Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1984, Síða 30
30
DV. FIMMTUDAGUR 8. MARS1984.
Mest af því sem Guðfinna selur í Versluninni Díönu er aðfengið. Sumt er þó
hennar eigin hönnun og saumaskapur, til dæmis samfestingurinn fyrir aftan
hana.
Það er byrjað smátt en stefnt hátt. Núna er Verslunin Díana í þessu litla húsi. Eitt
lítið herbergi þar verður að nægja fyrst um sinn eða þar til flutt verður í
iðngarðana. DV-myndir JBH.
Starfshópur skilar áliti:
Fíkniefnalaus
Norðurlönd
Starfshópur sem dómsmálaráðherra
skipaði fyrir hálfum öörum mánuði tii
að vinna að tiiliögum um aðgerðir gegn
innflutningi og dreifingu fíkniefna
hefurnúskiiaðáUti.
Leggur hópurinn til að stofnuð verði
sérstök deUd í dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu til að samræma aögerðir
lögreglu og toUyfirvalda í þessum
efnum. Er þetta gert í framhaldi af
þingsályktunartUlögu sem spratt af
samstarfi norrænna dómsmálaráð-
herra sem fundað hafa í tvígang með
það fyrir augum að gera Norðurlönd
að f íkniefnalausu svæöi.
Að sögn Gísla Bjömssonar hjá fíkni-
efnadeild lögreglunnar horfir margt tU
bóta í tiUögum starfshópsins. T.d. er
gert ráð fyrir að fjölga hasshundum
hér á landi og þá sérstaklega þeirri
gerð sem þjálfuð er til fikniefnaleitar í
skipum. Þeir þrír hundar sem fyrir eru
hafa ekki þá þjálfun sem nauðsynleg
er við slíkar aöstæður. Þá er gert ráð
fyrir fjölgun starfsmanna fíkniefna-
deUdarinnar og fé tU tækjakaupa.
-EIR.
Sjúkleiki i tuskur
I litlu húsi uppi í brekkunni fyrir ofan
Kaupfélag Olafsfjarðar hefur verið
komið upp verslun með fatnað og
vefnaðarvöru. Verslunin Díana á ekki
að vera þar lengi því eigandinn, Guð-
finna Svavarsdóttir, bíður eftir aö
komast í annaö og betra húsnæði í nýju
iðngörðunum sem bærinn er að
byggja. Þegar þangaö kemur er
ætlunin að setja upp saumastofu. A því
sviði er Guðfinna engrnn nýgræðingur.
„Eg er búin aö stunda saumaskap í
fjöldamörg ár og starfrækti litla
saumastofu í kjallaranum heima hjá
mér í 5 ár. Þetta gekk ekki þá svo ég
hætti en nú er ég aö starta þessu
aftur.”
Hvaðkemur til?
,,Eg fór á námskeiöið Taktu þér tak
hjá Iöntæknistofnun Islands. Þetta var
í hittiðfyrra, við vorum þrjá daga á
þriggja mánaöa fresti og höfðum mjög
gott af. Eg var meö í kollinum að fá
eitthvert verkefni við að sauma og ná
markaði fyrir þá vöru. Saumavélarnar
sem ég hef eru upp á ven juleg föt og ég
hef verið í öllum mögulegum sauma-
skap. Hingað til hefur þetta mest verið
eftir pöntunum en lítið til að hafa á
lager.
Ut úr námskeiðinu kom að eina leiðin
væri að setja upp verslun lika, ekki
bara saumastofu. Eg setti hana því
upp í október síðastliðnum. Hér eru
alls konar efni til sölu og ég hef líka
fatnað frá Kamabæ. Það hefur ekki
verið tími til að setja mínar eigin
vörur hér inn. Eg tek hins vegar sér-
pantanir fyrir fólk í að sníöa og
sauma.”
Ertu sérstaklega lærð í sauma-
skapnum?
,,Eg fór á sníðanámskeið fyrir 24
árum og eitt saumanámskeið. Það er
allt og sumt. Að öðru leyti eru þetta
meðfæddir hæfileikar, sjúkleiki í
tuskur. Líklega er ég þó á vitlausum
staö, ég heföi átt að verða tískuteikn-
ari. Það hefði verið mest gaman aö
því.”
Hvemig hefur svo reksturinn á
versluninni gengiö?
,,Hann hefur bara gengið vel það
sem komið er. Eg fór hægt af stað, með
eins lítið og ég mögulega gat og lág-
markskostnað. Eg á ekki einu sinni
peningakassa.”
Er þetta fatnaður fyrir bæði karla og
konur?
„Já, ég er með á bæði kynin. Mig
langaði til að leggja áherslu á karl-
mannafatnað en þeir em voða tregir til
að koma.”
En hvernig ætlaröu svo að hafa þetta
í iðngörðunum?
„Eg ætla að setja þar upp þessa
saumastofu og þá verð ég með smá-
verslun til að geta selt mína eigin vöm.
Þama verður ýmislegt framleitt, ég
ætla til dæmis að hafa gardínuefni,
rúmföt og yfirleitt sauma það sem
fólkið vill. Eg fæ mér eins og skot eina
manneskju til að sauma og er að vona
að við getum unnið að minnsta kosti
þr jár við þetta síðar.”
Og þú færð þá að njóta þín í hönnun-
inni.. . .
„Marga kjólana er ég búin aö móta
sjálf. Það er reyndar mesti
spenningurinn þegar einhver kemur og
segist vilja fá svona og svona og síöan
að útfæra þessar hugmyndir. Það
heldur oft fyrir mér vöku þegar ég er
að hugsa um ný snið.
-JBH/Akureyri.
Framkvæmdastjóri Tímans söðlar um:
AF TÍMANUM YFIR í THE
COCKPIT-INN í LÚXEMBORG
— Valgeir fer að brugga svartadauða
Gisli Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Tímans, hefur gengið frá
kaupum á veitingastaðnum The
Cockpit-Inn í Lúxemborg af Valgeiri
T. Sigurðssyni sem opnaöi veitinga-
staðinn fyrir nokkrum ánun. Gísli
tekur við rekstrinum þann 1. júlí í
sumar og mun Valgeir starfa þar
eitthvað áfram, eftir því sem Gísli
óskar.
„Mig hefur lengi langað til aö
flytja til útlanda og oft verið nálægt
því. Þegar ég var t.d. tæknistjóri á
Sjónvarpinu stóðu mér til boða störf
hjá sjónvarpsstöðvum á Norður-
löndum. En nú stendur þetta heppi-
lega af sér gagnvart fjölskyldunni og
hún verður með mér í rekstrinum,”
sagði Gísli, í viðtali viö DV.
Gísli fyrirhugar að halda rekstrin-
um áfram í mjög álíka mynd og hann
er nú nema hvað í vor verður hann
opnaöur út þannig að gestir geti notið
veitinga undir berum himni.
Veitingastaðurinn The Cockpit-Inn í Lúxemborg.
Aðspurður hvort hann heföi
nokkum tímann fengist við veitinga-
rekstur áður svaraði Gísli: „Eg er
einn af þessum Islendingum sem
hafa gert allt. Einu sinni rak ég
matvöruverslun þannig að ég er
vanur matvælavinnslu og meðhöndl-
un matvæla yfirleitt. ”
Valgeir hyggst nú, ásamt banda-
rískri konu sinni, einbeita sér að
ráðningarskrifstofu þeirra hjóna
fyrir flugáhafnir, auk þess sem hann
hefur tekið á leigu bruggverksmiðju
viö Moselá og ætlar þar að framleiða
„svartadauöa” og selja i Bandaríkj-
unum.
Selfoss:
Fyrsta gleraugnaverslunin
Nýlega var opnuð gleraugnaverslun
að Eyrarvegi 15 á Selfossi. Heitir hún
Opticus og er eigandi hennar Elin
Bjamadóttir, 24 ára. Elin kostaði
innréttinguna í búð sína sjálf og er hún
frá Kaupfélagi Amesinga, létt, í viðar-
lit og nýtist vel.
Mér er sagt að hér hafi ekki verið
gleraugnaverslun fýrr. Er ég hissa á
því í allri þeirri góðu þjónustu sem hér
er. Það hefur verið venjan að læknar
komi einu sinni í viku austur á Selfoss
ásamt gleraugnasala. Elín hefur á
boöstólum allar tegundir gleraugna og
linsa.
-Regína/Selfossi.
Hamrahlíðarkórinn til Japan
Þann 12. apríl nk. mun Sinfóníu-
hljómsveitin flytja Sálmasinfóniu
Stravinskís ásamt Harmahlíðar-
kórnum, sem hér sést á æfingu, undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Aö
þessu sinni er slegið saman tveim
kórum, annars vegar kór Menntaskól-
ans við Hamrahlíð, sem skipaður er
núverandi nemendum skólans, og hins-
vegar Hamrahlíðarkómum, svo-
nefndum, en hann er skipaður gömlum
nemendum skólans.
Að sögn Þorgerðar Ingólfsdóttur,
stjórnanda kórsins, liggur það næst
fyrir verkefna Hamrahliðarkórsins að
taka þátt í tónlistarhátíö í Japan, en
þangaö er kórnum boðið ásamt f jómm
öörum evrópskum kórum. Sá hængur
er á að kórinn verður að borga feröina
til Japan sjálfur og er enn ekki séð
hvernig farið verður að því, en mörg
plön uppi, að sögn Þorgeröar. Það er
vonandi að það gangi vel.
-óbg/DV-mynd Bjarnleifur.