Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Blaðsíða 10
10
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
BEGINS í KOSNINGUNUM
WEIZMAN GEIUR SEn
STRIK í REIKNINGINN
Gunnlaugur A. Jónsson
Ákvörðunar f orsætisráðherrans f yrrverandi beðið með ef tirvæntingu:
VONAST EFTIR ÞÁTTTÖKU
— þrátt fyrir að hann haf i ekki sést á almannaf æri í sjö mánuði
Nýttframboð
miðjumanna í
kosningunum
íísrael:
Kosningabaráttan í Israel er hafin
af fullumkrafti.
Búast má viö haröri baráttu í
kosningunum og nýtt framboð kann
að setja strik á reikninginn. Ezer
Weizman, fyrrverandi vamarmáia-
ráðherra, hefur nefnilega lýst því
yfir að hann muni vera í fyrirsvari
fyrir nýjan miöjuflokk sem nú býður
fram í fyrsta sinn.
Ahrifin vegna þessarar óvæntu
yfirlýsingar Weizman í sjónvarpinu
létu ekki á sér standa. Fjölmiölar
tóku þegar aö velta fyrir sér mögu-
leikum þessa nýja flokks og stóru
fylkingamar tvær, Likud-bandalagið
og Verkamannaflokkurinn, tóku
þegar að senda frá sér tauga-
veiklunarkenndar yfirlýsingar sem
áttu að sýna fram á að fylkingarnar
heföu ekki neina ástæðu til að óttast
Weizman.
En Weizman lætur ekki telja úr sér
kjarkinn við það eitt að and-
stæðingar hans spá honum hrakför-
um. Og allir þeir sem sáu hann og
heyröu í sjónvarpinu á dögunum
urðu að viðurkenna að hann hefur
Þó að Menachem Begin, fyrr-
verandi forsætisráöherra Israels,
hafi nú gerst einsetumaður og hafi
ekki sést á almannafæri síöustu sjö
mánuði þá eru Israelsmenn engan
veginn hættir að hugsa um hann.
Sú staðreynd að hann mætti ekki í
þingiö í sí justu viku til að greiða at-
kv.ði um hvort nýjar kosningar
' yldu fara fram komu af stað
/angaveltum um hvort hann myndi
segja af sér þingmennsku eftir að
hafa gegnt henni í 36 ár eða hvort
hugsanlegt væri að hann sneri sér að
stjómmálum á nýjan leik.
Begin, sem er sjötíu ára, sagöi af
sér embætti forsætisráðherra síðast-
liðinn september og lýsti því þá yfir
að hann „gæti ekki meira”. Að-
stoðarmenn hans sögðu að hann væri
niðurbrotinn vegna fráfalls konu
sinnar og stööugs mannfalls í herliði
Israels í Líbanon.
Hann hélt þó þingsæti sínu þrátt
fyrir að hann byðist síðar til að af-
sala sér því. Flokksbræður hans í
Herut-flokknum vildu ekki fallast á
þaöboð hans.
Reiknaö var meö að Begin léti sig
ekki vanta þegar atkvæöi var greitt
um hvort leysa skyldi þingið upp. En
þegar ljóst var orðiö aö atkvæði hans
myndi engu breyta ákvað hann aö
sitja heima. Stjórn Likudbandalags-
ins undir forsæti Yitzhak Shamir
beið lægri hlut. Atkvæðatölurnar í
120 sæta þinginu urðu 61—58
stjómarandstæðingum í vil.
Nú þegar ljóst er að kosningar
verða haldnar í ár er beðið eftir því
með eftirvæntingu hver næsti leikur
Begins verður. Allir flokkar viður-
kenna að lýðhylli Begins og ræðu-
snilli kæmu sér afskaplega vel fyrir
Likud-bandalagið í kosningabarátt-
unni.
En óljóst er hvað hann ætlast fyrir.
Síðastliöinn sunnudag var haft eftir
honum í ísraplska útvarpinu að þaö
væri rangt að hann hefði ákveöið aö
segja af sér þingmennsku. ,,Eg hef
ekki uppi nein áform um að gefá eft-
ir sæti mitt í Knesset. Eg mun láta
það af hendi þegar ég er reiöubúinn
að gera það,” á hann að hafa sagt.
Dagblaðið Maariv skýrði hins veg-
ar frá því aö Begin hefði sagt ráöa-
mönnum í Likud-bandalaginu að
þeir skyldu láta sig vita með tveggja
sólarhringa fyrirvara um mikilvæg-
ar atkvæðagreiðslur í þinginu þannig
að hann gæti ákveðið hvort hann
mætti til að taka þátt í atkvæða-
greiðslunni eða léti einhverjum öðr-
umeftir þingsætið.
Margir af liðsmönnum Hemt-
flokksins hafa látið í ljósi vonir um
að Begin geti snúið sér aftur aö
stjómmálum fyrir næstu kosningar.
„Eg vildi óska að Begin hætti ekki
þátttöku í stjómmálum á þessu
stigi,” sagði Móse Katsav, aðstoðar-
húsnæðismálaráðherra. „Begin gæti
hjálpaö okkur, ekki aðeins í
kosningabaráttunni heldur einnig í
skipulagningu flokksstarfsins.”
Begin hefur ekkert vdjað láta hafa
eftir sér um síðustu atburði fyrir
utan stutt svör í gegnum síma viö
vissum spurningum ísraelskra út-
varpsstöðva.
Eftir að Begin fluttist úr sínum
opinbera bústað í desember síðast-
liðnum í þriggja herbergja íbúð í
rólegu úthverfi Jerúsalem þar sem
hann býr með dóttur sinni hefur hann
ekki sést á almannafæri.
Gluggarnir á framhlið íbúðar hans
eru alltaf lokaðir, gluggatjöld dreg-
Menachem Begin ásamt Hassiah dóttur sinni en hann býr nú með henni i algjörri
einangrun. Samherjar hans vonast þó til að Begin komi á nýjan leik fram á
sjónarsviðið og leiði þá til sigurs í komandi kosningum.
Ezer Weizman meðan hann gegndi embætti varnarmálaráðherra. Hann er enn í fullu fjöri og strákslegt aðdráttar-
afl hans kann að setja strik í reikning stóru flokkanna í kosningabaráttunni.
enn til að bera fyrri baráttuanda og
hið strákslega aödráttarafl sitt sem
sagt er að hafi haft mikil áhrif á
Anwar Sadat Egyptalandsforseta á
sínum tíma og átt sinn þátt í aö
Camp David samkomulagiö varð að
veruleika.
I meira en þrjú ár hefur Weizman
haldið sig utan við hiö pólitíska sviðs-
ljós eftir að hann sagði skiliö við
Herut-flokkinn, flokk Menachems
Begins.
Það er of snemmt að spá hverjir
möguleikar Weizmans og flokks
hans eru. Heimildir innan Verka-
mannaflokksins greina aö þar í
flokki óttist menn að Weizman sé
meiri ógn við Verkamannaflokkinn
heldur en Likud-bandalagið. Þá
skyldu menn heldur ekki gleyma því
að aöeins fjögurra prósenta sveifla
meðal ísraelskra kjósenda kann að
ráða úrslitum í kosningunum. Það
má því ljóst vera að þátttaka
Weizmans og hins nýja flokks hans
mun hafa mikil áhrif á kosningabar-
áttuna í Israel.
in fyrir og lögreglumaður er á verði
við bakhlið hússins sem snýr út að
skógi.
Ráðuneytisstjórinn Dan Meridor
hefur vikulega skýrt Begin frá gangi
mála á stjómmálasviðinu og ritari
Begins hefur einnig veitt honum upp-
lýsingar vikulega.
En hann hefur ekki hitt marga af
fyrrverandi starfsbræðrum sínum,
ekki einu sinni Haim Corfu flutninga-
málaráðherra sem býr í sömu bygg-
ingu oghann.
Dóttir nágranna hans afhenti hon-
um í síðustu viku heföbundna gjöf í
tilefni af hinni gyðinglegu Púrímhá-
tíð. Hún færði honumkökur og kex.
,,Eg fór inn í hús hans og sá hann í
fyrsta skipti,” sagði stúlkan sem
heitir Orit Shiffman og er tólf ára
gömul. „Hann lá í rúminu með
ábreiðu ofan á sér. Hann talaði dálít-
ið við okkur. . . en það var mjög
stutt,” sagði hún. „En hann leit út
alveg eins og hann gerir á mynd-
um.”
Heilsu Begins hrakaði mjög eftir að
hann missti konu sína. Hér sést hann
í hjólastól í ísraelska þinginu, Kness-
et.