Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Page 10
10
DV. FIMMTUDAGUR 8. MARS1984.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Umsjón: Gunnlaugur A. Jónsson
Gary Hart, öldungadeildarþmgmaður frá Colorado, hefur komiö gífurlega á
óvart í forkosningum Demókrataflokksins og samtímis hefur hann gert
aðstandendum skoðanakannana lífið leitt.
Cranston, 60 prósent þeirra sem ætl-
uðu að styðja Ernest Hollings, 50 pró-
sent af líklegum kjósendum
McGovems, 35 prósent frá Jesse
Jackson, 19 prósent frá John Glenn
og 14 prósent frá Walter Mondale.
Eftir sigurinn í New Hampshire
hefur ekkert lát veriö á sigurgöngu
Harts og alls staöar hefur hann feng-
iö meira fylgi en skoðanakannanir
hafa gert ráð fyrir. En þrátt fyrir að
hann hafi fengið óvæntan vind í segl-
in væri óvarlegt að telja að hann væri
að hrista Mondale af sér. Kosninga-
sjóður Harts er ekki digur. Skuldir
hans eru upp á 500 þúsund dollara
þó reikna megi með að þær grynnki
ört ef svo heldur sem horfir. Fram að
þessu hefur hann nær algjörlega
sniðgengið Suðurríkin í kosningabar-
áttu sinni þar sem mjög þýðingar-
miklar kosningar fara fram 13. mars
í Flórída, Alabama og Georgíu. Eng-
in skipulögð samtök standa á bak við
baráttu hans þar og þar eru kjósend-
urnir öðmvísi en hinir ungu, hvítu,
vel menntuðu og vel stæðu kjósendur
sem lögðu grunninn að sigri hans í
New Hampshire.
I Suðurrík junum eru fleiri k jósend-
ur úr verkalýðssamtökimum, fleiri
svartir, fleiri ihaldssamir, minna
menntaöir kjósendur og ekki eins vel
stæðir.
Þar er höf uðvígi Jesse Jacksons og
þar em þeir Walter Mondale og John
Glenn enn sterkir fyrir. En sigur-
ganga Harts að undanfömu hefur
sýnt að hann nær til allra hópa kjós-
enda þó í mismunandi ríkum mæli
sé. Og bent hefur verið á að þegar
frambjóðandi hefur á svo skömmum
tíma fengið þvílíkan meöbyr og
raunin er á með Hart þá þurfi enga
kosningavél. En ljóst má vera að
„risa-þriðjudagurinn” 13. mars eins
og hann hefur verið kailaður verður
afskaplega þýðingarmikill í kosn-
ingaslag demókrata og kann að ráða
úrslitum um hver frambjóöendanna
verður hlutskarpastur.
Debra Winger, vinsælasta leikkonan í Bandaríkjunum um þessar mundir:
Nú er hún kyntákn, var áóur hermaöur
Sigurganga Harts
sýnir óvissu
kosningaspánna
—f ær alls staðar meira f ylgi en skoðanakannanir benda til
Hún hefur verið hermaður í
ísraelska hemum. Hún á að baki há-
skólanám í þjóðfélagsfræði og glæpa-
sögu. Nú er hún vinsælasta leikkonan
í bandarískum kvikmyndum að því
er stórblöðin Life og New York
Times halda fram.
Debra Winger vakti fyrst verulega
athygli í kvikmyndinni „Urban Cow-
boy” þar sem hún lék á móti John
Travolta og síðan var hún útnefnd til
óskarsverölauna fyrir leik sinn í „An
officer and a gentleman”.
Hún var á dögunum stödd í Berlín
til að kynna nýjustu mynd sína er
heitir „Terms of endearment”. Þá
var hún dálítiö vonsvikin yfir skrif-
um þýsku blaðanna um myndina
sem töldu myndina of væmna.
„Myndin er þvert á móti mjög
raunsæisleg,” sagði Winger í blaða-
viðtali. ,,Ef við tökum hlutverk dauð-
ans í myndinni sem dæmi. Maður
heldur til læknis einn góðan veður-
dag til aö fá sprautu og fær þá að vita
að maður þjáist af krabbameini.
Þegar þetta er látið eiga sér stað í
kvikmynd þá finnst fólki það væmið.
En getið þið sagt mér hvernig þetta
Debra Winger: „Ég leik ekki hlutverkin heldur virðist mér frekar sem
persónan komi í mig, að ég verði hún.”
gerist í raunveruleikanum ef ekki
svona upp úr þurru ? ’ ’
Blaðamenn og gagnrýnendur hafa
raunar áður sagt ýmislegt um Debru.
Winger sem hún á erfitt með að
skilja. Þannig hafa tíl dæmis tímarit-
in Newsweek og Playboy útnefnt
hana sem eins konar kyntákn þessa
áratugar.
„Fyrsta skiptið sem ég heyrði
þetta þá hélt ég að mér hefði mis-
heyrst. Eg heföi orðið miklu glað-
ari ef ég hefði verið kölluö
„karakterleikkona” í staðinn því að
það er það sem ég reyni að vera.
Þetta breytist kannski til batnaðar
eftir hlutverk mitt sem Emma í
„Terms of endearment”. Þó ekki
væri nema vegna þess að hún er
þriggja bama móðir, gengur eins og
önd og er til fara eins og úttroðinn
poki,”segirWinger.
Ein þýðingarmesta ástæðan til
þess að Debra Winger hefur orðið
það kyntákn sem hún á svo erfitt
með að sætta sig við er hin sérkenni-
lega rödd hennar sem er í senn hás
og kröftug (Steven Spielberg notaði
hana þegar hann skapaöi rödd E.T.).
„Guð minn góður. Eg fæddist með
þessa rödd og það var óskemmtilegt
að vera þegar sem lítil stelpa kölluö
herra Winger í símanum. En það
gleymist líka oft að ég breyti rödd
minni oft viljandi eftir því hvert
hlutverk mitt er. I „Terms of endear-
ment” gerði ég hana dálítið meira
brostna en venjulega vegna þess að
mér fannst það hæfa hinu sérstæða
eðli Emmu,” segir Debra Winger.
„Annars hef ég eiginlega ekki
neina sérstaka aðferð sem leikari.
Eg leik ekki hlutverkin heldur virðist
mér frekar sem persónan komi í
mig, að ég verði hún. Shirley
MacLaine, sem lék móður Emmu,
varð stundum afskaplega þreytt á
mér í leikhléunum vegna þessa.
„Hver er það eiginlega sem ég er að
tala við?” gat hún átt til að öskra á
mig vegna þess að Emma var áfram
„í mér”.”
En Debra Winger lætur sér ekki
nægja aö vera leikkona. Hún hefur
einnig byrjað að framleiða myndir
sjálf.
„Eg hef byrjað á þessu vegna þess
aö valdið yfir því hvaða kvikmyndir
eru gerðar og hvemig þær eru gerð-
ar er oft i röngum höndum. Fram-
leiöandi á að framleiöa myndir en
ekki að vera fjandmaður sem leikar-
arnir þurfa að bindast samtökum
gegn til að fá eitthvað gert af viti. Eg
og aðrir sem eru sama sinnis hafa
bara tekið upp hugmynd sem var
þegar til á tímum Stanislavskijs,
þess kunna leikhúsmanns: að leikari
og framleiðandi eigi að vera eitt og
hið sama,” segir Debra Winger sem
nú á þátt i kvikmynd sem mun fjalla
um Elísabetu Eberhardt, trúaða
konu, sem í byrjun þessarar aldar
lifði í löndum múhameðstrúarmanna
klædd sem karlmaður og dó 28 ára
gömul í flóði — í Sahara!
Hin óvænta sigurganga Gary Hart
öldungadeildarþingmanns frá
Colorado í forkosningum Demó-
krataflokksins aö undanförnu hefur
ekki síst vakið athygli manna á því
hversu lítið hefur verið að marka
skoðanakannanir fyrir þessar kosn-
ingar.
Segja má að hinn glæsilegi sigur
Gary Hart í New Hampshire hafi
valdið þáttaskilum í kosningabarátt-
unni. En samkvæmt síðustu
skoöanakönnunum fyrir þessar kosn-
ingar, raunar frá kosningadeginum
sjálfum, þá átti Hart alls ekki að fara
meö sigur af hólmi.
I umræddri skoðanakönnun fékk
Mondale 57 prósent atkvæða en Hart
fékk aðeins sjö prósent! Ymislegt
hefur veriö mjög ruglingslegt í því
flóði skoöanakannana sem rignt hef-
ur yfir bandaríska kjósendur að und-
anförnu. Skoðanakönnunum virðist
fjölga ár frá ári. Margir hafa litið
niðurstöður þeirra nánast sem trúar-
kenningar og svo þegar kjósendur fá
loks að kveða upp dóm sinn vakna
stjórnmálaskýrendur upp við illan
draum og segja að úrslitin hafi kom-
ið þeim alg jörlega í opna sk jöldu.
Við nánari athugun kemur í ljós að
skoöanakönnun sú sem áöur er getið
náði yfir öll Bandaríkin og hafði því í,
raun ekkert með New Hampshire að
gera þótt hún hefði veriö notuð sem
innlegg í umræðuna þar. Skoöana-
kannanir í New Hampshire gáfu líka
allt aðrar niöurstöður og af þeim má
ráða hversu straumurinn var til
Hart síðustu dagana fyrir kosning-
amar. Hálfum mánuði fyrir kosning-
amar sýndu niðurstööur skoðana-
kannana Washington Post og ABC
sjónvarpsstöðvarinnar að Mondale
hefði 38 prósent fylgi en Hart 13 pró-
sent. Einni viku fyrir kosningarnar,
þ.e. dagana á eftir kosningunum í
Walter Mondale hefur ástæðu tU að vera áhyggjufullur þessa dagana. Sigur
hans er langt frá því að vera öruggur lengur og Gary Hart hefur fengið hann
tUaðleggjastívörn.
Iowa þar sem Hart náði óvænt 2. sæti
meö 15 prósent á eftir Mondale sem
hlaut 49 prósent, var Hart kominn
upp í 24 prósent en Mondale hélt enn
öruggri forystu með 38 prósent.
Þremur dögum fyrir kosningar hafði
forskot Mondales minnkað í sjö pró-
sent og degi fyrir kosningar vom
þeir jafnir með 30 prósent hvor.
Urslit sjálfra kosninganna urðu þau
að Hart vann glæsilegan sigur, hlaut
39 prósent atkvæða gegn 29 prósent-
um Mondales. Svipað hefur aUs stað-
ar annars staðar verið uppi á ten-
ingnum.
Hart hefur fengið mun meira fylgi
en skoöanakannanir hafa gert ráð
fyrir. Þeir er aö könnunum standa
geta að einhverju leyti afsakað sig
meö því aö Hart bæti við sig fylgi
alveg fram á síðustu stundu og að
óákveðnu k jósendumir hafi nær allir
kosiðhann.
Þannig sýna kannanir Los Angeles
Times að fjórir af hverjum fimm
kjósendum sem ákváðu sig síðustu
vikuna fyrir kosningamar í New
Hampshire kusu Hart þegar á hólm-
inn var komið. Þegar upp var staðiö
reyndust þetta vera 60 prósent af öUu
fylgi Harts sem var 37702 atkvæði.
Samkvæmt annarri athugun fékk
Hart 83 prósent þeirra kjósenda sem
höfðu ætlað sér að styðja Alan