Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Page 20
DV. FIMMTUDAGUR 8. MARS1984.
Enskirpunktar:
Atkin-
son
vill
fá
Steve Hunt
• Ron Atkinson, framkvæmdastjóri
Manchester United, er talinn hafa
mikinn áhuga á miðvallarleikmanninum
Steve Hunt sem leikur með Coventry
Cuty. Þriggja ára samningur Hunts hjá
Coventry rennur út i sumar.
Hibbit til
Shrewsbury
• Hinn þekkti leikmaður úr enskri
knattspyrnu Kenny Hibbit sem leikur nú
með Ulfunum mun leika með Shrews-
bury næsta vetur. Þá eru þeir Paul Brad-
shaw markvörður og Geoff Palmer
einnig á förum en ekki er vitað hvert þeir
fara.
Lineker
til
Aston
Villa?
ffa* «1
• Talið er fullvist að hinn snjalli leik-
maður Aston Villa, Gary Shaw, fari frá
féiaginu. Forráðamenn ítalska liðsins
Juventus og spænska liðsins Real
Madrid eru sagðir hafa áhuga á Shaw.'
Til að fylla skarð Gary Shaw eru for-
ráðamenn Aston Villa nú aö reyna að ná
í Gary Lineker en hann leikur með
Leicester.
Archibald
til Italíu?
• Þeir éru margir ensku leik-
mennirnir í knattspyrnunni sem heiliað
hafa Itali upp á síðkastið. Siðast var
vitað að að forráðamenn Torino hefðu
mikinn áhuga á Steve Archibald hjá
Tottenham en þeir hjá Torino hafa átt
viðræður við Keith Burkinshaw, fram-
kvæmdastjóra Tottenham, á föstu-
daginn var.
-SK.
Sigrarhjá
Tottenham
og Forest
— í UEFA-bikarkeppninni
Tottenham vann sigur 2—8 yfir
Austria Vín í UEFA-bikarkeppninni í
gærkvöldi á White Hart Lane i London.
34.069 áhorfendur sáu þá Steve Archi-
bald og Alan Brazil skora mörkin. Gienn
Hoddle kom inn á sem varamaður á 70.
min.
• Nottingham Forest vann sigur 1—0
yfir Strum Graz frá Austurríki á City
Ground. Paul Hart skoraði markið á 70.
mín. 19.459 áhorfendur.
• Danski landsliðsmaöurinn Kenneth
Brylle var hetja Anderlecht — skoraði
þrjú mörk, þegar félagiö vann Spartak
Moskva í Brussel í gærkvöldi. Frank
Verceuteren skoraöi fjóröa markið.
Brylle skoraöi tvö mörk úr vítaspymum.
30 þús. áhorfendur.
• Sparta Prag lagði Hajduk Split 1—0 í
Prag í fjóröa leik UEFA-keppninnar.
Þetta voru fyrri leikir liðanna í 8-liöa
úrslitunum. -SOS..,
íþróttir
íþrótt
íþróttir
íþróttir
N jarðvíkingar verða fyrir blóðtöku:
Valur er brotinn
og kominn í gifs
— „Þetta er mikið áfall fyrir okkur/’ segir Gunnar Þorvarðarson,
Njarðvikingar hafa orðið fyrir mikilli
blóðtöku. Valur Ingimundarson, lykil-
maður þeirra í körfuknattieik, er
kominn i gifs og það bendir allt til að
hann leiki ekki með Njarðvikingum í
úrslitakeppninni í körfuknattleik —
baráttunni um Islandsmeistaratitilinn.
— Þetta er mikiö áfall fyrir okkur og
það er nú komið fram sem viö
óttuðumst þegar nýja fyrirkomulagið
var sett á — aö þaö mætti ekkert út af
bregða fyrir úrslitakeppnina. — Nú
bendir allt til aö átta mánaða vinna
okkar verði að engu, sagði Gunnar.
Valur sneri sig illa á fæti í bikarleik
Njarövíkinga gegn KR og það kom
fram við myndatöku í gær að bein í hné
hans væri brotið. Gifsumbúðir voru
strax settar um hnéð í gær á sjúkra-
húsinuíKeflavík.
Njarðvíkingar eru langefstir í úr-
valsdeildinni — með tíu stiga forskot á
næsta lið, sem er Valur.
þjálfari Njarðvíkinga
Valur Ingimundarson.
Nýja fyrirkomulagið er þannig í bar-
áttunni um Islandsmeistaratitilinn aö
Mútumálið í Belgíu:
Roger Petitj
mætti ekki •
til yfirheyrslu í Brussel, en það gerði aftur
á móti Goethals, þjálfari Standard Liege
Frá Kristjáni Bernburg — frétta-
manniDVíBeigíu:
— Þaðkomgeysilegaáóvarthér
í Belgíu í gærkvöldi, laust eftir kl.
sjö, að Reymound Goethals, þjáif-
ari Standard Liege, var fyrsti
maðurinn sem mætti til yfirheyrslu
vegna mútumálsins en fyrirfram
var ekki búist við að hann myndi
j^mæta. Það kom einnig á óvart að
það var Roger Petit, fyrrum forsti
félagsins, sem mætti ekki.
Goethals var þögull sem gröfin
þegar hann mætti og svaraöi ekki
spumingum blaðamanna frekar en
þeir Ronald Janssen, leikmaöur.
Waterschei og Eric Gates, fyrrum
leikmaður Standard Liege, sem nú;
leikur með AC Mílanó á Italíu.
-KB/-SOS
Brady æfði
á Highbury
mestar líkur á að hann leik með Arsenal
Enski knattspyrnumaðurinn Liam
Brady, sem leikið hefur undanfarið
með italska liðinu Sampdoria, hefur
ákveöið að leika á Englandl næsta
keppnistímabil.
Enn hefur ekkert verið gefið upp
með hvaða liði hann muni leika á Eng-
landi en mestar líkur eru þó taldar á að
hann hverfi á ný til Arsenal, sem hann
lék með áður en hann hóf að leika á
Itaiíu.
Liam Brady var staddur á Englandi
í síðustu viku og æfði þá með Arsenal-
liðinu á Highbury. Ekki er það þó talin
næg ástæða til aö ætla að hann leiki
meö Arsenal á næsta ári.
Vitað er að Tottenham hefur áhuga á
aö næla í kappann. Vist er aö Glenn
Hoddle mun leika með liði í Evrópu
næsta keppnistímabil og forráðamenn
Manchester United fylgdu honum
hvert fótmál í síöustu viku. Ætla þeir
honum stöðu Amolds Miihren í United-
K
Liam Brady.
liðinu. Og þá er vitað að forráöamenn
Newcastle eru á höttunum eftir eftir-
manni Kevins Keegan sem hefur lýst
því yfir að hann hætti knattspyrnuiök-
un eftir þetta keppnistímabil.
Brady hætti að leika með Arsenal
1930 og fluttist til Italíu þar sem hann
byrjaði að spila með Juventus. Þar var
hann í tvö ár en hefur undanfarið leikið
við hlið Trevors Francis með
Sampdoria. ' -sk i
fjögur efstu lið úrvalsdeildarinnar
komast i aukakeppni og mætir efsta
liöiö liði númer f jögur en annað efsta
liðið mætir því þriðja. Leiknir verða
tveir leikir og berjast sigurvegararnir
um Islandsmeistaratitilinn.
Njarövíkingar leika gegn KR eða
Haukum, sem leika saman um næstu
helgi. Það lið sem tapar mætir
Njarðvíkingum.
Áfallið er mikið fyrir Njarðvík að
missa Val sem er nú stigahæsti leik-
maður úrvalsdeildarinnar — hefur
skorað 465 stig. emm/-SOS
STAÐAN
Staðan er nú þessi í úrvalsdeiidinni i körfu-
knattleik, þegar ein umferð er eftir: Kefla-
vík—Valur, IR—Njarðvík og KR—Haukar:
Njarðvik 19 15 4 1477-1354 30
Valur 19 10 9 1589—1503 20
KR
Haukar
ÍR
Keflavík
Stigahæstumenn:
Valur Ingimundarson, Njarðvík
Pálmar Sigurðsson, Haukum
Kristján Ágústsson, Val
Torfi Magnússon, Val
Þorsteinn Bjarnason, Kefiavík
Jón Kr. Gíslason, Keflavik
Gylfi Þorkelsson, IR
Hreinn Þorkelsson, IR
19 9 10 1399-1404 18
19 9 10 1406—1438 18
19 8 11 1502-1483 16
19 6 13 1286—1467 12
465
432
372
331
319
315
308
303
Tony Knapp — tekur hann aftur við stjórn
á að koma aftur til Islands.
Liverpool átti
rjúfð varaarii
— lan Rush tryggði „Rauða hemum” sigur, 1
Allir leikmenn Liverpooi voru að
reyna að gera eitthvað sem þeir réðu
ekki við og ofan á það bættist að ekkert
heyrðist frá hinum 39.096 áhorfendum
— þeir voru eins og það væri jarðarför
hér á Anfield Road, sagði Emlyn
Hughes, fyrrum fyrirliði Liverpool,
sem var einn af fréttamönnum BBC á
Evrópuleik Liverpool og Benfica á
Anfield Road, þegar „Rauði herinn”
vann sigur 1—0 yfir Benfica í
Evrópukeppni meistaraliða í gær-
kvöldi—8-liða úrslitum.
Mesti fögnuðurinn hjá áhorfendum
var, þegar Kenny Dalglish kom inn á
sem varamaöur — fyrir Robinson. Það
var í fyrsta skiptið sem Dalglish
kemur inn á sem varamaöur í leik á
glæsilegum keppnisferli sínum.
Leikmenn Liverpool áttu í miklum
erfiðleikum með að brjóta niður
sterkan varnarmúr Benfica, en
leikmenn portúgalska liðsins hafa
aðeins fengið á sig f jögur mörk í vetur í
Portúgal. Það var ekki fyrr en á 66.
Klempel leikur
ekki framar
með Göppingen
Stjórn v-þýska handknattleiksfé-
lagsins Göppingen tilkynnti í gær að
Pólverjinn Jerzy Klempel myndi ekki
leika meira með félaginu. Fyrir sl.
helgi barst kæra á hendur félaginu
vegna þess að forráðamenn Göppingen
hefðu borgað Kempel 100.000 mörk fyr-
ir að hann léki með því og voru það
„svartlr peningar” — borgaðir undir
borðið, þannig að þeir komu ekkl fram
í bókhaldi félagslns. Þar með er sagt
að Klempel sé orðlnn atvinnumaður í'
handknattleik og ekki gjaldgengur í v-
þýskum handknattleik.
Forráðamenn Göppingen tilkynntu
svo í gær aö þessi snjalli póiski lands-
liðsmaður, sem er aðalskytta liðsins,
myndi ekki leika meira með félaginu.
Klempel lék ekki með Göppingen
gegn Sigurði Sveinssyni og félögum
hans hjá Lemgo um sl. helgi en þann
leik vann Lemgo 25—20. Sigurður skor-1
aðifimmmörk.
-SOS
Iþrónir
(þróttir
íþróttir
(þróttir