Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Blaðsíða 19
DV. FIMMTUDAGUR 8. MAKS1984. Frímerkjaumslagið sem boðið var upp í Frankfurt um síðustu helgi. Þvættingur að umslaginu haf i verið stolið af Þjóðskjalasafni — segir þ jóðskjalavörður „Það eru engar líkur sem benda til þess að þetta hafi nokkum tíma verið hér,” sagði Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjalavörður. Bjarni mótmælti fullyrðingum þess efnis að frímerkjaumslagi, sem boðið var upp í Frankfurt í Vestur-Þýska- landi um síðustu helgi, hefði veríð stolið af Þjóðskjalasafninu. Sagði hann slikar fullyrðingar þvætting. Ennfremur sagði Bjarni að ekki hefði verið haft rétt eftir sér í frétt DV síðastliðinn laugardag að vanskila- pósti hefði verið brennt árið 1914. Rétt væri að gögnum frá póstinum hefði verið brennt, skjölum og þess háttar. Samkvæmt upplýsingum sem DV fékk frá Rafni Júlíussyni hjá Pósti og síma var óskilapóstur hluti af bókhaldi póstmeistaraembættisins. Sagði Rafn að óskilapóstur hefði farið með öðrum skjölum póstsins á Þjóðskjalasafn. -KMU. Útlaginn til Frakklands: Ein milljón króna í kaupverð? Kvikmyndafélagið Isfilm hefur selt króna en Jón Hermannsson, einn af að- leikstjóra vegna þessa máls. sýningarrétt á kvikmynd sinni Utlag- standendum Utlagans, varöist allra Mun Agúst dvelja erlendis þessa inn í Frakklandi. frétta. dagana vegna undirbúnings á nýrri DVhefur haft spumir af því að kaup- Hvorki náðist í Indriða G. Þorsteins- myndsemhann mun leikstýra. verðið hafi verið nálega ein milljón son né heldur Ágúst Guðmundsson SigA VÖNDUÐ HÚSGÖGN Erum með verksmiðjuútsölu á húsgögnum og áklæðum í Samvinnutryggingahús- inu, Hallarmúlamegin. Gott úrval af vönduðum svefnbekkjum, hvíldarstólum og sófasettum á mjög hag- stæðu verði. Lítið inn og kynnið ykkur verð og gæði. HÁTÍÐIMI-HÖGNI Verð frákr. 3.537,-m/s. Fælir burt öll meindýr þvf hann sendir frá sér hljóðbylgjur sem meindýr þola ekki en eru skaðlausar mönnum og gæludýrum. Tækið er til í fjórum stærðum og er fyrir 220 volt. . Póstsendum Nánari upplýsingar í sima 12114 til kl. 20. J.H. Guðjónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.