Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Blaðsíða 11
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984. 11 Er punktamatskerfið úr sögunni EKKIHÆGT AÐ TAKA UPP GÖMUIVINNUBRÖCBIN AFTUR - segirJónas Bjamason, framkvæmdastjórí Framleiöslueftiríits sjávarafurða — Er punktakerfið nýtt mat, hert mat eða samræmt mat? „Viö höfum tekið upp svokallaö punktakerfi til aö ná fram samræm- ingu. Þetta er spuming um aðferöa- fræði sem haföi þaö aö markmiði aö matiö yröi ekki strangara eöa linara en áöur. Meö punktakerfi er hægt aö ná nánast hvaöa markmiöi sem er. Þaö er hægt aö hafa þaö linara, strangara en auk þess er hægt aö sigla sama kúrs og áður, eins og viö teljum okkur hafa gert.” — Þýðir þetta að punktakerfið sé enn ígangi? „Það hefur veriö tekið upp og þegar menn eru búnir að læra svona aðferða- fræöi, þá leggja menn hana ekki niður frá einum degi til annars. Hún er meira og minna þvingandi. Þaö er ekki hægtaðleggja hana í sjálfu sér niður, jafnvel þótt við fyrirskipuðum aö nú ætti að vinna eins og áöur. Þaö myndi ekki heppnast nema í fáum tilvikum.” — Fela fyrirmæli ráðherra til þín ekki í sér að það eigi að hverfa til þeirra vinnubragða sem áður voru við- höfð? „Við stígum eitt skref til baka aftur í febrúar, til þess ástands sem ríkti þá. Við stígum eitt skref til baka á fram- farabraut til samræmds mats, en við getum ekki snúið klukkunni við til þess handahófs sem ríkti víða áöur. I febrúar vorum vtð í miðjum klíöum. Þá voru menn búnir að sækja nám- skeið þar sem þeim voru kennd þessi nýjuvinnubrögðognotuðuþau tilhliö- s jónar. Fylltu út nýju matsgögnin inn á mUli. En um leið og menn eru farnir að gera það eru þeir búnir að fá nokkurs konar stjómarskrá í hendumar sem þeir stiUa sig af með.” — Þýðir tUskipun ráðherra þá ekki skref alveg aftur til gamla handahófs- kerfislns? „Það er ekki hægt. Við notum nýju matsgögnin nú aðeins til hUðsjónar af ogtil.” — Fólst þú ekki matsmönnum að meta eftir nýja kerfinu í byrjun þessa mánaðar? „Eg fól þeim að senda útfyUtan matsUsta meö nýju aöferðinni með hverjum matsUsta sem fylgigagn með gömlu matsnótunni.” — Margir hafa túlkað þetta bréf þitt til matsmanna á þann hátt að 1. mars hafi punktakerfið átt að veröa ráðandi en ekki tU hUðsjónar og ýmsir fóru að meta eftir því. „Það er ekki furöa þótt menn geti misskiliö þetta. Þetta er flókið og við- kvæmt fagmál. Mín fyrirmæU á nám- skeiöinu meö matsmönnum voru þau að þetta nýja kerfi ætti ekki aö vera strangara eða veikara, heldur sam- ræmingartæki. Það þýðir að sjálfsögðu að með samræmingu breytist eitthvað hjá þeim matsmönnum sem voru ekki inni á réttri línu. Niðurstöður annarra eiga ekki að breytast neitt. Eg held að meirUiluti matsmanna geti staöfest að niðurstöður þeirra hafi ekki breyst með nýju matsaðferðinni. Við lítum á punktakerfiö sem starfs- leiðbeiningar til aö fyUa upp í þær eyð- ur sem reglugerðirnar skilja eftir. Menn rugla saman reglum sem eru stíf vinnufyrirmæU fyrir okkur og hins vegar því svigrúmi sem við höfum innan þeirra. Við vorum vissir um að viö hefðum ekki leyfi til að breyta verðlagningarforsendum. Þetta er aðeins önnur aðferð við sama verkefni innan sama regluramma. Því er það af og frá að við höfum brotið reglur með þessu, eins og við höfum verið sakaðir um.” — Var ekki vanhugsað að fara að hræra í fiskmatinu einmitt núna? Við síðustu fiskverðsákvörðun var nýjum aðferðum hafnað, nefnd er enn að vinna að reglugerðarbreytingum fyrir ferskfiskmatið og svo eru menn nýbún- ir að fá yfir sig kvótana og horfa fram á rýrnandi afkomu? „Meö sambærdegum rökum má segja að tíminn sé vel til fallinn, nú verði að hreinsa til í þessum málum. Þetta er viðkvæmur tími. Minnkandi afli kemur við pyngju manna. En þaö gerðist einmitt núna að nokkrir farmar komu illa út í mati og í fljótræði sínu töldu menn að hér væri um strangara mat aö ræöa. Það er búið að rýna vel í þessa farma, matið átti sínar eðlilegu skýringar og því var ekkibreytt. Þetta kveikti í öllu um sinn, en nú eru menn að róast þótt nokkur púðurreyk- ur svífi enn yfir vötnunum.” — Var ekkl ástæða til að bíða eftir að nefndin, sem er að endurskoða mats- reglugerðirnar, skilaði sínum hug- myndum og var nokkurt tillit tekið tii þeirra tillagna sem hún hefur þegar látið frá sér? „Það er um að ræða reglugerðar- breytingar og ég á von á nokkuö rót- tækum tillögum frá nefndinni. Þar er verið að fjalla um breytingar, sem geta breytt verðlagsforsendum, en við erum eingöngu aö búa til innanhúss- reglur. Menn hafa blandaö þessu tvennu saman og úr því hefur orðið verulegur misskilningur. Hann hefur valdið harkalegri um- ræðu sem mig hefur á stundum sviðið undan. En það hefur orðiö breyting nú síðustu dagana. Eg hef fengið fjölda- margar upphringingar frá sjómönn- um, útgerðarmönnum og matsmönn- um þar sem við höfum verið hvattir til að halda áfram á þessari braut vegna þess að þeir telja að verulegar endur- bætur muni nást í mati með þessum að- ferðum. Eg er þeim mjög þakklátur. Umræðan er orðin mun málefnalegri núna. Við munum halda áfram að safna gögnum með tiiraunamati við hliðina á eldra matinu út þetta verð- tímabil og síðan verður hægt að nota þær upplýsingar til að grundvalla ein- hverjar breytingar á.” — Túlkur þú þessa gagnrýni sjómanna og útvegsmanna og tilskrif ráðherra ekki sem vantraust á þig og þittkerfi? „Nei, ég tel það alls ekki. Hefði ráð- herra aftur á móti haldiö því fram að við hefðum farið út fyrir okkar heim- ildir eða reglur, hefði ég álitið það vantraust. Málið er viðkvæmt þar sem matsniöurstaöa er grundvöllur verð- lagningar. Verðlagsráð sjávarútvegsins býr ekki til okkar starfsreglur. Ráðherra og hans starfsmenn hafa gefið ráðinu vilyrði og jafnframt látið því í té ein- hverjar upplýsingar sem ráðsmenn hafa misskilið en viö töldum ekki binda okkar hendur á þessum leiðum.” — Hvernig má það vera að ef hiö nýja punktakerfi rýrir ekki hlut út- gerða og sjómanna aö fulltrúar þeirra hafa brugðist svo harkaiega við því og ráðherra hefur skipað þér að faUa frá notkun þess? Ertu með þessu að segja að þeir skUji hreinlega ekki málið? „Mjög fáir skilja svona flókið mál alveg niöur í botn, það er erfitt að túlka þetta mál í fáum orðum. Eg er ekki að segja að ráðherra hafi ekki skilið mál- ið, en hins vegar er augljóst mál að hann getur ekki sett sig niður í smá- atriði í tengslum við vinnubrögð. Hann skipaði okkur ekki að hverfa til gamla tímans, heldur ítrekar hann að við eigum að hverfa til sama forms og var í febrúar og í bréfi hans kemur fram að honum er kunnugt um að við teljum að um misskilning sé að ræöa á milli okkar og ráðuneytis. Misskiln- ingurinn er upplýstur núna, en hann varum sinn.” — Meinarðu að ráðherra myndi ekki senda þér sams konar bréf í dag og hann sendi þér fyrir nokkrum dögum? „Það get ég alls ekki fullyrt um, en þetta bréf var ekki það skipunarbréf sem látiö hefur verið af. En við getum ekki snúið klukkunni við til fortíðar, þaö erútilokað.” — Lést þú ráðuneytinu í té upplýs- ingar sem sýndu óyggjandi að hið nýja mat rýrði ekki afkomu s jómanna? „Eg lagði ráðuneytinu í té upplýsing- ar um niðurstöðu á mati á netabátum frá þremur höfnum núna í mars, born- ar saman við niðurstööur af sömu bát- um frá sömu höfnum á sama tíma í fyrra. Þessar tölur sýna að það er meira í fyrsta flokki nú en í fyrra og minna fer í úrkast. Eg hef þá trú að landaður afli hafi batnað, ekki af þvi að nýjar matsreglur séu linari, það var ekki markmiðið heldur. Við höfum auk þess upplýsingar um togarana sem sýna að í öllum aðalatriðum erum við meö sams konar tölur og í fyrra.” — Fékk ráðherra þessar upplýsingar áður en hann skrifaði bréfið til þin? „Eg held að hann hafi aðeins verið búinn að fá hluta þessara upplýsinga munnlega frá mér, en staðan var hon- um mjög erfið. Menn töldu það eftir æsifregnum að við værum að heröa matið. I tengslum við vilyrði, sem ráðuneytiö hefur gefið hagsmunaaðil- um við verðákvörðun í byrjun febrúar, kann það að vera réttlætanlegt aö koma með þessi tilmæli til okkar. En okkur var aldrei skýrt frá þessum vil- yrðum.” — Hvað veidur því að nýjar aðferðir eru teknar upp í kjölfar ótvíræðs vil- yrðis ráðherra við Verðlagsráð þess efnis að svo verði ekki gert? „I fyrsta lagi fékk ég aldrei slík skilaboð frá Verðlagsráði. I öðru lagi tel ég það alls ekki í verkahring Verð- lagsráðs að stjórna því hvort viö bæt- um okkar vinnubrögö inn á viö eða ekki. Við metum. Þeir eiga síðan að taka matsniöurstöðurnar og verð- leggja fiskinn eftir þeim. Þetta er spurning um hænuna og eggið, hvort kemur á undan: Nýjar matsreglur eða verðlagning.” — En þú hlýtur að hafa vitað af þessu þótt þú hafir ekki fengið formiega tilkynningu um það? Þetta kom fram í biaða- og útvarpsfréttum. „Nú ert þú að tala um vinnubrögð en þaö sem rætt var um í þessum vilyrð- um voru breyttar reglur. Nýjar reglur hafa það að markmiði að breyta mats- forsendum, nýjar vinnuaðferðir hafa það ekki. Vinnuaðferðir okkar eru ekk- ert á dagskrá hjá Verðlagsráöi, hreint alls ekkert. Hafi eitthvert samkomu- lag verið gert þar um okkar vinnu- brögð ættu þeir að geta framvísað ein- hverju bréfi um það til okkar, en það er ekki til. Hins vegar mættum við Sigurður Haraldsson á nokkra Verðlagsráös- fundi þar sem við vorum aö viðra margar tillögur og hugmyndir um hvernig hægt væri aö breyta hlutum. Þetta voru tölvukeyrðar hugmyndir til að sýna fram á hvers megnugt punkta- kerfið væri í raun. Menn tóku þessu af töluverðri tortryggni. Sumir virtust ekki alveg skynja hvað um var að ræða og hugsanlegt er að einhverjir hafi ver- ið hræddir við verkfærið sjálft. Þarna var ekkert samkomulag gert um aö við breyttum ekki okkar vinnubrögð- um.” — Er þetta mál kannske farið að hita eitthvað undir stólnum hjá þér? „Eg hef sagt það margsinnis niðri í ráðuneyti að mér sé mjög annt um þennan málstað, en mér er ekkert mjög annt um þennan stól sem ég sit í. Ef ég þjóna þessum málstaö betur meö að flytja mig úr stólnum, þá er hann mér ekkert trúaratriði. ’ ’ -HERB/-GS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.