Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Side 9
DV. FIMMTUDAGUR 8. MARS1984.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Tryggingar
skipa á
Persaflóa
snarhækka
Breskt kaupskip laskaöist og nokkrir
úr áhöfninni særöust í loftárás Iraka á
Persaflóanum en ein eldflaug hæfði
skipið. — Er þetta þriðja verslunar-
skipið sem fyrir skemmdum varð 1.
mars, þegar Irakar gerðu loftárás á
skipalest á leið til Irans.
Irakar sögöust hafa sökkt sjö skipum
en breska utanríkisráðuneytið telur
sig vita um fjögur skip sem laskast
hafi í þessari árás.
19 þúsund smálesta skipið Charming
varð fyrir eldflaug og kom upp eldur í
því svo aö áhöfnin, 14 menn, yfirgaf
skipið. Enginn þeirra var hættulega
særður. Skipiö er nú strandað um 40
mílurfrá BandarKhomeini.
Iranskir byltingarvarðliðar gera stóráhlaup á íraka, eitt af sínum mörgu og mannfreku.
£3 }
t. . • .<■ .wmw' y Wto.4 * ^ W '* W ;'’: mJJbá Wmz AtetÁ&v. ... P
Iranskt varðskip hafði tekið laskaða
skipið í slef en varð að sleppa því þegar
það sjálft lá undir árásum flugvéla
Iraka.
Með vissu hafa menn f réttir af því að
9 þúsund smálesta tyrknesku
flutningaskipi var sökkt í þessum
árásum og 16 þúsund lesta skip frá Ind-
landi laskaðist.
Tryggingar skipa í
þessum slóðum hafa
veröi.
siglingum á
snarhækkað í
Frönsk varðskip taka hart á
spönskum landhelgisbrjótum
Sprottin er upp milliríkjadeila milli
Frakklands og Spánar út af töku
Mikil mótmæli hafa verið í Frakklandi að undanf örnu vegna frumvarps um að
einkaskólar verði scttir undir aukið ríkiseftirlit. Myndin er frá mótmælafundi
sem haldinn var í Versölum um síðustu helgi og er taliö að allt að 800 þúsund
manns hafi tekið þátt í mótmælunum. Þetta var sjötti mótmælafunðurinn sem
beint er gegn þessu frumvarpi frá áramótum og var þetta sá stærsti þeirra.
tveggja spánskra togara í fiskveiðilög-
söguEBEá Biscayaflóa. —NíuBaskar
á togurunum slösuöust þegar franska
varðskipið, sem reyndi að stöðva þá
um 100 mílur undan Frakklandsströnd,
skaut táragassprengjum um borö í þá.
Spánn hefur krafist skýringa
frönsku stjórnarinnar á atvikinu innan
sólarhrings og þykir hætta á að málið
eigi eftir að hafa alvarlegar afleiðing-
ar á sambúð þessara tveggja ná-
grarina.
Frönsk yfirvöld segja aö varðskipið
hafi fyrst gefið togurunum fyrirmæli
um aö stöðva en þegar þeir virtu það
að vettugi var skotið viövörunar-
skotum yfir stefni þeirra. Þegar varð-
skipsmenn ætluöu um borð í togarana
var táragassprengjum skotiö á togará-
menn til þess að draga úr andspymu'
þeirra. — Við það meiddust níu fiski-
menn, þar af tveir alvarlega.
Ein af útvarpsstöðvum Spánverja
sagði að útgerðarmenn ihuguðu að
sigla fiskveiðiflota Baska til Frakk-
lands til að mótmæla töku togaranna.
Utanríkisráðherra Spánar kallaöi
franska sendiherrann í Madrid á sinn
fund og las honum lesturinn, þar sem
hann meðal annars sagöi að vöntun á
veiðiheimild gæti engan veginn rétt-
lætt árás með skotvopnum á fiskveiði-
skip vinsamlegs grannríkis.
Frönsk þyrla flutti særðu hásetana í
land til læknismeöferðar.
Talsmaður franska utanríkisráðu-
neytisins sagði fjölmiðlum aö togar-
amir tveir hefðu ekki haft veiði-
heimildir og þama brotiö landhelgi.
Annar togaranna hefur tólf sinnum
verið aö ólöglegum veiðum síðan í
byrjun desember og hinn tíu sinnum.
Franska flotanum og strandgæsl-
unni var sett fyrir að fylgja fast eftir
veiðieftirliti og stöðvun landhelgis-
brota og beita valdi ef erlend veiðiskip
vildu ekki ansa kröfum um að fram-
vísa veiðileyfum.
Kolanámumenn í verk-
fall í Bretlandi
Leiðtogar 180 þúsund kolanámu-
manna Bretlands koma saman í dag til
þess að ræða hugsanlegt allsherjar-
verkfall kolanámumanna eftir síðustu
árekstrana við kolaráðið.
Kolanámumenn hafa verið í yfir-
vinnubanni síðustu fimm mánuði
vegna deilu um laun og lokun nokkurra
náma sem þykja óhagkvæmar í
rekstri. — Lítill þrýstingur hefur
hlotist af yfirvinnubanninu því aö
nægar kolabirgðir eru í landinu.
Boðuð hafa verið verkföll í kola-
námum i Yorkshire og Skotlandi.
Kolanámurnar eru ríkisreknar og
hefur kolaráðiö uppi áætlanir um að
loka nokkrum námum sem leiðir til
atvinnumissis 20 þúsund kolanámu-
manna.
Karneval í
Ríó de Janeiro
Brasilíumenn héldu „karneval” sinn
eða kjötkveðjuhátíð um síðustu helgi
og var ekkert til sparað frekar en
endranær. Þrátt fyrir gifurlega efna-
hagsörðugleika Brasilíu og fjallháar
utanlandsskuldir þykir ekki viðeigandi
að spara á kjötkveðjuhátiðinni. Hún cr
nefnilega líf og yndi fólksins í landinu.
Blíðskaparveður var í Ríó de Janeiro
meðan á hátíðinni stóð eins og sést á
myndinni. 1 Feneyjum voru einnig
mikil hátíðarhöld alla síðustu viku en
þar voru veðurguðirnir ekki eins
hugulsamir og snjóaði á hátíðargesti
eins og sjá má.
Útlönd
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
Gunnlaugur A. Jónsson