Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1984, Side 8
8
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984.
Utlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Gyöingaleið-
togar ánægöir
með undir-
tektimar hjá
He/mut Kohl
Edgar Bronfman og Israel Singer,
leiötogar heimsráösgyðinga, vottuöu
fórnarlömbum nasista í útrýming-
arbúöum nasista í Dachau viröingu
sína í fyrradag eftir heimsókn til Bonn
þar sem þeir ræddu viö Helmut Kohl,
kanslara Vestur-Þýskalands.
Bronfman, sem er forseti heims-
ráösins, ræddi viö Kohl í fyrradag og
snerust umræöur þeirra einkum um
möguleikann á að Vestur-Þjóöverjar
selji vopn til Saudi-Arabíu, aö því er
sagöi í yfirlýsingu frá samtökum gyö-
inga í Vestur-Þýskalandi.
Haft var eftir Bronfman aö hann
væri mjög ánægöur með viðræðurnar
viö Kohl og væri þess fullviss aö ráöa-
menn í Bonn væru nú dyggustu stuön-
ingsmenn Israels innan Efnahags-
bandalags Evrópu.
I yfirlýsingunni sagöi að Kohl heföi
lýst því yfir að engin ákvörðun heföi
verið tekin um sölu á vopnum til Saudi-
Arabíu og aöeina heföi veriö rætt um
varnarvopn í því sambandi.
Bronfman mun hafa ítrekaö þá
skoðun gyöinga að vegna þeirrar sér-
stöku ábyrgðar sem Þjóöverjar bæru
gagnvart Israel ættu þeir ekki undir
neinum kringumstæöum að selja vopn
til Miðausturlanda.
Þannig hugsar teiknarinn sér Karen Ann Quinlan á sjúkrabeöi hennar, tengda hjálparvélum, á meöan hún var látin
njóta þeirra.
Karen Ann Quinlan
þrítugí dag og enn
í dauöamóki
Brasilía:
Rigning eftir
5 ára þurrk
Nú er tekið aö rigna í fyrsta skipti í
meira en fimm ár í norðausturhlutum
Brasilíu og þar meö hefur endi veriö
bundinn á þann þurrk sem hefur komið
milljónum bænda í landinu á vonarvöl.
I skýrslu Sameinuðu þjóöanna um
ástandið á þessu svæði kemur fram aö
69 prósent bama á svæöinu eru and-
lega eða líkamlega sjúk auk þess sem
fjóröungur barna lætur lífiö innan eins
árs aldurs. Þetta er versti þurrkur í
landinu frá því aö skráningar veöur-
farshófustál7. öld.
Nú hefur veðurstofa Brasilíu spáð
rigningu á þessum slóöum næstu þrjá
mánuði.
Sjónvarpsmyndir frá þessum
svæöum frá því gær sýndu hljæjandi
börn aö leik i rigningunni enda hafa
mörg þeirra veriö aö kynnast rigningu
ífyrstasinn.
Fjölskylda og nánustu vinir Karen
Ann Quinlan safnast við sjúkrabeö
hennar í dag þar sem efnt veröur til
guðþjónustu en hún á þrítugsafmæli í
dag.
Karen Ann hefur legiö í dái síðan í
apríl 1975 þegar hún í samsæti tók
áfengi, aspírín og róandi lyf.
Mál hennar komst í heimsfréttim-
ar þegar foreldrar hennar sóttu allt
til hæstaréttar staöfestingar á um-
boði þeirra til þess að fyrirskipa
læknum að taka úr sambandi öndun-
arvél sem treindi lífið í dóttur þeirra.
Læknar höföu áöur úrskurðaö aö
Karen Ann gæti aldrei komist til
heilsu aftur.
Atta árum eftir aö öndunarvélin
var tekin úr sambandi dregur Karen
Ann enn fram lífið og líöan hennar
óbreytt.
Quinlan-máliö vakti miklar um-
ræður um réttmæti þess aö halda viö
lífsneistanum í sjúklingum sem
lægju nær dauða enn lífi í dauöadái
og ættu sér einskis bata von. Meö
tækninni, öndunarvélum, hjartavél-
um og fleiru má láta líkama þeirra
starfa áfram.
20 féllu í fangelsisuppreisn
Foreldrar Karen Ann með bók sem
skrifuð var um mál þeirra.
Dómsmálaráöherra Perú hefur lýst
því yfir að hann muni segja af sér eftir
fangelsisuppreisnina þar sem 20
manns létu lífið og 35 særðust.
Uppreisnin var í E1 Sexto —
fangelsinu, þar sem fangavörður, lög-
regluþjónn og átján fangar féllu.
Nitjándi fanginn andaöist á sjúkra-
húsi af völdum sára sem hann hlaut í
átökunum í fangelsinu.
Flestir þessara átján fanga höfðu
engan þátt tekið í fangelsisuppreisn-
inni en féilu þegar lögreglan geröi
áhlaup á fangelsiö til þess að endur-
heimta það úr höndum fanganna sem
höföu á sínu valdi fimmtán gísla.
Jafntefli 18. einvígisskákinni í Vilnius í gær:
Kasparov þokast nær sigri
Enn varö jafntefli í áskorendaein-
vígi þeirra félaga Kasparovs og
Smyslovs í Vilnius í Litháen í gær.
Áttunda skákin var þó mun tilþrifa-
meiri en fyrirrennari hennar, sem
aöeins stóö yfir í 14 leiki og tæpa
klukkustund. Kasparov tefldi
Tarrasch-vörnina meö svörtu
mönnunum og hristi nýjung fram úr
erminni í 13. leik, sem varö til þess
aö Smyslov hugsaöi sig um í 27
mínútur áöur en hann svaraöi.
Leikur Kasparovs var enda
óvenjulegur — lék biskupi sínum,
sem fór til e6 í leiknum áður, áfram
til g4. Þar með braut hann þá megin-
reglu aö leika ekki sama manninum
oftar en einu sinni í byrjuninni en
þessum lengra komnu leyfist víst
allt.
Skákin varö snemma flókin og ein-
kenndist af þungri undiröldu.
Biskupar Smyslovs biöu í launsátri
bak viö peöakeöjuna og stefndu aö
stöku peði Kasparovs á miöborðinu.
Hins vegar hafði Kasparov virka
stöðu og tókst aö skapa sér sóknar-
færi. Smyslov varö að veikja peöa-
stöðu sína á drottningarvæng og
möguleikarnir virtust vega nokkuð
jafnt. Þá bauð Kasparov jafntefli,
sem Smyslov þáöi eftir nokkra
umhugsun.
Staöan í einvíginu er þá 5—3
Kasparov í vil. Ef dæma má af síð-
ustu skákum viröist hann gera sig
ánægöan meö sitt tveggja vinninga
forskot. Hann teflir varfærnislega og
ber greinilega fulla viröingu fyrir
andstæðingnum.
Hvítt: Vassily Smyslov
Svart: Garrí Kasparov
Tarrasch-vörn.
1. d4 d5 2. Rf3 c5 3. c4
Athyglisveröur möguleiki er hér 3.
dxc5 og beina skákinni yfir í farveg
móttekins drottningarbragös, meö
skiptum litum, þar sem hvítur hefur
leiktilgóöa.
3. —e6 4. cxd5 exd5 5. g3 Rf6 6. Bg2
Be7 7. 0—0 0—0 8. Rc3 Rc6 9. Bg5
cxd4 10. Rxd4 h6 11. Be3 He8 12. a3
Be613. Khl
Þessi óvenjulegi kóngsleikur sá
fyrst dagsins ljós í 2. skákinni. Þá lék
Kasparov 13. —Dd7 en eftir 14. Rxe6
fxe6 15. f4 náði Smyslov að því er
virtist þægilegrí stöðu. Kasparov
hefur ekki hug á aö endurtaka þessa
leiki og velur nú nýtt framhald, sem
hann hefur án efa undirbúið vand-
lega.
abcdefgh
13. —Bg4!?
Þaö er eftirtektarvert að Kaspar-
ov skuli telja biskupinn betur staö-
settan á g4 eftir aö Smyslov hefur
vikiö kóngnum í horniö — auðvitað
gat hann leikiö 12. —Bg4 í leiknum
áöur og hefur þá „grætt” leik. En
með þessu hindrar hann áform hvíts
um að drepa biskupinn með riddar-
anum. I ýmsum afbrigðum er
kóngurinn einnig lakari í hominu
heldur en á gl. Einkum ef hvítur ger-
ir áhlaup meö peöum sínum kóngs-
megin.
14. f3
Hann hugsaöi sig lengi um. Eftir
14. h3 Bh5 15. g4 kemur jafnvel til
greina að fórna: 15. —Bxg4!? 16.
hxg4 Rxg4 og nú er kóngurinn illa
settur á hl. Hins vegar er öruggara
að hörfa meö 15. —Bg6, því ekki er aö
sjá aö hvítur hafi fengið einhverju
framgengt með því að veikja kóngs-
stööuna.
14. —Bh5 15. Bgl Dd7 16. Da4 Bc5 17.
Hadl Bb618. Hfel Bg6
Svartur hefur komið ár sinni vel
fyrir borö og hefur frjálsa stööu í
skiptum fyrir staka peðið á d5.
Smyslov er heldur ekki án veikleika,
því aö 14. leikur hans kippti stoðun-
um undan e-peðinu, sem nú er bak-
stætt. Skákskýrendur í Vilnius voru á
einu máli um aö erfitt væri aö meta
þessa stööu.
19. Db5 Had8 20. e3
Meöferö Smyslovs á biskupum
sínum er allt aö því kómísk. En hann
bíður færist á að leika öðru hvoru
peöanna lengra fram og opna línur.
20. —Dd6 21. Rce2 Re5 22. Db3 Ba5
23. Rc3 Rd3 24. He2 Rc5 25. Da2 Bxc3
Rökrétt framhald af taflmennsku
svarts. Þessi biskup er svörtum þó
að öðru jöfnu mjög kær, því að hann
valdar reitina kringum staka peðið. I
staðinn nær hann aö veikja peða-
stööu hvíts á drottningarvæng og ná
mótfærum.
26. bxc3 Da6 27. Hed2 Ra4
ab'^tdefgh
Um leið og Kasparov lék bauð
hann jafntefli, sem Smyslov þáði.
Staða Kasparovs er virk og lítur vel
út en hann kýs að taka enga áhættu
ef svo kynni að fara að lifnaði yfir
hvítu biskupunum. Hvítur valdar c-
peðið auðveldlega með 28. Db3 Hc8
29. Hcl og nái hann að leika Bg2—fl
og síðan c3—c4 gæti hann e.t.v. náð
frumkvæðinu. Tími: Smyslov 2 klst
og 5 mínútur, Kasparov: 1 klst og 50
mínútur.
JLA.
Útlönd
DV. FIMMTUDAGUR 29. MARS1984.
Útlönd
Morðsveit-
imar ólm-
arútaf
kosningum
Morðsveit hægri-öfgamanna segist
muni elta uppi og hegna þeim er
ábyrgö bera á ringulreiðinni sem setti
forsetakosningamar í E1 Salvador úr
skorðum á sunnudaginn.
Leynilegi „and-kommúnistíski her-
inn” (ESA)sakaryfirkjörstjórnumað
hafa leikið eftir nótum konnúnista og
skorar á stjómarher landsins að
tryggja almennilegan framgang kosn-
inganna.
ESA kunngerði um leið í gær aö
samtökin hefðu tekið fanga „einn
hryðjuverkamann”, yfirheyrt hann og
tekið af lifi. Líkinu var varpað inn í
auömannahverfi í San Benito.
Kvíða menn því að ýfingar eigi eftir
aö magnast milli hófsamari og öfga-
meiri hægrimanna i kjölfar kosning-
anna á sunnudaginn, þar sem hinir hóf-
samari kristilegu demókratar virðast
hafa borið sigurorö af öfgaöflunum
með nokkrum mun. Talningu er þó
ekki enn lokið.
Af talningunni hefur samt frést að
Duarte, frambjóðandi kristilegra
demókrata, hafi ekki náð hreinum
meirihluta og í úrslitaumferð kosning-
anna verði kosið milli hans og
D’Aubuisson, frambjóðanda róttækra
hægrimanna, sem mjög hefur verið
orðaður við morðsveitirnar.
Nokkur fórnardýr morðsveita hægri öfgaaflanna í E1 Salvador, sem hafa í
borgarastríöinu í landinu skilið eftir sig hroöalega blóðslóö.
Ólympíueldur-
inn borinn 14
þúsund km
um Bandaríkin
Olympíueldurinn verður borin í
gegnum 33 ríki og 41 borg á 14 þúsund
km langri leið yfir Bandaríkin til
sumarólympíuleikanna í Los Angeles.
Ferðalagið mun taka 82 daga frá New
York (þann 8. maí) eftir austurströnd-
inni í gegnum miðvesturrikin og til
vesturstrandarinnar.
„Yfir fjöll, gegnum eyðimerkur,
yfir ár og meðfram hafinu verður
kyndillinn borinn,” sagði Joel Fish-
man, einn af þeim, sem vinnur að
undirbúningi ólympíuleikanna í Los
Angeles.
Grikkir hafa látiö sér sáma að
undirbúningsaöilar höfðu ráögert að
gera sér hinn helga ólympíueld að fé
þúfu með því aö bjóða fyrirtækjum að
kaupa sér auglýsingu til að merkja
kyndilberana. Var sæst á að hætta viö
það en síðan hefur verið ákveöið að öll-
um sé frjálst að „styrkja” kyndilber-
ana. Lágmarksstyrkur er 3 þúsund
dollara fyrir km-langan spöl.
Styrkirnir eiga að renna beint til
yngri deilda íþróttahreyfingarinnar.
Dauðaslys
á Mount Everest
Nepalskur burðarmaður lést og
f jórir félagar hans slösuðust alvar-
lega við rætur Mount Everest í
fyrsta alvarlega slysinu í Mount
Everest, aö því er ferðamálaráðu-
neyti Nepals skýrði f rá í gær.
Talsmaöur ráðuneytisins sagði
aö buröarmennirnir hefðu veriö aö
bera birgðir fyrir indverskan fjall-
gönguleiðangur er hugðist klífa
þetta hæsta fjall heimsins er snjó-
skriöa féll á þá með fyrrgreindum
afleiðingum.
f*r ry >»»>>> i
• '*****■'->'• ti*
$&%?*******•VÍKi
; ...
...._ 4
Vor- og sumarpeysurnar komnar.
Fást í verslunum og kaupfélögum um alll
land< einnig í verslun okkar. Skerjabraul
1 Seltjarnarnesi.
Opi-d kl. .9—12 og 1—6 niánudaga—föslu-
daga. kl. IO—12 laugardaga.
50 ára
og
aldrei yngri
> _|_ PRJÓNASTOFAN
Uduntu
HF
PEDIMAN
hand- og fótsnyrtitækið frá
Sviss er góður gripur sem
ætti að vera til á hverju
heimili. Fyrirmyndargjöf við
öll tækifæri.
1 ÁRS ÁBYRGÐ
Eigum einnig malarfótboltaskó úr úrvalsleðri.
BORGARFELL HF.
SIM111372.
Fermingargjafír
SEM ERU SJÁLFSAGÐAR OG TILVALDAR:
BR0THER skóla- og ferðaritvél. Hefur segmentskiptingu, sjálfvirka vagn-
660 TR-C ^ærs^u áfram, lausan dálkstilli og auk þess leiðréttingarlykil. Er
eina handvélin hér sem hefur þann útbúnað.
2 ÁRA ÁBYRGÐ