Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Blaðsíða 24
24. DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984. íþróttir Roland Wohllarth — til Bayem. Bayern kaupir miðherja Bayera Miinchen heldur áfram að kaupa leikmenn til að reyna að fylla skarðið sem Karl-Heinz Rummenigge skilur eftir sig. Bayern hefur boðið Duisburg tvær milljónir marka fyrir miðherja liösins, unglinga- landsliösmanninn Roland Wohlfarth. Hann hefur verið mjög i sviösljósiuu hjá Duisburg í vetur og skorað 20 mörk fyrir liðið í 2. dcildinni. Talið er öruggt að hann fari til Bayera. -hsim. Bretar herða eftirlitið vegna lyfjanotkunar íþróttafólks Bretar hafa ákveðið að herða mjög eftirlit vegna iyfjanotkunar íþróttamanna. Lyfja- próf hafa aðeins verið framkvæmd á stærri mótum þar en nú hefur verið ákveðið að hægt sé að framkvæma lyfjapróf hvenær sem er. Það þýðir að læknar lyfjanefnd- arinnar bresku geta komið fyrirvaralaust til íþróttafólks og krafist að það fari i lyf japróf. -hsím. Markvörðurinn het ja Pólverja Markvöröur Póllands, Jozef Mlynarczyk, átti frábæran lelk í markinu, þegar Sviss og PóIIand gerðu jafntefli í vináttulaudsleik í knattspyrnu í Ziirich í fyrrakvöld. Zbigniew Boniek (Juventus) náði forustu fyrir Pólland á 23. min. Sendi knöttinn í markið af stuttu færi eftir að markvörður Svíss hafði varið en misst frá sér knöttinn. Eftir það var nær stanslaus sókn Svisslcndinga en þcim tókst ekki að koma knettinum í markið fyrr en á 79. mín. Herbert Hermann skoraði en á- horfendur voru farnir að halda að ekki væri hægt að skora hjá Mlynarczyk. Aberdeen -hsím. í undanúrslit Aberdeen sigraði Dundee Utd. í skosku bikarkeppninni 1—0 í Dundee í gær og tryggði sér þar meö sæti í undanúrsUtum keppninnar. Mark McGhee skoraði cina mark Ieiksins á þriðju min. I undanúrslitum leikur Aberdeen við Dundec. I skosku úr- valsdeiidinni tapaði Motherwell 2—4 á hcimaveili fyrir Dundee og skoraði þó tvö fyrstu mörk leiksins. Motherwell er nú nær örugglcga fallið í 1. deild. hsím. Ensku strákamir sigruðu aftur Enska landsliðiö, leikmenn 21 árs og yngrl, sigraði Frakkland í gær 1—0 í Rouen í síðari leik landanna. Mark Hateley skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrau. England vann samanlagt 7—1 i báöum leikjum og mætir nær örugglega Italíu í undanúrsUtum Evrópukeppninnar. hsím. Sigur Newcastle Newcastle færðist nær efstu Uðunum, Chelsea og Sheff. Wed., í ensku 2. deUdinni í gærkvöld. Sigraði þá Leeds á heimaveUi 1— 0 og það var sjálfsmark Irwine sem gerði út um leikinn. Iþróttir (þróttir (þróttir (þróttir Miklar kröf ur gerðar til ísl. lyftingamanna: Þurfa að bæta Norðurla met til að ná lágmörkui „Einlægur ásetningur ísl. ólympíunefndarinnar að útiloka lyftingamenn f rá ól og heimsmeistarakeppninni,” segir Birgir Borgþórsson „Þetta eru hreint ótrúlegar tölur sem ólympíunefndin setur sem lág- mörk fyrir ol-leikina í Los Angeles. Það virðist vera einlægur ásetningur þeirra manna sem íslensku nefndina skipa að útiloka okkur frá ólympíuleik- unum,” sagði Birgir Borgþórsson Iyftingamaður í samtali við DV í gær. Mikil óánægja ríkir nú meöal lyft- ingamanna vegna þess aö íslenska ólympíunefndin hefur stórhækkað ÖU lágmörk alþjóðlegu ol-nefndarinnar. „Og þaö er ekki nóg með að við séum útUokaðir frá ólympíuleikunum. Heimsmeistaramót lyftingamanna er sameinaö ólympíuleikum þegar þeir fara fram og þess vegna finnst okkur þessi framkoma enn hastarlegri. Við getum litið gert i þessu máli. Við fórum á fund ol-nefndar og þar kom fram í máli manna að það er ætlun þessara höfðingja að standa fastir á þessum fáránlegu tölum,” sagði Birgir. I það minnsta fjórir íslenskir lyftingamenn hafa þegar náö lágmarki alþjóðlegu ol-nefndarinnar. I 75 kg flokki er alþjóölega lágmarkiö 295 kg. Haraldur Olafsson frá Akureyri hefur lyft þeirri þyngd. Lágmark íslensku nefndarinnar er hins vegar 315 kg en Norðurlandametið í þessum flokki er 330 kg. I 90 kg flokki er alþjóðalág- markiö 315 kg en íslenska lágmarkið 360 kg. NL-metið er 357,5 kg. Baldur Borgþórsson og Garðar Gíslason hafa báðir lyft vel yfir alþjóöalágmarkið. Alþjóölega lágmarkiö i 100 kg flokki er 325 kg, íslenska lágmarkið 375 kg og NL-metið 365 kg. Birgir Borgþórsson á best 345 kg í þessum flokki en lyfti á síöasta móti 330 kg, sem sagt vel yfir alþjóðalágmarkinu. Þess má geta að [ íþróttir einnig bls. 22 og 23 Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri ISÍ og fyrrum alþingismaður. ,,Mun aldrei biðjast afsökunar” — segir Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ „Mér er það alveg ljóst að lyft- ingamönnum er ekki beint vel við mig þessa dagana. Það er alveg öruggt mál að ég mun ekki biðjast afsökunar á einu eða neinu sem ég hef sagt eða skrifað,” sagði Her- mann Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri fSÍ, í viðtali við DV ígær. „Ef þessir ágætu menn hafa áhuga á því að fara í mál við mig þá þeir um það. Ég mun taka því eins og hverjum öðrum hlut, þegar þar að kemur,” sagði Her- mann. -SK. Rússaránægðir Rússar voru mjög ánægðir með leik íslenska landsliðsins í handknattleik er þeir voru hér á ferð fyrir nokkrum dögum. Þeir létu ánægju sína í ljós með því að bjóða íslenska landsliðinu í æfingabúðir í Tiblisi í byrjun árs 1985, eða rétt fyrir B-keppnina sem hefst þann 19. febrúar. NL-metiö, 365 kg, gaf sjöunda til átt- unda sæti á síðasta heimsmeistara- móti, þar sem keppendur voru rúmlega20. „Krefjast þátttöku á EM" „Þá má þaö líka koma fram,” sagði Birgir, ,,að íslenska ol-nefndin hefur krafist þess að við tökum þátt í Evrópumóti lyftingamanna sem fram fer í apríl. Þeir hafa ekki krafist þess af neinum öðrum íþróttamönnum að þeir tækju þátt í einhverju sérstöku stórmóti til að sýna fram á að viö- komandi íþróttamenn gætu náð ol-lág- markinu. Þarna er enn vegið að okkur á hinn harkalegasta hátt,” sagði Birgir Borgþórsson. Stefna lyfting; framkvæmdastj — „Kref jumst þess að hann biðjist afsö sínum í okkar garð/’ segja lyfl „Við höfum farið þess á leit við Her- mann Guðmundsson, framkvæmda- stjóra ISI, að hann biðjist afsökunar á niðrandi og ósönnum ummælum í okkar garð og eins níðskrifum í Tíman- um,” sagði frammámaður í lyftinga- sambandinu í samtali við DV í gær. „Ef Hermann fellst ekki á þessa beiðni okkar, gæti svo farið að við neyddumst til að stefna manninum. Við getum ekki setið undir þessum róg- burði,” sagði viðmælandi okkar. „Það var ætlun okkar að taka þátt í Sweden Cup, sterku lyftingamóti, en við urðum að hætta við þáttöku nokkra fyrir mótið vegna meiðsla. Hermann hefur gefið ýmislegt miður skemmti- legt í skyn og meðal annars það að við SA FJOI þrumuf leygur Souness „Liverpool átti í vök að verjast framan af en eftir því sem leið á leik- inn sögðu nákvæmar sendingar leik- mnnna Liverpool til sín. Þeir náðu yfir- höndinni en það sem skipti sköpum var Hrubesch skoraði þrjú Frá Kristjáni Bernburg, fréttaritara DVíBelgíu: Horst Hrubech var svo sannarlega í sviðsljósinu í gærkvöldi er leikið var í undanúrslitum belgísku bikarkeppn- innar í knattspyrau. Liðið sem Hrubesch leikur með, Standard Liege, mætti Beveren og sigraði Standard með þremur mörkum gegn engu og skoraði Hrubesch öll mörk Standard. Hann hefði auðveld- lega getað skorað fleiri mörk í leiknum en lét markvörð Beveren meðal annars verja frá sér vítaspyrau. Þessi sigur Standard er enn athyglisverðari fyrir þær sakir að leikmenn liðsins léku aðeins 10 í síðari hálfleik, Poel var vikið af leikvelli á síðustu minútu fyrri hálfleiks. Það var Höness sem skoraði mark Beveren. 1 hinum undanúrslitaleiknum léku Gent og Lierse og sigraði Lierse 1—0 en þurfti að vinna 2—0 til að komast í úrslitin. Það var langt frá því að það tækist, svo daufir voru leikmenn Lierse í leiknum. Marc Meartens skor- aði sigurmarkið fyrir Lierse. Það verða því Standard Liege og Gent sem leika til úrslita um belgíska bikarinn og fer leikurinn fram þann 5. maí. -SK. þegar Everton misnotaði auðvelt færi í byrjun síðari hálfleiks. Það var glat- aðasta tækifæri lciktimabilsins. Liver- pool verðskuldaði sigur en þetta eru ekki lokin hjá þessu Everton-liði, heldur byrjunin,” sagði gamli kappinn Tommy Docherty, eftir að Liverpool sigraði Everton 1—0 í úrslitaleik Milk Cup á Maine Road í Manchester í gær- kvöldi. Fjórði sigur Liverpool í þessari keppni i röð, fyrsti deildabikaraum, síðan mjólkurbikarnum og það eru engin smálið sem Liverpool hefur lagt. Fyrst West Ham, þá Tottenham og Man. Utd. og nú Everton i úrslitaleikj- unum. Leikurinn i gærkvöld var að mörgu leyti betri en úrslitaleikur lið- anna sl. sunnudag á Wembley sem sýndur var beint i sjónvarpinu. „Þegar á heildina er litið var sigur okkar verðskuldaður,”sagði Graeme Souness, fyrirliði Liverpool, skömmu eftir að hann hafði tekið við bikarnum mikla, Milk Cup, í gær og Liverpool vann gripinn til eignar. Þriðji sigurinn í röð í mjólkurbikarnum. Og Souness verðskuldaði vissulega að taka á móti bikarnum. Var besti maður á vellinum og skoraöi eina mark leiksins. Það var á 22. min. Rétt áður hafði Bruce Grobbelaar varið frá- bærlega vel frá Peter Reed, þrumu- fleygur Evertonleikmannsins. Knött- urinn barst inn á vallarhelming Everton. Souness fékk knöttinn 25 metra frá marki, sneri sér snöggt og sendi knöttinn beint í mark Everton. Mjög óvænt „en frábært mark,” sagði Docherty, sem var meðal fréttamanna BBC. „Southall sá knöttinn illa vegna varnarmanna en hann var þó aUt of seinn að átta sig,” sagði Peter Jones, íþróttir (þróttir íþróttir íþró

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.