Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Blaðsíða 31
.5*861 8HAM .8 HUOAOUTMMIH VCI DV. FIMMTUDAGUR 8. MARS1984. Sandkorn Sandkorn Sandkorn Davíð brá sér til Akureyrar. Skemmti- f erð? Davíð borgarstjðri bélt til Akuroyrar á dögunum með 'ríðu föruneyti. Var ferðin sú arna einkum farin tU að lýsa dásemdum Reykjavíkur fyrir norðanmönnum, að sögn fróðra. 1 Sjallanum var haldin mikU skemmtun með atrið- um úr óperu, revíum og leik- riti. Ræður voru fluttar, dans- aður diskódans úr fátækra- hverfum New York og svo framvegis. Mun hátíðin hafa vakið mikla athygU við- staddra og annarra. Vatnió í Reykjavík Af mörgu merkUegu munu þó hafa vakið mesta athygU upplýsingaruar um lifið i höfuðborginni sem voru í dreifibréfum og bæklingum á borðunum i SjaUanum um- rætt kvöld. Þar var tU dæmis tiundað nákvæmlega hvað Reykjavík hefði upp á að bjóða í febrúar. Sérstaklega mun norðan- mönnum hafa þótt bæklingur- inn um vatnsveituna þarfa- þing. Þar var með faUegum teikningum sýnt hvernig Reykvíkingar nota vatn tU að þvo bUa, sigla skútu á þvotta- bala, skúra gólf og vökva blóm. Vatnssóunin virðist hrika- leg því hver eínasta sála not- ar heUa 270 lítra af þessum vökva á sólarhring. Og í hvað fer þetta eiginlega? Jú, í bað- ker fara að jafnaði um .300 litrar, þar af 170 af köldu. t Borgarstjóri kynnti vatnið rœkl- lega fyrir norðan. tíu minútna sturtubað þarf 90 lítra af köldu og vatnskassinn á saierninu tekur bara heUa 15 lítra. Það er fuUyrt að 47% af heUdarvatnsnotkun ReykvUt- inga sé á salerounum. Ja, mikU er borg Davíðs. Annars væri reynandi fyr- ir Flugieiðir að selja Norð- lendingum helgarpakka suð- ur svo þeir geti lyft sér upp og skoðað vatn. Þaó er nú það Steingrimur Hermannsson forsætisráðherra mun hafa glaðst með Jonathan Motz- feldt, landstjóra Grænlend- inga, er þeir voru staddir á fundi Norðurlandaráðs nú ný- lega. Steingrimur mun hafa boð- ið landstjóranum og fleiri Græniendingum upp á drykk og skyldi þar rætt samstarf rUtjanna og fleira merkUegt. Eitthað munu viðræðurnar Forsætisráðhcrra hitti grænlensk náttúrubörn i Stokkhóimi. hafa dregist á langinn en þær enduðu raunar undir morgun með því að forsætisráðherra fór í sjómann við Grænlend- ingana. Þegar Steingrímur mætti svo tU fundar daginn eftir, kannski svolítið sigin- axla öðrum megin, var hann spurður hvernig viöræðurnar viö Grænlendingana hefðu gengið. Hann hvað þær hafa gengið mjög vel og bættl svo við: „O, þetta eru náttúru- böro”. Þú mikil... Guðmundur J. hefur verið inikið í sviðsljósinu að undan- förou. Sirkusinn hófst í raun- inni þegar samningaviöræður milli ASt og VSt stóðu sem hæst. Þá varð snemma ljóst að Guðmundur hugðlst fara aðrar ieiðir en aðrir forystu- menn í verkalýðshreyfing- unni. Við stóðumst ekki mátið en fengum aö láni úr Degi skrambi góða visu sem ort var einmitt um þær mundir; ' sjálfsagt í orðastað Ásmund- ar Stefánssonar. Þetta er þjóðlegur vandi. Eg þögull og hlustaudi stend. Þú mikli, eilifi andi, hvaö ætlarðu þér með Gvend? Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir BÍÓHÖLUN—TRON: Undraverð tækni er aðalkostur Tron. ■ Ævintýraheimur tölvuleikja Heiti: Tron. Loikstjóri og handritshöfundur: Steven Lisberger. Kvikmyndun: Bruce Logan. Tónlist: Wendy Carlos. Lög flutt af Journey. Aðalleikendur: Jeff Bridges, Bruce Boxloitner, David Warner, Cindy Morgan og Barnard Hughes. Tveir starfsmenn fyrirtækisins vita að eitthvað miður gott er að ger- ast og fá Flynn til að brjótast inn aö næturlagi og reyna aö aftengja tölv- • una með þvi að komast inn í forrit hennar. fóstur leikstjórans og handrits- höfundarins Steven Lisbergar um árabil en enginn haföi lagt út í að framkvæma hana í kvikmyndaformi fyrr en hann hafði samband við Disney fyrirtækið enda er það fyrir- tæki nokkuð sér á parti í gerð ævin- týramynda. Steven Lisberger var tæplega þrítugur þegar hann gerði Tron, sem sagt á réttum aldri til að geta ímyndað sér þessa furðulegu möguleika sem tölvuleikir bjóða upp á og eldri menn geta varla skilið. Leikarar koma á stundun nokkuö stirðlega fyrir enda ekki nema von þegar þess er gætt að í flestum atriöum léku þeir þessi hlutverk á venjulegu sviöi án nokkurra hluta og í venjulegum fötum. öllu var bætt við eftir á, þessum stórkostlegu grafisku senum þar sem litadýrðin nýtur sín vel og einnig var sá fatnaöur sem þau leika i teiknaöur á þau eftir að leik lauk. En þessi stirö- legi leikur hverfur aö mestu ieyti í allri litadýrðinni sem hvolfist yfir áhorfandann. Tron er ævintýramynd framtíðar- innar. Það má segja að hún kanni nýja möguleika í kvikmyndagerð þar sem leikarar eru felldir inn í grafíska sviðsetningu. Tron ætti aö vera öllum tölvufríkuöum ungmenn- um sem sprauta í æð. Hilmar Karlsson Þaö má meö sanni segja að Tron sé eitt tækniundur út alla myndina. Sjaldan eöa aldrei áöur hefur tækni- hiiö kvikmyndar verið gerð eins stór- kostleg skil sem í Tron. Myndin fjallar um tölvuna, hina miklu þróun sem orðiö hefur, og mun veröa í hönnun hennar og eru tölvuleikimir aöalnúmerið í þessari ævintýra- mynd, ekki eingöngu hvernig not- andinn leikur sér heldur er einnig skyggnst inn undir skerminn þar sem barátta upp á líf og dauöa á sér stað. Hetjan í Tron er ungur tölvusnill- ingur, Flynn (Jeff Bridges), sem rekinn hefur verið frá tölvufyrirtæki sem hann vann við og hannaði tölvu- leiki fyrir sem síöar áttu eftir aö veröa mjög vinsælir. Fyrirtækinu er stjórnað af Ed Diliinger, sem áöur haföi starfaö með Flynn, en stal hug- myndum hans og mataði móðurtölvu fyrirtækisins á þeim. Og eftir því sem leikimir verða vinsælli verður móðurtölvan fróðleiksfúsari undir stjórn Dillingers og stelst í upplýs- ingar hvar sem hún nær til þeirra, og er farin að taka vöidin í fyrirtækinu. En áður en Flynn tekst ætlunar- verk sitt nær tölvan aö beina leisi- geisla að Flynn sem brýtur hann niður í rafeindahluti. Flynn vaknar í öörum heimi. I rafeindaheimi þar sem tölvuleikimir eru barátta upp á líf og dauöa, heimi þar sem móður- tölvan er guð. En Flynn hittir fólk í þessum heimi sem hefur þaö markmið aö eyða áhrifum tölvunnar og er þar fremstur í flokki Tron (Bruce Box- leitner). En tölvan hefur einnig sína stuöningsmenn og þar er fremstur bardagameistarinn Sark (David Wamer). Eftir mikil ævintýri tekst þeim Flynn og Tron ásamt Yori (Cindy Morgan) að komast aö móðurtölv- unni og gera hana óvirka. Um leið er eins og þessi ævintýraheimur losni úr fjötrum. Flynn vaknar upp aftur í sæti sínu viö tölvu sem er að prenta fyrir hann sannanir um sviksemi Dillingers. Þaö þarf mikið hugmyndaflug til að hugsa upp söguþráö sem þennan. En þessi hugmynd haföi verið hugar- Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Starfslaun handa listamönnum árið 1984. Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til handa íslenskum listamönnum árið 1984. Umsóknir skulu hafa borist úthlutunarnefnd starfslauna, menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, fyrir 10. apríl nk. Umsóknir skulu auðkenndar: Starfslaun listamanna. 1 umsókn skulu eftirfarandi atriði tilgreind: 1. Nafn, heimilisfang, fæðingardagur og ár, ásamt nafnnúm- eri. 2. Upplýsingar um náms- og starfsferil. 3. Greinargerð um verkefni sem liggur umsókn til grund- vallar. 4. Sótt skal um starfslaun til ákveðins tíma. Verða þau veitt til þriggja mánaða hið skemmsta, en eins árs hið lengsta, og nema sem næst byrjunarlaunum menntaskólakennara. 5. Umsækjandi skal tilgreina tekjur sínar árið 1983. 6. Skilyrði fyrir starfslaunum er að umsækjandi sé ekki í föstu starfi meðan hann nýtur starfslauna, enda til þess ætlast að hann helgi sig óskiptur verkefni sínu. 7. Að loknu verkefni skal gerð grein fyrir árangri starfslauna. Tekið skal fram að umsóknir um starfslaun árið 1983 gilda ekki í ár. Reykjavík 7. mars 1984. Uthlutunarnefnd starfslauna. HJARTAVERND /andssamtök hjarta- og æðaverndarfélaga HELDUR FRÆÐSLUFUND FYRIR ALMENNING UM KRANSÆÐASJÚKDÓMA laugardaginn 10. mars 1984 kl. 13.30 í Domus Medica. Fundarstjóri Snorri Páll Snorrason prófessor. DAGSKRÁ: 1. Ávarp. Matthias Bjarnason heilbrigðisráðherra. 2. Starfsemi Hjartaverndar, stutt yfiriit. Stefán Júiiusson fram- kvæmdastjóri. 3. Útbreiðsla kransæðasjúkdóma á ísiandi. Rannsókn Hjartaverndar. Nikuiás Sigfússon yfirlæknir. 4. Alkóhólneysla i hófi. Hver eru mörkin frá heilsufarslegu sjónarmiði? Dr. Bjarni Þjóðleifsson ytirlæknir. 5. Meingerð æðakölkunar. Dr. Guðmundur Þorgeirsson læknir. 6. Blóðfita og kransæðasjúkdómar. Hvert er sambandið þar á milli? Dr. Gunnar Sigurðsson yfirlæknir. 7. Áhættuþættir kransæðasjúkdóms. Varnaraðgerðir vest- rænna þjóða. Dr. Sigurður Samúelsson prófessor. 8. Getum við breytt lifsvenjum okkar til bættrar heilsu? Dr. Jón Óttar Ragnarsson dósent. 9. Hvers vegna borgar sig að hætta að reykja? Dr. Þorsteinn Blöndal yfirlæknir. 10. HRINGBORÐSUMRÆÐUR. Umræðustjóri dr. Þórður Harðarson prófessor.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.