Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Blaðsíða 23
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984. 23 íþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Bresk úrslit í Evrópumótunum Þaö er fariö að veöja um þaö í Lon- don aö félög frá Bretlandseyjum leiki til úrslita í öllum þremur Evrópu- keppnunum í knattspyrnu og standa veðmálin nú 59—1, að svo verði. Þá myndi Liverpool og Dundee United leika til úrslita í Evrópukeppni meist- araliöa, Manchester United og Aber- deen í Evrópukeppni bikarhafa og Tottenham og Nottingham Forest í UEFA-bikarkeppninni. Liverpool á góöa möguleika gegn Dynamo Bukarest en aftur á móti veröur róöurinn erfiöari hjá Dundee United, þar sem félagið mætir Roma frá Italíu. Italska félagið er geysilega öflugt, meö tvo Brasilíumenn sem aöalmenn, þá Falcao og Cerezo. Manchester United leikur gegn Juventus og fer fyrri leikurinn fram á Old Trafford. — Viö heföum frekar viljað leika fyrst í Torínó, þar sem okkur hefur gengið mjög vel á útivöll- um í Evrópukeppninni. Þaö heföi veriö betra aö eiga leikinn á Old Trafford til Míillersmótid í skíðagöngu: Heilu fjölskyldumar þátttakendur góða, sagöi Ron Atkinson, fram- kvæmdastjóri Manchester United. — Juventus er meö mjög sterkt lið — marga snjalla leikmenn, en það erum viö einnig. Þaö veðja flestir á Juventus en við erum þó ekki búnir að segja okkar síðasta orö, sagöi Atkin- son. Aberdeen leikur fyrst gegn Porto í Portúgal og yerða leikmenn liösins að leika betur gegn Porto á útivelli heldur en þeir hafa gert í Evrópukeppninni í vetur á útivöllum. — Við erum mjög ánægöir meö aö hafa ekki dregist gegn Anderlecht því að meö því aö leika gegn Hajduk Split í Júgóslavíu, erum við lausir viö ólæti áhangenda okkar, sagði Peter Shreev- ers, hjá Tottenham. Nottingham Forest leikur gegn Anderlecht í UEFA- keppninni. Undanúrslitaleikirnir í Evrópu- keppninni fara fram 11. og 25. apríl. •806 Hallur Páll Jónsson, forseti bæjarstjórnar, Einar Olafsson og Oli M. Lúðviksson, formaður íþrótta- og æskulýösráös Isaf jarðar. DV-mynd V J, Isafiröi. Einaríþrótta- maður ísafjarðar — sjö íþróttamenn fengusérstaka viðurkenningu f rá IBÍ Skíöagöngukappinn Einar Olafsson hefur verið útnefndur íþróttamaður ársins 1983 á tsafirði. Þetta er í annað sinn sem Einar hlýtur þetta sæmdar- heiti. Hallur Páll Jónsson, forseti bæjarstjórnar tsafjarðar, afhenti Ein- ari viðurkenninguna í miklu hófi sem haldið var á Isafiröi. Þá var tekin upp sú nýbreytni aö heiöra þá sem hiotiö hafa Islands- meistaratitla, sett Islandsmet eða ver- ið í landsliði. Iþróttabandalag Isa- fjaröar veitti sjö íþróttamönnum sér- staka viðurkenningu að þessu sinni. Það voru þau Einar Olafsson og Stella Hjaltadóttir, sem urðu Islands- meistarar í göngu, Ingólfur Arnarson, sem setti Islandsmet í 50 m bringu-' sundi, Marta Jörundsdóttir, sem setti met í 200 m baksundi, Guðmundur Jóh- annsson, sem varð Islandsmeistari í stórsvigi, og knattspyrnumennirnir Atli Einarsson og Guðmundur Magnússon sem léku með drengja- og unglingalandsliðinu i knattspyrnu. -Vj-lsafiröi. Miillersmótiö i skíðagöngu var háö við Skíðaskálann í Hveradölum á sunnudag. Mikil þátttaka í góðu veöri og færi gott. Keppt í sex flokkum og meðal keppenda var sonur L. H. Miill- ers, fyrsta formanns Skíðafélags Reykjavíkur og frumkvöðuls skíða- íþróttar hér á landi, og einnig sonar- sonar-sonur. Mikið var um að heilu f jölskyldumar tækju þátt í keppninni. Urslit í einstökum flokkum urðu þessi: Karla, 15 km 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM /u BASIC-TÖLVUM 1. Ingólfur Jónsson, SR, 47.09 2. Páll Guðbjömsson, Fram, 48.43 3. Karl Guðlaugs., Sigluf., 50.37 Öldungar, 7,5 km 1. Tryggvi Halldórsson, SR, 32.54 2. Sveinn Kristinsson, SR, 35.47 3. LeifurMiiller.SR, 44.45 Drengir 14 ára, 2,5 km. 1. EinarKristjánsson, SR, 12.02 2. Þórir Olafsson, SR, 12.57 Drengir yngri en 14 ára 1. Sveinn Andrésson, SR, 19.48 2. Orri Gíslason, SR, 40.45 Konur, 4,5 km 1. Guðbj. Haraldsdóttir, SR, 18.08 2. Sigurbj. Helgadóttir, SR, 21.50 Konur 45 ára og eldri 1. Svanhildur Arnadóttir, SR, 18.50 2. Helga Sigtryggsdóttir, SR, 22.49 3. Helga Ivarsdóttir, SR, 23.15 4. Pálína Guölaugsdóttir, SR, 24.19 -hsím. im að undanförnu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.