Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Blaðsíða 2
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984. 2 Kratar gefa Albert ráö gegn skattsvikum Þingmenn Alþýðuflokksins fóru á fund fjármálaráðherra í hádeginu í gær til að kynna honum tillögur flokksins um hvemig bregöast skuli við skattsvikum hér á landi. Fundur þessi var reyndar ákveðinn í sjónvarpssal þann 20. þessa mánaðar í umræöum um fjárlaga- gatið í Þingsjá. I umræðuþættinum vék Eiður að stórfelldum skattsvikum hér á landi og hugmyndum Alþýðuflokksins um hvemig ráða megi bót á þeim. I greinargerö með þingsályktunartil- lögu, sem Jóhanna Sigurðardóttir hefur lagt fram, em getgátur um aö skattsvikin geti numiö allt að 5 milljörðum króna. Albert Guðmundsson sagöi þá að rétt væri aö Eiður kæmi til hans í ráðuneytið og kynnti honum þessar tillögur. Eiður tók ráðherrann á orðinu og fór fundur þeirra fram á skrifstofu ráðherrans í gær. I tillögunum, sem ráðherrann fékk, segir aö byrja verði á því að gera sér grein fyrir umfangi skatt- svika hér á landi miðaö við upplýsingar um þjóöartekjur annars vegar og hins vegar framtaldar tekjur í skattframtölum. Bent er á að söluskattur sé ein helsta tekjulind ríkisins en það orð leiki á aö hann skili sér illa. Telja þingmennimir fullvíst að stórhert eftirlit meö innheimtu söluskatts geti skilað mjög auknum tekjum til ríkisins. Þá telja þeir nauðsynlegt að stofna sér- deild við Sakadóm Reykjavikur eða sérdómstól sem heföi það verkefni að fjalla um skattsvik, bókhaldsbrot og annaðþvískylt. I tillögunum segir ennfremur að breyta þurfi lögum um tekjuskatt og eignaskatt og framtalsreglum til að tryggja áreiöanlegri upplýsingar um fyrirtæki og einstaklinga í at- vinnurekstri. I því sambandi er lögð áhersla á aö endurskoöa þurfi frá- drátt vegna risnukostnaðar, bíla- fríðinda og afskrifta. Veita verður auknu f jármagni til skattaathugana, einkum ríkisskattstjóraembættisins, til aö ráöa sérhæfðan mannafla þannig að taka megi til ítarlegrar rannsóknar aö minnsta kosti 10 til 20% af skattframtölum fyrirtækja og einstaklinga í atvinnurekstri á ári hverju. „Margir hafa fyrir augum dæmi um einstaklinga sem berast stórlega mikið á en greiöa jafnframt litla skatta. Þetta þekkja allir. Skatt- rannsóknadeild þarf að geta rannsakað slík ölvik, jafiivel eftir ábendingum frá almenningi” segir orðrétt í tillögunum sem þing- mennimir afhentu fjármála- ráðherra. -OEF. Albert Guðmundson f jármálaráðherra les tillögur Alþýðuflokksins um aðgerðir gegn skattsvikum sem hann óskaði eftir í umræðuþættinum Þingsjá í siðustu viku. Jóhanna Sigurðardóttir og Eiður Guðnason standa hjá, albúin til frekari útskýringa. DV-mynd EO. Guðlaugur Friðþórsson. Hann liggur enn á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyj- Guðlaugi boðsd til New York Guðlaugur Friðþórsson, sjómaður- inn sem á ótrúlegan hátt bjargaði sér á sundi fyrr í þessum mánuöi, hefur fengiö tvær boðsferðir til New York. Bæöi Flugleiðir og Morgunblaðið hafa boðið honum þangaö. Astæðan er sú aö í viötali sagði Guðlaugur aö á hinu langa sundi sínu hefði hann meöal annars hugsaö um New York-ferð sem hann og félagar hans hefðu verið að spá í. Segist Guðlaugur hafa hugsað að ótækt væri að hann dræpist áður en hann kæmist tilNýju Jórvíkur. „Guölaugur er þakklátur fyrir þessi boð,” sagði móðir hans, Margrét Karlsdóttir, í samtali við DV í gær- Kvaðst hún telja líklegt að þessi tvö boö yrðu sameinuð í eina ferð. Hún sagði son sinn ekki búinn að ákveða hvenær hann færi. „Hann er ennþá á sjúkrahúsinu. Viö vitum ekki hvenær hann fær að fara heim. Honum líður frekar illa í fótunum. Þetta eru svo djúp sár,” sagði Margrét. -KMU. SAMANBUEtÐUR Á LAUNAKJÖRUM KARLA OG KVENNA Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra lýsti því yfir á Alþingi á þriöjudag að hann væri tilbúinn að beita sér fyrir því að fram færi samanburðarathugun á launakjörum karla og kvenna. Sagöi Steingrímur að hann myndi leggja til viö ríkisstjórn aö veitt yrði aukafjárveiting til slíkrar könnunar. Tilefni þessarar yfirlýsingar var fyrirspum frá Jóhönnu Sigurðar- dóttur, þingmanni Alþýðuflokksins. Sagði Steingrímur að svo víðtæk könnun myndi kosta mikla fjármuni og benti á til samanburðar að láglauna- könnun kjararannsóknarnefndar hefði kostað tæplega 400 þúsund. -ÓEF. Skaftamálið: „Meiðsl Skafta honum sjálfum að kenna” —sagði Jón Oddsson meðal annars í vamarræðu sinni Frá réttarhöldunum í gær. Jón Oddsson, annar verjendanna, flytur mál sitt. Gegnt honum situr Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari og á milli þeirra Sverrir Einarsson dómari. Hinn verjandinn, Guðni Haraldsson, situr hægra megin við Jón og við hlið hans lögreglumennirnir þrír sem ákærðir eru í málinu. DV-mynd EO Handtaka Skafta Jónssonar var rökrétt afleiðing framkomu hans við starfsfólk Þjóöleikhúskjallarans. Hann hafði í hótunum viö stúlkur í fatageymslu, réðst fólskulega á dyravörö að tilefnislausu og einnig á lögreglumenn. Meiðsl þau sem hann hlaut eru tilkomin vegna mótspymu hans viö flutning í lögreglubíl og því honum sjálfum að kenna. Þetta voru meginniðurstööur vamarræöu Jóns Oddssonar, lög- manns Guðmundar Baldurssonar lögreglumanns, við áframhaldandi málflutning í Skaftamálinu svonefnda í sakadómi í gær. Verjandi hafnaði alfariö öllum sakargiftum á hendur skjólstæðingi sínum og taldi ákæm saksóknara út í bláinn. Og ekki væri annað aö sjá en aðmál þetta væri rekiðfyrir blöðin. Skaöabótakröfum Skafta var algerlega hafnað og krafðist verjandi þess að þeim yrði vísaö frá enda furöulegustu skaðabótakröfur sem um gæti og þær það vitlausasta plagg sem um gæti í íslenskri réttar- sögu. Mistök í fatageymslu I ræðu sinni reifaði Jón málið frá upphafi og þar kom meðal annars fram að vegna mistaka heföu yfir- hafnir Skafta og konu hans ekki fundist í fatageymslu þegar þeirra var vitjaö. Þessi mistök hefðu hins vegar framkallað þau viöbrögð hjá Skafta að hann vændi starfsstúlkur þar um þjófnað og hafði í hótunum við þær. Onnur þeirra hefði því vegna hræðslu við Skafta látið undan þeirri kröfu hans að fá að fara inn fyrir afgreiðsluborðið til að leita að yfirhöfnunum. Skömmu síðar fer hún þó fram á þaö viö Skafta að hann fari aftur fram fyrir borðið en hann neitar því. Stúlkan leitar þá eftir aðstoð og dyravörður kemur. Skafti heldur því fram að dyra- vörðurinn hafi komið ruddalega fram við sig og þrifið til sín og hent sér yfir afgreiðsluboröið. Þessa staðhæfingu telur Jón Oddsson mjög hæpna þegar tillit sé tekið til þess að Skafti sé 195 sentímetrar á hæð og 99 kíló aö þyngd. Staðreyndin sé hins vegar sú að dyravöröurinn hafi beðið Skafta kurteislega að koma fram fyrir en því hafi Skafti svaraö með ókvæðis- oröum. Hann hafi síöan að tilefnis- lausu ráðist á dyravörðinn og veitt honum áverka og rifið föt hans. Skafti hættulegur umhverfinu Og það er nú sem lögregla er kvödd á staðinn og þangað komin hittir hún fýrir dyravöröinn illa á sig kominn. Hann fer með lögreglumennina niöur í kjallarann og bendir þeim á Skafta og segir þennan mann hafa ráöist á sig. Lögreglumennimir hafi taliö það ómögulegt að ræöa við Skafta þama niðri í kjallaranum, bæði vegna há- vaða og múgæsingar fólks á staðnum. Hafi þeir því beðið Skafta að koma með sér en hann neitað þrátt fyrir að honum beri aö gera svo samkvæmt lögreglusamþykkt. Skafti hafi þessu næst ráöist aö dyraverðinum á ný og slegiö hann. Lögreglumennirnir hafi gripið til Skafta og hann þá ærst. Upphófust átök milli hans og lög- reglumannanna sem enduöu með því að Skafti var handjárnaður enda það það eina sem hægt var að gera vegna vanstillingar hans. Handtakan hafi því veriö nauösynleg vegna þeirrar hættu sem umhverfinu stafaði af Skafta. Jón benti á það aö allur vitnis- burður sannaði að viðbrögð lögreglunnar í málinu hefðu verið mjög ábyrg og þau einu réttu. Viðbrögð hennar heföu ekki verið harkalegri en framkoma Skafta gaf tilefni til. Og ekkert hefði komið fram sem benti til að framkoma lögreglunnar hefði verið óeðlileg á neinn hátt. Misþyrmingarnar tilbúningur einn Um meiðsli Skafta hafði Jón það að segja að vegna þess að Skafti hefði brotist um á hæl og hnakka þegar lögreglumennirnir voru að flytja hann út í lögreglubílinn hefði hann dottið, enda hált úti. Þaö sé eina hugsanlega ástæðan fyrir meiðslum Skafta. Þar sé hins vegar við hann sjálfan að sakast en ekki lög- reglumennina. Þeir hafi aftur á móti með ábyrgum viðbrögðum komið í veg fyrir að Skafti ynni sjálfum sér meiratjón enþegarvarorðið. Fullyrðingum Skafta um að höföi hans hefði verið slegiö hvaö eftir annað viö gólf bílsins á leið á lögreglustöð vísaði Jón á bug sem lygaþvælu. Meiðsli Skafta sýndu það að þau væru eftir eitt högg, þau hefðu orðið miklu meiri og alvarlegri ef fullyrðingar Skafta væru réttar. Skafti hefði enga áverka hlotið í bílnum, það væri sannað mál. Máli sínu til stuönings nefndi Jón þaö sem einnig kom fram í ræöu vararíkissaksóknara, Braga Steinarssonar, í fyrradag aö ásakanir Skafta og konu hans um misþyrmingar í bílnum hefðu ekki komið fram fyrr en eftir að búið var að sleppa Skafta úr haldi. Þær væru tilbúningureinn. -SþS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.