Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Blaðsíða 17
DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984.
17
verið kjörinn flokksleiðtogi, enda gæti
hann auðveldlega lifað í 30 ár í viðbót.
Matarmenn
Ungverjar eru miklir mathákar og
hafa unun af því að boröa. A veitinga-
húsunum — sérstaklega þeim einka-
reknu .— borðar maður ljúffengan og
mikinn mat fyrir lítinn pening. Fyrir
hamborgaraverö á Islandi fær maður
finasta vínarsnitsel eða andasteik í
Budapest.
Þaö gengur reyndar stundum út í
öfgar hvað þeir vilja að maður borði
mikið. Fáðu þér meira, fáðu þér
meira, er endalaust viðkvæði. Einu
sinni er ég og ungversk vinkona mín
ætluöum að skipta á milli okkar anda-
lifur og svínahangikjöti (það bragöast
næstum alveg eins og venjulegt
íslenskt hangikjöt) urðum við að leifa
meiri hluta matarins. Einn réttur hefði
nægt fyrir tvo.
Jafnvel kokkar á skyndibitastöðum
virðast leggja virðingu sína að veði í
hvert sinn sem þeir skenkja gestum
sínum. Maður biður um pylsu og fær
ekki bara pylsuna, heldur einnig
brauð, salat og franskar kartöflur. Og
hver staður, jafnvel smæsti pylsutum
sem ég heimsótti stundum vegna fá-
tæktar, hafði sína matargerðarlist,
hvort sem það var sérstakar skorur í
pylsuna, litasamsetning gæsalifrar-
réttarins eða sérbakað brauð.
Hvort sem það er vegna matvæla-
skorts á stríðsárunum og eftir stríð eða
einhvers annars þá er engin tilviljun
að ef þú labbar inn á ungverskt bóka-
safn og flettir upp á matargerðarbók-
um þá munt þú finna um 2000 kokka-
bókatitla; alla ungverska.
Þórir Guðmundsson, Búdapest.
[hIheklahf
[j J Laugavegi 170-172 Si'mi 21240
Bændur selja afurðir sinar á markaðnum.
Götumynd úr Búdapest. Búdapest var eins gg "menn muna úr landafræði-
bókunum upphaflega tvær borgir: Buda og Pest. Buda er mjög hæðótt og
þar er frægur kastali. Pest er flöt og þar eraðalmiðbærinn.
Myndir Þó. G.
Chemenko mönnum að rétta upp
báðar hendur. Þeir sem greiddu at-
kvæði á móti sér gætu látið aöra niður.
Hvað sagði Margaret Thatcher við
Helmut Kohl þegar þau hittust við út-
för Andropovs? Hún sagði: Á sama
stað aö ári.
Ungverjar hafa aldrei getað fyrir-
gefið Andropov svik hans við Imre
Nagy sem var stjómarleiðtogi þqgar
Rússar réðust inn í Ungverjaland árið
1956. Nagy (borið fram Nádz) leitaði
skjóls i júgóslavneska sendiráðinu en
Andropov lofaöi honum griðum ef
hann kæmi út. Imre Nagy kom út en
var nær umsvifalaust keyrður í fang-
elsi og síðar hengdur. Reyndar segir
einn sjónarvottur að Nagy hafi íyrst
verið keyrður til Andropovs, sem þá
var sendiherra Sovétríkjanna í Ung-
verjalandi, og verið tekið með kostum
og kynjum í sendiherrabústaðnum.
Andropov hafi síðan horft brosandi á
eftir Imre Nagy sem hafi ekki haft
hugmynd um að það var verið að keyra
hann í svartholið.
Þess vegna em kannski sumir
Andropov-brandararnir fremur mein-
fýsnir. Og hvers vegna dó Andropov?
Imre Nagy vildi spjalla við hann
aftur.
Annars heyrði ég svolítið annað
viðhorf hér hvaö varðar elli Sovét-
leiðtoganna. „Hann hefur þá allavega
ekki tíma til að verða annar Stalín,”
sagöi einn menntamaður við mig um
Chernénko. Hann sagðist prísa sig
sælan aö Gorbachev skyldi ekki hafa