérstaklega við versianir úti á lands- byggðinni, t.d. frá Austf jörðum. Hér á eftir fer svolítið dæmi um verslunar- ferð til Reykjavíkur í desember sl. 8. og 9. desember kannaði ég verð á 18 vörutegundum í Kaupféiaginu hér í Búðardal sem voru bökunar- og niður- suöuvörur. 13. desember versiaði ég í Hagkaupi. Kjötvöru keypti ég í Kjöt- miðstöðinni við Laugalæk. Þegar heim kom skrifaði ég niður allt sem ég keypti, magn og tegundir. Að hluta til voru þessar 18 vörutegundir sem ég hafði kannað verð á í Kaupfélaginu, keyptar hjá Hagkaupi og restin í Kjöt- miðstöðinni. Verðmunurinn á sömu vörum keyptum í Hagkaupi var 40% þ.e. í Búöardal var verðið sem því nam hærra. Og í Kjötmiðstöðinni var þessi munur34,2%. Við heildarkostnaðinn við innkaupin í Reykjavík bætti ég síðan bensín- kostnaði fram og til baka sem var um 1200 krónur og einnig bætti ég við 4% ofan á alia summuna, sem flutnings- gjaldi. Þegar þetta hafði verið gert átti ég samt eftir 332,65 krónur miðað við þaö að ég hefði keypt þessar sömu vörur í Kaupfélaginu í Búöardal.” Bréfritari segir aö hann viti um fjöl- mörg önnur dæmi um fólk sem hefur sömu sögu að segja. Fólk reyni að nota öll tækifæri til að kaupa inn matvörur og aðrar nauðsynjar frá Reykjavík. Það fari í verslunarferðir til Reykja- víkur og biðji einnig venslafólk að kaupa inn fyrir sig ef sá möguleiki er fyrir hendi. -APH. Geipileg aðsókn á matsölustaði „Hvað er að gerast í þjóðfélaginu?” spurði einn kunningi okkar nýlega. „Ég ætlaði út að borða á laugardags- kvöldi, datt það í hug um miðjan dag, hringdi þá á nokkra staði og það var ails staðar upppantað.” Kunningi okkar velti fyrir sér í framhaldi af þessari reynslu hvort neyslumynstur fólks væri aö breytast. Við höfum heyrt margar sögur af grjónagrautnum vinsæla, þá sérstakiega að hann sé aðalfæða landsmanna um þessar mundir. En eitt er víst að fólk fer ekki út á matsölustaði í leit aö grjónagraut. Þröngt er í búi, það viröast allir vera sammála um. Hver er þá skýringin á mikilli aösókn á matsölustaði höfuðborgarinnar. Já, aösóknin er mikil, við höfum haft samband við marga veitingastaði og höfum fengið staðfestaðsvosé. „Þaö þarf að panta borö hjá okkur fyrir matargesti á iaugardagskvöldi í síðasta lagi á fimmtudegi,” var svarið sem við fengum á nokkrum stöðum og öllum í „fyrsta verðflokki”. Voru menn yfirleitt á því að aðsókn væri meiri fyrri hluta mánaðar en síðari. Þó virtist sem slíkar „sveiflur” hefðu jafnast töluvert með tilkomu krítar- korta. Á sumum stöðum fengum við þau svör að krítarkortaviöskiptin væru um 25—30% af veltunni. „Og þó að fólk hafi ekki peninga lætur það sig hafa það að fara út að borða og nota kortin, þau hafa greini- lega aukið aðsókn hjá okkur,” sagði einn viðmælenda okkar. „Síðastliðið laugardagskvöld voru um eitt hundrað og fimmtíu gestir hjá okkur í mat og við þurftum að vísa. jafnstórum hópi frá,” sagöi annar veitingamaðurinn. „Og um helgar tekur fólkiö yfirleitt dýrustu kjötrétt- ina á matseðlinum.” Annars voru menn líka sammála um að gestir á veitingastööum væru til- búnir að reyna aliflesta nýja rétti sem á boðstólum væru, sérstaklega fisk- rétti. Við höfum haldið okkur viö aösókn á matsölustaði um helgar en samkvæmt okkar upplýsingum er aðsókn „geipi- leg” eins og einn sagði, í hádeginu alla daga vikunnar — og nokkur kvöld í miðri viku. Eitt nokkuð athyglisvert kom fram hjá einum veitingamanni sem sagði að áður hefði stór hópur opinberra starfs- manna, frá ráðuneytum og öðrum stofnunum, verið tíðir gestir hjá sér. Mjög hefði dregið úr aðsókn þessa sér- staka gestahóps. „Það er greinilegt aðhald þar á ferðinni,” var sagt. Lögmálið, sem þessi aukna aðsókn á matsölustaði byggir á, er þekkt fyrir- bæri. Þegar harðnar á dalnum hjá fólki dregur það við sig stórar f járfest- ingar. Frestar því að kaupa nýjan bíl, fara í lengri sumarleyfisferðir eða kaupa uppþvottavél. Það leyfir sér smátilbreytingu í þessu formi. Leyfir sér að fara út að borða í góðra vina hópi, létta lundina í smáskömmtum. Þar sannast þetta gamla, eins dauði er ánnars brauð. -ÞG. Fólk tekur tilbreytinguna út ismáskömmtum, drifur sig i sparifötin og lótt- irlundumhelgar. . . ogaðradaga. DV-myndBj. Bj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.